Morgunblaðið - 06.09.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 06.09.2002, Síða 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sveinn IngimarSkaftason fædd- ist á Ytri-Mælifellsá í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði 14. des- ember 1931. Hann lést á heimili sínu 30. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Skafti Magnússon, verkamaður, Sauðár- króki, f. 17. ágúst 1902, d. 14. október 1982, og kona hans Anna Sveinsdóttir húsmóðir, f. 18. ágúst 1914, d. 18. ágúst 1953. Sveinn átti þrjú systkini, þau Björgvin, f. 1929, d. 1958, Krist- ínu, f. 1935, og Svanhildi, f. 1941. Hinn 17. júní 1961 kvæntist Sveinn Elísabetu Hannesdóttur, f. 3. september 1937. Foreldrar hennar voru hjónin Hannes Hún- fjörð Sigurjónsson húsgagna- bólstrari í Hafnarfirði og Ingveld- ur Fjeldsted Ólafsdóttir húsmóðir. Sveinn og Elísabet byrjuðu bú- skap sinn í Hafnarfirði en fluttu árið 1966 í Kópavog. Þau eignuð- ust fjögur börn. Þau eru: 1) Anna Björg, f. 1961, maki Ingólfur Sigmundsson. Börn þeirra eru Brynja, Daði og Andri Sveinn. 2) Ingveldur, f. 1966, maki Helgi Guðmundsson. Börn þeirra eru Elvar, Karen Elísabet og Gylfi. 3) Þóra, f. 1967, maki Guð- mundur Rúnar Jóns- son. Börn þeirra eru Atli Freyr, Eydís María og Jón Björg- vin. 4) Sveinn Ingimar, f. 1968, unnusta Linda Margrét Arnar- dóttir. Sveinn starfaði við margt á sín- um yngri árum, vann verslunar- störf, keyrði vörubíl, vann við járnabindingar en lengstan hluta ævi sinnar var hann í eigin rekstri sem jarðvinnuverktaki og í bygg- ingarframkvæmdum. Útför Sveins fer fram frá Digra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi, þú varst kletturinn minn, styrk þínum fá engin orð lýst. Við vorum náin, náðum svo vel sam- an, töluðumst við á hverjum degi og ósjaldan oftar en einu sinni á dag. Einhvern veginn hef ég aldrei getað séð fyrir mér hvernig hægt sé að vera án þín og allra síst núna. Þetta er svo erfitt. Við vorum öll búin að vera svo smeyk um þig í allt sumar en eftir stóru aðgerðina gekk allt svo vel. Þú varst kominn heim rétt viku eftir að- gerðina og staðráðinn í að koma þér í gang svo þú gætir klárað verkefnið sem þú varst með og farinn að spá og reikna tölur í næsta. Þetta lýsti þér alveg, þú leist alltaf björtum augum á allt og aldrei kom neitt annað til greina en að hlutir gengu vel, eða „þangað til annað kemur í ljós“ eins og þú sagðir. Fyrir nokkrum vikum spurðir þú mig eins og svo oft áður um lottótölurnar til að athuga hvort þú hefðir unnið. Ég spurði þig af hverju þú keyptir alltaf lottómiða, hvort þú vissir ekki að meiri mögu- leiki væri á því að verða fyrir eldingu en að vinna í lottói. Þá leist þú á mig og svaraðir: „Þóra mín, maður verður alltaf að gefa lukkunni tækifæri.“ Með þessu hugarfari fórst þú í að- gerðina og gerðir aldrei ráð fyrir öðru en að allt gengi vel. Þú yrðir nýr mað- ur, gætir farið að vinna aftur og jafn- vel farið í veiðiferð næsta sumar með elsta stráknum mínum en hann ætlar að verða veiðiáhugamaður eins og þú og beið í allt sumar eftir að geta farið að veiða með þér. Daginn áður en þú fórst kom ég í heimsókn til ykkar mömmu. Þú tókst á móti mér brosandi og svo ánægður og flottur í fínni skyrtu og sparilegur. Þú hafðir verið að koma frá verkfundi og varst að vinna í blaðadraslinu eins og þú kallaðir bókhaldið alltaf. Þarna varstu svo ánægður og þér leið svo vel, kominn í gang eins og þú ætlaðir alltaf. Þeir á verkfundinum voru hissa á að sjá þig svona stuttu eftir aðgerð og sögðu að þú tækir þér eins