Morgunblaðið - 07.09.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.09.2002, Qupperneq 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 31 BLAÐ 18 – Reykjanes nefnist myndlistarsýning Einars Garibalda sem verður opnuð í nýjum salar- kynnum Listasafns Reykjanesbæj- ar kl. 17 í dag. Sýningin er haldin í tengslum við Ljósanótt, og er sú fyrsta sem opnuð er á vegum safns- ins í Austursal Duushúss þar sem staðið verður fyrir reglulegu sýn- ingarhaldi. Einar Garibaldi lýsir sýningunni sem málverkasýningu, og er þar fjallað um landslagið eins og það birtist í túlkun kortagerðarmanna. „Verkið er í 52 hlutum og vísar tit- illinn í kort frá landmælingum Ís- lands sem gefið er út í Atlaskorta- röðinni. Blað 18 í þeirri röð er af Reykjanesi,“ segir Einar. „Ég lít á verkin sem landslagsmyndir og beini að því sjónum hvernig þetta landsvæði, þ.e. Reykjanesið, hefur verið túlkað af kortagerðarmönn- um. Mér finnst það í raun athygl- isverðara að fylgjast með því hvern- ig náttúran er túlkuð á kortum fremur en í myndlist. Hvort tveggja er náttúrulega sjónræn framsetning á náttúrunni og er ég að velta þessu fyrir mér á sýningunni. Þannig má segja að verkið á sýningunni sé málverk sem er kort sem er mál- verk.“ Einar Garibaldi hefur unnið nokkuð með þann ólíka skilning sem lagður er í landslagið í skynjun og framsetningu, og segir hann verkin á sýningunni Blað 18 – Reykjanes t.d. tengjast fyrri verkum, þ.e. skilt- um er vísa veginn og merkja lands- lagið. „Kortagerðin velur og hafnar, hún ákvarðar fyrir okkur hvað er merkilegt og hvað ekki í landslag- inu. Þó svo að ég vinni með táknin sem birt eru á kortinu beinist at- hygli mín ekki síður að eyðunum á milli táknanna. Eitt af því sem er svo athyglisvert við þetta kort 18 er að það er eiginlega ekkert á því. Það hefur einhvern veginn raðast þannig inn í Atlas-kerfið.“ Einar segir hin nýju salarkynni Listasafns Reykjanesbæjar vera kjörinn vettvang fyrir umrædda sýningu, en hugmyndina að henni fékk hann fyrir nokkuð löngu, eftir að kort af Reykjanesi rataði í hend- ur hans. „Ég hef eiginlega verið að bíða eftir að finna réttan vettvang til að sýna þetta verk, því mér fannst alveg nauðsynlegt að það yrði einhvers staðar á Reykjanesi. Salurinn í Duushúsi er góður og þykir mér þetta mjög áhugavert starf sem er að hefjast hér. Hér er orðinn til metnaðarfullur og sam- felldur myndlistarvettvangur í Reykjanesbæ,“ segir Einar Gari- baldi en sýning hans í Duushúsi stendur til 20. október. Málverk af blaði 18 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Einar Garibaldi lítur upp úr landabréfinu, blaðsíðu 18, Reykjanes, en það er einmitt heiti sýningarinnar og myndefnið er þangað sótt. Næsti bar, Ingólfsstræti 1a Haf- steinn Michael opnar sýningu kl. 17. Sýningin samanstendur af mál- verkum og teikningum og stendur fram yfir mánaðamót. Caffé kúlture Sigga Vala opnar myndlistarsýningu í kaffihúsi Al- þjóðahúss, Hverfisgötu 18. Sigga Vala stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1979–99 og 1983–86, hún hefur einnig numið ljós- myndun hjá Kristjóni Haraldssyni, Studio 28 í Reykjavík. Hún vinnur mest með olíu, egg- olíutempúru og vatnsliti. Sigga Vala hefur haldið níu einkasýningar á Ís- landi og í Svíþjóð og tekið þátt í fimm samsýningum. Hún er búsett í Sví- þjóð. Kaffihúsið er opið frá kl. 11.30–01 alla daga og stendur sýningin til 28. sept- ember. Þá verða sýndar tvær indverskar kvikmyndir í Alþjóðahúsinu: Lagaan kl. 14, en hún var tilnefnd til Ósk- arsverðlauna og á morgun kl. 15 verður sýnd indversk barnamynd. Kaffi Sólon Ásdís Spano opnar sýn- ingu á stórum olíumálverkum kl. 17. Ásdís er í útskriftarárgangi myndlist- ardeildar LHÍ, en hefur einnig stund- að nám í myndlist í Central Saint Martin-skólanum á Englandi og í Academy de belle arte á Ítalíu. Sýn- ingin stendur til 27. september. Sýn- ingarstjóri er Sesselja Thorberg S. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is GVENDUR dúllari ehf. hefur opn- að nýja fornbókaverslun á Klapp- arstíg 35. Kappkostað er að hafa á boðstólum gott úrval bóka í rúm- góðu og björtu húsnæði. Auk þess geta gestir rýnt í gömul Morg- unblöð sem þekja gólf verslunar- innar. Verslunin er opin alla daga kl. 12–18, fimmtudag til kl. 20 en þá eru fyrirhugaðar uppákomur af ýmsu tagi. Í dag er Langur laugardagur og verður verslunin opin af tilefninu. Gvendur dúllari verður áfram með opið um helgar í Kolaportinu. Gólf nýju fornbókaverslunarinnar er þakið gömlum Morgunblöðum. Ný fornbókaverslun á Klapparstíg SIGLUFJARÐARKIRKJA átti 70 ára vígsluafmæli á dögunum, 28. ágúst síðastliðinn, og á sunnudaginn kemur, 8. september verður formlega haldið upp þau tímamót með veglegri afmælisdagskrá. Fyrrverandi prestar Siglfirðinga mæta, ásamt prófasti og vígslubiskupi, og tónlistarflutningur og söngur verður í umsjá Antoníu He- vesi, kirkjukórsins, Sigrúnar Hjálm- týsdóttur og hins siglfirska tenórs Hlöðvers Sigurðssonar Afmælishátíðin hefst með guðs- þjónustu kl. 11 þar sem sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar tónskálds, í upprunalegri útgáfu, en kirkjan var reist í prestskapartíð hans. Sr. Bjarni mun óefað vera þekktasti prestur Siglfirðinga frá upphafi, kom til starfa 1888 og þjón- aði til 1935, eða í samtals 47 ár. Í hátíðarguðsþjónustunni á morg- un mun núverandi sóknarprestur, sr. Sigurður Ægisson, þjóna fyrir altari, sr. Ragnar Fjalar Lárusson prédika og aðrir prestar sjá um ritningar- lestra; prófastur og vígslubiskup flytja ávörp í lokin. Við hátíðarmess- una verða m.a. fluttar sex Ave Maríur (eftir Johann Sebastian Bach/Charles Gounod, Eyþór Stefánsson, Hans Ny- berg, Indriða Einarsson/Sigvalda Kaldalóns, Antoníu Hevesi, og Sigurð Þórðarson), auk þess sem Antonía leikur Toccötu, úr gotneskri svítu, eft- ir Leon Boellman, og Pílagrímakór- inn eftir Richard Wagner. Að messu lokinni er boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu. Síðar um daginn, kl. 15, verða svo afmælistónleikar í Siglufjarðarkirkju, en hún hefur verið talin með betri sönghúsum á landinu og tekur um 400 manns í sæti. Þar munu Sigrún Hjálmtýsdóttir og Hlöðver Sigurðs- son verða með 11⁄2 klukkustundar söngdagskrá, við undirleik Antoníu Hevesi. Flutt verða íslensk einsöngs- lög, alþekkt, og síðan léttar óperuarí- ur og dúettar. Í hópi einsöngslaganna verða „Þú eina hjartans yndið mitt“, „Rósin“, „Tondeleyó“, „Dagný“, „Draumalandið“, „Sjá dagar koma“, „Svanasöngur á heiði“ og „Hamra- borgin“. Aðgangseyrir er 1.500 krón- ur. Afmælishátíð Siglu- fjarðarkirkju Sigrún Hjálmtýsdóttir Hlöðver Sigurðsson TÍBRÁ, tónleikaröð Salarins í Kópa- vogi, hefst í kvöld kl. 20.00. Flytjendur á fyrstu tónleikum eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó- sópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari, en Guðrún hreppti í gær styrk úr Styrktarsjóði Önnu Nordal til áframhaldandi náms í söng. Á efnisskránni eru söngvar eftir Manuel de Falla, Enrique Granados, José Serrano og Jéronimo Giménez, flestir útsettir af Jáuregui, auk út- setninga eftir Valls og Lorca. Guðrún segir styrkinn úr sjóði Önnu Nordal koma sér vel, enda söngnám í London dýrt. „Þetta er frábært. Ég vissi ekkert um Önnu Nordal áður en ég frétti af styrknum, en það vill svo til að amma mín, Guðrún Stephensen var Vestur- Íslendingur eins og hún.“ Francisco Javier Jáuregui er kær- asti Guðrúnar. „Spænska tónlistin er honum í blóð borin, og það er frábært fyrir mig að syngja með manni frá heimalandi söngvanna. Hann skilur tónlistina betur og hjálpar mér með tungumálið. Ég syng líka á ladino sem er afbrigði af miðaldaspænsku og á mállýskum, til dæmis frá Sevilla, og þá er gott að hafa leiðbeinanda.