Morgunblaðið - 03.10.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐLEG björgunarsveit með
17 Íslendinga innanborðs er nýkom-
in heim frá Rússlandi þar sem hún
tók þátt í 1.200 manna alþjóðlegri
björgunaræfingu, Bogorodsk 2002,
sem haldin var á vegum NATO og
rússneskra stjórnvalda. Æfingin er
sú fyrsta sinnar tegund sem fram
fer þar í landi en hún var haldin í
Noginsk, 300.000 manna borg suð-
austur af Moskvu.
Þar voru samankomnar björg-
unarsveitir víðsvegar frá Evrópu
sem sérhæfa sig í eiturefnabjörgun,
eyðingu sprengiefna, rústabjörgun
og fleiru. Einnig var þar „ítalskt
eldhús“ sem sérhæfir sig í að elda
ofan í 300 manns á klukkustund, svo
dæmi séu nefnd. Að auki voru við-
staddir fulltrúar 30 annarra ríkja,
meðal annars frá Bandaríkjunum.
Að sögn Ásgeirs Böðvarssonar
sem fór fyrir íslensku sveitinni var
meginþema æfingarinnar að æfa
viðbrögð við árás hryðjuverka-
manna á eiturefnaverksmiðju. Ís-
lenska sveitin er að stofninum til
sveit Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og sérhæfir sig í rústa-
björgun en að henni koma bæði
dóms- og utanríkisráðuneytið.
Henni er ætlað að starfa erlendis
þegar vá ber að höndum og heyrir
þá beint undir utanríkisráðuneytið.
Í sveitinni eru auk óbreyttra björg-
unarsveitarmanna, læknir og
slökkviliðsmenn. Sveitinni er skipt
niður í þrjá hópa sem leita í rústum,
bjarga og hlúa að fólki.
Að sögn Ásgeirs var æfingin
mjög gagnleg og segir hann að
sveitin hafi meðal annars lært
hvernig koma megi búnaði, samtals
1½ tonni, í flutningshæft form og í
gegnum rússneska tollinn, sem sé
ekki hlaupið að. Það var íslenska
utanríkisráðuneytið sem kostaði för
hópsins til Rússlands.
Erlendu björgunarsveitirnar sýndu mikinn áhuga á búnaði íslensku sveitarinnar. Hér er Elín, einn liðsmaður
alþjóðasveitarinnar, að sýna áhugasömum hljóðleitartæki.
Viðbrögð æfð við árásum
hryðjuverkamanna
Íslensk sveit tók þátt í fjölþjóðaæfingu í Rússlandi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að lög, sem Alþingi setti snemma
síðasta árs í kjölfar svonefnds ör-
yrkjadóms Hæstaréttar, hafi ekki
stangast á við hæstaréttardóminn
eins og Öryrkjabandalag Íslands
hélt fram.
Héraðsdómur sýknaði í gær
Tryggingastofnun ríkisins af kröfu
konu sem naut örorkulífeyris en
frá árinu 1994 fékk konan ekki
svokallaða tekjutryggingu vegna
ákvæða laga um að tekjur maka
skertu þá tryggingu.
Hæstiréttur kvað upp þann dóm
í árslok árið 2000 að Trygginga-
stofnun hefði verið óheimilt að
skerða tekjutryggingu örorkulíf-
eyrisþega í hjúskap vegna tekna
maka með þeim hætti sem gert
var. Sérstakur starfshópur á veg-
um ríkisstjórnarinnar fjallaði um
dóminn og komst að þeirri nið-
urstöðu að í honum fælist ekki að
óheimilt væri að láta tekjur maka
hafa áhrif á tekjutryggingu ör-
orkulífeyrisþega svo framarlega
sem réttur þeirra til lágmarkslíf-
eyris væri tryggður.
Í kjölfarið voru sett lög á Al-
þingi þar sem viðmiðum um lág-
markslífeyri var breytt. Einnig var
ákvæði í lögunum um að örorkulíf-
eyrisþegar skyldu fá greiddar
bætur samkvæmt lögunum allt að
fjögur ár aftur í tímann frá árs-
lokum 2000 og var þar m.a. vitnað
til fyrningarlaga.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur að lögmaður Öryrkja-
bandalags Íslands hafi sent Trygg-
ingastofnun bréf í janúar 2001 þar
sem fram kom að litið væri svo á
að fyrirhugaðar greiðslur væru
ekki í samræmi við niðurstöður
Hæstaréttar. Því var lýst yfir af
hálfu bandalagsins fyrir hönd allra
þeirra sem það rak fyrra málið
fyrir, að greiðslum væri veitt við-
taka með þeim fyrirvara að þeir
teldu greiðslurnar í ósamræmi við
hæstaréttardóminn.
