Morgunblaðið - 06.09.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 55
EVRÓPSKA kvikmyndaakademían
hefur tilnefnt kvikmyndina Hafið
eftir Baltasar Kormák til Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna 2002 og er
það eina íslenska kvikmyndin sem
tilnefnd er að þessu sinni.
Verðlaunin verða veitt á vegum
akademíunnar í Róm 7. desember.
Hátíðardagskránni verður sjón-
varpað víða um Evrópu og til fleiri
heimsálfa.
Handritið að Hafinu sömdu leik-
stjórinn Baltasar Kormákur og Ólaf-
ur Haukur Símonarson, höfundur
leikritsins sem myndin er gerð eftir.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
eru veitt árlega. Tilgangur þeirra er
að kynna evrópskar kvikmyndir og
listræn gæði þeirra og tendra áhuga
á þeim sem víðast. Atkvæðisrétt
hafa rúmlega 1.400 Evrópumenn
sem starfa við kvikmyndir, hafa afl-
að sér viðurkenningar fyrir störf sín
og vilja styðja markmið akademí-
unnar. Þrettán Íslendingar hafa nú
atkvæðisrétt.
Auk þess fer fram netkosning um
hverjir hljóta skulu áhorfendaverð-
launin en undanfarin ár hefur sú
kosning m.a. farið fram á mbl.is og
verður þar engin breyting á í ár.
Íslendingar hafa nokkrum sinnum
unnið til Evrópsku kvikmyndaverð-
launanna. Árið 1991 fékk Hilmar
Örn Hilmarsson evrópsku FELIX-
verðlaunin, sem voru forveri verð-
launa akademíunnar, fyrir tónlist
sína í Börnum náttúrunnar eftir
Friðrik Þór Friðriksson. Árið 2000
fékk Björk bæði verðlaun Evrópsku
kvikmyndaakademíunnar og áhorf-
endaverðlaunin sem besta evrópska
leikkonan fyrir hlutverk sitt í
Myrkradansara eftir Lars von Trier.
Sama ár fékk Ingvar Sigurðsson
áhorfendaverðlaunin fyrir hlutverk
sitt í Englum alheimsins eftir Frið-
rik Þór Friðriksson.
Sýningarréttur til kvikmynda-
húsadreifingar á Hafinu hefur nú
verið seldur til rúmlega 30 landa. Í
fréttatilkynningu frá Kvikmynda-
sjóði Íslands segir að svo víðtæk
dreifing á mynd áður en hún hefur
verið heimsfrumsýnd sé einsdæmi
um íslenska bíómynd. Salan sé einn-
ig víðtækari í hverju landi um sig en
yfirleitt hafi tíðkast um íslenskar
bíómyndir.
Hafið verður heimsfrumsýnt á
kvikmyndahátíðinni í Toronto í dag.
Myndin verður sýnd á 50. kvik-
myndahátíðinni í San Sebastian á
Spáni 23. þessa mánaðar, og er þar
ein af 18 myndum í keppni. Hafið
verið frumsýnd hér á landi næst-
komandi föstudag, 13. september.
Spennandi verður að fylgjast með hvernig Hafinu farnast er Evrópsku
kvikmyndaverðlaunin verða veitt í desember.
Hafið tilnefnt til
Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna
TENGLAR
.....................................................
www.europeanfilmacademy.org/
index.htm
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6 og 10.Sýnd kl. 8. B.i. 10 ára
The Sweetest Thing
Sexý og Single
„Besta mynd ársins
til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa
árs. Fullkomlega
ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Yfir 25.000 MANNS
Sýnd kl. 8. B. i. 14.
„meistaraverk sem lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i t l i lif
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10.Sýnd kl. 7 og 10. B.i. 12 ára.
mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE
Sýnd kl. 6. með ísl. tali.
Radíó X
Yfir 15.000 MANNS
1/2Kvikmyndir.is
HL Mbl
Hverfisgötu 551 9000
Sannsöguleg
stórmynd
framleidd af
Sigurjóni
Sighvatssyni.
Ingvar
Sigurðsson
fer á kostum
í magnaðri
mynd sem þú
mátt ekki
missa af!
FRUMSÝNING
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4 og 6. með íslensku tali.
Ben affleck Morgan Freeman
SK Radíó X
ÓHT Rás2
„Enginn ætti að missa af þessari,“
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Forsýnd kl 12.15 eftir miðnætti.
Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14.
Yfir 25.000 MANNS
Yfir 15.000 MANNS
Radíó X
1/2Kvikmyndir.is
mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE
Frá leikstjóra og
framleiðanda
THE FAST AND THE
FURIOUS
NÝ TEGUND TÖFFARA
ATH! MIÐASALA OPNAR
KL. 15.30.
FORSÝNING
POWERFORSÝNINGkl. 12.15 eftir miðnætti.Á STÆRSTA THX tJALDI LANDSINS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.