Morgunblaðið - 07.09.2002, Side 50

Morgunblaðið - 07.09.2002, Side 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Elín ElísabetBjarnadóttir fæddist á Bæ í Tré- kyllisvík í Árnes- hreppi í Strandasýslu 29. október 1913. Hún lést á St. Franc- iskusspítalanum í Stykkishólmi hinn 1. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru þau Hallfríð- ur Guðmundsdóttir, f. 21.4. 1892 í Árnes- hreppi, d. 21.9. 1915, og Bjarni Bjarnason, f. 5.3. 1882 á Kaldbak í Kaldrananeshreppi í Stranda- sýslu, d. 15.11. 1955. Seinni kona Bjarna var Halldóra Sigríður Guðmundsdóttir, f. 8.6. 1880, á Bæ í Árneshreppi, d. 7.6. 1967. Systk- ini Elínar eru Hans Hallgrímur, f. 21. feb. 1911, d. 1915; Guðmundur Björgvin, f. 4. júlí 1912, d. 2. feb. 1987; Hallfreður Guðbjörn, f. 18. jan. 1917, d. 14. des. 1990, og Hall- dóra Kristín Leópoldína, f. 26. okt. 1918, d. 8. júní 1995. Hinn 11. sept. 1938 giftist Elín Lárusi Jóhanni Guðmundssyni frá Byrgisvík, f. 11. sept. 1913, d. 9. ágúst 1987. Elín og Lárus eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Sigríður Birna, f. 2.3. 1936. Hún er gift Herði Agnari Krist- jánssyni og eiga þau tvö börn. 2) Hallfreð- ur Björgvin, f. 11.1. 1938. Hann er kvæntur Helgu Hjördísi Þorvarðar- dóttur og eiga þau sex börn. 3) Sigrún Elín, f. 1.9. 1943. Hún er gift Björgvini Kristjáni Þorvarðarsyni og eiga þau fimm börn. 4) Sigurmunda Svala, f. 10.3. 1945. Hún var áður gift Sig- urði Erni Gíslasyni og eiga þau þrjú börn. 5) Erla Dagmar, f. 16.5. 1952. Hún er gift Róbert Jörgen- sen og eiga þau fjögur börn. Af- komendur Elínar eru 61 talsins, 20 barnabörn, 34 langömmubörn og tvö langalangömmubörn. Útför Elínar verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ástkær móðir mín er látin, mig langar að minnast hennar með örfá- um orðum. Trékyllisvíkin er fallegasti staður í heimi var hún mamma þín vön að segja og þar fæddist þú. Og það var ekki bara Víkin sem var falleg heldur fjallahringurinn einnig. Við upplifð- um það fyrir löngu að ferðast þangað saman, vakna á sunnudagsmorgni við sólarupprás og dást að fegurðinni, horfa á lygnan fjörðinn og sjá hvernig þokan hörfaði fyrir sólargeislunum og kuldi næturinnar vék fyrir hlýju dagsins. Þú varst á margan hátt lík þessu umhverfi sem þú fæddist í, fal- leg, hlý og lífsglöð alla ævi. Og eins og sólargeislunum tókst að breyta um- hverfinu þennan sunnudagsmorgun, þannig tókst þér að hafa áhrif á allt þitt umhverfi og alla þá sem þú um- gekkst. Sjómannskona og síðar bóndakona, hlutverk sem ekki eru auðveld og vinnudagur oftast langur og strangur en þið pabbi voruð sam- hent og þegar hann féll frá fyrir 15 ár- um var missir þinn mikill. En það er eins og þú hafir vaxið með hverju mótlæti, trú þín á guð og hið góða í manninum var þér ætíð leiðarljós. Alls eignaðist þú 61 afkomanda og það er svo sannarlega samheldinn hópur og vonandi tekst okkur að varðveita það sem þú kenndir okkur, þ.e. að mæta mótlæti með hógværð og æðruleysi, geta hlegið og dansað á góðum stundum og láta aldrei bugast af erfiðleikum lífsins. Blessuð sé minning þín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Svala Lárusdóttir. Og það er margt sem þakka ber við þessa kveðjustund. Fjör og kraftur fylgdi þér, þín fríska, glaða lund. Mæt og góð þín minning er og mildar djúpa und. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (G.Ö.) Með þessum ljóðlínum viljum við kveðja þig, elsku mamma, amma og langamma. Efst í huga okkar er þakklæti fyrir að hafa átt þig að og alltaf lést þú okkur finna í orðum þín- um og gerðum hve annt þér var um okkur öll. Allan þann tíma sem þú varst svo mikið veik sagðir þú alltaf að þú hefð- ir ekki yfir neinu að kvarta og kallaðir allt hjúkrunarliðið englana þína. Starfsfólki og læknum á St. Franc- iskusspítalanum í Stykkishólmi verð- ur seint fullþakkaður sá hlýhugur og nærgætni sem þau sýndu þér og einn- ig að leyfa okkur að vera hjá þér á hvaða tíma dagsins sem var. Við kveðjum þig með söknuði og þökkum allt sem þú gerðir fyrir