Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 50
MINNINGAR 50 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Tengdafaðir minn Hjörtur Jónsson er lát- inn og ég vil minnast hans. Kynni okkar hófust fyrir tæplega þrjátíu ár- um og nú koma ótal myndir upp í hugann. Það sem einkenndi Hjört var skapfesta, dugnaður, þrautseigja og það að gefast aldrei upp. Ég minnist þess einnig hve hann var heilsteypt- ur, vandaður og góður maður og þess sama krafðist hann af öðrum. Hann var maður orðsins í mörgum skilningi, orðheldinn og orðvar en einnig orðhagur í besta lagi, fljúgandi hagmæltur og átti létt með að kasta fram vísum við öll möguleg tækifæri. Hann sendi mér oft stöku, eitt sinn fyrir hálfmánabakstur og fyrir rauð- an yddara fékk ég kvæði sem var heil sjö erindi. En ég fékk líka vísur og kvæði við stór tilefni eins og þegar dætur mínar fæddust. Þannig tjáði hann hug sinn til mín og fyrir það þakka ég af alhug. Hjörtur var stórbrotinn maður, vinfastur og vinmargur. Hann var höfðingi heim að sækja og hélt stór- veislur á heimili sínu þar sem hann var glaður og veitull gestgjafi og hann naut þeirrar náðar að fá að lifa með reisn fram á síðasta dag. Hann var hafsjór af fróðleik, fylgdist vel með og hafði ákveðnar skoðanir á málefnum líðandi stundar. Hugur hans var sífrjór og hugsunin skörp fram á hinsta dag. Hann bar mikla umhyggju fyrir öllu sínu fólki og sýndi okkur rækt- arsemi á margvíslegan hátt. Ég met afar mikils trygglyndi hans og ástúð alla tíð, í minn garð og dætra minna sem elskuðu afa sinn og dáðu. Honum var mjög annt um þær. Með elsku- semi sinni og rækt átti hann þátt í að koma þeim til manns og er skerfur hans til uppeldis þeirra ómetanlegur og dýrmætt veganesti fyrir þær. Hjörtur var góður tengdafaðir og þótt hann kynni vel að meta verkin mín þá veit ég að hann mat mig enn meira og þá góðu tilfinningu mun ég bera í hjarta mínu og hafa sem vega- nesti fyrir mig. Blessuð sé minning Hjartar og megi hann vera Guði falinn. Sigríður Baldursdóttir. Kvaddur er merkur athafnamaður, Hjörtur Jónsson kaupmaður, er lést 24. september sl. við háan aldur. Hjörtur var margbrotinn maður og kom víða við í lífi og starfi, einbeittur og ákveðinn, markviss og fylginn sér. Ótrauður baráttumaður athafnafrels- is og frjálsrar hugsunar. Hann hasl- aði sér snemma völl á sviði verslunar og viðskipta og varð einn helsti for- ustumaður íslenskrar verslunarstétt- ar á síðustu öld. Bóndasonurinn frá Saurbæ í Vatnsdal í Húnavatnssýslu, HJÖRTUR JÓNSSON ✝ Hjörtur Jónssonkaupmaður fæddist í Saurbæ í Vatnsdal í Austur- Húnavatnssýslu 12. nóvember 1910. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi þriðjudaginn 24. september síð- astliðinn og var út- för hans gerð frá Dómkirkjunni 30. september. einum fegursta dal á Íslandi, hélt suður til náms í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1929. Það var árið sem heims- kreppan mikla skall á í New York. Afleiðing- arnar voru skelfilegar í viðskiptalífi heimsins. Íslendingar fóru ekki varhluta af því frekar en aðrar þjóðir. Höft og skömmtunarkerfi voru innleidd. Fram- tíðarhorfur fyrir unga og framsækna menn voru ekki glæsilegar. En á Íslandi voru að koma fram á sviðið ungir menn sem trúðu á mátt sinn og megin, einkaframtak og einkarekstur, þrátt fyrir alla kreppu og pólitíska óáran. Hjörtur Jónsson var einn þeirra. Það þurfti mikinn hugsjónaeld og sterk bein til að berj- ast gegn sósíalisma þess tíma og koma fólki í skilning um að aðeins í skjóli verslunarfrelsis og einkafram- taks væri unnt að byggja upp at- vinnulíf landsmanna og tryggja kjör fólksins. Stór hluti af lífsstarfi Hjart- ar Jónssonar fór í þessa baráttu, sam- hliða uppbyggingu og rekstri eigin fyrirtækja. Hann átti hauk í horni þar sem Þóra eiginkona hans var. Þau voru samhent og samstillt. Hjörtur var til forustu fallinn, þótt hann væri