Morgunblaðið - 03.10.2002, Síða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 23
Haustdagar
15-30%
afsláttur
af úrum og
skartgripum
dagana
2.-5. október
Laugavegi 5 og Spönginni
símar: 551 3383 - 577 1660
Í dag, fimmtudag, föstudag og laugardag
mun sérfræðingur Kanebo veita faglega
ráðgjöf í Hagkaup Kringlunni. Kynntir verða
haust- og vetrarlitir ásamt hinni
byltingarkenndu nýjung ADVANCED
RECOVERY CONCENTRATE.
I N T E R N A T I O N A L
KYNNING Á ÞVÍ NÝJASTA
Kringlunni
NJÓTTU lífsins og lækkaðu útgjöld-
in er yfirskrift námskeiðs sem Ás-
geir Þór Jónsson viðskiptafræðingur
heldur í samvinnu við Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur.
Námskeiðið er 3½ klukkustund og
meðal þess sem farið er í saumana á
eru matarinnkaup, bætt nýting á
mat, símnotkun, bifreiðakaup, sam-
setning lána, fatakaup og fleira.
Ásgeir kveðst hafa farið að hugsa
út í fjárhagsnámskeið fyrir rúmu ári
þegar hann hafi sjálfur þurft að
skera niður. Í framhaldi af því hafi
hann leitað til VR til þess að kanna
hvort áhugi væri á að bjóða fé-
lagsmönnum slíkt námskeið.
„Yfirferðin er mjög gróf og fyrst
og fremst hugsuð til þess að vekja
fólk til umhugsunar. Markhópurinn
er atvinnulausir, fólk milli starfa eða
allir þeir sem þurfa að draga saman
seglin,“ segir hann.
Þegar kemur að matarinnkaupum
ráðleggur Ásgeir þátttakendum til
að mynda að kaupa inn í upphafi
mánaðar fyrir allan mánuðinn og
nota innkaupalista. Einnig mælir
hann með því að heimilisfólk stilli
upp matseðli fyrir heilan mánuð, nýti
afganga á milli máltíða, gæti fjöl-
breytni í fæðuvali, forðist aðkeyptan
mat og búi sjálft til hamborgara og
pizzur.
Pakkasúpur,
Soda Stream og slátur
„Einnig ráðlegg ég fólki að eiga
alltaf ger og hveiti til þess að baka
brauð, eiga pakkasúpur, taka slátur,
nota Soda Stream-tæki til þess að
lífga upp á flatt gos og taka nesti
með sér í vinnuna.“
Hvað fjármálin áhrærir mælir Ás-
geir með því að fólk gangi í greiðslu-
þjónustu banka, forðist neysluskuld-
ir og endurfjármagni á hagstæðari
kjörum ef kostur er. „Mesti sparn-
aðurinn felst hins vegar í því að
greiða skuldir. Einnig er gott að
leggja viðráðanlega upphæð fyrir
mánaðarlega og byrja strax að
spara, því dropinn holar steininn.“
„Eitt af því sem ég mæli með þeg-
ar dæmið er skoðað er að hætta að
leggja til grundvallar brúttólaun og
nettóútgjöld. Sá sem eyðir 5.000
krónum á mánuði í skyndibita, svo
dæmi sé tekið, þarf að vinna sér um
það bil 8.300 krónur á móti, sem ger-
ir um það bil 100.000 krónur á ári,“
segir hann.
Kveðst hann ekki vera að mæla
með meinlætalíferni, þótt reynt sé að
hemja útgjöldin.
„Fólk þarf einungis að velta fyrir
sér hvað það er sem gefur því mest
persónulega og greina á milli þess og
annars sem kannski er einvörðungu
til þess ætlað að viðhalda tiltekinni
stöðu út á við.“
Ásgeir segir að sá sem þarf að
spara verulega eigi í það minnsta að
geta dregið útgjöldin saman um
50.000 krónur á mánuði. „Það er erf-
itt að vera hamingjusamur ef maður
er með allt niður um sig í peninga-
málum og innheimtubréfin hrannast
upp. Það þarf mikla afneitun til þess
að líða vel undir slíkum kringum-
stæðum.“
Meiri tími, minna stress
Ávinningur af aukinni hagsýni er
síðan meiri peningar, meiri tími,
minna stress, meiri sálarró og ein-
faldara og þægilegra líf.
Ásgeir segir að endingu að ekki
dugi að miða sig alltaf við einhvern
annan sem skuldar meira, þegar
rýnt er í heimilisbókhaldið.
„Ekki fela vandann fyrir þínum
nánustu eða bankanum. Ekki heldur
hugsa koma tímar, koma ráð. Nú er
dagurinn í dag og tíminn og ráðin
eru komin,“ segir Ásgeir Þór Jóns-
son að síðustu.
Mestur sparnaður að
greiða niður skuldir
Reuters
Ekki er ráð að stinga höfðinu í
sandinn þegar eiginfjárstaðan
er neikvæð, heldur njóta lífsins
og lækka útgjöldin.
VOKAL nefnist ný lífsstílsverslun
fyrir ungt fólk sem opnuð var í
Smáralind síðastliðinn laugardag. Í
versluninni eru tískuföt og fylgihlutir
fyrir dömur og herra og vörumerki,
sem sum hver hafa ekki fengist hér á
landi áður, segir Nanna Ó. Jónsdótt-
ir, einn fjögurra eigenda verslunar-
innar.
Um er að ræða vörumerkin Circa,
Mavi, JLO, Baby Phat, Matix, Guess,
Lakai og Pony, svo eitthvað sé nefnt,
og einnig er von á flíkum frá Sean
John, nýrri fatalínu P. Diddy (Sean
Puffy Combs, áður Puff Daddy).
Stærsti markhópurinn er á aldrin-
um 16–25 ára og er áherslan í herra-
línunni á svokallaða bretta- og hip-
hop-tísku og á sportlegan og „eleg-
ant“ tískufatnað í dömulínunni, segir
Nanna jafnframt.
Klæðaburður er ein leið til tjáning-
ar og segir Nanna að nafn verslunar-
innar, Vokal, sé dregið af orðinu
vocal, tónlist með rödd, en ritað á ei-
lítið íslenskari hátt þar sem k kemur í
stað c.
Vokal er 400 m² að flatarmáli, stað-
sett á 2. hæð í Smáralind, og athygli
vekur að á veggjum verslunarinnar
eru stórar myndir af þekktum tónlist-
armönnum úr hip-hop- og R&B-geir-
anum.
„Þessi tíska tengist tiltekinni tón-
list og ákveðnum lífsmáta ungs fólks.
Baby Phat línan er til að mynda
framleidd af Russell Simmons, stofn-
anda Def Jam Records, sem hefur
látið til sín taka í tónlistarheiminum í
fjöldamörg ár,“ segir hún ennfremur.
JLO er merki nýrrar fatalínu söng-
konunnar Jennifer Lopez og hefur
hún vakið mikla athygli vestanhafs,
einnig Baby Phat, er fyrr er getið, og
hönnun P. Diddy, Sean John, sem
hlotið hefur ýmis verðlaun í tísku-
heiminum, segir Nanna jafnframt.
Leit undrandi á okkur
og hváði
Hún er spurð hvort það hafi verið
auðsótt mál að fá að flytja fatnað frá
fyrrgreindum merkjum inn á jafn lít-
ið markaðssvæði og Ísland er.
„Reyndar var frekað fyndið að sjá
viðbrögðin sem við fengum þegar við
bönkuðum upp á hjá JLO og Sean
John og sögðumst vilja selja fötin
þeirra. Fólkið sem tók á móti okkur
leit á okkur með undrunarsvip og
hváði: „Frá Íslandi?“.
Það þekkti reyndar Reykjavík en
hafði ekki gert sér í hugarlund að við
hefðum áhuga á þessum fötum. Ég
segi ekki að það hafi ekki verið erfitt
að sannfæra suma, en þetta tókst. Við
flytjum þessar vörur beint inn frá
Bandaríkjunum, enda eru margar
þeirrar ekki seldar í Evrópu,“ segir
hún.
Nanna segir loks að boðið verði
upp á ýmiss konar afþreyingu í versl-
uninni með reglulegu millibili, þar sé
til að mynda aðstaða til tónlistarflutn-
ings. „Við munum efna til tónleika
öðru hverju og einnig er ungu fólki
sem er að fikta við rapp velkomið að
koma og troða upp.“
Morgunblaðið/RAX
Nanna Ó. Jónsdóttir og Jón Kristinn Laufdal Ólafsson eru tveir af fjór-
um aðaleigendum tískuverslunarinnar Vokal í Smáralind.
Lífsstílsverslun með
föt P. Diddy og J.Lo