Morgunblaðið - 06.09.2002, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.09.2002, Qupperneq 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 13 Upp með hamarinn! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 18 69 2 0 9/ 20 02 Allt að 30% afsláttur Af pallaefni 20% afsláttur Bangkirai harðviðar pallaefni 30% afsláttur Grindverk 25% afsláttur Verð áður: 5.950 kr. 4.460 kr. Garðborð ósamsett 25% afsláttur Verð áður: 9980 kr. 7485 kr. Skjólveggur 25% afsláttur Verð áður: 13.950 kr. 10.462 kr. Skjólveggur 25% afsláttur Verð áður: 10.450 kr. 7.837 kr. Allir skjólveggir á tilboði byggingin 2.300 fermetrar að stærð. Björn segir að þegar allir þessir aðilar verði komnir undir eitt þak verði komin eins konar miðstöð fyrir neyðaraðstoð í landinu. „Ég held að það verði til góðs því þá eru menn að starfa hér stutt frá hvorum öðrum ef eitthvað kemur upp á.“ Það var teiknistofan Arkþing sem sá um hönnun viðbygging- arinnar en Keflavíkurverktakar hafa framkvæmdina með höndum. Hljóðar samningur við þá upp á tæpar 329 milljónir króna en til viðbótar kemur hönnunarkostn- aður. Að sögn Björns má því áætla að kostnaður við bygginguna geti skriðið yfir 400 milljónir króna þegar upp er staðið. Morgunblaðið/Júlíus FYRIRKOMULAG búnings- og sturtuklefa í Sundhöll Reykjavíkur er einstakt að sögn Magnúsar Skúlasonar, framkvæmdastjóra húsafriðunarnefndar ríkisins. Sam- þykkt borgarráðs í vikunni felur í sér að þessi rými auk sundlaugar- innar sjálfrar og ytra byrðis húss- ins verði friðuð. Morgunblaðið greindi í gær frá ósk húsafriðunarnefndar um friðun ytra byrðis Sundhallar Reykjavík- ur, svo og laugar, búningsklefa og sturta og samþykkt borgarráðs um að friða ytra byrðið. Að sögn Eiríks S. Svavarssonar, lögmanns hjá embætti borgarlögmanns, náði samþykktin einnig til annarra hluta sem óskað var eftir friðun á. Hann hefði hins vegar í umsögn sinni mælt með að rætt yrði nánar um friðun á hluta innréttinga hússins. „Rökin voru einkum þau að þarna væri ennþá nútímastarfsemi og að friðun myndi ekki hindra möguleika á einhverjum breytingum þar,“ seg- ir hann en bendir á að niðurstaða borgarráðsmanna hafi verið önnur. Gætu komið upp kröfur um breytingar Sundhöll Reykjavíkur er frá árinu 1929 en Guðjón Samúelsson hannaði bygginguna. Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri húsa- friðunarnefndar ríksins, segir húsið ákaflega merkilegt byggingalistar- lega séð. „Þetta er glæsilegt hús og einstakt í sinni röð þannig að það hefur varðveislugildi frá ýmsum sjónarmiðum, bæði sem fágæti, vegna byggingarlistarinnar og notkunar hússins. Þannig að það má segja að þetta sameinist í ýmsu.“ Hefur verið óbreytt frá upphafi Hann segir sérstaka ástæðu hafa verið til að friða hluta innréttinga hússins. „Það er þetta fyrirkomulag klefa sem er alveg einstakt og hefur haldist frá upphafi. Þá er ekki búið að róta mikið í sturtunum þannig að sturtuklefarnir sjálfir eru á sínum stað og svo er laugin eins og hún er.“ Magnús bendir á að friðun þurfi ekki að þýða að ekki megi breyta neinu af því sem friðað er heldur þurfi samþykki húsafriðunarnefnd- ar til. „Það gætu náttúrlega komið upp kröfur um að breyta lauginni og láta fljóta út úr henni eins og er tíska. En það þarf þá bara að taka á því.“ Sturtur, klefar og sundlaugin friðuð Miðborg Morgunblaðið/Þorkell Guðjón Samúelsson teiknaði Sundhöllina en hún var byggð árið 1929.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.