Morgunblaðið - 03.10.2002, Síða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 13
MAGNÚS Skúlason, yfirlæknir á
réttargeðdeildinni á Sogni, telur at-
hugunarvert að útvíkka ósakhæfis-
hugtakið, sem notað er til að skera
úr um hvort afbrotamenn séu við
fulla geðheilsu og því ábyrgir gjörða
sinna. Núverandi skipting í sak- og
ósakhæfi sé of einhliða og ósakhæf-
isdómar of fáir.
„Mér finnst að brotamenn ættu að
geta verið dæmdir í öryggisgæslu
samhliða meðferð, án þess að vera
svona bullandi veikir eins og núver-
andi ósakhæfishugtak kveður á um.
Ef menn eru veikir, en ekki nógu
veikir til að teljast ósakhæfir, eru
þeir komnir í flokk með öðrum föng-
um og verða að sæta fangelsisvist
sem sakhæfir séu, þ.e.a.s. sem
ábyrgir gjörða sinna,“ segir Magn-
ús.
Nefnir hann sem möguleika að bú-
ið verði til millistig milli ósakhæfis
og sakhæfis, sem menn fengju mis-
munandi stranga meðferðadóma þar
sem væri heimilt að meðhöndla þá
eins og ósakhæfa menn. Þannig
gætu þeir fengið meðferð þó að þeir
séu sakhæfir. Segir Magnús, sem
gegnir hlutastarfi á Litla-Hrauni
samhliða starfi sínu á Sogni, að
margir þeirra fanga sem nú sitja inni
á Litla-Hrauni séu ekki heilir heilsu
en hafi verið dæmdir sakhæfir.
Steinn Ármann Stefánsson, sem
situr í gæsluvarðhaldi grunaður um
að hafa stungið mann til bana síðasta
fimmtudag, var metinn sakhæfur
fyrir tíu árum og var á reynslulausn
þegar hann var handtekinn. Magnús
segist telja að full ástæða hefði verið
til að endurmeta geðheilsu Steins
þar sem hann hafi rofið skilorð í
millitíðinni. Almennt telur hann að
rannsóknir á geðheilsu brotamanna
megi endurtaka oftar en nú er gert.
Magnús segir að Sogn sé fyrst og
fremst ætlað fyrir ósakhæfa brota-
menn. Þegar pláss losni á Sogni sé
leyfilegt að taka inn vistmenn úr
fangelsum sem geðlæknir telji að
eigi erindi þangað. Magnús segir að
Steinn hafi verið tekinn inn á Sogn
vegna heilsufars síns, einnig hafi
menn ekki talið gott fyrir hann að
vera á Litla-Hrauni, þó að hann hafi
á sínum tíma verið metinn sakhæfur.
Sogn getur ekki beitt
sakhæfa menn þvingunum
Sogn geti ekki beitt sakhæfa
menn neinum þvingnum, eins og að
skylda þá í meðferð, halda þeim
gegn vilja sínum eða til að taka
ákveðin lyf. „Þegar sakhæfir menn
eru á Sogni losna þeir út þegar af-
plánun lýkur og það var farið að
styttast í það í tilfelli Steins,“ segir
Magnús en það hefur verið gagn-
rýnt, m.a. af fjölskyldu Steins Ár-
manns að hann hafi fengið reynslu-
lausn og hafi verið útskrifaður af
Sogni.
Magnús segir að Steinn hafi feng-
ið reynslulausn frá Fangelsismála-
stofnun, það hafi verið sameiginlegt
mat manna að það hafi verið tíma-
bært að veita honum reynslulausn,
þar sem búið var að tryggja honum
vist á sambýli. Það úrræði hafi
brugðist eftir að heilsu Steins hrak-
aði, en Magnús segir að Fangelsis-
málastofnun hafi ekki talið ástæðu
til að draga vilyrði fyrir reynslu-
lausn til baka, þrátt fyrir að aðstæð-
ur Steins hafi breyst. Steinn var
kominn aftur á Litla-Hraun þegar
hann fékk reynslulausnina og stóð
Fangelsismálastofnun við fyrri
ákvörðun sína um reynslulausn. Í
framhaldinu var honum útvegað
pláss í Byrginu.
Yfirlæknir á Sogni telur að útvíkka megi ósakhæfishugtakið
Margir fangar ekki heilir heilsu þótt
þeir hafi verið dæmdir sakhæfir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Stef-
áni Aðalsteinssyni, sem skrifaði
þremur ráðherrum bréf 29. maí síð-
astliðinn vegna sonar síns:
„Einhvern tíma sagði mér sjóað-
ur blaðamaður að reiður skyldi ég
aldrei skrifa grein til birtingar í
fjölmiðli. Því miður verð ég að
hundsa þetta heilræði nú.
Ráðherrarnir þrír sem ég skrif-
aði hjálparbeiðni þann 29. maí sl.
hafa þvegið rækilega hendur sínar í
fjölmiðlum í gær og í dag, sem er í
sjálfu sér eðlileg viðleitni, þar sem
handvömmin, valdhrokinn, mann-
fyrirlitingin og viðbragðaleysið við
beiðni minni í maí var yfirgengilegt
og óafsakanlegt.
