Morgunblaðið - 06.09.2002, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 25
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
The Merry Ploughboys
spila á Dubliner föstudag
og Celtic Cross á laugardag
frá kl. 21.00 - 23.00.
Muni› Dublinarfer›ir Plúsfer›a
í október og nóvember.
...Dublin bí›ur flín
...Írarnir koma
Dettur flú í lukkupottinn?
Skilaðu inn miðanum hér að neðan
og þú gætir haft heppnina með þér.
Alls konar verðlaun í boði svo sem:
Skoðunarferð, kvöldskemmtun í
Dublin, ferðavinningar og margt
margt fleira.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími: Netfang:
h
á
tí
›
um
he
lgina
D
u
bl
ina
r-
Opi› laugardag og sunnudag
frá kl. 12-16
Fylltu út mi›ann og settu
hann í lukkupottinn á
skrifstofu Plúsfer›a
í Hli›asmára, laugardag
7. sept. og sunnudag 8. sept.
Dregi› ver›ur úr pottinum
á klukkutíma fresti.
LUKKUMI‹I!
Sértilbo›
Aukaferð til Dublinar 13. október.
Innifalið: Flug, gisting á Ormond Quay hótelinu
í 3 nætur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og
allir flugvallaskattar.
Almennt verð 34. 985 kr.
33.520 kr. staðgreitt.
LEIKFÉLAG Sólheima á sér langa
sögu, en það hefur starfað samfellt í
71 ár. Á hverju ári ræður félagið til
sín reyndan leik-
stjóra til að vinna
að uppsetningu
leikverks sem
iðulega er frum-
sýnt sumardag-
inn fyrsta í
íþrótta- og leik-
húsi Sólheima.
Í ár varð söng-
leikurinn Hárið
fyrir valinu sem
aðalleikverk en leikstjórnina ann-
aðist Edda Björgvinsdóttir. Rúm-
lega fimmtíu leikarar taka þátt í
sýningunni sem er sett upp í örlítið
styttri útgáfu sem fengið hefur
nafnið „Hárið okkar“.
Edda Björgvinsdóttir segist hafa
beðið lengi eftir því tækifæri að fá
að starfa með leikhópnum, henni
hafi áður verið boðið það, en ekki
getað samræmt það öðrum störfum
fyrr en nú. „Það má segja að ég hafi
dottið í lukkupottinn því þetta er
mjög sérstakt leikfélag sem á engan
sinn líka, ekki hér á Íslandi og ekki
marga í heiminum. Leikfélagið er
mjög öflugt og setur upp sýningu á
hverju ári þar sem fatlaðir og ófatl-
aðir starfa saman. Félagið er að
mörgu leyti spegilmynd af því
merkilega samfélagi sem þorpið
Sólheimar er. Allir taka þátt í leik-
félaginu og eru þar því allt frá ung-
börnum til gamalmenna, og fólk af
ólíkum þjóðernum, enda búa í Sól-
heimum margir útlendingar, skipti-
nemar og umhverfisáhugasamt
fólk. Í Sólheimum eru jafnframt
reknar alls kyns listsmiðjur enda er
listrænt starf sá grunnur sem sam-
félagið byggist á. Leikfélagið er
auðvitað hluti af þessu öfluga
starfi,“ segir Edda.
Hópurinn ákvað að taka fyrir
Hárið þar sem söngleikur býr yfir
sígildum friðarboðskap sem á við
nú sem aldrei fyrr. „Tónlistin er
líka stór þáttur í verkinu, og er það
tjáningarform sem hentar mjög vel
þessum hópi ólíkra einstaklinga
sem eru misfærir um að læra texta
eða fara með hann, en allir geta
sameinast í tónlistinni,“ segir Edda.
„Útsetningar eru allar mjög fag-
mannlegar, en við vorum svo hepp-
in að fá að nota tónlistina sem Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ hafði
fengið Þorvald Bjarna til að útsetja
fyrir sína uppsetningu á Hárinu í
vor.“
Fyrir sýninguna á Hárinu okkar í
Borgarleikhúsinu á morgun mun
hópurinn flytja stuttan leikþátt sem
fjallar um ævi og störf Sesselju
Hreindísar Sigmundsdóttur, stofn-
anda Sólheima. „Leikþátturinn
heitir „Í meðbyr og mótbyr“ og er
nokkurs konar mynd- og tón-
skreyttur upplestur, þar sem saga
þessarar merku konu er rakin.
„Samfélagið að Sólheimum byggði
Sesselja á kenningum Rudolph
Steiner, en hann lagði mikla
áherslu á að beita listsköpun til að
ná fram hinu besta í öllum lifandi
verum. Rauði þráðurinn í verkinu
er jafnframt sú barátta sem Sesselja
þurfti að há fyrir því að hugmyndir
hennar og uppbyggingarstarf næði
fram að ganga. Milli sýninga verður
hlé, þar sem fólk getur fengið sér
hressingu og séð síðan Hárið.“
Hárið okkar og Í meðbyr og mót-
byr voru sýnd í Sólheimum í vor og
sumar við góðar viðtökur og kom-
ust færri að en vildu. „Sú umfjöllun
sem við fengum í fjölmiðlum virðist
hafa glætt áhuga fólks á að koma til
Sólheima, sjá leikritið og upplifa
það samfélag sem þarna er. Sýning-
arnar urðu á endanum tíu og hefð-
um við eflaust getað haldið áfram í
allt sumar, og bættum við það upp
með stuttum atriðum úr Hárinu sem
flutt voru á kaffihúsi Sólheima. Mið-
ar á sýninguna í Borgarleikhúsinu
eru þegar farnir að seljast í forsölu
og vonum við að sem flestir nái að
sjá þessa einstöku sýningu sem
hefst kl. 14 á morgun,“ segir Edda
Björgvinsdóttir að lokum.
Leikfélag sem á
engan sinn líka
Leikfélag Sólheima sem sýnir Hárið okkar í Borgarleikhúsinu á morgun kl. 14.
Leikfélag Sólheima sýnir söngleikinn Hárið
okkar í Borgarleikhúsinu á morgun kl. 14.
Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Eddu
Björgvinsdóttur sem leikstýrir hópnum.
heida@mbl.is
Edda
Björgvinsdóttir