Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 5. Síðustu sýningar
Kvikmyndir .com
DV
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14.
Hvað gerist þegar þú tekur
smábæjargaurinn, gefur honum
40 milljarða dollara og sleppir
honum lausum í stórborginni?
Adam Sandler fer á kostum
í geggjaðri gamanmynd!
1/2Kvikmyndir.is
kl. 4.45.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDYI I
ADAM
SANDLER
WINONA
RYDER
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Hvað gerist þegar þú tekur
smábæjargaurinn, gefur honum 40
milljarða dollara og sleppir honum
lausum í stórborginni?
Adam Sandler fer á kostum
í geggjaðri gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY
1/2Kvikmyndir.is
Allir áttu þeir eitt
sameiginlegt.........ekki neitt
Sýnd kl. 6.
SÖNGKONAN Ms. Dynamite sann-
aði að hún er komin til að vera á
Mobo-verðlaunahátíðinni í London
Arena á þriðjudagskvöldið. Verð-
launin eru tileinkuð tónlist af
„svörtum uppruna“ og hlaut þessi
21 árs söngfugl þrenn verðlaun,
besti tónlistarmaður/hljómsveit árs-
ins í Bretlandi, besti nýliðinn og
fyrsti smellur hennar, „It Takes
More“, var valinn smáskífa ársins.
Fyrir hálfum mánuði komst
Dynamite aldeilis í sviðsljósið þegar
hún vann öllum að óvörum hin
þekktu Mercury-verðlaun fyrir
frumraun sína, A Little Deeper.
Ms. Dynamite heitir í raun Niomi
Daley og er frá Kentish Town í
norðurhluta London. Hún var til-
nefnd til sex Mobo-verðlauna.
Bandaríska söngdrottningin
Alicia Keys hlaut hins vegar verð-
launin fyrir bestu plötuna fyrir
Songs In A Minor.
Annað nýstirni, bandaríska rapp-
söngkonan Ashanti, fékk tvenn
verðlaun á hátíðinni.
Bandaríski rapparinn LL Cool J
kynnti á verðlaunahátíðinni ásamt
söngkonunni Alesha Dixon úr
bresku sveitinni Mis-Teeq.
Aaliyah og Lisa „Lefteye“ Lopes
úr TLC sem báðar létust nýverið
voru ofarlega í huga hátíðargesta.
Aaliyah lést í flugslysi á síðasta ári
en myndbandið við lag hennar
„More Than a Woman“ var valið
myndband ársins en Lopes, sem
lést í bílslysi á þessu ári, var verð-
launuð sérstaklega fyrir frábært
framlag til tónlistar. Söngkonan
þekkta, Chaka Khan, hlaut síðan
sérstök verðlaun fyrir æviframlag
sitt til tónlistar en hún er einna best
þekkt fyrir lögin „I Feel For You“
og „Ain’t Nobody“.
Hinn hugljúfi Craig David söng
nýtt lag á hátíðinni við góðar und-
irtektir. Lagið „What’s Your
Flava?“ er af væntanlegri smáskífu
kappans.
Einnig má nefna að bandaríski
rapparinn Ja Rule fékk verðlaun í
flokknum besta hipp hopp-sveitin/
tónlistarmaðurinn.
Craig David tók nýtt lag
á hátíðinni.
LL Cool J kom fram á hátíðinni
auk þess að kynna hana.
Ms. Dynamite tekur við verð-
launum í London Arena.
Sprengi-
kraftur Ms.
Dynamite
Mobo-verðlaunin veitt í London
ÞRÁTT fyrir rokk-, diskó-, hip-
hop- og fönkdaður Los Angeles-bú-
ans Beck þá hefur ætíð legið ljóst
fyrir hversu legubekkurinn er hon-
um kær. Á ég þá við rúmstokkinn,
hina svokölluðu bedsitter-tónlist
sem átti mestum vinsældum að
fagna um og í kringum 1970 þegar
hlédrægir og rómantískir einyrkjar
á borð við Cat Stevens, Jim Croce,
Leonard Cohen,
Tim Hardin, Tim
Buckley, James
Taylor, Joni Mitch-
ell, John Martin og
Nick Drake
(reyndar ekki fyrr
en eftir sinn dag) töldust til popp-
stjarna. Rótin er í sjálfu sér trúba-
dúraarfurinn, alþýðutónlistin, og það
sem Beck karlinn sannar hér á þess-
ari einkar lágstemmdu plötu sinni er
að hann veit upp á hár hvað þessi
tónlist gengur út á, á fullkomlega
heima á legubekknum.
Ég er samt nokkuð viss um að
fylgjendur hans kunna misvel að
meta þessa allróttæku stefnubreyt-
ingu. Þessir hugga sig eflaust við að
þetta sé ekki í fyrsta sinn sem slíkt á
sér stað og binda eflaust vonir við að
næsta plata verði hressilegri. En ég
er ekki einn þeirra. Ég vil hafa Beck
nákvæmlega svona því svona virðist
honum líða best. Gutlandi á gítarinn
sinn, syngjandi ástaróða, við undir-
spil barrokkkenndra strengja. Og
ekki spillir fáguð upptökustjórn Nig-
els Godrichs fyrir en eins og hann
sannaði hvað best á Ok Computer
með Radiohead og Regeneration
með Divine Comedy þá getur enginn
skapað eins notalega hljóma og
hann.
Sea Change, sem mun er fram líða
stundir eflaust verða kölluð „bleika
platan“, er vitnisburður um tónlist-
armann sem flest er til lista lagt,
söngvaskáld sem styrkist með hverri
plötu, sama hvaða tónlistarstefnu
hann tekur sér fyrir hendur.
Tónlist
Lúrt á
legubekk
Beck
Sea Change
Geffen
Sjöunda plata fjölhæfasta poppara síðari
tíma. Sver sig í ætt við rólegheit Mut-
ations – er bara enn rólegri.
Skarphéðinn Guðmundsson
.... og afköstin margfaldast!
www.h.is