Fram kom í svarbréfi Trygg-
ingastofnunar að hún gæti ekki
fallist á að Öryrkjabandalagið
kæmi fram fyrir hönd allra þeirra
einstaklinga sem hagsmuna ættu
að gæta en stofnunin myndi hlíta
niðurstöðu í dómsmáli sem ein-
staklingur kynni að höfða í tilefni
af dómnum. Höfðaði kona í kjölfar-
ið mál þar sem hún krafðist
greiðslna fyrir árin 1994–1996 og
fullrar tekjutryggingar árin 1999–
2000 en óumdeilt var að hún hefði
fengið fulla tekjutryggingu allt
þetta tímabil ef tekna maka henn-
ar hefði ekki notið við.
Hvergi tekið fram að skerð-
ing bryti gegn stjórnarskrá
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að kröfur um tekju-
tryggingu fyrir árin 1994–1996
væru fyrndar.
Varðandi kröfuna um fulla
tekjutryggingu vísar héraðsdómur
m.a. til dóms Hæstaréttar þar sem
segir að það geti átt við málefna-
leg rök að styðjast að gera nokk-
urn greinarmun á greiðslum úr op-
inberum sjóðum eftir því hvort
viðkomandi sé í sambúð eða ekki.
Taldi héraðsdómur að í dómi
Hæstaréttar hefði hvergi verið
beinlínis tekið fram að skerðing
tekjutryggingar öryrkja í hjúskap
vegna tekna maka stangaðist á við
stjórnarskrá og því hefði skerðing
tekjutryggingar vegna tekna maka
verið með öllu óheimil.
Héraðsdómari taldi heldur ekki
að stefnandi hefði sýnt fram á að
lög sem sett voru árið 2001 í kjöl-
far hæstaréttardómsins tryggðu
ekki öryrkja í hjúskap fullnægj-
andi rétt til að taka þátt í fram-
færslu fjölskyldu sinnar.
Loks taldi dómarinn að ekki
hefði verið sýnt fram á að bráða-
birgðaákvæði í lögunum mismun-
aði kynjunum með beinum eða
óbeinum hætti. Var Trygginga-
stofnun því sýknuð af öllum kröf-
um konunnar.
Sigurður Tómas Magnússon
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Lögmaður Tryggingastofnunar var
Skarphéðinn Þórisson ríkislögmað-
ur en Ragnar Aðalsteinsson hrl.
flutti mál konunnar.
Lög um skerðingu bóta stang-
ast ekki á við hæstaréttardóm
EINSTAKLINGUR, smitaður af
lungnaberklum, er nú í einangrun á
sjúkrahúsi hér á landi. Viðkomandi er
starfsmaður í heilbrigðisþjónustu. Að
sögn Haraldar Briem sóttvarnar-
læknis greinast um 10–15 manns ár-
lega með berkla á Íslandi. Ýmist má
rekja tilfellin til þess að sjúkdómur-
inn sé að taka sig upp í eldra fólki sem
smitaðist af berklum í æsku eða að
fólk beri bakteríuna hingað frá út-
löndum. Haraldur hafði ekki vitn-
eskju um hvorum hópnum einstak-
lingurinn sem nú er í einangrun
tilheyrir.
Að sögn Haraldar eru berklar út-
breiddir í Suðaustur-Asíu og Afríku.
Þá eru þeir einnig algengir í Austur-
Evrópu, en sjúkdómurinn finnst um
allan heim. Ekki eru allir berklar
smitandi.
„Á meðan menn eru smitandi eru
þeir hafðir í einangrun. Það getur
tekið nokkra daga þar til einstakling-
ur er ekki lengur smitberi,“ segir
Haraldur. Að vera í einangrun þýðir
að sögn Haraldar að viðkomandi er
hafður á einstaklingsstofu og fyllstu
varúðar er gætt við umgengni við
hann.