langt frí eftir svona stóra aðgerð og aðrir tækju sér í flensu. Mamma saknar þín óskaplega mikið og við reynum eins og við getum að hjálpa henni, annars varst þú langbestur í því. Ef ég hef fengið þó ekki væri nema pínu- lítið af styrk þínum og lífssýn hlýt ég að geta þetta. Börnin mín sakna þín óstjórnlega mikið og þetta er mikið erfitt hjá þeim. Þau voru svo mikið hjá ykkur og þú alltaf í sambandi við þau. Elsku pabbi, takk fyrir allt og allt. Ef til er besti staður annars stað- ar ert þú örugglega þar. Það varst þú, pabbi minn sem varst „besturinn“. Þóra og fjölskylda. Sveinn Skaftason tengdafaðir minn er látinn. Ég minnist hans með hlýju og söknuði. Ég kynntist Sveini fyrir nærri 17 árum þegar leiðir okkar Önnu dóttur hans lágu saman og hans fjölskylda varð mín. Sveinn og Elsa tóku mér strax opnum örmum og var ávallt gott að koma í heimsókn til þeirra, fyrst á Nýbýlaveginn og svo á Þing- hólsbrautina. Það fyrsta sem ég tók eftir í fari hans voru skemmtileg tilsvör, gleði og léttleiki. Fljótlega lærðist mér þó að á bak við léttleikann og húmorinn var ávallt einhver meining en Sveinn hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Sem dæmi um skemtilegan leik að orðum þá talaði hann oft um tréspýtu og mér sem alinn var upp af trésmið fannst það mjög fyndið að taka það sérstaklega fram að spýta væri úr tré. Sveinn vildi ávallt að hlutirnir gengju hratt og örugglega fyrir sig. Í gegnum árin aðstoðaði ég hann lítils- háttar við að útbúa reikninga vegna vinnu sinnar. Þetta var gjarnan unnið um helgar en hann var ekki í rónni fyrr en því var lokið og niðurstaða lá fyrir. Það breytti engu þó hann kæmi reikningunum ekki frá sér fyrr en eft- ir helgi og hann væri einnig búinn að handreikna allt sjálfur og vissi ná- kvæmlega hvað átti að koma út. Sveinn var mikill fjölskyldumaður og átti mjög sterk ítök í börnunum sínum. Í fyrstu fannst mér hans sæti vera ansi stórt í hjarta konu minnar og varla pláss fyrir mig þar líka. Þetta voru að sjálfsögðu óþarfa áhyggjur hjá mér og hefur verið notalegt að vita af honum við hliðina á mér og deila þessu sæti með honum. Barnabörnin fengu veglegan sess hjá honum en Sveinn var mikill afi. Margar minningar koma upp í hug- ann þar sem hann sat með eitthvert þeirra í fanginu eða þar sem hann var í eldhúsinu að finna eitthvað til að gefa þeim að borða. Hændust börnin mjög að honum og koma til með að sakna hans sárt. En missir Elsu er mestur. Elsku Elsa, Anna, Inga, Þóra og Svenni, tengdabörn og öll afabörnin. Megi guð gefa okkur styrk því mikill vinur og foringi er fallinn frá. En gleymið því ekki að hann fylgist með okkur áfram og hann á eftir að gefa okkur áfram góðu ráðin sín þó það verði með öðrum hætti en áður. Ingólfur Sigmundsson. Sveinn mágur minn var enginn meðalmaður í neinu því sem hann tók sér fyrir hendur. Allt var gert af krafti og áhuga og með þeirri glað- værð sem einkenndi hann alla tíð. Hann var greindur og einstaklega orðheppinn og skemmtilegur. Hann hafði unun af því að fara með og hlusta á skemmtilegar sögur og lausavísur og hann kunni ógrynni af hvoru tveggja. Greiðasemi var honum í blóð borin og öllu kvabbi okkar hjóna í gegnum tíðina tók hann sem sjálfsögðum hlut og leysti úr eins og best varð á kosið. Ég kynntist Svenna þegar við Svanhildur, litla systir hans, fórum að draga okkur saman og þau kynni urðu fljótt að einlægri vináttu sem aldrei hefur borið skugga á. Að sjálf- sögðu kynntist ég best þeirri hlið Svenna sem sneri að fjölskyldunni, en ég var líka svo heppinn að