Morgunblaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Heitt og nýlagað
það er
ekkert betra
Moccamaster
90
8
/
TA
K
T
ÍK
- kaffivél sem þú getur treyst
Moccamaster
Kaffitár, Bankastræti
Rönning, Borgartúni
Glóey, Ármúla
Rafsól, Skipholti
Te & Kaffibúðin, Suðurveri
Tónborg, Hamraborg Kóp.
Rafbúiðn, Álfaskeið, Hafj.
Rafbúð Sigurdórs, Akranesi
Öryggi, Húsavík
Einkaumboð
Glitnir, Borgarnesi
Straumur, Ísafirði
Rönning, Akureyri.
Geisli, Vestmannaeyjar
Árvirkinn, Selfossi
Ljósboginn, Keflavík
Rafb. Sveinn Guðm., Egilsst.
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki
Hér eru helstu útsölustaðirnir.
TVÆR bikiníklæddar fyrirsætur á
vegum bresks dagblaðs tóku á móti
Michael Meacher (lengst til vinstri
á myndinni) er hann kom niður á
strönd og lagðist til sunds í sjónum
við Blackpool í gær, þar sem
Verkamannaflokkurinn var með
ráðstefnu. Meacher stóð með þessu
við loforð sem hann gaf um að ef
sjórinn væri það hreinn að hann
stæðist evrópska hreinlætisstaðla
skyldi hann fá sér sundsprett.
Reuters
Stóð við loforðið
MEÐLIMIR í stærstu launþega-
samtökum Suður-Afríku, COS-
ATU, lögðu niður vinnu í gær,
annan daginn í röð, en stjórnvöld
og kaupsýslumenn sögðu áhrif
verkfallsins lítil. Tugir þúsunda
meðlima COSATU efndu til úti-
funda á þriðjudaginn til að mót-
mæla einkavæðingaráformum rík-
isstjórnarinnar, sem launþega-
samtökin segja að hafi leitt til
atvinnuleysis.
Markmið COSATU með aðgerð-
unum undanfarna tvo daga var að
fá ríkisstjórn Thabos Mbekis til að
stöðva einkavæðingarferlið, en í
yfirlýsingu frá skrifstofu forsetans
í gær sagði, að verkföllin og úti-
fundirnir hefðu ekki valdið tiltak-
anlegum truflunum.
Hagfræðingurinn Azar Jammine
sagði að einörð afstaða stjórnar-
innar gegn mótmælaaðgerðunum
hefði haft jákvæð áhrif á efnahags-
lífið. „Með því að tala gegn verk-
fallinu sendir ríkisstjórnin þau
skilaboð að hún sé hliðholl fjár-
festum og hviki ekki frá einkavæð-
ingastefnu sinni,“ sagði í blaðinu
Business Day.
Suður-Afríka
Verkfall
gegn einka-
væðingu
Jóhannesarborg. AFP.
JOHN Major, fyrrverandi forsætisráðherra, var
ekki jafn hversdagslegur og af var látið, heldur
hinn mesti æringi og alltaf á bláum nærbuxum.
Kom það fram í fyrradag í þriðja útdrætti úr
dagbókarfærslum Edwinu Currie, fyrrverandi
ráðherra, en í viðtali við BBC, breska rík-
isútvarpið, í gær skammaði hún Major fyrir að
segja, að fjögurra ára samband þeirra hefði ver-
ið skammarlegasti tíminn á ævi sinni.
Í útdrættinum, sem birtist í Times, segir Curr-
ie frá því hvað hún hafi verið langt niðri þegar
Major var kominn inn fyrir dyr í Downing-stræti
en hún bara óbreyttur þingmaður.
„Ég er einmana, vanrækt, ónotuð og óelskuð,“
skrifaði hún í dagbókina sína 24. janúar 1991,
tveimur mánuðum eftir að Major varð forsætis-
ráðherra. „Ég vildi, að öll íbúðin mín væri upp-
tekin af einum stórum manni á bláum nær-
buxum.“ Átti hún þá við Major, sem var einu
sinni lýst þannig, að hann væri maður, sem girti
alltaf skyrtuna sína ofan í nærbuxurnar.
Segist hafa
slitið sambandinu
Bretar hafa lengi gert sér þá mynd af Major,
að hann sé viðkunnanlegur maður en ekki mjög
spennandi, en það breyttist allt síðastliðinn laug-
ardag þegar Currie svipti hulunni af sambandi
þeirra frá 1984 til 1988. Major staðfesti það og
sagði um leið, að þessi fjögur ár hefðu verið
skammarlegasti tíminn á ævi sinni. Tók Currie
það mjög óstinnt upp í viðtali við BBC í gær.