“ Þau Guðrún og Francisco Javier hafa áður haldið tónleika með spænskum sönglögum, sem hún seg- ir höfða sterkt til sín. „Tónlistin er ástríðufull og drama- tísk, en líka oft mjög fyndin. Ljóðin höfða líka mjög til mín; þessi eilífu yrkisefni um ást, ástarsorg, vobrigði, þrá og fleira slíkt; tilfinningar sem eru reyndar sameiginlegar öllu mannkyni. Í spænsku lögunum finn- ur maður fyrir arabískum áhrifum, sérstaklega í Canciones Sefarditas, sem eru söngvar frá tímum Már- anna.“ Vinargjafir og Goyamyndir Meðal annarra verka á tónleikun- um eru Siete canciones populares españolas, sjö spænsk alþýðulög, sem eru meðal þekktustu verka Manuels de Falla. Francisco Javier leikur einnig eing gítarverk tón- skáldsins, Homenaje, sem er óður til vinar hans Claudes Debussys. Þótt Federico Garcia Lorca sé þekktastur fyrir skáldskap sinn fékkst hann einnig við tónsmíðar. Lorca átti það sameiginlegt með kennara sínum Manuel de Falla að hrífast af þjóðlögum heimalands síns. Guðrún og Francisco Javier flytja fimm spænsk þjóðlög í útsetningu Lorcas. Katalónska tónskáldið Granados sótti innblástur í málverk spænska málarans Goya. Sú hrifning varð til þess að hann samdi píanó- verkin Goyescas, sem hann notaði síðar sem grunn að óperu. Textahöf- undur óperunnar samdi nokkur ljóð í tengslum við hana, sem Granados samdi síðan lög við og kallaði þau Tonadillas. Francisco Javier hefur útsett nokkur laganna fyrir rödd og gítar. Auk þessa flytja Guðrún og Francisco Javier aríur úr spænskum óperum, eða zarzúelum. Vel menntað músíkpar Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir fædd- ist árið 1977 í Reykjavík. Í fyrra lauk hún meistaragráðu frá Guildhall School of Music and Drama í London og er nú á öðru ári í óperudeild skól- ans. Guðrún kom fram á tónleikunum Tónlistarmenn 21. aldarinnar á Listahátíð í hitteðfyrra og söng í jóla- óratoríunni Barn er oss fætt eftir John Speight, í Hallgrímskirkju árið 2001. Hún hefur einnig sungið á tón- leikum í Færeyjum, á Skotlandi og í London, meðal annars í beinni út- sendingu á BBC Proms hátíðinni. Þau óperuhlutverk sem hún hefur sungið á sviði eru Rosina í Rakaran- um í Sevilla og Prins Orlofsky í Leð- urblökunni. Í fyrra vann hún verð- laun í alþjóðlegri söngkeppni í Konunglegu óperunni í Covent Gar- den og í ár vann hún Schubertkeppni í skólanum. Francisco Javier Jáuregui er spænskur að uppruna en lauk meist- aragráðu frá Guildhall School of Music and Drama í London á þessu ári. Hann hefur komið fram á tón- leikum í Bandaríkjunum, á Spáni, Ítalíu, Frakklandi, Portúgal, Skot- landi og Englandi, bæði sem einleik- ari og sem flytjandi kammertónlist- ar. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, handhafi styrks Önnu Nordal, syngur í Salnum Spænsk þjóð- lagastemmning Morgunblaðið/Þorkell Þórður Júlíusson afhendir Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur styrkinn. Laugardagur Nú stendur yfir tónlistarhátíð ungra norrænna tónlistarmanna, UNM og verða síðustu tónleikar hátíðarinnar í Skálholtskirkju kl. 17. UNM- hljómsveitin og Hamrahlíðar- kórinn flytja verk eftir Jens Voigt Lund (DK); Perttu Haap- anent (FI), Simon Christensen (DK), Niels Rønsholdt og Mal- in Bangs. Tónlistar- hátíð UNM HAUKUR Dór opnar sýningu á málverkum í Listasalnum Man, Skólavörðustíg, í dag, laugardag, kl. 15. Á fjörutíu ára ferli hefur Haukur Dór sýnt reglulega á Íslandi og erlendis. Hann hélt sýna fyrstu sýningu á Mokka 1962 eftir fjögur ár á kvöldnám- skeiðum í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Sama ár hélt hann utan til náms í myndlist, fyrst í til Edinborgar og síðan til Kaupmannahafnar. Þá stund- aði hann nám í Bandaríkjunum og á Spáni. Mörg verka hans eru í opin- berri eigu og á einkasöfnum. Haukur Dór sýnir í Man
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.