Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt oroblu@islensk-erlenda.is 20% kynningarafsláttur af OROBLU sokkum og sokkabuxum. Kynnum OROBLU haustvörurnar í Lyfju Lágmúla í dag, fimmtudag, og Lyfju Smáratorgi föstudag og Lyfju Laugavegi laugardag kl. 13-17. www.lyfja.is Hólmfríður var að láta af störfum. Margt athyglisvert kom fram, t.d. að hver íbúi í Borgarbyggð skilar frá sér 36 kílóum af sorpi á mánuði. Sorp- hirðugjöldin sem íbúar greiða, dugir aðeins fyrir um 60% þess sem það kostar að farga því. Langtímamark- mið sveitarfélagsins er að flokka allt Á BORGARFUNDI nýlega kynnti Hólmfríður Sveinsdóttir verkefnis- stjóri stöðumat, markmið og fram- kvæmdaáætlun Staðardagskrár 21 í Borgarbyggð. Í apríl 2000 samþykkti bæjarstjórn Borgarbyggðar um- hverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Með því var samþykkt að koma upp Staðardagskrá 21 í formi aðgerða- áætlana. Vorið 2001 var skipaður þriggja manna stýrihópur og í nóvember sama ár var Hólmfríður Sveinsdóttir ráðinn verkefnisstjóri til að vinna að stöðumati og markmiðssetningu fyrir 11 málaflokka sem höfðu orðið fyrir valinu. Síðar var tveimur málaflokk- um bætt við. Verkefnið var kynnt íbúum og settur á laggirnar tengsla- hópur almennra borgara sem hafði það hlutverk að vera verkefnistjóra og stýrihópi til ráðgjafar. Alls voru 46 manns þátttakendur í tengslahópi enda krefst verkefnið virkar þátttöku í búanna. Fundurinn var nokkurs konar upp- lýsinga og uppgjörsfundur þar sem sorp flokkað og endurnýtt eins og hægt er. Eitt markmiðið er að gera börn og unglinga meðvitaðri um um- hverfisvernd, m.a. með markvissri stefnu í grunn- og leikskólum sveitar- félagins. Reifaðar voru hugmyndir eins og að hafa sérstakan umhverf- isdag einu sinni á skólaárinu og að nýta mætti starfskrafta vinnuskólans á sumrin til að hreinsa fjörur. Tillaga um bíllausan dag einu sinni á ári í Borgarnesi var kynnt og fólk ennfremur hvatt til að ganga sem mest. Drög að skýrslunni verða að- gengileg á vefsíðu Borgarbyggðar, http://www.borgarbyggd.is. Hver íbúi í Borgarbyggð skilar 36 kílóum af sorpi á mánuði Borgarnes Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Frá fundinum þar sem Staðardagskrá var til umræðu, lengst til vinstri er Stefán Gíslason umhverfisfræðingur. LÚS hefur gert vart við sig í Borg- arnesi og eru staðfest tilfelli bæði í leikskólanum, grunnskólanum og tón- listarskólanum. Því miður virðist lús- in vera lífseig þar sem árlega koma upp tilfelli. Í haust mun þó ástandið vera víðtækara og er áríðandi að for- eldrar séu vakandi gagnvart smiti. Samskipti nemenda eru fjölþætt og því smithætta mikil. Því er mikilvægt að bregðast fljótt og vel við og for- eldrar þurfa að kemba hár barna sinna. Ef lús greinist hjá barni skal undantekingarlaust láta skólaheilsu- gæslu eða kennara vita. Lús gerir ekki mannamun, en hægt er að minnka líkurnar á smiti með því að setja ekki upp húfur eða nota greiður annarra. Lús í Borg- arnesi Borgarnes ÁRLEGT Sprettsundmót ÍBV verður haldið í Sundhöll Vest- mannaeyja laugardaginn 5. októ- ber kl. 9–19 og sunnudaginn 6. október kl. 9–12.30. Keppendur verða um 200 frá 7 félögum. M.a. munu mæta Örn Arnarson, Kol- brún Ýr Kristjánsdóttir, Íris Edda Heimisdóttir og Jón Oddur Sig- urðsson. Um 30 keppendur frá ÍBV munu einnig taka þátt, segir í fréttatilkynningu. Sprettsund- mót ÍBV Vestmannaeyjar SUNDSAMBAND Íslands sendi öll landslið landsins í æfingabúðir í Íþróttamiðstöðina á Laugarvatni helgina 21.–22. september. Um var að ræða framtíðarhóp, unglinga- landslið, landsliðshóp og úrvalshóp (Ólympíuhóp) alls um 60 af bestu sundmönnum Íslands. Markmiðið með æfingabúðunum var að ná góðum æfingum í sund- lauginni fyrir hvern hóp. Synt var tvisvar á dag en auk þess var hlaupið úti og þrek æft í sal. Þá var einnig mikilvægt að láta alla þessa hópa hittast og að fólk lærði hvert af öðru. Þá nýtti sundsambandið sér ágæta fyrirlestraraðstöðu sem boðið er upp á á Laugarvatni og hélt Helga Sigurðardóttir, næringarfræðingi og fyrrum ólympíufari, mjög góðan fyr- irlestur um næringarfræði fyrir hóp- ana. Fimm þjálfarar sáu um þjálf- unina og síðan var almennur þjálfarafundur um kvöldið þar sem farið var yfir ýmis mikilvæg atriði í sundheiminum. Ljósmynd/Kári Jónsson Landsliðsmenn í sundi á æfingu við góðar aðstæður á Laugarvatni. Öll landsliðin í sundi æfðu á Laugarvatni Laugarvatn ÞRÁTT fyrir að gránað hafi í fjöll um helgina var ekki þar með sagt að komið væri vélsleðafæri og vél- sleðaáhugamenn almennt ekki komnir á ról. Menn ráku því margir hverjir upp stór augu sem leið áttu um þjóðveginn sunnan Húsavíkur, en þar þeystu vélsleðar og reyndar hjól líka um túnið við Saltvík þó enginn væri snjórinn. Að sögn Jónasar Emilssonar, stjórnarmans í Mótorsportklúbbi Húsavíkur, var þarna á ferðinni óformleg æfingakeppni í gras- spyrnu. Þar reyndu með sér hús- vískir mótorsportáhugamenn ásamt einum meðbróður sínum frá Akureyri. Jónas segir að ætlunin sé að halda þarna æfingamót um næstu helgi þar sem von sé á fleiri keppendum frá Akureyri og víða að, auk heimamanna. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Snjór virðist vera orðinn aukaatriði hjá húsvískum vélsleðamönnum. Tveir þeirra þeysa hér um Saltvíkurtúnið. Húsvískir vélsleðamenn reyndu með sér í grasspyrnu Húsavík HRÓBJARTUR Heiðar Ómarsson frá Suður-Hvammi í Mýrdal var í sendiferð fyrir foreldra sína þegar fréttaritari náði þessari mynd af honum. Hann er með kerru, útbúna úr gömlum fiskkassa, tengda aftan í hjólið sitt, sem faðir hans hjálpaði honum að smíða. Að sögn Hróbjarts kemur þessi kerra sér oft vel. Til dæmis þegar ein af kúnum í Suður-Hvammi bar úti á túni í sumar tók hann nýfædd- an kálfinn í kerruna og hjólaði með hann heim í fjós með kúna gang- andi á eftir sér. Notar hjóla- kerruna í sendiferðir Fagridalur Morgunblaðið/Jónas Erlendsson ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.