Morgunblaðið - 03.10.2002, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFSNES í Kollafirði er nú í athug-
un borgaryfirvalda sem hentugur
staður fyrir skotíþróttamenn í
Reykjavík, sem hafa verið án æfinga-
svæðis frá því að byggðin í Grafar-
holti tók að rísa en félagið hafði skot-
svæði sitt til 50 ára þar í grennd.
Stefnt er að því að æfingasvæði vél-
hjólamanna verði einnig á nesinu.
Skotfélag Reykjavíkur er elsta
íþróttafélag Reykjvíkur með 125 ára
sögu. Félagið hafði skotsvæði í Leir-
dal í Grafarholti frá árinu 1950 allt til
ársins 2000 þegar byggðin þar tók að
rísa en þá þurfti félagið að víkja það-
an með starfsemi sína. Hafa öll
mannvirki félagsins sem tilheyrðu
skotsvæðinu verið í geymslu síðan.
Ýmis svæði hafa verið í um-
ræðunni sem möguleg framtíðar-
skotsvæði fyrir félagið án þess þó að
niðurstaða hafi fengist um það hvar
það eigi að vera. Nú virðist hins veg-
ar skriður vera að koma á málið að
því er fram kemur á heimasíðu Skot-
félags Reykjavíkur en þar segir að
Álfsnesið sé í athugun hjá borgaryf-
irvöldum sem væntanlegur staður
fyrir skotsvæði. Um sé að ræða norð-
vesturhluta nessins sem sé í eigu
borgarinnar en Sorpa leigi meiri-
hluta þess fyrir starfsemi sína. „Eftir
skoðunarferð embættismanna borg-
arinnar og forsvarsmanna Sorpu og
hljóðmælingar heilbrigðisfulltrúa á
svæðinu, liggur ekkert fyrir sem
kemur í veg fyrir að skotsvæði geti
risið á Álfsnesi,“ segir á vefnum.
Svæðið kannað að
ábendingu borgarstjóra
Hilmar Ragnarsson, formaður
Skotfélagsins, segir málið í vinnslu
hjá borgaryfirvöldum. „Við stefnum
á þetta en það var borgarstjóri sem
benti á þessa lausn.“
Hann segist binda vonir við að
þetta muni ganga upp. „En það er
ekkert öruggt fyrr en í hendi er kom-
ið,“ segir hann.
Magnús Haraldsson, tæknifræð-
ingur á verkfræðistofu Umhverfis-
og tæknisviðs Reykjavíkur, staðfest-
ir að umrætt svæði sé í athugun. „Við
erum einnig að velta fyrir okkur að
vera með vélhjólamenn utarlega á
Álfsnesinu. Hins vegar er þetta eig-
inlega ekki komið lengra en svo að
við erum að skoða hvort við getum
komið þessu hvoru tveggja hagan-
lega fyrir þarna.“
Aðspurður segir hann að svæðin
verði vel aðskilin auk þess sem ör-
yggisgirðingar verði umhverfis skot-
svæðið. „Við vonum að þetta gangi
upp og ætlum að láta teikna þessi
svæði upp til að sjá þetta í grófum
dráttum. Í framhaldinu fer þetta fyr-
ir nefndir og ráð borgarinnar til sam-
þykktar.“ Hann segir því nokkrar
vikur eða mánuði í að niðurstaða fá-
ist.
Skotsvæði á Álfs-
nesi í athugun
Reykjavík
REKSTRARAÐILI veitingastað-
arins Nauthóls í Nauthólsvík hefur
sótt um lóð undir hótel sem rekið
yrði í tengslum við ylströndina í
Nauthólsvík. Þá óskar rekstrarað-
ilinn eftir því að stækka veitinga-
hús sitt.
Í greinargerð með umsókninni
segir að opnunartími ylstrandar-
innar sé stuttur og rekstur hennar
einangraður. Óskað er eftir því að
byggja hótel á lóð gömlu „transit“-
hótelanna og reka það samhliða yl-
ströndinni. Er tekið fram að þess
yrði gætt að aðgangur almennings
að ströndinni yrði ekki skertur.
Athuga með tengsl við
flug og siglingar
„Hótel með ylströnd, í höfuð-
borg Íslands norður við heim-
skautsbaug, mun að öllum líkind-
um vekja alþjóðlega athygli og
hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn,“ segir í umsókninni.
