Morgunblaðið - 07.09.2002, Síða 28

Morgunblaðið - 07.09.2002, Síða 28
HEILSA 28 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ég er með svo lélegt sjálfsálit og finnst kröfurnar um að geta allt og ná árangri vera alstaðar, og mér finnst það vera að buga mig. Svo finnst mér reyndar margar vinkonur mínar hafa lélegt sjálfsálit. Hvernig er það, fæðist maður með ákveðið magn sjálfsálits sem maður verður hreinlega bara að sætta sig við eða er hægt að bæta það? SVAR ÞAÐ virðist mjög al-gengt að fólk hafi skert eða jafnvel lélegt sjálfstraust. Í nútímasamfélaginu á Íslandi eru kröfurnar um útlit og árangur mikl- ar og bein og falin samkeppni alstað- ar. Kröfur um að verða fallegri og grennri virðast einnig hafa aukist mikið. Við erum í dag með töluvert mikið af viðmiðum um hvernig fólk á að gera, vera, og hvernig það á að líta út og hvað það þarf að eiga, sem veldur mörgum okkar skaða, því fæst okkar geta uppfyllt allar þessar kröfur og getur það haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd okkar, jafnframt því sem okkur er nánast ómögulegt að forðast þessi viðmið. Til þess að reyna að forðast öll þessi viðmið þyrftum við að hætta að tala við vini og kunningja, hætta að horfa á sjón- varp, fara á Netið og hreinlega vera meðal fólks. Auk þess sem samfélagið og við- mið þess mótar sjálfsmynd okkar, er hún að mótast og breytast allt lífið. Þótt þessi mótun sé stundum nei- kvæð þá er hún, sem betur fer, oft líka jákvæð. Því er mikilvægt að við, meðvitað, skoðum samskipti okkar hvort við annað. Þetta er auðvitað sérstaklega mikilvægt í uppeldinu þar sem sjálfsmynd barna okkar byrjar að myndast, þar sem við, for- eldrar, höfum áhrif á mótun sjálfs- myndarinnar, nánast eins og þegar við mótum leir, og því er hrós ofboðs- lega mikilvægt samskiptatæki. Okk- ur hættir nefnilega til að taka bara eftir „óþekktinni“ hjá börnunum okkar en gleymum oft að hrósa þeg- ar „óþekktin“ er ekki til staðar. Þar verðum við að passa okkur og endur- skoða stöðugt þær kröfur sem við gerum til barnanna okkar og hvors annars. Kröfurnar, hrósið og sam- skiptin munu hafa áhrif á sjálfsmynd barnsins þegar það verður fullorðið og hafa áhrif á þær kröfur sem ein- staklingurinn mun setja sér síðar. Það kemur mér sífellt á óvart, þegar ég fæ til mín fólk í meðferð eða ráðgjöf sem er greinilega með mjög skert sjálfsálit, hversu mikið fólk hefur til brunns að bera sem ætti að geta gefið því gott sjálfsálit, en við- komandi einstaklingur hefur ekki getað nýtt sér það af þeim sökum að þeir „sjá“ ekki alla þá góðu kosti sem þeir hafa.. Margir myndu halda að sjálfstraust endurspegli raunveru- lega getu, útlit, sigra og árangur. En það virðist hinsvegar oft vera þannig að t.d. myndarlegt fólk telur sig „ómyndarlegt“, grannir telja sig „feita“, afburðarnemendum „tekst aldrei neitt“, og dugnaður er „ekkert merkilegt“. Oft eru þetta viðmið sem þau hafa einhvers staðar tekið með sér óbeint eða beint frá samskiptum og viðmiðum samfélagsins og ekki tekist að vefengja. Sjálfstraustið er gífurlega mik- ilvægt til að viðhalda góðri geðheilsu, vellíðan og hamingju í lífinu. Það er reynslan í sálfræðilegri meðferð, að skert sjálfstraust tengist mjög mörgum vandamálum að einhverju leyti og því er mikilvægt að leggja einnig áherslu á að byggja upp sjálfstraust samhliða því að vinna með vandamálið sjálft. Sjálfstraust tengist t.d. vandamálum eins og dep- urð, vímuefnavanda, kvíða, reiði, og samskiptavandamálum hjóna, svo eitthvað sé nefnt. Það gefur í raun og veru auga leið að einstaklingur, sem er að berjast við depurð eða kvíða, detti aftur niður í vanlíðan ef trúin á eigin getu er lítil eða jafnvel engin. Það má því draga þetta saman og segja að sjálfsálitið mótast í sífellu af samskiptum og viðmiðum, í uppeldi okkar sem og á fullorðinsárum. Það er því alls ekki eitthvað ákveðið „magn“ sjálfsálits sem maður fær í vöggugjöf sem maður verður að sætta sig við heldur er hægt, í gegn- um allt lífið, að bæta og byggja sjálfsálitið upp. Auk þess er á hverj- um tímapunkti hægt að nýta sér þessa vitneskju og reyna að gera sér grein fyrir hvernig maður hefur mót- ast af samskiptum og viðhorfum. Nota þær upplýsingar um stöðu sjálfsálitsins til þess að skoða hvern- ig við sjálf viðhöldum hugmyndum okkar um sjálfsálitið dags daglega með hugsunum, túlkunum, minni og sannfæringu um sjálfsálitið. Þegar við síðan erum farin að skilja mót- unina og hvernig við viðhöldum sjálfsálitinu, getum við notað sömu aðferðir til að breyta hugsunum okk- ar, túlkunum og hugmyndum um okkur til að, kerfisbundið, byggja upp sjálfsálit okkar sem ennfremur mun færa okkur meiri vellíðan og sátt við sjálf okkur. Gangi þér vel. Hvaðan kemur sjálfsálitið? Höfundur er sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Lesendur Morgunblaðsins geta komið spurningum varðandi sál- fræði-, félagsleg og vinnutengd mál- efni til sérfræðinga á vegum per- sona.is. Senda skal tölvupóst á persona@persona.is og verður svar- ið jafnframt birt á persona.is. eftir Björn Harðarson Kröfur um að verða fallegri og grennri hafa aukist mikið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.