Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 39
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 39 Á DAGSKRÁ þingsins „Straumar og stefnur í tungumálakennslu á Ís- landi“ var m.a. umfjöllun um viðhorf til tungumála hér á landi. Byggt var á könnun frá árinu 2001 og sagði Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður frá nokkrum niðurstöðum. Meðal þess sem hann benti á var að ungt fólk telji spænsku mikilvæga. Einnig að þeim fækki sem telji mikilvægt að læra dönsku. Skilaboðin eru því: „Meiri spænsku, minni dönsku“. Í tungumálakönnuninni kom einn- ig fram að margir læri ensku á þátt- um úr umhverfinu sem birtast í kvikmyndahúsum, bókum, tímarit- um og sjónvarpinu. „Þessir þættir skapa forskotið,“ sagði Hjálmar, og bætti við að mikilvægt væri að fleiri tungumál heyrðust í umhverfinu. Ef til vill þyrfti að gera byltingu í bíó- menningunni. Full ástæða væri til þess, því áhorfendur virtust mæta vel á t.d. danskar og spænskar kvik- myndir. Hér eru nokkrir punktar úr tungumálakönnun 2001. Sjá nánar tengil.  Langstærstur hluti þátttakenda telur ensku vera það erlenda tungumál sem mikilvægast er að hafa vald á. Þýska, spænska og danska eru þau tungumál sem flestir telja næst mikilvægast að hafa vald á. Lítill munur er á skoð- unum fólks milli hópa. Marktækur munur er þó eftir aldri. Ungt fólk telur spænsku mikilvægari en þeir sem eldri eru og þeir sem eldri eru telja dönsku og Norð- urlandamál mikilvægari en þeir sem yngri eru.  Þeir sem kunna dönsku hafa helst aflað sér þekkingar á málinu í gegnum bækur og tímarit auk hefðbundins lærdóms. Margir lærðu einnig dönsku þegar þeir voru búsettir í landinu eða á ferða- lögum. Nokkuð stór hluti fólks hefur aðeins lært dönsku á hefð- bundinn hátt í skóla.  Þeir sem kunna ensku hafa helst aflað sér þekkingar á málinu í gegnum bíómyndir og sjónvarp auk hefðbundins lærdóms. Margir lærðu einnig ensku gegnum bæk- ur og tímarit eða á ferðalögum. Fáir hafa aðeins lært ensku á hefðbundinn hátt í skóla.  Flestir eða rúmlega 39% hafa áhuga á því að læra þýsku og 37% aðspurðra hafa áhuga á að læra spænsku.  Rúmur helmingur aðspurðra, eða rúmlega 54%, telur að nemendur eigi að læra tvö erlend tungumál í grunnskóla og tæplega 35% finnst að tungumálin eigi að vera þrjú. Karlar eru hlynntari því en konur að læra eigi tvö tungumál á meðan konum finnst frekar en körlum að nemendur eigi að læra þrjú erlend tungumál í grunnskóla.  Alls eru rúmlega 94% aðspurðra frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að allir Íslendingar ættu að kunna a.m.k. eitt erlent tungumál. Áhugavert er að af þessum 94% eru rúmlega 81% mjög sammála fullyrðingunni.  Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem eru frekar eða mjög sammála því að Íslendingar eigi að kunna a.m.k. eitt tungumál telja að það tungumál eigi að vera enska.  Rúmlega 38% þeirra sem telja að Íslendingar eigi að kunna a.m.k. tvö tungumál telja að annað tungumálið eigi að vera danska, rúmlega 18% finnst það eiga að vera þýska og rúmlega 11% finnst það eiga að vera spænska. Morgunblaðið/Þorkell Jafnvel þótt Íslendingar myndu tala ensku reiprennandi væri það ekki nóg. Gestir á málþinginu. Meiri spænsku, minni dönsku TENGLAR .............................................. http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/ Menntskyrsla.pdf Bankastræti 3, s. 551 3635 Póstkröfusendum BIODROGA snyrtivörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.