Morgunblaðið - 20.09.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 43
DAGBÓK
Garðatorgi, sími 565 6550
Nýkomið
Léttir kvenjakkar, buxnadragtir,
peysur og buxur
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Varðar - Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík er hér með auglýst
eftir framboðum til kjörnefndar
Varðar - Fulltrúaráðsins.
Framboðsfrestur rennur út föstudaginn
27. september kl. 17.00
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar fyrir Vörð - Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík eiga 15 manns sæti í
kjörnefnd og skulu 8 kjörnefndarmenn kosnir
skriflegri kosningu af Fulltrúaráðinu. Samkvæmt 11.
gr. reglugerðarinnar telst framboð gilt ef það berst
kosningastjórn fyrir lok framboðsfrests enda sé gerð
um það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum hið fæsta og
ekki fleiri en 10 fulltrúum. Frambjóðandi hafi
skriflega gefið kost á sér til starfans. Tilkynning um
framboð berist stjórn Varðar - Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
Valhöll við Háaleitisbraut.
Stjórn Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Auglýst er eftir framboðum til
kjörnefndar Varðar - Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
Tilboðsdögum
lýkur 25. september
Lokavika
Rúmfatnaður • Handklæði
Barnafatnaður
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 20. sept-
ember, er fimmtug Guðný
Aradóttir, Úthlíð 6, Reykja-
vík, starfsmaður Tölvu- og
upplýsingakerfa Íslands-
pósts.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 20. sept-
ember, er sextugur Sigurð-
ur Eggertsson, Smáratúni,
Fljótshlíð. Í tilefni þessa
taka hann og eiginkona
hans, Guðný Geirsdóttir, á
móti ættingjum og vinum á
heimili sínu í kvöld.
LJÓÐABROT
ÞORRABÁLKUR
Út reikaði eg
eftir dagsetur.
Þá var himinn blár
og heiðar stjörnur,
fold hjarnfrosin,
fallin hrímhéla,
breki lognhvítur
og blika með hafi.
Heyrði ég til suðurs,
hark fór mikið,
sem reið dunaði
eða rynni grjótskriða
stallbrattan veg
fyrir stálbjörg niður;
gnúði alheimur,
en grund nötraði.
– – –
Snorri Björnsson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6
4. Rc3 cxd4 5. Rxd4 a6 6.
Be3 e6 7. Be2 Dc7 8. 0–0 b5
9. a4 b4 10. Ra2 Rxe4 11. c3
b3 12. Rb4 d5 13. f3 Rf6 14.
f4 Bd6 15. Rd3
0–0 16. Dxb3
Rbd7 17. Hac1
Rc5 18. Rxc5
Bxc5 19. Dd1 Bb7
20. b4 Ba7 21.
Bd3 Dd6 22. Kh1
Hfc8 23. De2 Hc7
24. a5 Hcc8 25.
Hfd1 Bxd4 26.
Bxd4 Dxf4 27.
Hf1 Dg5 28. Df2
Hc7 29. Be3 Dh5
30. Dg3 Re8 31.
Bd4 He7 32. Hce1
f6 33. Bc5 Hd7
34. Hxe6 Had8
35. Bb6 Ha8 36. Bf5 Kh8
Í stöðunni hafði Zigurds
Lanka hvítt gegn Igor
Stohl í Koszalin í Póllandi
1999. 37. Hxe8+! Dxe8 að
sjálfsögðu gekk 37... Hxe8
ekki upp vegna 38. Bxd7
38. Dh3! og svartur gafst
upp enda getur hann ekki
varist tvöfaldri hótun hvíts.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÍSLENSKIR spilarar
þekkja Curtis Cheek sem
eiginmann Hjördísar Ey-
þórsdóttur, eina atvinnuspil-
ara Íslendinga. Þótt Cheek
sé sprenglærður eðlisfræð-
ingur hefur hann einnig gert
brids að atvinnu sinni og þau
hjónin spila allan ársins
hring, vítt og breitt um
Bandaríkin. En sjaldnast
saman. Cheek spilaði við
Lynn Deas í helsta tvímenn-
ingsmóti sumarleikanna í
Washington í júlí og enduðu
þau í öðru sæti. Hér er fallegt
spil úr því móti:
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ Á53
♥ G8432
♦ D96
♣104
Vestur Austur
♠ G1082 ♠ KD97
♥ 105 ♥ 97
♦ G4 ♦ K107
♣97532 ♣KDG8
Suður
♠ 64
♥ ÁKD6
♦ Á8532
♣Á6
Vestur Norður Austur Suður
– Pass 1 lauf 1 hjarta
3 lauf 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur kom út með lauf-
tvistinn. Útspilsreglur AV
eru þriðja eða fimmta hæsta
frá lengd og Cheek sló því
strax föstu að vestur ætti
fimmlit. Hann tók á laufás og
tvisvar tromp. Velti svo fyrir
sér tígulíferðinni. Hvorugur
mótherjanna sá ástæðu til að
melda spaða, sem benti til
þess að liturinn skiptist 4–4
þeirra á milli. Miðað við þá
forsendu og útspil vesturs
var ljóst að vestur átti tvo
tígla, en austur þrjá.
