Morgunblaðið - 07.09.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.09.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 11 TALIÐ er að kafarinn sem var hætt kominn í Kleifarvatni á þriðjudags- kvöld nái fullum bata, skv. upplýs- ingum frá fjölskyldu mannsins. Kafaranum, Gunnari Sigurfinns- syni, var um tíma haldið sofandi í öndunarvél en hann hefur verið út- skrifaður af gjörgæsludeild og hafa læknar tjáð fjölskyldu hans að nú líti út fyrir að hann nái fullum bata. Ásgeir Már Ólafsson, yngsti kaf- arinn sem lenti í vandræðum í Kleif- arvatni á þriðjudagskvöld, segir að Bragi Reynisson hafi gefið sig út sem köfunarkennara og hann og Gunnar Sigurfinnsson hafi farið eft- ir fyrirmælum hans við köfunina. Aldrei hafi þó verið rætt um greiðslu en þeir kafað með honum á þeirri forsendu að hann byggi yfir þekkingu sem hann hafi ekki haft. Ásgeir segir að Bragi hafi áður boðið honum að taka hann á nám- skeið í hellaköfun í Þingvallavatni en þá hafi heldur ekki verið rætt um greiðslu. Bragi sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði aldrei sagst vera kennari og hann vissi ekki hvernig menn hefðu fengið þá hugmynd. Hann tæki þó stundum að sér leiðsögn fyrir ferðamenn, t.d. í Þingvallavatni. Aðspurður um hvort hann tæki þóknun fyrir kaf- anir í Þingvallavatni sagði hann að það væri aðallega fyrir kostnaði. Nánar spurður um þóknun, aðra en fyrir kostnaði, svaraði hann: „Það er voðalega lítið. Ég hef bara mjög gaman af að kafa í Þingvallavatni og vil að sem flestir eigi möguleika á að kafa þarna.“ Hann kveðst þekkja hvern krók og kima í vatninu og segir að sér finnist ekki nema eðli- legt að hann fylgi köfurum þar um. Ekki sé um að ræða kennslu, allir þurfi að vera vanir köfun. Hefðu átt að vera 58 mínútur upp á yfirborðið Ásgeir segir upphaf ferðarinnar hafa verið að Bragi hafi boðið sér ásamt öðrum að koma með í köfun í Kleifarvatni. Áður en lagt var af stað hafi verið rætt um að kafa djúpt en hámarksdýpi ekki ákveðið, en mesta köfun Ásgeirs til þessa var á 41 metra dýpi. Það telst vera djúpköfun og taldi hann að þeir myndu fara niður á svipað dýpi í þetta skipti. Hann og Gunnar hefðu síðan fylgt Braga eftir allan tímann. Ásgeir segir að þegar komið var á 48 metra dýpi hafi hann reynt að ná sambandi við Braga og spyrja hvað vekti fyrir honum. Bragi hafi þá verið kominn enn dýpra og varð Ás- geir að synda eftir honum. Á 52 metra dýpi segist Ásgeir hafa feng- ið einkenni djúpsjávargleði sem lík- ist því helst að vera drukkinn. Hann hafi þá viljað fara upp og gefið merki um það. Ásgeir segir að sam- kvæmt köfunartölvu sinni hefðu þeir þurft að vera 58 mínútur á leið- inni upp á yfirborðið til að tryggja að þeir fengju ekki köfunarveiki. Hann hafi ekki haft nægt loft til þess, það hefði hins vegar verið nægt loft til að fara upp af 54 metra dýpi og segir hann aðspurður að búnaður hans hafi staðist svo mikla köfun. Á 56 metra dýpi kom í ljós að Gunnar átti í vandræðum með að stjórna loftflæði í þrýstijöfnunar- vesti og það varð til þess að hann barst hratt upp. Ásgeir segir að í fyrstu hafi hann ekki áttað sig á hvað væri að gerast, hann hefði fyrst talið að þeir væru á leiðinni upp í öryggisstopp en síðan áttað sig á að Gunnar var í miklum vand- ræðum. Þeim hefði síðan öllum skotið upp á yfirborðið á um tveim- ur mínútum. Blár í framan Ásgeir segir að þeir hafi allir ver- ið með meðvitund þegar þeir komu upp og með góðri rænu. Eftir að þeir höfðu synt í allnokkurn tíma í átt að landi tók hann eftir því að Gunnar var hættur að synda og höf- uð hans var ofan í vatninu. Ásgeir segist þá hafa gefið Braga neyðar- merki og kallað á hann meðan hann synti í átt til Gunnars. Þegar hann kom að honum „var hann blár og meðvitundarlaus og leit út fyrir að vera dáinn.