Kemur fram að hótelið muni
taka mið af svæðinu og áhersla
verði lögð á útivist og hreyfingu
„auk þess sem spennandi væri að
sjá hvort möguleiki sé á tengslum
við flug og siglingar, sem aðstaða
hefur verið fyrir á þessu svæði um
áratuga skeið.“
Þá segir að stærð hótelsins þurfi
að vera að minnsta kosti 100 her-
bergi í fyrsta áfanga með mögu-
leika á stækkun um annað eins síð-
ar.
Hvað varðar veitingastaðinn
segir í umsókninni að móttökur al-
mennings við honum hafi verið svo
góðar að hann anni ekki eftirspurn
á álagstímum. Því sé sótt um
stækkun hans.
Erindið var tekið fyrir í borgar-
ráði á þriðjudag og því vísað til af-
greiðslu skipulags- og bygginga-
nefndar Reykjavíkur.
Sótt um að byggja
hótel við ylströndina
Nauthólsvík
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur aflétt kaupskyldu og forkaups-
rétti Seltjarnarness vegna fé-
lagslegra eignaríbúða og
kaupleiguíbúða í bænum samkvæmt
ósk bæjarstjórnar.
Heimildin tekur til allra fé-
lagslegra eignaríbúða í sveitarfé-
laginu að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Seltjarnarnesi en í
heimildinni felst að eigendur fé-
lagslegra íbúða í bæjarfélaginu geta
selt íbúðir sínar á frjálsum markaði
ef þeir kjósa það. Þeir hafa eftir sem
áður rétt til þess að óska sérstaklega
eftir því að bæjarfélagið leysi til sín
íbúðir sem kaupskylda hvílir á. Sama
á við þegar um nauðungarsölu á fé-
lagslegum eignaríbúðum er að ræða.
Kaupskyldu
og forkaups-
rétti aflétt
Seltjarnarnes
SKEMMA að Lækjarmel 4 á Kjal-
arnesi verður rifin á kostnað eigenda
hennar verði ekki gripið til viðeigandi
ráðstafana til að koma í veg fyrir fok-
og slysahættu vegna hennar fyrir 7.
október næstkomandi. Umhverfis- og
heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hefur
samþykkt heimild til þessa.
Ekki voru fengin tilskilin leyfi
byggingaryfirvalda fyrir skemmunni
á sínum tíma en hún stendur við Vest-
urlandsveginn. Í bréfi heilbrigðisfull-
trúa til nefndarinnar segir að í storm-
viðrum hafi þakplötur og
einangrunarefni fokið úr henni. Ekki
sé bara slysa- og tjónahætta vegna
þessa heldur einnig umhverfismeng-
un þar sem efnið hafi m.a. safnast fyr-
ir á girðingum við hús sem stendur
hinum megin við veginn.
Í öðru bréfi segir að byggingin sé
mikið skemmd. Þak hafi sprungið og
hurðir fokið úr dyragötum auk þess
sem húsið sé allt skælt og burðarvirki
bogið. Hafi lögreglan haft samband
við eigendur skemmunnar og beðið
þá að ganga tryggilega frá henni en
því hafi ekki verið hlýtt. Þá er Um-
hverfis- og heilbrigðisstofa búin að
áminna eigendur formlega.
Nú hafa þeir fengið frest til 7. októ-
ber næstkomandi til að fá löglegt
samþykki fyrir byggingunni og ganga
frá öllum viðgerðum á henni. Að öðr-
um kosti verður hún rifin á kostnað
eigenda.
Skemma
veldur
slysahættu
Kjalarnes
LITLIR málsnillingar leynast innan
um krakkana 70 sem eru á leikskól-
anum Fögrubrekku í Kópavogi en
átta þeirra eru það sem kallað er
tvítyngdir. Þetta þýðir að þeir nota
í daglegu lífi og starfi fleiri en eitt
tungumál og kemur það til af því að
foreldrar þeirra eru af sitthvoru
þjóðerninu, eða af öðru þjóðerni en
því íslenska.
Að sögn Eddu Valsdóttur, leik-
skólastjóra á Fögrubrekku, koma
foreldrar barnanna frá löndum eins
og Litháen, Japan, Tælandi, Bret-
landi og alla leið frá Afríku. Þetta
geri það að verkum að sum
barnanna eru með annan húðlit en
þann allra algengasta á Íslandi og
það getur vakið spurningar. „Leik-
skólinn starfar eftir hugmynda-
fræði frá Ítalíu, sem kallast Reggio-
Emilia, og við erum með þríþætt
þemu sem eru ég sjálf, fjölskylda
mín og samfélagið. Það fer síðan
eftir aldri barnanna hvaða þema
þau vinna með. Yngstu börnin eru
með fjölskylduþemað og þar förum
við svolítið inn á þetta og ræðum af
hverju börnin eru mismunandi.“
1.000 innflytjendur af
60 þjóðernum í bænum
Hún segist aldrei hafa fundið fyr-
ir árekstrum í skólastarfinu vegna
ólíks uppruna barnanna né finni
hún fyrir því að börnin umgangist
tvítyngda félaga sína öðruvísi en
aðra eða veiti þeim sérstaka at-
hygli. Þvert á móti séu þau alveg
fordómalaus hvað þau snertir. „Við
erum með pólskan starfsmann, sem
byrjaði hjá okkur í haust og hún
talar ágæta íslensku, en þó svolítið
bjagað og það er helst að þau velti
því fyrir sér.“
Annar starfsmaður leikskólans
hefur dvalið löngum í Noregi og að-
spurð segir Edda hlæjandi að lík-
lega sé leikskólinn bara orðinn
nokkuð alþjóðlegur. Hún undir-
strikar þó að hann sé ekkert eins-
dæmi því mikið sé um tvítyngd börn
á fleiri leikskólum í Kópavogi og
nefnir Efstahjalla og Marbakka í
því sambandi. Hún segir þetta ekk-
ert skrýtið því samkvæmt tölum,
sem hún kynntist í tengslum við
svokallaða Alþjóðaviku sem haldin
verður í Kópavogi í lok mánaðar-
ins, munu vera um 1000 innflytj-
endur af 60 þjóðernum í Kópa-
vogsbæ.
Alþjóðavikan, sem verður dag-
ana 18.–24. október, mun koma við
sögu á leikskólanum því að sögn
Eddu munu elstu börnin syngja lag
á japönsku í Smáralind einhvern
þessara daga og jafnvelt eitthvert
„alþjóðlegt íslenskt lag,“ eins og
hún orðar það. „Svo ætlum við að
gera eitthvað hér innanhúss og
hugsanlega biðja foreldrana um að
koma með uppskriftir þannig við
getum eldað mat frá Japan, Litháen
eða annars staðar frá og jafnvel
óska eftir því að þeir klæðist fötum
frá landinu sínu. En það er allt í
vinnslu hjá okkur.“
Rúmlega ellefu prósent barna á leikskólanum Fögrubrekku tala tvö tungumál eða fleiri
Átta litlir
málsnillingar
Morgunblaðið/RAX
Krílin á Fögrubrekku létu votviðrið ekki á sig fá heldur brostu sínu blíðasta framan í myndavélina.
Kópavogur
ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja
upp hindrun við gangbraut, sem
staðsett er við gatnamót Vestur-
götu og Bræðraborgarstígs, til að
koma í veg fyrir að bílum sé lagt
þvert á hana. Að sögn íbúa við
Vesturgötu er töluvert um að
þetta sé gert en það skapar hættu
fyrir börn sem þurfa að nota gang-
brautina á leið til skóla.
Umrædd gangbraut er rétt við
heimili Baldurs Þórhallssonar en
hann segir slíka iðju ökumanna
vera viðvarandi vandamál í Vest-
urbænum. „Þetta skapar mikla
hættu fyrir börnin því það hindrar
þau í að komast yfir gangbraut-
irnar og börnin mín eiga daglega í
vandræðum með að komast yfir
gangbrautina í skólann.“
Hann segir að þetta hafi orðið
verulega slæmt þegar leikskóli
opnaði á umræddu horni í fyrra en
fyrir þann tíma hafi þetta ekki
verið vandamál.
Höskuldur Tryggvason, tækni-
fræðingur á gatnadeild Umhverfis-
og heilbrigðissviðs Reykjavíkur,
segir að nokkuð beri á því að öku-
menn leggi þvert á gangbrautir en
umrædd gangbraut sé einstaklega
slæmt tilfelli. „Þar hefur verið
töluvert um að menn leggi beint
ofan á gangbrautina þótt hún sé
mjög greinilega afmörkuð og upp-
hækkuð.“ Því hafi verið ákveðið að
grípa til aðgerða. „Við munum
koma upp hindrun við kantinn
þannig að menn leggi þar síður,“
segir hann.
Ekki stendur þó til að setja upp
slíkar hindranir á fleiri stöðum að
sinni. „Það er augljóst að menn
eiga ekki að leggja á gangbrautum
og ég held að flestir hljóti að átta
sig á því.“
Bílum lagt þvert
á gangbraut
Vesturbær
Að sögn Baldurs er þetta algeng sjón á umræddri gangbraut.
♦ ♦ ♦