Cheek spilaði nú litlum
tígli að blindum og lét níuna.
Austur drap með tíu, tók slag
á lauf og skipti yfir í spaða.
Trúr sannfæringu sinni drap
Cheek á spaðaás og fór af
stað með tíguldrottningu.
Þannig gleypi hann gosann
og tígullinn var allur frír og
11 slagir í húsi.
Þessi litaríferð er gjarnan
kennd við Brasilíumanninn
Gabriel Chagas, sem skrifaði
um hana heilræðagrein fyrir
mörgum árum og kallaði
„intra-svíningu“.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
GULLBRÚÐKAUP.
Í dag, föstudaginn
20. september, eiga
50 ára brúðkaupsaf-
mæli heiðurshjónin
Geirþrúður K.
Kristjánsdóttir og
Ólafur Bjarnason.
Þau verða í óvissu-
ferð með fjölskyldu
sinni í dag. Núver-
andi tímabundið
heimilisfang þeirra
er á Hesthömrum 17
í Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert góðlyndur og glað-
sinna og lætur fátt koma þér
úr jafnvægi. Vinir þínir
treysta mjög á þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt friður sé æskileg-
ur getur hann stundum
verið of dýru verði
keyptur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ekkert er sjálfsagt í
henni veröld. Mundu að
gæði og magn fara ekki
endilega saman.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér vinnst ákaflega vel
þessa dagana og afköst
þín vekja athygli yfir-
boðaranna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dragðu nú ekki lengur
að byrja á heilsubót-
inni, sem þú hefur svo
lengi horft til.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert aufúsugestur en
þarft þessvegna að
gæta þess að misbjóða
ekki gestrisni fólks.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú ekki leysir málin
strax er hættan sú að
þessir litlu hlutir safn-
ist saman og þá fáir þú
ekki við neitt ráðið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Brenndu engar brýr að
baki þér því samböndin
geta verið dýrmætari
en þig hafði órað fyrir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú mátt eiga von á
óvæntum gestum og
ættir því að hafa eitt-
hvað að bjóða þeim við
höndina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt vini á mörgum
stöðum, sem eru meira
en fúsir til þess að
hlaupa undir bagga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gættu þess vel að aðrir
komist ekki í þau mál
hjá þér, sem þú vilt
hafa út af fyrir þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sýndu háttprýði í allri
framgöngu því þá mun
þér farnast vel.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vertu óhræddur við að
viðra hugmyndir þínar
því það gæti borgað sig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRÉTTIR
Borgarafundir
um Evrópumál
SAMFYLKINGIN boðar til op-
inna umræðufunda á Norðurlandi
um Evrópumál um næstu helgi.
Verða þeir haldnir sem hér segir:
Í Nýja bíói, Siglufirði, laugar-
daginn 21. september kl. 11, Í sal
Verkakvennafélagsins Öldunnar,
Sauðárkróki, laugardaginn 21.
september kl. 16 og á Hótel Húsa-
vík sunnudaginn 22. september kl.
14. Frummælendur verða úr hópi
sérfræðinga og heimamanna og
reifa helstu álitamál varðandi
tengsl Íslands og Evrópu og mik-
ilvæga hagsmuni Íslendinga til
framtíðar. Almennar umræður
verða í kjölfarið og kaffiveitingar
standa til boða.