“ Hann hafi strax byrjað að blása í hann og á leiðinni í land hefði Gunnar farið að anda með herkjum en ekki náð meðvitund. Þegar þeir komust í land hefði hann kallað til sambýliskonu Gunnars að hringja á hjálp en ekkert símasam- band hefði verið við vatnið. Á ströndinni hefði hann ennfremur kallað í Braga, sem komst seinna í land, að halda áfram að blása í Gunnar meðan hann færi á bílnum til að komast í símasamband. Þegar hann kom til baka hefði Gunnar ver- ið farinn að anda betur og litaraft hans hefði breyst til batnaðar. Hon- um var síðan flogið með þyrlu Land- helgisgæslunnar á slysadeild í Foss- vogi. Ásgeir segir þetta hafa verið hrikalegt slys og kannski munað litlu að Gunnar léti lífið. Af þessu yrði að læra, komast að því hvað hefði farið úrskeiðis og koma í veg fyrir að slíkt gerðist aftur. Segir að loftbirgðir hafi verið nægar Í Morgunblaðinu í gær segir Matthías Bjarnason, fræðslufulltrúi Sportköfunarfélags Íslands, að eng- inn þeirra þriggja sem köfuðu hafi haft réttindi til að fara svo djúpt. Bragi Reynisson sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri rangt, hann hefði svonefnd „Naui Master Diver“ réttindi sem væri hæsta gráða sportkafara. Það væri und- arlegt hjá Matthíasi að býsnast yfir þessu dýpi, hann hefði t.a.m. fengið tölvubréf frá Sportkafarafélaginu þar sem væri verið að auglýsa ferð í skipsflak sem lægi á 40–50 metra dýpi. Þá neitar hann því að þeir hafi ekki haft nægt loft til að komast upp á yfirborðið með réttum hætti, hann hafi haft tvö lofthylki og alltaf hafi verið gert ráð fyrir því að Gunnar og Ásgeir myndu nota þær birgðir. Var blár í framan og með- vitundarlaus í vatninu Kafarinn útskrifaður af gjörgæsludeild og talið að hann muni ná sér að fullu HAFSTEINN Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að varðskipið Óðinn sé falt fáist gott verð fyrir það. Var hann spurður um viðbrögð við áhuga útgerðar í Ástralíu á að kaupa Óðin og nota skipið gegn tannfiskveiðiþjófum í Suður-Íshafi, eins og Morgun- blaðið greindi frá sl. laugardag. Fleiri hafa sýnt skipinu áhuga, samkvæmt upplýsing- um frá Landhelgisgæslunni, en því var nýlega lagt fyrir vetur- inn eins og tíðkast hefur und- anfarin ár Hafsteinn sagðist kannast við áhuga áströlsku útgerðar- innar. Eigandanum væri vel- komið að kynna sér rækilega ástand skipsins og sjá hvort það hentaði til ætlaðra nota. Að sögn Hafsteins var Óðinn ekki kominn á söluskrá og vegna aldurs hefur ekki verið reiknað með að mikill áhugi sé á skipinu en það var smíðað árið 1960. „Ef einhverjir hafa áhuga er- um við sannarlega opnir fyrir því. Við höfum notað Óðin um háannatíma frá aprílmánuði og fram í september. Það kemur að þeim tíma að við getum ekki notað hann. Við þurfum að brúa visst bil þangað til við fáum nýtt varðskip en við erum bjartsýn á að það gerist. Við þurfum á þremur varðskipum að halda, á því leikur enginn vafi,“ sagði Hafsteinn. Forstjóri Land- helgisgæslunnar Óðinn falur fyrir gott verð STJÓRN Alþjóðahússins í Reykja- vík hefur sagt framkvæmdastjóra hússins, Bjarneyju Friðriksdóttur, upp störfum. Að sögn Hrannars B. Arnarssonar er ástæðan trúnaðar- brestur milli stjórnar og fram- kvæmdastjóra. Framkvæmdastjór- anum var sagt upp sl. laugardag og mun hann vinna út uppsagnarfrest- inn sem eru þrír mánuðir. „Ákveðinn trúnaðarbrestur hefur orðið milli stjórnar og framkvæmda- stjóra. Menn sáu að hann yrði ekki leystur með öðrum hætti en þess- um,“ útskýrir Hrannar. Hann segist aðspurður ekki vilja fara nánar út í það í hverju trúnaðarbresturinn fel- ist. „Þetta er þó ekki tengt neinu misferli,“ tekur hann fram, „heldur tengist þetta samskiptum stjórnar og framkvæmdastjóra.