Þeir hafa allir reynt að afsaka sig
með því að ekki sé hægt að svipta
sakhæfan einstakling frelsi sem er
mótfallinn því nema með breytingu
á lögum. Sama segir yfirlæknirinn
á Sogni sem sparkaði syni mínum
út í kuldann, án þess að gera nauð-
synlegar varúðarráðstafanir fyrst.
Ég vil hins vegar taka það skýrt
fram að Steinn var og hefur verið
reiðubúinn til að fara hvert sem er,
hvenær sem er á þann stað sem í
boði væri til langtímalausnar, ef
„kerfið“ hefði viljað opna honum
einhverjar dyr, þannig að bull sem
þetta á ekki við í hans tilviki.
Ég sé mig nauðbeygðan til að
spyrja ráðherrana eftirfarandi
spurninga:
1. Hver mat Stein Ármann geðklofa
með ofsóknarívafi í upphafi?
2. Hvað er langt síðan?
3. Hver mat Stein Ármann sakhæf-
an og á hvaða forsendum?
4. Hafa verið gerðar geðrannsóknir
á honum síðan þá?
5. Hefur sakhæfi hans verið metið
síðan?
6. Ef svo er ekki, þá hvers vegna?
Nú segjast ráðherrarnir ætla að
skipa nefnd, (einn talklúbbinn enn)
sem á að rabba saman um áþekk
mál sem kunna að koma upp í
framtíðinni, þegar ráðuneytin skar-
ast.
Ég hef alltaf verið á þeirri skoð-
un að flokksbundnir framapotarar
eigi ekki að vera í forsvari fyrir svo
mikilvæga málaflokka sem heil-
brigðismál, dómsmál og félagsmál
eru. Betra væri að þjóðin fengi að
ráða í þessi störf menn og konur að
verðleikum.
Þeir sem eru ráðnir til að sjá um
að þessi mál séu í lagi en eru van-
færir um það eiga að leita sér ann-
arra viðfangsefna.
Orðagjálfur og aðgerðaleysi er
ekki sú þjónusta sem borgarinn
ætlast til að fá fyrir skattpeninga
sína.“
Athugasemd við
afsakanir ráðherra
Skilaði
jákvæðum
áhrifum til
þátttakenda
„RÁÐSTEFNAN heppnaðist mjög
vel og samstarfið við rússnesku að-
ilana gekk vel, þeir lögðu mikið á sig
til að gera hana sem besta úr garði,“
sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sem ásamt
fleiri Íslendingum sótti Rannsókna-
þing norðursins sem haldið var í
Veliky, Novgorod í Rússlandi ný-
lega.
Þetta er í annað sinn sem efnt er
til Rannsóknaþings norðursins og
voru þátttakendur tæplega 200 tals-
ins frá öllum aðildarríkjum Norður-
skautsráðsins, flestir frá Rússlandi.
Rannsóknaþingið er samstarfs-
vettvangur þar sem vísinda- og
stjórnmálamenn í norðlægum lönd-
um koma saman og bera saman
bækur sínar. Fyrsta þingið var hald-
ið á Akureyri árið 2000. Háskólinn á
Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stef-
ánssonar sjá um skipulagningu og
skrifstofuhald fyrir Rannsóknaþing
norðursins og gegna þar mikilvægu
forystuhlutverki.
Meðal þeirra Íslendinga sem
sóttu þingið nú og fluttu erindi voru
hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti,
Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra og þá flutti Benedikt Jónsson,
sendiherra Íslands í Rússlandi, er-
indi.
Að sögn Þorsteins flutti forseti Ís-
lands inngangsræðu Rannsókna-
þingsins og gerði í henni grein fyrir
núverandi stöðu þjóða á norður-
skautssvæðinu sem og þeim vanda-
málum og tækifærum sem þær
standa frammi fyrir. Einnig fjallaði
hann um stöðu viðskipta, menntunar
og menningar á svæðinu.
Þema þessa þings var menntun og
mannauður og var að sögn Þorsteins
fjallað um efnið m.a. út frá þeim
möguleikum sem fyrir hendi eru
varðandi menntun, rannsóknir og
búsetuhreyfingar á svæðinu. Einnig
var til umfjöllunar sambúð milli svo-
kallaðs þekkingarfrumbyggja og
vestrænna vísinda og tækni.
„Menn ræddu mikið um nýsköpun
og nýja stjórnunarhætti, aukið sjálf-
stæði svæða og einstakra héraða og
eins stöðu norðursins í alþjóðavæð-
ingunni og hver áhrif hún hefur haft
á þessi svæði,“ sagði Þorsteinn.
Benedikt Jónsson sendiherra
fjallaði í sínu erindi um stjórnar-
hætti og stjórnunaraðferðir með
hliðsjón af þeim aðstæðum sem fyrir
hendi eru á norðurslóðum. Þá voru
að sögn Þorsteins flutt erindi um
viðskipti og þátt fyrirtækja í upp-
byggingu á norðurslóðum, en nokk-
ur alþjóðafyrirtæki hafa komið sér
fyrir á svæðinu kringum Novgorod
þar sem ráðstefnan var haldin.
