Morgunblaðið - 03.10.2002, Síða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
RÁÐGERT er að eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga hefji störf nú
á haustmánuðum um leið og ársreikn-
ingar sveitarfélaga fyrir árið 2001 og
fjárhagsáætlanir fyrir 2002 liggja fyr-
ir. Í hitteðfyrra sendi nefndin 20
sveitarfélögum bréf þar sem óskað
var eftir upplýsingum um hvernig
sveitarstjórnir hygðust bregðast við
fjárhagsvanda viðkomandi sveitarfé-
laga. Í janúar síðastliðnum var 31
sveitarfélagi sent slík bréf.
Að sögn Garðars Jónssonar, starfs-
manns nefndarinnar, hefur í flestum
tilvikum ekki þótt ástæða til að hafa
frekari afskipti af fjármálum sveitar-
félaga og á það m.a. við Mosfellsbæ
sem fékk bréf frá nefndinni í janúar
síðastliðnum og í fyrra. Eins og greint
hefur verið frá hafa sjálfstæðismenn í
bæjarstjórn Mosfellsbæjar látið gera
úttekt á fjárhagnum og kom í ljós að
rekstrarkostnaður bæjarfélagsins
var 97% af skatttekjum fyrstu sex
mánuði ársins. Framsóknarmenn,
sem eru í minnihluta í bæjarstjórn
hafa mótmælt þessu og segja að þess-
ir útreikningar gefi ekki rétta mynd
af stöðu bæjarsjóðs.
Samkvæmt ákvæðum í sveitar-
stjórnarlögunum hefur eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga það
hlutverk með höndum að fylgjast með
fjármálum sveitarfélaga, en í því felst
að hún ber árlega saman reiknings-
skil sveitarfélaga og ber þau saman
við sérstakar viðmiðanir sem nefndin
styðst við. Í reglugerð sem fjallar um
mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaga,
fjármálalegt eftirlit eftirlitsnefndar
og málsmeðferð er að finna þær lyk-
iltölur sem nefndinni er ætlað að
reikna út og bera saman við viðmið
sem árlega eru sett í samráði við
Samband íslenskra sveitarfélaga. Ef
ljóst þykir að fjármál sveitarfélags
stefni í óefni skal nefndin aðvara við-
komandi sveitarfélag og upplýsa fé-
lagsmálaráðuneytið um álit sitt.
31 sveitarfélag fékk bréf
frá nefndinni í janúar
Garðar Jónsson, starfsmaður eftir-
litsnefndarinnar, segir að í kjölfar ár-
legrar athugunar nefndarinnar á
reikningsskilum sveitarfélaganna í
janúar hafi bréf verið sent til 31 sveit-
arfélags þar sem óskað var eftir að
nefndinni yrði gerð grein fyrir því
innan tveggja mánaða hvernig þróun-
in hefði verið í fjármálum sveitarfé-
lagsins á árinu 2001 og hvernig við-
komandi sveitarstjórnir hygðust
bregðast við fjárhagsvanda sveitar-
sjóðsins. Meðal sveitarfélaga sem
fengu slíkt bréf voru Hafnarfjarðar-
kaupstaður, Bessastaðahreppur og
Mosfellsbær. Garðar segir að eftir að
nefndin hafi skoðað þau gögn sem
hún óskaði eftir að fá hafi ekki verið
talin ástæða af hálfu nefndarinnar til
að vera lengur með fjármál þessara
sveitarfélaga til sérstakrar skoðunar.
Í ár koma til framkvæmda nýjar
reikningsskilareglur sveitarfélaga
sem sveitarfélög þurfa m.a. að fara
eftir við gerð fyrir 2002. Garðar nefn-
ir að samhliða þessu sé verið að und-
irbúa gerð nýrra viðmiða við mat á
fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Með nýj-
um reikningsskilareglum verða fjár-
festingar sveitarfélaganna allar eign-
færðar í stað þess að þær voru sumar
gjaldfærðar áður. Þá eru teknar upp
afskriftir en með þessum formbreyt-
ingum mun rekstrarkostnaður sveit-
arfélaganna aukast. Að sögn Garðars
má gera ráð fyrir að viðmið, sem not-
uð hafa verið þegar litið er til rekstr-
arkostnaðar sem hlutfall af skatt-
tekjum sveitarfélaga, muni í kjölfarið
hækka.
Að sögn Garðars er gert ráð fyrir
að nefndin hefji störf nú með haustinu
um leið og gögn frá öllum sveitar-
félögum liggja fyrir. Farið verður yfir
ársreikninga sveitarfélaga 2001 og
fjárhagsáætlun þeirra 2002 og
þriggja ára áætlun 2003–5.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur störf
Rekstrarkostnaður eykst
með nýjum reglum
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, segir að það sé nánast útilokað
að fá undanþágu frá ákvæðum tilskipunar Evr-
ópusambandsins um vinnslu raforku, en hún
hyggst leggja fram á Alþingi í haust frumvarp
til nýrra raforkulaga sem byggist m.a. á til-
skipun ESB um innri markað raforku í Evr-
ópu. Valgerður segir að málið sé mjög flókið og
að nokkurs misskilnings hafi gætt í umræðu
um það.