Ef um lungnaberkla er að ræða eru
fyrstu einkenni þau að fólk fær hita,
svitnar og hóstar. „Ef berklarnir eru
farnir að naga sig inn í lungun geta
menn hóstað upp blóði,“ segir Har-
aldur. Við berklum eru gefin sýklalyf.
10–15 berkla-
tilfelli á Ís-
landi árlega
STUTT
Í KVÖLD kveikir Vigdís Finnboga-
dóttir, verndari Krabbameinsfélags
Íslands, á bleikri lýsingu á Perlunni á
Öskjuhlíð. Þar með hefst árveknis-
átak um brjóstakrabbamein, sem
stendur allan mánuðinn.
Þetta er liður í alþjóðlegu átaki og
verða mannvirki í fjölmörgum lönd-
um lýst upp, meðal annars Empire
State-byggingin í New York og versl-
unin Harrods í London. Í fyrra var
Hallgrímskirkja lýst upp af sama til-
efni.
Lýsingin á Perlunni er í boði Orku-
veitu Reykjavíkur og verður kveikt á
ljósunum til sunnudagskvölds. Til að
bleiki liturinn sjáist sem best er 48
sterkum kösturum bætt við þá lýs-
ingu sem fyrir er og bleikar filmur
settar á alla kastarana.
Perlan lýst
í bleikum lit
SÁTT hefur náðst í dómsmáli
vegna heimildarmyndarinnar Í
skóm drekans. Aðstandendur feg-
urðarkeppninnar Ungfrú Ísland.is
og þátttakendur í keppninni árið
2000 hafa því fallið frá lögbanni
sem fékkst á sýningu myndarinnar
í vor. Í skóm drekans segir frá
þátttöku Hrannar Sveinsdóttur í
keppninni árið 2000. Skilyrði fyrir
sátt eru að andlit og hár nokkurra
keppenda verði gerð ógreinileg,
þ.e. máð út. Myndin verður vænt-
anlega sýnd í kvikmyndahúsum í
lok mánaðarins.
Böðvar Bjarki Pétursson, einn
framleiðenda myndarinnar, segist
mjög sáttur með þessi málalok og
vonast til að það sama gildi um að-
standendur keppninnar og aðra
keppendur. Hann segir að legið
hafi fyrir að um miðjan október
ætti að reka staðfestingarmál lög-
bannsins. „Síðan kom frá þeim [að-
standendum og keppendum] listi
yfir atriði sem gerðar voru at-
hugasemdir við eða óskað var eftir
að tekin yrðu út,“ segir Böðvar
Bjarki. „Það var í fyrsta skipti þá
sem við áttuðum okkur á því í
hverju gagnrýnin var fólgin. Í
kjölfarið vildum við leita sátta. Við
buðum þeim að fara þessa leið og
þær tóku því.“
Böðvar Bjarki segir að aldrei
hefði verið sæst á að klippa mynd-
ina. Hann telur að með því að má
út andlit nokkurra keppenda sé
gildi myndarinnar hins vegar ekki
rýrt.
Sátt um
myndina
Í skóm
drekans
FRAMKVÆMDASTJÓRI Flug-
félagsins Jórvíkur segir að flugmenn
flugvélarinnar sem lenti í alvarlegu
flugatviki yfir vesturströnd Græn-
lands í ágúst sl. hafi þrjár athuga-
semdir við bráðabirgðaskýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa í Danmörku.
Að hans sögn hafa þeir þó ákveðið að
tjá sig ekki um atvikið við fjölmiðla
fyrr en endanleg skýrsla liggur fyrir.
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélagsins Jórvík-
ur, segir að ekki sé rétt að flugmenn-
irnir hafi orðið varir við ísingu í lofti.
Þeir hafi óskað eftir að hækka flugið
þegar þeir nálguðust Grænlandsjök-
ul. Þá hafi flugmennirnir aftur náð
stjórn á vélinni í um 3.000 feta hæð
(um 1.000 metrum) en ekki 2.000 feta
hæð eins og segir í skýrslunni. Þess-
um athugasemdum muni flugmenn-
irnir koma á framfæri við rannsókn-
arnefndina. Að öðru leyti sé rétt farið
með.
Aðspurður segir hann að ekki sé
deilt um hvort flugvélin hafi verið í
hættu. Enginn hafi þó slasast og það
hljóti að vera fyrir mestu.
Þrjár athuga-
semdir við
flugskýrslu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