vinna með honum í nokkrar vikur og fá að kynn- ast honum á þeim vettvangi. Það var við hitaveituframkvæmdir í austurbæ Kópavogs. Það var lærdómsríkt og skemmtilegt að vinna með honum. Krafturinn og verklagnin voru ein- stök. Þetta var erfið vinna á köflum, en alltaf var Svenni þar sem átökin voru mest og smitaði mannskapinn með áhuga sínum og starfsgleði. Og alltaf var stutt í gamanyrðin. Einn eiginleiki Svenna var að velta sér ekki upp úr því þótt smá mistök yrðu við verkið eða reyna að finna sökudólg. Það var bara drifið í því að finna út hvernig mætti lagfæra það sem aflaga fór og síðan var haldið áfram eins og ekkert hefði ískorist. Eins og allir sem komnir eru á þennan aldur hafði Svenni orðið fyrir ýmsum áföllum í lífinu, en hann tók þeim af karlmennsku og æðruleysi og var alltaf sannfærður um að hlutirnir myndu snúast til betri vegar. Þannig var það líka þegar við hittumst á ár- legu fjölskyldumóti á Kópavogs- brautinni tveimur dögum áður en hann gekkst undir erfiða hjartaað- gerð. Hann lét engan bilbug á sér finna og var eins og endranær hrókur alls fagnaðar. Hann var ekki þeirrar gerðar að láta mótlætið buga sig. Sveinn mágur minn var umfram allt mikill fjölskyldumaður og fylgdist vel með öllu sínu fólki. Best leið hon- um þegar allir krakkarnir hans, börn, tengdabörn og barnabörn, voru í heimsókn hjá þeim Elsu og allt húsið iðaði af lífi og fjöri. Um leið og ég þakka samleið og vináttu í nær fjóra áratugi sendi ég þér, kæra Elsa, og öllu fólkinu ykkar innilegar samúðarkveðjur. Megi allar góðar vættir styðja ykkur og styrkja. Gautur Gunnarsson. Nei, sæl frænka! sagði Svenni frændi gjarnan þegar við hittumst. Þetta var hlý kveðja og okkur systr- um fannst alltaf gott að hitta hann, hvort sem það var á förnum vegi eða í fjölskylduboðum. Og það sem meira var hann lét okkur finna að honum þætti gott að sjá okkur – og það var góð tilfinning. Svenni frændi hefur verið einn af föstu punktunum í tilverunni frá því að við munum eftir okkur. Hann hafði þann eiginleika að tala við börn eins og jafningja sína og hafði gaman af að rökræða við þau um alla heima og geima og má í því sambandi nefna rökræður við litla frænku fyrir margt löngu um það hvort hún væri viss um að þau tvö gætu alls ekki verið vin- konur!! Litla frænka stóð föst á sínu og reyndi að útskýra hvernig á þessu stæði og hefur hann örugglega haft gaman af – enda var hann mikill húm- oristi og átti auðvelt með að sjá skemmtilegu hliðarnar á mönnum og málefnum. Það var alltaf gott að heimsækja Svenna og Elsu en það verður þó að segjast að heimsóknirnar á Víði- grundina voru sérstaklega spennandi því kjallarinn þar var heill heimur út af fyrir sig og mikið gósenland fyrir börn á öllum aldri. Þar mátti finna ýmiss konar gersemar sem voru vandfundnar annars staðar – allt frá borðtennisborði yfir í myndbands- tæki, vel að merkja á tímum þar sem slík tæki voru afskaplega fátíð. Örlæti var frænda okkar í blóð bor- ið og það var ósjaldan sem hann gladdi fólkið sitt með góðum og óvæntum gjöfum, það var t.d. honum líkt að koma færandi hendi með þorrabakka á þorranum með tilheyr- andi guðaveigum eða óvæntan glaðn- ing á afmælum. En hann var líka maður sem hægt var að leita ráða hjá með flesta hluti og það var gott að eiga hann að ef eitthvað bjátaði á. Eitt af síðustu skiptunum sem við hittum Svenna var á afmælisdegi mömmu núna í ágúst og þykir okkur sérstaklega vænt um að þau hjónin skyldu kíkja, með engum fyrirvara. Þar lék hann á als oddi eins og hans var von og vísa, þótt