Morgunblaðið - 20.09.2002, Side 15

Morgunblaðið - 20.09.2002, Side 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 15 RÉTTAÐ verður í Þórkötlu- staðarétt í Grindavík næstkom- andi sunnudag. Féð kemur til réttar um klukkan 15. Gangnamenn leita Hraunsland, Hálsa og Þórkötlustaðaland á laugardag og reka safnið til Þór- kötlustaðaréttar um klukkan 15 á sunnudag. Undanfarin ár hefur verið fjöl- menni í réttum Grindvíkinga og sérstæð réttarstemmning mynd- ast. Vonast heimamenn til að svo verði einnig nú, en biðja fólk að klæða sig eftir veðri. Réttað í Þór- kötlustaðarétt Grindavík GUÐBRANDUR Einarsson, Sam- fylkingunni, gagnrýndi á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar harðlega þá ákvörðun meirihluta Sjálfstæðisflokks að breyta inn- heimtu gjalds á forgangshópa í leik- skólum bæjarins, sagði ákvörðunina m.a. aðför að einstæðum foreldrum. Sjálfstæðismenn sögðu gagnrýni bæjarfulltrúans tilhæfulausa. Skóla- og fræðsluráð Reykjanes- bæjar lagði nýlega til breytingar á til- högun á innheimtu forgangsgjalds í leikskólum bæjarins. Innheimt verði sama gjald af öllum en beiðnir um niðurgreiðslur afgreiddar hjá leik- skólafulltrúa bæjarins í samráði við starfsmenn félags- og fjölskylduþjón- ustu. Til skýringar var þess getið að með þessu væri verið að koma á vand- aðri vinnubrögðum við mat á einstak- lingum sem eigi að njóta forgangs og horft til sérstakra aðstæðna barns og foreldra hverju sinni. Endurskoðun á forgangshópum eigi að fara fram ár- lega og þess gætt að fullrar sanngirni gæti í forgangsröðun. Tillagan var samþykkt samhljóða í skóla- og fræðsluráði, meðal annars af báðum fulltrúum Samfylkingar- innar. „Aðför að einstæðum foreldrum“ Þegar hún kom til afgreiðslu hjá bæjarstjórn í fyrradag varaði Guð- brandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sterklega við henni. Hann lét bóka að fækkun gjaldflokka úr tveimur í einn hefði þau áhrif að einstæðir foreldrar þyrftu að sækja um niðurgreiðslur sem yrðu metnar af embættismönn- um eftir reglum sem ekki hefðu verið útfærðar. Tillagan væri því ekki full- burða. Hún var eigi að síður samþykkt með atkvæðum fulltrúa meirihluta Sjálfstæðisflokks gegn atkvæðum Samfylkingar og Framsóknarflokks. Í framhaldi af því sagði Guðbrandur að tillagan væri atlaga að einstæðum foreldrum í Reykjanesbæ og til þess eins fallin að festa þá enn frekar í greipum tekjutenginga og jaðar- skatta. Sjálfstæðismenn létu koma fram að bókun Guðbrands væri í engu samhengi við ákvörðunina og alger- lega tilhæfulaus. Fram kom hjá þeim að einstæðir foreldrar, námsmenn og foreldrar sem búa við tímabundnar eða varanlegar erfiðar aðstæður, svo sem vegna veikinda eða atvinnumiss- is, gætu nú í fyrsta sinn sótt um und- anþágu og notið lægra gjalds. Breyting á innheimtu for- gangsgjalds leikskóla Reykjanesbær AFTUR í skóla er yfirskrift málþings sem haldið verður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík laugardaginn 21. september, frá klukkan 14 til 17. Fjallað verður um það hvernig for- eldrar, stórfjölskyldan og samfélagið allt geta verið til hjálpar og bætt líðan barna í skóla. „Það er staðreynd að líðan barna og foreldra hefur áhrif á námsárangur,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá aðstandendum málþingsins. Einnig verður kynning á verkefninu Nýja barnið – undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið frá Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Á þinginu verða fluttir fyrirlestrar, sýnd stuttmynd, námskeið kynnt og efnt til umræðna í málstofum. Allir eru boðnir velkomnir og er endurgjaldslaus aðgangur. Barna- gæsla verður á staðnum og boðið upp á létta hressingu. Að málþinginu standa foreldra- félög grunnskólanna á Suðurnesjum og njóta til þess stuðnings sveita- félaga og fyrirtækja. Málþing með heitinu „Aftur í skóla“ Suðurnes ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.