„Hann getur sagt það núna, að hann skammist
sín, en hann skammaðist sín ekki þá og vildi
halda sambandinu áfram,“ sagði hún og bætti
við, að hún hefði slitið því þegar Major varð ráð-
herra. „Ég batt enda á það með bréfi til Johns.
Ég vildi það ekki en mér fannst það vera orðið of
áhættusamt eftir að hann varð ráðherra.“
Bresku blöðin hafa gert sér mikinn mat úr
þessum uppljóstrunum eins og þeirra er von og
vísa. „Nú vitum við hvað John Major gerði eftir
að hafa sporðrennt nokkrum volgum bjórum.
Hann fékk sér karrí,“ sagði í Guardian en karrí
er currie á ensku.
Vonaðist eftir
ráðherraembætti
Currie, sem var heilbrigðisráðherra fram á
árið 1997 þegar hún neyddist til að segja af sér
eftir að hafa fullyrt, að salmonellubakteríur fyr-
irfyndust ekki í breskum eggjum, segir í þriðja
útdrættinum frá hrifningu sinni þegar Major tók
við af Margaret Thatcher.
„John! Þú verður að móta alveg nýja sýn fyrir
Evrópu“ segist hún hafa sagt við Major en síðan
helltust „vonbrigðin“ yfir hana þegar hún frétti
af því, að hún yrði ekki á meðal ráðherranna.
Currie, sem þá var í stormasömu hjónabandi,
skrifaði í dagbókina sína: „Ég kemst bara ekki
af á þingmannslaununum einum saman.“
Vildi gera hreint
fyrir sínum dyrum
Currie ver þá ákvörðun sína að ljóstra upp um
sambandið við Major með því, að hún hafi „mátt
til að gera hreint fyrir sínum dyrum“. Segir hún,
að dætur sínar tvær hafi orðið dálítið hissa en
það sé nú einu sinni svona. Stundum sé hneyksl-
ast á börnunum, stundum á foreldrunum.
„Hann skammaðist sín ekki þá“
Edwina Currie heldur
áfram að segja frá
ástarsambandi sínu
við John Major
London. AP, AFP.
Currie er hún kom í BBC-viðtalið í gær.
Reuters
INNBROTS- og bílþjófar, kvenna-
veskjaræningjar og vasaþjófar í
borginni Cali í Kólumbíu hyggjast
fara í verkfall næstkomandi sunnu-
dag í mótmælaskyni við „hvítflibba-
glæpi“ í landinu, eftir því sem tals-
maður þjófanna, José Nieto, sagði í
útvarpsviðtali. „Við viljum mótmæla
þeirri spillingu sem er að draga land
vort niður í svaðið,“ tjáði Nieto RCN-
útvarpsstöðinni er hann boðaði eins
dags „vinnustöðvunina“. Sagði Nieto,
sem sjálfur segist vera skáld og hefur
setið af sér fangelsisdóm fyrir smá-
þjófnað, að „stéttarbræður“ sínir
myndu halda að sér höndum á sunnu-
daginn til að vekja athygli á því sem
íbúar Kólumbíu mættu þola vegna
spillingar í stjórnkerfinu.
FJÖGURRA ára drengur í Linz í
Austurríki hringdi í neyðarlínuna til
að tilkynna um matreiðslu ömmu
sinnar, sem honum líkaði ekki.
Greindi lögregla í borginni frá þessu
á þriðjudag. Eftir að amma drengsins
skammaði hann fyrir að fúlsa við
kvöldmatnum hringdi hann í neyð-
arlínuna til að kvarta undan hegðun
hennar. Lögreglumaðurinn sem varð
fyrir svörum sýndi snilli í samn-
ingatækni og taldi drenginn á að
smakka a. m. k. á mat ömmu sinnar
áður en hann legði aftur á.
TARJA Halonen, forseti Finnlands,
hefur fundið sér nýtt tómstundagam-
an. Hún sækir nú að minnsta kosti
einu sinni í viku æfingar í magadansi í
kvennaíþróttafélagi í verkamanna-
hverfinu Kallio í Helsinki. Maga-
dansiðkunin er forsetanum mikil
skemmtun, eftir því sem blaðafulltrúi
Halonen skýrði frá. Sjúkraþjálfari
hennar kvað hafa mælt með því að
hún prófaði magadansæfingar, þar
sem þær styrktu bakvöðvana.
Þjófar í
verkfall
112: Amma eldar
vondan mat!
Magadans
að læknisráði