hann ætti stóra aðgerð fyrir höndum nokkrum dög- um seinna, enda var hann ekki mikið fyrir að barma sér hann frændi okk- ar. Elsku Elsa, Anna, Inga, Þóra, Svenni og fjölskyldur, minningin um góðan mann mun lifa. Vala og Sigrún. Máltæki eitt hefur það að inntaki að vini sína velji maður sjálfur en sitji uppi með fjölskyldumeðlimi. Eftir því að dæma má maður teljast heppinn ef maður eignast fjölskyldu, þar sem vináttubönd eru bundin í kross við fjölskylduböndin. Móðurbróðir minn Sveinn Skaftason var nefnilega líka vinur minn og þar var ég sannarlega heppinn. Ég man fyrst eftir honum að koma í Skeiðháholt þegar ég var lítill snáði og mér fannst hann ógurlegur töffari. Það var yfir honum þessi stíll, sem alltaf fylgdi honum. Það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af þessu sjaldgæfa alefli sem mér hefur alltaf fundist eitthvað heillandi við. Þessu alefli kynntist ég svo betur, þegar ég sautján ára gamall, fór að vinna hjá honum við hitaveitulagnir, í stans- lausu puði og hamagangi, sem alltaf var kryddað með skemmtisögum og gríni. Þá, smám saman fór hann að taka mig upp að hlið sér, sem sam- verkamann og jafningja og hafi ég einhvern tíma verið stoltur, þá var það þegar hann setti mig á Blazerinn í útréttingarnar, þegar hann forfallað- ist til vinnu um nokkurra daga skeið, eða þegar ég var valinn á nýju gröf- una. Þá sló nú aldeilis stolt hjarta í ungum frænda. Eftir langan vinnudag fór ég oft heim með honum í kvöldmat til Elsu og krakkanna og þar var nú aldeilis fjör og hlegið svo undir tók í húsinu. Við höfðum svolítið svipað skop- skyn held ég við Svenni og eftir að ég hætti að vinna hjá honum og fór að sinna mínu, höfum við, í gegnum árin verið að rifja upp sögur og mannlýs- ingar af samferðamönnum og notið þess í ríkum mæli að sjá sjónarhorn hins. Það lýsir ef til vill persónuleika Sveins frænda míns nokkuð vel að þegar við vorum að vinna saman og helgin var að nálgast og ég farinn að hafa áhuga á einhverju öðru en puða í hitaveituskurðum, þá átti hann til að stinga upp á einhverju verkefninu. Stundum fannst mér það vera verk, sem að skaðlausu gæti beðið þangað til eftir helgi, en hann vildi drífa það bara af. „Þá er það frá,“ sagði hann og það segir töluvert um manngerðina. Drífa bara af það sem þurfti að gera hvort sem er. Og nú er komið að óhjákvæmilegri kveðjustund. Þegar ég heimsótti þau á Þinghólsbrautina í sumar Svenna og Elsu sá ég málverk, mynd af af manni, sem stendur á skipi og horfir til lands. Það er bara baksvipurinn sem sést. Þar er herðabreiður maður með hrokkið og strítt hár og sterklegt og breitt bak og horfir til lands. Elsa fann þessa mynd einhversstaðar í út- löndum, en það sjá allir strax að hún er af Svenna. Mér fannst þá að hann væri að horfa til baka, en nú finnst mér eins og hann muni vera að horfa fram á við. Hann var hvort sem er aldrei mikið fyrir að horfa til baka. Lifði í núinu og næstu framtíð. Margbreytilegu og litríku verkefni er lokið og ég get ímyndað mér að hann myndi afgreiða það með setn- ingunni sinni: „Það er þá frá.“ Jón Bjarnason. SVEINN SKAFTASON 1          4:+434% ?   "      )  9   5 . )# ="'       !     *  &$ &) - 4-- 5 & ,  9,,!))  9,     '  9,  . 2 -!,!))   9,  9, > F)5 2 " ,!))  . .2  . . .2 *  5  &     '3670238 9722:738 !          !   ;-- 2 ! '% & "'*         < 4%:%3< %  )  9  % )' 8   !    &     2    &       < 4--  )' . ,,!))  -!-. -!< -!* ' #   3 +%*3 +   . )AH $ & / 0 ! "      =      ; //- =# "!  &    ,!)) *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.