„Á Íslandi hefur ekki verið sett heildstæð
raforkulöggjöf heldur eru ákvæði á þessu sviði
dreifð í mörgum lögum,“ útskýrir hún. „Með
frumvarpi til nýrra raforkulaga er stefnt að því
að koma á heildstæðri löggjöf um alla þætti
raforkumarkaðar, þ.e. vinnslu, flutning, dreif-
ingu og sölu. Það felur í sér róttækar breyt-
ingar og má ávallt búast við gagnrýni við svo
umfangsmiklar skipulagsbreytingar sem
markaðsvæðing raforkugeirans felur í sér.“
Hagkvæmni aukist
Valgerður segir að hafa verði í huga að það
kerfi sem við búum við um þessar mundir sé að
mörgu leyti gallað. „Það er ógegnsætt og nán-
ast enginn sveigjanleiki fyrir raforkukaupend-
ur um verð og val á viðsemjendum. Þá hafa fyr-
irtækin, sem starfa á markaðnum ónógan
hvata til að takmarka kostnað og leita hagræð-
ingar þar sem lagaumhverfið býður ekki upp á
það.“
Valgerður segir frumvarpið byggjast á sjón-
armiðum um gegnsæi og jafnræði, en það sé
forsenda fyrir samkeppni í vinnslu og sölu raf-
orku. „Með því að koma á forsendum fyrir
samkeppni við vinnslu og sölu raforku skapast
ákveðið aðhald fyrir fyrirtækin og hvati til að
standa sig gagnvart raforkukaupendum. Ég
trúi því að hagkvæmni í rekstri fyrirtækjanna
geti aukist og raforkukaupendur geti fengið
meira val, ekki síst minni iðnfyrirtæki. Laga-
legar forsendur samkeppni er fyrsta skrefið
sem þarf að taka eigi, þegar til lengri tíma er
litið, að geta myndast samkeppni hér.“
Valgerður segir að krafa tilskipunar ESB
varðandi vinnslu raforku, sem frumvarpið
byggist m.a. á, lúti fyrst og fremst að því að
tryggja að aðgangur að vinnslu sé opinn þann-
ig að allir starfi á sömu forsendum á grundvelli
hlutlægra og gegnsærra reglna. „Hvað sölu-
hliðina varðar gerir tilskipunin kröfu um að
ríkin opni ákveðið hlutfall sölumarkaðarins. Í
dag er þetta hlutfall þannig að Ísland myndi
fullnægja ákvæðum tilskipunarinnar í þessu
sambandi með því að stóriðjan ein væri frjáls.
Þá er heimilt samkvæmt tilskipuninni að
leggja ýmsar opinberar skyldur á raforkufyr-
irtæki enda sé jafnræði tryggt. Það sem ég er
að segja er að tilskipunin eins og hún er í dag
felur í sér töluvert svigrúm enda er hún mála-
miðlun. Það er hins vegar ekki svo að það henti
endilega hagsmunum okkar að leggja á þann
hluta kerfisins sem á að markaðsvæða, þ.e.
vinnslu og sölu, ríkar opinberar skyldur.“
Ólíkir hagsmunir
Valgerður tekur fram að tilskipunin mæli
ekki fyrir um einkavæðingu raforkufyrirtækja.
„Ekkert er komið inn á eignarhald raforkufyr-
irtækja í tilskipuninni. Það sama á við um
frumvarpið. Það hefur engin ákvörðun verið
tekin um að einkavæða raforkufyrirtækin.
Einkavæðing helst ekki alltaf í hendur við
markaðsvæðingu.“
Valgerður skýrir frá því að þegar árið 1997
hafi verið mótuð sú pólitíska stefna af ríkis-
stjórninni að ganga lengra í ýmsum efnum en
tilskipunin gerir kröfu um. „Þessari stefnu hef-
ur verið fylgt síðan þó auðvitað hafi ýmis út-
færsluatriði tekið breytingum eftir því sem
málið hefur verið unnið lengra. Eftir ítarlega
skoðun, umsögn Orkustofnunar og Samorku
og viðbrögð framkvæmdastjórnar ESB við
ýmsum athugasemdum og spurningum var tal-
ið eðlilegt að tilskipunin yrði felld inn í samn-
inginn um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta
var samþykkt af ríkisstjórninni og síðar Al-
þingi. Það var því metið svo að ekki væri unnt
að fá undanþágu frá tilskipuninni í heild sinni.