Kynnt voru raunhæf verkefni sem
unnið er á á þessum vettvangi og í
lokin var fjallað um hvað menn gætu
lært af sögunni varðandi framtíð
norðurslóða. Tómas Ingi Olrich kom
í sinni ræðu inn á landafundi nor-
rænna manna í vesturheimi og þá
þýðingu sem þeir hafa haft í nútíma-
samskiptum.
Góður tími til umræðna
Þorsteinn sagði að ráðstefnan
hefði byggst upp á stuttum fyrir-
lestrum, en þeim mun meiri tími gef-
in til umræðna og hefðu þátttakend-
ur tekið virkan þátt í þeim. Færri
hefðu þar stundum komist að en
vildu. Ungir vísindamenn kynntu
einnig margvísleg verkefni sem þeir
vinna að og snerta málefnið.
Ríkisstjórnir þátttökulandanna fá
í hendur hugmyndir þær sem fram
komu á ráðstefnunni og sagði Þor-
steinn að þar væru margar góðar
hugmyndir á ferðinni. „Þetta var
mjög áhugaverð og ánægjuleg ráð-
stefna sem skilar eflaust jákvæðum
áhrifum til þátttakenda,“ sagði Þor-
steinn.
Vel heppnað
Rannsóknaþing
norðursins
ÍSLENDINGAR verða á meðal
keppenda í lokakeppni fyrsta
heimsmeistaramótsins í torfæru-
akstri, svonefndu klettaklifri á
jeppum, sem fer fram í Farm-
ington í Nýju-Mexíkó í Bandaríkj-
unum 9. til 12. október næstkom-
andi, en þátttakendur koma frá
fimm þjóðum og eru meira en 100
bílar skráðir til leiks.
Emil Þór Emilsson, liðsstjóri ís-
lenska liðsins, segir að Banda-
ríkjamenn hafi keppt í svonefndu
klettaklifri á jeppum í mörg ár.
Umfang keppninnar hafi aukist
með hverju ári og nú hafi verið
ákveðið að nefna keppnina heims-
meistaramót. Til að tryggja sér
sæti í lokakeppninni þurftu öku-
menn að vera í einu af tíu efstu
sætunum í undanmótum, sem
haldin voru víða um Bandaríkin,
eða verið boðið sérstaklega og á
það við um erlendu keppendurna.
Mótsstjórnin heimilaði Íslend-
ingum að senda tvo bíla í keppnina
og verður Emil Þór aðstoð-
armaður hjá syni sínum, Einari Má
Emilssyni, en Ragnar Róbertsson
verður bílstjóri hins bílsins með
Jónas Karl Sigurðsson sem aðstoð-
armann. Rúnar Hafsteinsson og
Eyjólfur Jónsson verða viðgerð-
armenn liðsins en með í för verður
einnig sjónvarpsupptökumaður,
sem mun taka upp keppni Íslend-
inganna.
Emil Þór segir að þátttaka Ís-
lendinganna hafi þegar vakið at-
hygli í fjölmiðlum vestra, en mjög
oft sé sýnt frá íslenskri torfæru-
keppni í bandarísku sjónvarpi. Í
auglýsingu um mótið sé m.a.
myndskeið af Ragnari þar sem
hann hreinlega flýgur og sagt að
hann sé væntanlegur í keppnina.
Emil Þór segir að þetta klettaklif-
ur fari fram í grjóti og þéttu bergi
og verði bílarnir að vera með drif-
læsingar á öllum hjólum og spil til
að hægt sé að draga þá út úr erf-
iðum aðstæðum. Keppt verði í
tveimur flokkum og er miðað við
dekkjastærð en báðir íslensku bíl-
arnir verða í flokki þar sem
dekkjastærð er 36 tommur eða
minni.
Keppendur eru frá Bandaríkj-
unum, Kanada, Íslandi, Ítalíu og
Ísrael. Emil Þór býr með fjöl-
skyldu sinni í Utah en hinir ís-
lensku þátttakendurnir eru vænt-
anlegir þangað á mánudag og
síðan fara þeir til Farmington á
þriðjudag.
Kostnaður vegna þátttökunnar
nemur um 10 til 12 þúsund doll-
urum, fyrir utan andvirði bílanna,
sem er annað eins.
Íslendingafélagið í Utah færði
liðinu 600 dollara í styrk á dög-
unum og ýmsir aðrir hafa lagt
hönd á plóg, m.a. Artic Trucks og
Landvélar á Íslandi auk banda-
rískra fyrirtækja, en Einar Már
segir að styrkirnir nægi ekki til að
greiða kostnaðinn.
Hins vegar sé stefnan sett á gott
sæti en hann segir að verðlauna-
féð sé komið í rúmlega 52.000
dollara.
Fyrsta heimsmeistaramótið í torfæruakstri í Bandaríkjunum
Íslendingar í hópi keppenda
Ragnar Róbertsson (t.v.) og Emil Þór Emilsson á æfingu í Moab í Utah í sumar.