“ Spurður að því hvort umræddir erfiðleikar í samskiptum tengist á einhvern hátt endurbótum á Hverfisgötu 18, sem Alþjóðahúsið hefur aðsetur í, segir Hrannar að það sé hluti af málinu. „Það er hluti af málinu en ég vil helst ekki fara út í það.“ Hrannar staðfesti að áætlaður kostnaður við endurbætur á Hverf- isgötu 18 hafi verið um 10 milljónir kr. en nú stefni í að sá kostnaður fari upp í 25 milljónir kr. Framhaldið rætt við eigendur Inntur eftir því hvort uppsögnin myndi hafa einhver áhrif á starfsemi Alþjóðahússins sagði Hrannar að svo muni ekki verða. „Við munum fara yfir málefni hússins í samráði við eigendur.“ Aðspurður sagði hann að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvernig staðið yrði að ráðningu nýs framkvæmdastjóra. Alþjóðahúsið við Hverfisgötu var formlega opnað um miðjan júní sl. Alþjóðahúsið er einkahlutafélag en á bak við starfsemina standa Reykja- víkurborg, Hafnarfjarðarbær, Kópavogur, Seltjarnarnes og Reykjavíkurdeild Rauða kross Ís- lands. Bjarney Friðriksdóttir vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þegar til hennar var leitað. Minnti hún ein- ungis á að eigendur hússins væru að fara yfir málið. Lýsa yfir stuðningi við framkvæmdastjóra Starfsmenn Alþjóðahússins hafa sent stjórnarformanni Alþjóðahúss- ins bréf þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við Bjarneyju. „...Lýsum við enn og aftur fullum stuðningi við hana sem eins góðum framkvæmda- stjóra og mögulegt er fyrir þessa stofnun,“ segir m.a. í bréfinu. Þar segir ennfremur að frá byrjun ársins hefði öllum, jafnt stjórnarmönnum, framkvæmdastjóra sem og starfs- mönnum hússins, verið ljóst að kostnaður við endurbætur við húsið á Hverfisgötu hefði farið um 18 milljónum fram úr áætlun og að ákveðinna aðgerða væri þörf til að mæta þeim halla. „Ástæðurnar fyrir þessari framúrkeyrslu eru okkur augljósar, fagmenn á sviði endur- bóta mátu kostnað við endurbæturn- ar kolrangt,“ segir einnig í bréfinu. Alþjóðahúsið í Reykjavík Framkvæmda- stjóra sagt upp störfum STYTTAN af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli, frelsishetju íslensku þjóðarinnar, var klædd í álpappír í gærmorgun. Með þessu vildu nokkrir einstaklingar mótmæla fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun og því að framkvæmdir væru hafnar að Kárahnjúkum, án þess að ís- lenska þjóðin hefði verið spurð álits. „Jón er gamalt lýðræðistákn hjá okkur en ég tel að það sé ekki verið að vinna lýðræðislega að framtíð Ís- lands. Með því að pakka Jóni, sem stendur á Austurvelli og er samein- ingartákn fyrir þjóðina, inn í ál- pappír vildum við vekja athygli á þessum málstað,“ segir Erla Þór- arinsdóttir myndlistarkona. Hún segir að engin samtök hafi staðið að þessum gjörningi heldur hafi fimm einstaklingar verið þarna að verki. Erla segir að um hálftíma eftir að styttunni var pakkað inn hafi starfsmenn komið á vegum borg- arinnar og fjarlægt álpappírinn. „Þjóðin hefur ekki verið spurð hvers konar framtíð hún vill, þetta er ekki kosningamál heldur er haf- ist handa við Kárahnjúka. Und- irbúningsframkvæmdir eru þegar gífurlegar og allt stefnir í að Landsvirkjun ætli að gera þarna stóra virkjun og mesta mannvirki sem hefur verið gert á Íslandi án þess að við séum meðvituð um hvað sé að gerast. Þannig erum við búin að útiloka þjóðgarðinn og erum að vinna stórfellt skarð í framtíð- aruppbyggingu. Með því að setja á laggirnar álver erum við ekki að skapa okkur neina aðra framtíð, er- um ekki að nýta okkar sköp- unarkraft en erum með eina lausn sem heitir álver og er algjör tíma- skekkja og forneskja.“ Vildu mótmæla framkvæmdum við Kárahnjúka Pökkuðu styttunni af Jóni inn í álpappír Morgunblaðið/Kristinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.