Nánast er útilokað að fá undanþágu frá ákvæð-
um tilskipunarinnar um vinnslu raforku. Það
er litið svo á að jafnræði þurfi að vera til
vinnslu raforku hvort sem raforkukerfi er ein-
angrað eða ekki þar sem einangrunin kemur
ekki í veg fyrir samkeppni um orkufrekan iðn-
að,“ segir ráðherra.
„Þær ólíku skoðanir sem uppi eru um út-
færslu á stærð flutningskerfisins og um gjald-
skrárreglur frumvarpsins og hvernig skuli
staðið að jöfnun í raforkukerfinu koma tilskip-
uninni einfaldlega ekkert við. Hér takast á
ólíkir hagsmunir sem aldrei verður unnt að
koma til móts við þannig að allir verði sáttir,“
segir ráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um nýtt raforkufrumvarp
Nánast útilokað að
fá undanþágu
frá tilskipun ESB
ÞÓ að fæstir hafi
heyrt talað um dælu-
handfangsverðlaunin
eru þau ágætlega
þekkt meðal vatns-
veitumanna og teljast
talsverður vegsauki
fyrir þá sem vinna að
vatnsverndarmálum.
Fyrir skömmu fékk
María J. Gunn-
arsdóttir, deild-
arstjóri hita- og
vatnsveitusviðs Sam-
orku, þessi verðlaun
fyrir hlut sinn í að
koma upp gæðaeft-
irlitskerfi hjá íslensk-
um vatnsveitum.
Verðlaunin voru veitt af Norð-
urlandadeild John Snow samtak-
anna sem eru kennd við dr. John
Snow (1813–1858) sem var fræg-
ur læknir og farsóttarfræðingur í
London á 19. öld. Snow rannsak-
aði m.a. kóleru og með því að
kortleggja kólerutilfelli komst
hann að því að þau voru flest í
kringum ákveðinn
brunn í borginni.
Hann ályktaði að kól-
eran bærist með
vatninu og ákvað að
taka til sinna ráða.
Snow einfaldlega tók
dæluhandfangið af
brunndælunni og
kom þannig í veg fyr-
ir að borgarbúar
drykkju úr brunn-
inum um leið og hann
sýndi fram á að kól-
era bærist með
menguðu vatni. Við
þennan atburð eru
verðlaunin kennd.
Vatn er
matvæli
María segir að verðlaunin hafi
hún hlotið fyrir þátt sinn í að
koma á svokölluðu Gámes-
eftirlitskerfi hjá íslenskum vatns-
veitum. Um er að ræða innra eft-
irlitskerfi sem er ætlað að
tryggja gæði vatnsins og felst
m.a. í því að greina áhættuþætti
og mikilvæga eftirlitsstaði. Gám-
es-kerfið er þróað fyrir mat-
vælaiðnaðinn og á því vel við
vatnsveitur enda „er vatn skil-
greint sem matvæli og vatns-
veitur eru þar af leiðandi mat-
vælafyrirtæki,“ segir María.
Eftirlitskerfinu sé ætlað að
tryggja að vatnverndarsvæði
spillist ekki og að vatnið haldist
ómengað á leiðarenda. Samorka,
samtök raforku-, hita- og vatns-
veitna, hafi átt frumkvæðið að því
að íslenskar vatnsveitur tækju
upp kerfið og segist María líta
svo á að hún hafi hlotið verðlaun-
in fyrir hönd Samorku og þeirra
vatnsveitna sem hafa komið kerf-
inu upp.
Nú fá 70% landsmanna vatn frá
12 vatnsveitum sem nota Gámes-
kerfið. Helst séu það minni vatns-
veitur í eigu sveitarfélaga og
einkaveitur sem ekki notist við
kerfið en María segir að Holl-
ustuvernd ríkisins og Samorka
séu að vinna að einfaldara eftir-
litskerfi sem henti minni vatns-
veitum betur.
Tólf vatnsveitur nota Gámes-kerfið
Fékk dæluhand-
fangsverðlaunin
fyrir vatnsvernd
María J.
Gunnarsdóttir
ISUZU-umboðið, Bílheimar, efndi
til hópferðar Isuzu-jeppaeigenda
síðasta laugardag. Ekið var upp
úr Fljótshlíðinni, norður með Þrí-
hyrningi, austur fyrir Tindfjalla-
jökul og niður í Fljótshlíð á ný
um Þverárbotna og framhjá Ein-
hyrningi. Á leiðinni um Þver-
árbotna liggur slóðin meðfram
Þverá og þrengsli milli tveggja
grettistaka. Voru leiðsögumenn
ferðarinnar tilbúnir að leiðbeina
ökumönnum gegnum þrengslin.
Fór engum sögum af óhöppum
eða vandræðagangi í þessari
nærri 80 bíla ferð og ekki spillti
að ærlegt sólskin á köflum gerði
ferðina notalega.
Þrengsli
í Þverár-
botnum
Morgunblaðið/jt