okk- ur. Minning um elskulega móður og ömmu mun lifa í hjarta okkar allra. Blessuð sé minning þín. Birna, Hörður og fjölskylda. Elsku besta, Ella amma. Það er skrýtið að sitja hér og hugsa til þess að þú sért virkilega farin frá okkur, þú sem alltaf hefur verið fastur punktur í lífi okkar. Einhvern veginn trúði maður því ekki, að þessi stund myndi nokkurn tímann renna upp, Ella amma átti einfaldlega alltaf að vera til. Það höfðum við einhvern tím- ann ákveðið þegar við vorum minni. En maður fær víst ekki allt sem mað- ur vill, þú varst orðin mjög þreytt og á endanum kom að því, að við urðum að sleppa af þér hendinni og leyfa þér að fara. Eins og þú sagðir stundum við okkur, þá er það víst hluti af lífinu að deyja. Það er svo margt sem kemur upp í huga okkar þegar við hugsum um þig. Þú varst hin ekta amma; maður man varla eftir þér öðruvísi en með svuntu að baka eða í stól að prjóna, mála eða föndra eitthvað fallegt. Svo kunnirðu líka alveg ógrynnin af sögum og vís- um, sem maður fékk aldrei nóg af. Þú varst alltaf svo ljúf og góð og lést okk- ur finnast eins og við værum uppá- halds barnabarnið, en öllum ömmu- börnunum þínum hefur örugglega liðið eins. Róbert Árni var alltaf ,,vin- urinn hennar ömmu sinnar“ og þegar amma talaði um ,,vininn sinn’’ þá vissu örugglega flestir innan fjöl- skyldunnar við hvern hún átti. Svo ef við tölum um Ellu ,,litlu nafnbótina“, þá var sú nafnbót nú ekki alltaf tekin með fögnuði í gamla daga en í dag er hún dýrmæt í augum þess sem ber hana, þar sem hún gerir mann ein- hvern veginn tengdari þér. Það mátti læra svo margt af þér, elsku amma. Þú varst ákveðin fyrir- mynd og öll litum við upp til þín. Hvað sem við gerðum af okkur, hversu stórt eða smátt það var, fyrirgafstu okkur alltaf og breiddir út faðminn, sem við vissum reyndar að við ættum alltaf vísan, og mikið ofboðslega var faðmurinn þinn alltaf stór og hlýr. Alltaf áttum við víst skjól hjá þér. Það var alltaf svo gott að komast til þín, sérstaklega þegar maður var svangur og kaldur, oft orðin voða þreytt eftir að hafa verið að leika allan daginn. Þá áttir þú alltaf til fyrir okk- ur kaffi og matarkex, og hitapoka og teppi þegar við þurfum þess með. Við slógumst svo um það hver fengi að sitja í stóra brúna hægindastólnum hans afa. Hjá þér hvíldum við lúin bein og fengum að horfa á Herbie eða Mary Poppins. Spólan með Eurovis- ionkeppnunum var líka óspart notuð og var þá auðvitað mikið sungið með, þó tónarnir hafi nú ekkert alltaf verið fagrir, en þú lést okkur alltaf líða eins og við syngjum eins og englar. Svo var það líka aðalsportið að fá að labba rúntinn þinn með þér. Við kepptumst við að mæta á réttum tíma til þín fyrir morgunröltið og biðum spennt eftir morgunleikfiminni sem tók svo við á eftir, rétt fyrir klukkan 10. Það var gaman að fá að gera eins og amma í leikfiminni. Þetta er aðeins smábrot af þeim kæru minningum sem við systkinin eigum um þig en allar lýsa þær þér svo vel; svo góðhjörtuð og yndisleg amma, og um leið einstakur vinur. Það verður vissulega skrýtið að koma heim í Hólminn og hafa enga Ellu ömmu til að taka á móti manni. Elsku amma, við vitum að nú ertu á góðum og fallegum stað þar sem þér líður vel. Lárus afi er lengi búinn að bíða eftir þér á himnum og hefur örugglega tekið á móti þér með stórum hlýjum faðmi, svipuðum þeim sem þú gafst okkur alltaf. Mundu alltaf að við elskum þig og söknum þín sárlega. Við gleymum þér aldrei og við vitum að þú verður alltaf hjá okkur til að vernda okkur og elska. Við þökkum þér fyrir allt það sem þú gafst okkur. Elín og Róbert Árni. Elsku amma, mínar fyrstu minn- ingar um þig eru frá Ögri, er ég var hjá ykkur afa á sumrin. Sá tími er mér afar kær og veit ég að ég á eftir að búa að því alla ævi að hafa fengið innsýn í lífið í sveitinni. Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig þú komst yfir allt sem þú náðir að gera þar, þetta var stórt heimili ef telja á alla þá sem voru daglegir gestir hjá þér og afa á sumrin. Alltaf varstu búin að baka eða gera eitthvert góðgæti sem þú náðir í úr búrinu. Margar minningar um þig eru einnig tengdar húsinu ykkar á Silf- urgötu. Þar lékstu þér með okkur frændsystkinunum, kenndir okkur hin ýmsu spil og leiki. Það var alltaf opið hús og þú varst aldrei of upp- tekin til að sinna okkur. Amma, þú varst einstakur per- sónuleiki, ég veit ekki um marga sem náðu ávallt að kalla það besta fram í fólki. Ég er ánægður með að hafa einnig fengið að eiga tíma með þér eftir að ég komst á fullorðinsaldur því mér finnst eins og það sé fyrst þá sem maður læri að meta að fullu það sem maður hefur. Maður getur að sjálfsögðu alltaf hugsað til baka og óskað þess að stundirnar hefðu verið fleiri en ég er ánægður með okkar stundir saman og vildi ekki hafa þær öðruvísi. Þrátt fyrir erfið veikindi síðustu mánuði misstir þú aldrei þína ein- stöku kímni. Hugur þinn var minnst þrjátíu árum yngri en líkaminn og finnst mér það ótrúlegt hversu vel þú varst að þér í hinum ýmsu málum, jafnt fréttum sem tæknimáli og það var einstakt að sjá hversu vel þú fylgdist með öllum afkomendunum og gleymdir aldrei neinum. Þú virtist alltaf hafa tíma fyrir alla. Ég er ánægður yfir því að hafa fengið tæki- færi til að sýna þér litlu tvíburana mína og met það mikils. Elsku amma, ég kveð þig með söknuði en hlýju í hjarta og er stoltur yfir því að hafa átt þig sem ömmu. Þorvarður Lárus Björgvinsson. Elsku amma mín. Það er skrýtið að hugsa til þess að geta ekki lengur komið til þín í heimsókn, fengið app- elsínuhring og nýmjólk og spjallað um heima og geima. Þú varst alltaf svo kát, glöð, bjartsýn og einhvern veginn lýstir upp tilveruna í kringum þig. Þú hafðir líka einstakt lag á að fá það besta fram í þeim sem þú um- gekkst. Leiði, reiði, og depurð hurfu fyrirvaralaust um leið og þú varst ná- lægt. Jafnvel núna síðustu mánuðina þegar þú varst veik á sjúkrahúsinu, þá var alltaf allt í lagi með þig. „Mér líður bara vel, það fer ágætlega um mig,“ varstu vön að segja. Svo bætt- irðu við: „En hvað segir þú, elskan mín?“ Þú hugsaðir alltaf um alla aðra á undan þér. Stjanaðir við okkur þeg- ar við komum í heimsókn og alltaf var hægt að vera öruggur um að þú ættir eitthvað gott í munninn. Það var næstum glæpsamlegt að koma södd heim til þín. Þú hafðir líka einstakt lag á að láta okkur börnin þín finnast við vera í uppáhaldi og hafðir mikla hlýju og ást að gefa. Það var alltaf öruggt skjól að koma til þín og þó þú ættir um 60 af- komendur þá varstu alltaf til í að vera Ella amma þeirra sem óskuðu. En þú varst líka stolt af hópnum þínum og hélst honum saman. Það er þér að þakka hversu samheldin og náin við öll erum og nú er það okkar að halda því við. Elsku amma mín, þó að ég viti og trúi að þér líði vel núna hjá afa og öll- um hinum ástvinum þínum sem farnir eru, get ég ekki annað en verið örlítið eigingjörn og óskað þess að þú værir hér ennþá hjá okkur. Þú varst ætt- móðir okkar, stoð okkar og stytta. Ég mun alltaf sakna þín og minnast hlýju þinnar. Þú áttir engan þinn líka og ég veit að ef ég hef erft þó ekki væri nema helminginn af þínum eiginleik- um, þá er mér óhætt. Guð geymi þig ávallt, amma mín. Þín Halla Dís. Ég hef labbað langan veg lífs með þunga byrði, enda eru skórnir eins og ég orðnir lítils virði. ELÍN ELÍSABET BJARNADÓTTIR               *,311, *,    4 CD        :'          ;; * $ ;&* $ (&  * $  !! !&E * $ (& & !  !!    * $ (& & &  !! &) &&* $  !!  )&  (&       ()0 & 0#& !      !     /*1 1F231 F/*'' 1 $%))" .      <'(             !&@G&!G & )   !!  $  & (&  )  (&    0 & 0#&()0 & 0 & 0#& 9   2      6    /  (6(    / 1 1     1       ? 3@1 2 1 ) 0 !CC +(% 4#$& #"   2     ! ,    #!   '      ' 1 +(   & (& 6 & && @) " &  !! / )0" ! 1& (& &)0"#)/ &&   !!    &  !! # 6 & (&     0 & 0#&() &) $ 0 & ) *                   1'' 1 3 3  0))&)  !   &) 0  < 1"  "    -4 /  0 1 (     =/            ;>; +   &) &  !!  0! !!  !! && &0"#& (& && )  !! (& /#$&*#$@%  !! * $  &) !! (& &) &&+     !! &)0"#) !!  !! #+ 5) & (& () $ 0#&

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.