Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ er tilhlökkunarefni allra þegar
sumarleyfi nálgast, þá undirbýr fjöl-
skyldan langþráð frí þar sem allir
ætla að eiga góðar stundir saman
hvort sem tjaldinu og tilheyrandi
viðlegubúnaði er dröslað út í bíl og
ekið af stað út í óvissuna eða þá að
haldið er suður á Keflavíkurflugvöll
og fjölskyldan flýgur til framandi
landa.
Það vill nú svo til að undirritaður
er þessa dagana í „sumarfríi“ eða
öllu heldur í haustfríi sem lýkur
þann 30. september þannig að ekki
er farið mikið í útilegur á þessum
tíma. Þá er bara að skella sér til út-
landa sem er bara hið besta mál,
nema fyrir þá sem eiga börn í skóla,
jú skólarnir byrja á sama tíma og
heimilisfaðirinn eða móðirin fara í
frí eða um 23. ágúst þannig að ekki
gerir fjölskyldan mikið í sumarfrí-
inu það árið. Sama má segja um þá
sem fóru í sumarfrí í byrjun maí, þá
var frost í jörðu, skafrenningur á
heiðum, svo ekki er um að ræða
ferðalag innanlands. Nú en að skella
sér þá bara erlendis, því miður,
skólarnir eru ekki búnir fyrr en í
byrjun júní og þá er sumarfríið búið
þetta árið og þá er bara að bíða eftir
næsta fríi að ári.
Því miður er þetta staðreyndir
sem fjöldi manns þarf að búa við
vegna þess að ekki hefur verið gætt
að breyta orlofslögum og samning-
um um orlof til samræmis við breytt
skólastarf og breytta jákvæða fjöl-
skyldustefnu sem er ofarlega á
stefnskrám stjórnmálaflokkanna og
verkalýðshreyfingarinnar. Má
nefna t.d. styttingu vinnuvikunnar
og fæðingarorlof. Orlofslögin eru
frá árinu 1987 og þar segir m.a. „or-
lof samkvæmt lögum þessum skal
veitt í einu lagi á tímabilinu frá 2.
maí til 15. september“. Sumir samn-
ingar kveða á um annað, t.d. í samn-
ingi Landssambands slökkviliðs-
manna er tímabilið 15. maí til 30.
september.
Þeir stjórnmálamenn og verka-
lýðsleiðtogar sem gefa sig út fyrir
að vera fulltrúar hins vinnandi
manns ættu nú að taka höndum
saman og knýja í gegn breytingar á
lögum þessum þannig að orlof verði
tekið á tímabilinu frá 1. júní til 31.
ágúst, með því móti ættu flestir að
geta notið þess að fara í sumarfrí
með fjölskyldunni á besta tíma árs-
ins.
ÓLAFUR INGI TÓMASSON,
slökkviliðsmaður,
Fjóluhvammi 9, Hafnarfirði.
Fjölskylduvænt
sumarorlof
Frá Ólafi Inga Tómassyni:
STEFÁN Kjærnested, fram-
kvæmdastjóri Atlantsskipa, ber
sér duglega á brjóst í Morgun-
blaðinu á laugar-
dag. Hann virð-
ist stjórnlaus í
sjálfshóli og tel-
ur sig vera mikla
himnasendingu
til handa ís-
lenskri þjóð.
Fátt virðist
geta dregið úr
taumlausri gleði
Stefáns vegna
eigin ágætis. Það virðist aðeins
vera að ég og Sjómannafélag
Reykjavíkur trufli hina fullkomnu
mynd hans. Hvers vegna ætli það
sé? Jú, eftir að hafa lesið ánægju-
hjalið fer ekki á milli mála að sú af-
staða mín, og þess félags sem ég
gegni formennsku fyrir, að ekki sé
hægt að leyfa Stefáni að hafa í
sinni þjónustu skip þar sem sjó-
mennirnir sem þar starfa eru á
launum sem eru langtum lægri og
verri en allar siðaðar þjóðir sam-
þykkja.
Áhafnir á skipum tveimur sem
þjónusta Atlantsskip eru ekki á
samningum sem Alþjóðaflutninga-
verkamannasambandið samþykkir.
Stefán sagði reyndar svo vera. Ég
held að hann hafi vitað betur.
Þannig er málum komið að búið er
að segja upp samningum á því
skipi sem þjónustar Atlantsskip
með flutninga fyrir Varnarliðið.
Það var ekki Sjómannafélag
Reykjavíkur sem sagði samningun-
um upp. Það var þýskt stéttarfélag
sem gerði það. Þjóðverjarnir hafa
falið Sjómannafélagi Reykjavíkur
umboðið. Þetta er gert til að hægt
sé að tryggja þeim sjómönnum sem
sigla í þjónustu Atlantsskipa laun
samkvæmt íslenskum kjarasamn-
ingum.
Það má vel vera að fram-
kvæmdastjóranum Stefáni þyki
Sjómannafélag Reykjavíkur vera
með ósanngjarnar kröfur þegar
þess er krafist að sjómenn sem
þjóna honum séu á mannsæmandi
lanum. Engan þekki ég sem tekur
undir með Stefáni. Þjóðverjanir
sem hafa fært Sjómannafélagi
Reykjavíkur samningsumboðið
gera það ekki. Þeir hafa fullan
skilning á okkar baráttu.
Tilkoma Atlantsskipa skapar
samkeppni. Það er oftast af hinu
góða þegar samkeppni eykst. En ef
á að fagna henni verður hún að
vera á jafnréttisgrunni. Það er hún
ekki af hálfu Atlantsskipa. Sjó-
menn sem starfa á skipum í þjón-
ustu þessa skipafélags hafa allt
niður í fjórða part launa íslenskra
sjómanna – sem þó eru ekki ofsælir
af sínu.
JÓNAS GARÐARSSON,
form. Sjómannafélags
Reykjavíkur.
Mikill er
mátturinn
Frá Jónasi Garðarssyni:
Jónas
Garðarsson