frekar hlédrægur í dag- legri umgengni. Eigi var hann orð- margur en á Hjört var hlustað þegar hann kvaddi sér hljóðs. Sá sem þetta ritar kynntist Hirti Jónssyni fyrst á skrifstofu Félags ís- lenskra iðnrekenda um og eftir 1950. Þá var íslenskur iðnaður ekki hátt skrifaður, varla kominn á blað. En á skrifstofu FÍI komu iðnrekendur oft og réðu ráðum sínum. Hjörtur var þar virkur félagi. Pétur Sæmundsen, síðar bankastjóri, vinur minn, var skrifstofustjóri FÍI og kynnti mig fyrir Hirti og Hauki Eggertssyni, vini hans. Allir voru Húnvetningar og Páll S. Pálsson, frkvstj. FÍI, líka. Þeir höfðu gaman af að spjalla við háskóla- strákana um daginn og veginn og svo auðvitað um atvinnulífið og Sjálf- stæðisflokkinn. Allt frá þessum tíma lágu leiðir okkar Hjartar Jónssonar víða saman og þótt nokkur aldursmunur væri á okkur áttum við sameiginlega vini. Hjörtur og Þóra höfðu mikla ánægju af að umgangast sér yngra fólk með öðrum vinum sínum. Í þeim efnum ríkti jafnræði og blandaðist hópurinn vel saman. Árið 1957 var undirritaður valinn til forustu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Sem slíkur sat ég hin- um megin við borðið í samningum við vinnuveitendur og þar með, Hjört Jónsson. Pétur Sæmundsen sem þá var atkvæðamaður í VR, varaformað- ur minn, sagði mér að við aðskilnað kaupmanna og verslunarfólks í VR árið 1955 hefði Hjörtur verið ómet- anlegur þátttakandi og gætt þess sér- staklega að á hvorugan skyldi hallað. Verslunarfólk gat vel unað málalok- um. Á þessu merka ári í sögu VR var jafnframt samið um stofnun Lífeyr- issjóðs verslunarmanna. Af hálfu vinnuveitenda var Hjörtur einn af áhugasömustu mönnum um fram- gang þess. Hann var síðan kjörinn sem einn af fimm fyrstu stjórnar- mönnum sjóðsins. Sat hann þar í stjórn í samfellt 21 ár og mestan þann tíma sem formaður, eða tímabilið 1956 til 1977. Lífeyrissjóður verslunarmanna var á þeim tíma nýjung í kjaramálum fólks á hinum almenna vinnumarkaði. Þó höfðu starfsmenn KEA á Akur- eyri öðlast þennan rétt árið 1938, en útbreiðsla þessa samningsréttar var afar takmörkuð. Hér var því mikið verk að vinna. Í fyrsta lagi að færa tryggingarnar nær fólkinu sjálfu frá opinbera kerf- inu og í öðru lagi að renna stoðum undir öflugri tryggingar með sjóðs- myndun sem væntanlega gæti eflt stöðu sjóðsfélaga með lánveitingum á góðum kjörum sem og til atvinnulífs- ins. Undir forustu Hjartar var, með stuðningi hæfra samstarfsmanna í stjórn, unnið markvisst að uppbygg- ingu LV. Fyrstu áratugirnir voru mótunarár. Býr LV að því ennþá. Oft var við ramman reip að draga en erf- iðleikarnir voru til að sigrast á þeim. Síðustu tíu ár í formennskutíð sat ég í stjórn LV með honum. Það voru lærdómsrík ár. Hjörtur gat verið harður í horn að taka og ákveðinn. En það gátu líka fleiri verið. Á eftir var tekist í hendur og Hjörtur brosti sínu sáttarbrosi. Hann vildi ætíð horfa fram á við og hafði gaman af nýjung- um og nýjum hugmyndum. Hann greindi kjarnann frá hisminu. Sá sem þetta ritar átti sem fyrr segir mikið og gott samstarf við Hjört Jónsson, bæði við lausn kjarasamn- inga ásamt félögum sínum í VR sem og á þeim vettvangi, þar sem versl- unarstéttin átti sameiginlegra hags- muna að gæta. Sameinað hefur verið staðið að eflingu Verzlunarskóla Ís- lands, Lífeyrissjóðs verslunarmanna, stofnun Verzlunarbanka Íslands, síð- ar ásamt öðrum bönkum Íslands- banka, stofnun Fjárfestingarfélags Íslands og byggingu Húss verslunar- innar, svo eitthvað sé nefnt. Merkja má spor Hjartar í öllum þessum mál- um. Hann átti ríkan þátt í framgangi þeirra. Hjörtur setti sterkan svip á þróun verslunar og viðskipta í Reykjavík. Hann var ekki maður sýndarmennsku en vann sín stærstu verk af hógværð og í kyrrþey og náði settu marki með bandamönnum sín- um. Samband okkar Ragnheiðar við Hjört og Þóru þróaðist í góða vináttu sem var okkur verðmæt. Við fundum innilegan hlýleik og vinsemd án þess að um það væru höfð mörg orð. Við kveðjum Hjört Jónsson með þakklæti og virðingu og vottum Þóru og fjöl- skyldunni samúð á þessari kveðju- stund. Ragnheiður og Guðmundur H. Garðarsson. Elsku Oddur minn, þakka þér fyrir ára- tuga vináttu. Megir þú hvíla í friði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. ODDUR INGVARSSON ✝ Oddur AlbertIngvarsson fæddist á Ísafirði 7. september 1925. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans við Hringbraut 4. september síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Hafn- arfjarðarkirkju 13. september. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus er úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ég sendi ástvinum öllum innilegar samúðarkveðjur, kærleikur hans mun fylgja ykkur um ókomna tíð. Guð blessi ykkur. Valgerður Hansdóttir (Valla). ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR HÓLMFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, frá Neðri-Mýrum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra, Sauðárkróki. Einar G. Guðmundsson, Sonja G. Wiium, Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir, Guðrún B. Guðmundsdóttir, Egill Benediktsson, barnabörn og barnabarnabarn. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minn- ingargreina Elsku mamma. Það er svo sárt að skrifa um þig. Ég hefði viljað segja þér svo margt. En aldrei óraði mig fyrir að laugardagurinn 14. síðastliðinn yrði síðasti dagurinn sem þú tækir á móti mér og Sigga Má, en við vorum að koma úr sundi. Þú varst svo ánægð með að Siggi strunsaði sjálfur inn til þín. Þú sagðir: „Nei, sko, Siggi, þetta er í fyrsta skiptið sem þú labbar sjálfur inn til ömmu.“ Hann horfði skringilega á þig af því að þú varst JENNÝ LIND ÁRNADÓTTIR ✝ Jenný LindÁrnadóttir fædd- ist í Hjarðarholti í Glerárþorpi við Ak- ureyri 8. janúar 1936. Hún lést á Landspítalanum – Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 21. september síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 28. september. með rúllur í hárinu. Ég er svo þakklát ykkur pabba hvað þið hafið reynst mér vel, sérstaklega þegar ég bjó hjá ykkur í tvö ár með Alexander. Fyrir það er ég þakklát. Allt- af varstu boðin og búin að aðstoða á allan hátt sem þú gast. Ég er svo þakklát að hafa átt þessa viku með þér áð- ur en þú fórst. Það gaf mér mikið. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann, en sumar ætla ég að eiga fyrir mig. Ein skemmtileg minning er þegar við mæðgurnar, þú, Kolla systir og ég, fórum í veiði- ferð í veiðihús í eina nótt. Það var ekki mikið veitt en mikið spjallað og mikið var gaman. Elsku mamma, við pössum pabba og höldum utan um hann. Þið sem áttuð svo margt saman. Þó sérstak- lega Þjórsárdalinn. Það voru ykkar bestu stundir. Alexander minn sagði: „Hver veiðir nú allan fiskinn í pollinum?“ Hann fær hann kannski núna. Ég segi Sigga allt um þig þegar hann verður eldri því hann er að missa af miklu. Þú varst kjarnakona eða „töff“ eins og hjartalæknirinn þinn sagði. Ég er svo ánægð með hvað þið tókuð vel á móti Gesti þegar hann kom í fjölskylduna. Og þú sagðir: „Harpa, þetta er góður maður,“ og það eru orð að sönnu, mamma mín, hann er það. Jæja, elsku mamma, ég kveð í bili en við sjáumst seinna. Elsku pabbi, Guð gefi þér allan þann styrk sem þú þarft og okkur öllum. Ég vil koma á framfæri þakklæti til gjörgæslu- deildar Landspítalans við Hring- braut og deildar 14E, þeirra Gerðar og Guðbjargar og allra hinna. Þið er- uð frábært fólk. Bless, elsku mamma mín, og Guð geymi þig. Þín dóttir Harpa Þorleifsdóttir. Elsku amma. Við sendum þér þessa bæn: Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku afi, Guð gefi þér styrk. Bless, elsku amma, og Guð geymi þig. Þín barnabörn Alexander Gunnarsson og Sigurður Már Gestsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.