Morgunblaðið - 03.10.2002, Qupperneq 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
26. sept.- 3. okt. „YKKAR ÆFING - ALLRA ÖRYGGI“
Ráðstefna um öryggismál sjófarenda er í dag!
Ráðstefnan er í Rúgbrauðsgerðinni að Borgartúni 6, kl. 09:00-17:00. Aðgangur er ókeypis
sannfæra öll ESB-ríkin um nauðsyn
þess að samræma skattlagninguna.
Hingað til hefur málið strandað á því,
að með samræmingunni myndi verð á
hverri léttvínsflösku á Ítalíu hækka
um einar átta kr. ísl. og þýska ölið
myndi líka hækka aðeins.
Nær til Noregs og Íslands
Bolkestein ætlar að gera nýja at-
lögu að þessu um áramótin og heldur
því fram, að gjörólíkar álögur á áfengi
gangi ekki upp á hinum innra mark-
aði. Segir hann, að framkvæmda-
stjórnin komist ekki hjá að taka á því.
Ákvæði um frjálsan flutning vöru og
þjónustu geri það óhjákvæmilegt.
Samræmd gjöld á áfengi munu
STEFNT er að því innan Evrópu-
sambandsins að samræma gjöld og
tolla á áfengi á öllu Evrópska efna-
hagssvæðinu. Það er því ljóst, að
væntanleg samræming mun ná til
Noregs og Íslands og getur haft í för
með sér verulega breytingu á verð-
lagningu þessarar vöru frá því, sem
nú er. Hefur norskur Evrópusér-
fræðingur ráðlagt stjórnvöldum í
Noregi að fara að búa sig undir þetta
að því er fram kemur í Aftenposten.
Hugsast getur, að eftir nokkur ár
heyri ofurtollar á áfengi í Noregi sög-
unni til, það er að segja ef Frits
Bolkestein, sem fer með málefni
innra markaðarins og skattlagningu í
framkvæmdastjórn ESB, tekst að
snerta Norðmenn þótt skattar og
gjöld eigi í raun að standa utan samn-
ingsins um EES, Evrópska efnahags-
svæðið. Andstaða ESB og ESA, Eft-
irlitsstofnunar EFTA, við reglur um
launatengd gjöld í Noregi sýnir, að í
raun eru þessi mál hluti af EES-
samningnum. Donato Raponi, sem
fer sérstaklega með álögur á áfengi í
skattanefnd framkvæmdastjórnar-
innar, fullyrðir enda, að Norðmenn
og Íslendingar muni ekki komast hjá
því að vera með. Segir hann í viðtali
við Aftenposten, að náist samkomu-
lag um samræminguna, muni hún ná
til alls innra markaðarins.
Áhugi Bolkesteins á samræming-
unni stafar meðal annars af þeim
vanda, sem er skipulögð glæpastarf-
semi og mikið smygl á áfengi milli
Evrópulanda. Bretar hafa til dæmis
mikinn viðbúnað vegna þess í öllum
Ermarsundshöfnunum og hafa raun-
ar oft verið sakaðir um ólögmætan yf-
irgang við venjulega borgara, sem
snúa heim með áfengi og tóbak til eig-
in neyslu. Hefur Bolkestein hótað að
draga bresku stjórnina fyrir dóm af
þeim sökum. Samkvæmt ESB-
reglum má hver einstaklingur taka
með sér 90 lítra af léttvíni, 100 lítra af
öli og 800 vindlinga á heimleið frá
öðru ESB-ríki.
Norðmenn búi sig
undir breytinguna
Paal Frisvold, fyrrverandi formað-
ur norsku ESB-nefndarinnar í Bruss-
el, segir, að það sé aðeins tímaspurs-
mál hvenær þessi fyrirhugaða
samræming á álögunum nái til Nor-
egs. Það sé því best fyrir norsk
stjórnvöld að fara að búa sig undir
þetta strax enda finnist ekki eitt ein-
asta dæmi um það í átta ár, að Norð-
mönnum hafi tekist að koma sér hjá
þeim reglugerðum, sem ESB hefur
samþykkt.
Frisvold bendir líka á, að jafnvel
þótt Norðmenn þráuðust við, myndi
samræmingin ná til Svíþjóðar og
leiða til þess, að verðmunurinn á
áfengi þar og í Noregi ykist enn. Það
gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir
Noreg.
Unnið að samræmingu skatta á áfengi á innra markaði Evrópusambandsins
Gæti gjörbreytt verðlagn-
ingu í Noregi og á Íslandi
FYRRVERANDI yfirfjármála-
stjóri bandaríska orkusölufyrir-
tækisins Enron, Andrew S. Fast-
ow, gaf sig fram við bandarísku
alríkislögregluna (FBI) í Houston
í gær. Hann var síðar um daginn
ákærður fyrir skjalafals, peninga-
þvætti og aðild að samsæri um að
ýkja hagnað Enron og sanka að
sér fé á kostnað fyrirtækisins.
Varða ákærurnar stofnun sam-
eignarfyrirtækja sem Fastow er
talinn hafa verið potturinn og
pannan í og voru notuð til að fela
raunverulega fjárhagsstöðu Enron
og villa um fyrir fjárfestum og op-
inberum eftirlitsmönnum.
Fastow er hæst setti stjórnar-
maðurinn í Enron sem gefið hefur
sig fram við yfirvöld. Hann kom í
höfuðstöðvar FBI í Houston ásamt
lögfræðingi sínum, John Keker, í
gærmorgun. Fastow er sagður
hafa gegnt lykilhlutverki við að
fela um eins milljarðs dollara
skuld Enron, en gjaldþrot þess í
lok síðasta árs varð m.a. til þess að
fjöldi starfsmanna og fyrrverandi
starfsmanna glataði öllum lífeyri
sínum er var bundinn í hlutabréf-
um í fyrirtækinu. Fastow sjálfur,
og aðrir yfirmenn í fyrirtækinu,
högnuðust aftur á móti um tugi
milljóna dollara.
Kann að vitna gegn
æðstu yfirmönnum Enron
Í ágúst játaði Michael Kopper,
fyrrverandi aðstoðarmaður Fast-
ows, sig sekan um peningaþvætti
og aðild að samsæri um fölsun.
Kopper bar fyrir dómi í Houston
að Fastow hafi útvegað lán til fjár-
festinga, tekið við þóknun undir
borðið og gengið frá samningum
sem komu sameignarfyrirtækjun-
um vel, fremur en Enron. Vænt-
anlegar ákærur gegn Fastow
vekja spurningar um hvort hann
muni gera samninga við saksókn-
ara um mildun refsingar gegn því
að bera vitni gegn æðstu yfir-
mönnum Enron, Jeffrey Skilling
og Kenneth Lay.
Nokkrar bandarískar þingnefnd-
ir, dómsmálaráðuneytið og banda-
ríska verðbréfaeftirlitið (SEC)
hafa rannsakað meint misferli yf-
irmanna Enron og fyrirtækisins
Arthur Andersen, endurskoðenda
Enron, en í júní var endur-
skoðendafyrirtækið dæmt fyrir að
hindra framgang réttvísinnar með
því að eyða skjölum varðandi Enr-
on. Fyrr á árinu neytti Fastow
stjórnarskrárbundins réttar síns
til að neita að svara spurningum
rannsóknarþingnefndar, en hefur í
gegnum talsmann sinn fullyrt að
yfirmenn sínir hjá Enron, þ. á m.
Skilling og Lay, og endurskoð-
endurnir, hafi vitað allt um stofn-
un og rekstur sameignarfyrirtækj-
anna.
Dómsmálaráðuneytið fór í gær
ekki grafgötur með fyrirætlanir
sínar. „Það er alveg klárt hvað við
ætlum að gera. Við ætlum að setja
vondu kallana í fangelsi og taka af
þeim peningana þeirra,“ sagði
Garry Thompson, aðstoðardóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, er
hann gerði grein fyrir ákærunum
á hendur Fastow.
Fyrrverandi yfirmaður í Enron gefur sig fram við FBI
Ákærður
fyrir
peninga-
þvætti
Houston. AP.
AP
Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, komu með Fastow (t.h.)
í handjárnum til dómshússins í Houston í gær.
HINN ellefu ára gamli Jakob von
Metzler, erfingi eins elzta einka-
banka Þýzkalands sem var rænt og
fannst látinn í tjörn í fyrradag, var
sennilegast annaðhvort kyrktur eða
honum drekkt af manninum sem
rændi honum, eftir því sem sak-
sóknarar í Frankfurt greindu frá í
gær.
Lögreglan hefur handtekið 27 ára
gamlan laganema grunaðan um að
hafa framið verknaðinn. Er hann
sagður heita Magnus Gaefgen og
hafa verið hjálparkennari drengsins
sem rænt var sl. föstudag, á síðasta
skóladeginum fyrir haustfrí.
Leiða rannsakendur glæpsins að
því líkum að Jakob litli hafi verið
myrtur annaðhvort strax á föstudag
eða á laugardag, þ.e. að minnsta
kosti sólarhring áður en mannræn-
inginn sótti eina milljón evra sem
hann fór fram á í lausnargjald fyrir
piltinn. Lögregla fann allt lausnar-
féð við ítarlega húsleit í íbúð hins
grunaða í Frankfurt, eftir því sem
Rainer Schilling saksóknari greindi
frá.
Bráðabirgðaniðurstöður krufn-
ingar benda til að drengurinn hafi
annaðhvort verið kæfður eða bund-
inn og hent þannig í vatn. Dreng-
urinn hafði verið klæddur úr öllum
fötum nema nærbuxunum og fannst
vafinn inn í bláa plastpoka. Hann
var marinn á hálsi. Lokaniðurstaða
krufningar mun liggja fyrir á föstu-
dag, að sögn Schillings.
Gaefgen hafði veitt drengnum
stuðningskennslu eftir skóla, að því
er fullyrt er í þýzkum fjölmiðlum.
Laganeminn hafði vingazt við hina
16 ára gömlu systur og 17 ára bróð-
ur hins myrta. Er talið ljóst að
Gaefgen hafi getað numið Jakob
litla á brott með góðu. Gaefgen, sem
á von á ákæru fyrir morð og mann-
rán, á yfir höfði sér lífstíðardóm ef
hann verður fundinn sekur. Hann
hefur ekki játað á sig verknaðinn,
en það var hann sem sagði lögreglu
við yfirheyrslu á þriðjudag hvar lík
drengsins væri að finna.
Mannrán ekki upp-
runaleg áætlun?
Fulltrúar rannsakenda vildu ekki
tjá sig um hugsanlegt tilefni verkn-
aðarins. Þó hefur fréttavefur þýzka
vikuritsins Der Spiegel það eftir
Rudolf Egg, yfirmanni afbrota-
fræðamiðstöðvarinnar Kriminolog-
ische Zentralstelle í Wiesbaden, að
sér þyki hugsanlegt að fyrir þeim
sem brotið framdi hafi ekki vakað
að fremja mannrán og fara fram á
lausnarfé, heldur hafi kynferðisleg-
ar hvatir legið að baki. Hann hafi
síðan myrt drenginn þegar hann
streittist á móti, í því skyni að
breiða yfir tilraunina til kynferðis-
glæps.
„Þá væri hér ekki um að ræða
mannræningja sem varð að morð-
ingja, heldur morðingja sem varð að
mannræningja,“ sagði Egg. Með
þessari kenningu mæli að sá sem
brotið framdi hafi þurft að taka
morð með í reikninginn frá upphafi,
þar sem fórnarlambið þekkti hann
og hefði þar með getað komið upp
um hann. