Morgunblaðið - 07.09.2002, Side 63

Morgunblaðið - 07.09.2002, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 63 www.regnboginn.is Sýnd kl. 6 og 10.Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 10 ára The Sweetest Thing Sexý og Single „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Yfir 25.000 MANNS Sýnd kl. 8. B. i. 14. „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i t l i lif Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10.Sýnd kl. 4, 7 og 10. B.i. 12 ára. mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.  Radíó X Yfir 15.000 MANNS 1/2Kvikmyndir.is  HL Mbl Hverfisgötu  551 9000 Sannsöguleg stórmynd framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni. Ingvar Sigurðsson fer á kostum í magnaðri mynd sem þú mátt ekki missa af! FRUMSÝNING www.laugarasbio.is Sýnd kl. 2, 4 og 6. með íslensku tali. Ben affleck Morgan FreemanBen afflec organ Free an  SK Radíó X  ÓHT Rás2 „Enginn ætti að missa af þessari,“ Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.30, 8 og 10.10. Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14. Yfir 25.000 MANNS Yfir 15.000 MANNS Sýnd kl. 1.50, 4, 6, 8 og 10.10.  Radíó X 1/2Kvikmyndir.is  HL Mbl í kvöld frá kl. 22:00 í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima. Félagar í Harmonikufélagi Reykjavíkur sjá um fjörið með þér. Fordrykkur í boði hússins fyrir fyrstu 80 gestina. HARMONIKUBALL Gömlu- og nýju dansarnir • Dansleikur fyrir alla • Miðaverð kr. 1.200. Ingvar fór tvisvar út í tökur, fyrst í tólf daga en síðan var hann þarna í þrjá mánuði og segist hafa eignast góða félaga á því tímabili. Menn hafi bundist tilfinningaböndum, nálægð- in hafi verið mikil og samhygðin sterk. „Það varð í rauninni til hálfgert bræðrasamfélag á milli okkar sem tókum þátt í þessu. Og í raun var andrúmsloftið ekkert ósvipað og því sem er í myndinni. Það varð því til „mynd“ utan myndarinnar í raun- inni.“ Það að Ingvar sé inni í myndinni telst harla góður árangur í bransa sem þessum. Hann upplýsir þó að margar senur – sumar sem hann hefði viljað sjá í lokaútgáfunni – hafi endað á gólfi klipparans. „Það voru atriði þar sem persónan sem ég leik var kynnt betur til sög- unnar. En þegar þeir voru búnir að klippa myndina var hún fjórir tímar að lengd. Þannig að það þurfti að taka harkalegar ákvarðanir til að koma henni niður í þá lengd sem hún er í núna.“ Ingvar segist þó ánægður með lokaútkomuna. „Hún virkar alveg og framvindan er góð. En handritið tók stöðugum breytingum þann tíma sem upp- tökur stóðu yfir og maður vissi í raun ekkert hvernig lokaútgáfan yrði.“ Ingvar rifjar upp að „tveir gamlir jálkar“, eins og hann orðar það, fyrr- um kafbátahermenn sem störfuðu í kalda stríðinu hafi verið á tökustað allan tímann og gefið faglega ráð- gjöf. „Þetta voru Rússi og Kan- adamaður og ég kynntist þessum mönnum býsna vel,“ segir Ingvar og tendrast upp. „Þetta eru frábærir gaurar og mér er mjög minnisstætt er þeir hittust í fyrsta skipti því þeir voru óvinir í kalda stríðinu. Það var mjög áhrifamikið andartak og sá sem hélt ræðu af því tilefni klökkn- aði. Það er nefnilega svo að þó að beint mannfall hafi verið lítið í þessu kalda stríði þá fóru mjög margir illa út úr því, andlega.“ Mörgum leikur líklega forvitni á að vita hvernig Harrison Ford er í návígi. „Þeir Neeson og Ford héldu sig nokkuð út af fyrir sig. En að vinna með þeim varð ósköp eðlilegt eftir því sem á leið. Ford er frekar róleg manngerð, talar hægt og er svolítill töffari. En þegar maður komst í náin kynni við hann felldi hann niður brynjuna og í ljós kom frekar ein- lægur maður. Neeson var mjög notalegur. Hann er Íri og því fannst mér ég vera nær honum á ákveðinn hátt.“ Ingvar lætur markaðslega brot- lendingu myndarinnar sér í léttu rúmi liggja. „Það er ekkert svekkelsi eða neitt slíkt að finna hjá mér,“ segir hann. „Myndin hefur fengið góða gagnrýni og aðsóknin átti í raun ekki að koma á óvart. Þetta er ekki venjuleg Hollywood-mynd og ég held að til lengri tíma litið eigi fólk eftir að leita hana uppi – þó að ekki sé nema fyrir þá staðreynd að Harrison Ford leik- ur í henni.“ Eins og áður segir gat brugðið til beggja vona hjá þeim leikurum sem voru í smærri hlutverkum. „Ég var reyndar hækkaður í tign er ég mætti á tökustað. Fyrst átti ég að leika ratsjármann en var gerður að liðsforingja. Allir voru með mun meira vægi í upphafi taka en svo breytist þetta allt þegar við byrj- uðum. Það var því mikil spenna og taugatitringur eftir því sem leið á þetta ferli. Menn vissu ekki hvort þeir væru inni í myndinni eður ei – eða hvort þeir yrðu jafnvel látnir fara. Svo ef menn voru nógu frekir gátu þeir sannfært leikstjórann um að þeir ættu að fá meira pláss en var búið að ákveða. Það var mikið af ungum, reynslulitlum leikurum þarna sem voru eðlilega mjög von- bjartir. Þeir voru kannski með ein- hvern hörkuumboðsmann og voru því með ákveðnar stjörnur í aug- unum.“ Það er óhætt að segja að þetta hlutverk Ingvars sé eitt stærsta verkefni sem íslenskur leikari hefur fengist við, í alþjóðlegri stórmynd. Hann segir þó að dyr hafi ekkert opnast upp á gátt við þetta, tíminn leiði allt slíkt í ljós. „Ég mun ekkert eltast við svona lagað í kjölfarið. Ég fer stundum út í prufur, ef umboðsmaðurinn minn hringir í mig. En ég á ekkert frekar von á því að eitthvað gerist.“ Leikstjóri myndarinnar er Kathr- yn Bigelow sem á að baki myndir eins og Strange Days og Point Break. Ingvar ber Bigelow vel söguna. „Hún á að baki fremur óvenjulegar myndir og t.d. gerði hún eina flott- ustu vampírumynd sem gerð hefur verið, Near Dark.“ Það að þessi leikstjóri hafi verið valinn og sú staðreynd að fram- leiðslufyrirtækið er óháð virðist gera það að verkum að glansáferð hinna dæmigerðu Hollywood-mynda vant- ar hér. Myndin er dimm og myrk, með hægri framvindu, og hetjurnar eru Sovétmenn. Kannski ekki skrýt- ið að bandarískur almenningur hafi ekki tekið henni með opnum örmum. Og Ingvar samsinnir því að Bigelow nái að fanga dramatík sögunnar vel; ömurleika þess að vera fastur í blikkdós nálægt hafsbotni er vel lýst. „Já, það er auðvitað ömurlegt að vera um borð í þessum kafbátum,“ segir Ingvar og brosir hæðnislega. „Þar er engu ofgert og plássið er eins lítið og mögulega er hægt að komast upp með. Þetta er í raun hræðilegt fyrirbæri.“ Andinn um borð er oft spennuþrunginn: Ford sem kafteinninn Alexei Vostrikov og Ingvar Sigurðsson sem liðsforinginn Viktor Gorelov. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ingvar E. Sigurðsson er reynslunni ríkari eftir að hafa tekist á við ógnir og ægivald hafdjúpanna í myndinni K-19: The Widowmaker. arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.