Morgunblaðið - 07.09.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 25
SÍÐARA sjónvarpseinvígi fram-
bjóðenda stóru flokkanna í Þýska-
landi verður annað kvöld og hugs-
anlegt er, að frammistaða þeirra
muni ráða miklu um úrslitin í kosn-
ingunum 22. þessa mánaðar.
Síðustu kannanir benda til, að
þeir standi jafnt að vígi meðal kjós-
enda.
Búist er við, að Gerhard Schröd-
er, kanslari og leiðtogi jafnaðar-
manna, muni veitast hart að keppi-
naut sínum, Edmund Stoiber,
forsætisráðherra Bæjaralands og
kanslaraefni kristilegu flokkanna,
en talið er, að helstu umræðuefnin
verði Írak, atvinnuleysi og fjármál
ríkisins.
Alla kosningabaráttuna hafa
kristilegu flokkarnir, Kristilegi
demókrataflokkurinn og Kristilega
sósíalsambandið í Bæjaralandi, haft
meira fylgi en jafnaðarmenn í skoð-
anakönnunum en nú er jafnt með
fylkingunum, báðar með um 38%.
Hefur þetta hleypt nýju lífi í bar-
áttu jafnaðarmanna en fréttaskýr-
endur segja, að svo virðist sem
kosningavél Stoibers sé farin að
hiksta á lokasprettinum.
„Mistök á mistök ofan“
Víst þykir, að Stoiber muni
hamra á atvinnuleysinu í Þýska-
landi en nú eru rétt rúmlega fjórar
milljónir manna atvinnulausar,
næstum jafnmargir og þegar
Schröder tók við embætti fyrir fjór-
um árum. Þá hét hann því að koma
þessari tölu niður í 3,5 millj. „Mis-
tök á mistök ofan,“ segir Stoiber
um atvinnuleysið en Schröder reyn-
ir að bera sig vel og bendir á, að at-
vinnuleysingjum hafi þrátt fyrir allt
fækkað um tæplega 30.000 manns.
Þá gerir hann mikið úr því, að at-
vinnuleysið hafi aukist mest í Bæj-
aralandi, heimaríki Stoibers, sem
hingað til hefur hreykt sér af efna-
hagsstjórninni þar og segist ætla að
yfirfæra hana á landið allt.
Um 15 milljónir manna fylgdust
með fyrri viðureign kanslaraefn-
anna en búist er við, að áhorfendur
verði eitthvað færri á sunnudags-
kvöld.
Síðari sjónvarpsrimma kanslaraefna stóru flokkanna í Þýskalandi
Búist við fjörugri viðureign
Berlín. AFP.
UM 100 vinstrisinnaðir skæru-
liðar hafa fallið síðustu daga í
átökum við stjórnarherinn í
Kólombíu, einkum í bardögum
við bæinn La Uribe, sem lengi
hefur verið ein helsta bækistöð
FARC, stærstu skæruliða-
hreyfingarinnar. Þá hafa um 30
bændur fallið fyrir hendi
skæruliða og vopnaðra sveita
hægrimanna. Yfirvöld hafa
einnig skýrt frá því, að óþekktir
menn hafi skotið til bana Fern-
ando Enrique Mancilla, nýskip-
aðan yfirmann leynilögregl-
unnar í Antioquia-héraði, en
hafði þá ekki enn tekið form-
lega við embættinu.
Kvartað yfir
meðferð
ÍGOR Studeníkov, sendiherra
Rússlands í Lettlandi, neitar
því, að Moskvustjórnin sé að
reyna að spilla fyrir hugsan-
legri aðild Letta að Atlants-
hafsbandalaginu, NATO, með
því að kvarta yfir meðferð
lettneskra yfirvalda á rúss-
neska minnihlutanum í landinu.
Lettar, Litháar og Eistlending-
ar vonast til að verða boðin að-
ild á Pragfundi NATO í nóvem-
ber en að undanförnu hafa
Rússar frekar dregið úr en
aukið andstöðu sína við það.
Hver borgar
brúsann?
ANA Aznar, dóttir Jose Maria
Aznar, forsætisráðherra Spán-
ar, gekk í það heilaga í fyrra-
kvöld og er sá lukkulegi Alej-
andro Agag, fyrrverandi
aðstoðarmaður föður hennar.
Voru brúð-
kaupsgest-
irnir um
1.000 og þar
á meðal Jó-
hannes Karl
Spánarkon-
ungur, Tony
Blair, for-
sætisráð-
herra Bret-
lands, og
eiginkona hans, Silvio Berlusc-
oni, forsætisráðherra Ítalíu,
Francisco Flores, forseti El
Salvador, fjölmiðlajöfurinn Ru-
pert Murdoch og söngvarinn
Julio Iglesias. Spænskir fjöl-
miðlar og stjórnarandstaðan í
landinu vilja nú fá að vita hver
hafi borgað fyrir þetta „kon-
unglega brúðkaup“ en sagt er,
að öryggisgæslan hafi kostað
rúmlega 10 milljónir ísl. kr.
Enn sem komið er hefur verið
lítið um svör.
STUTT
Mannskæð
átök í
Kólombíu
Ana Aznar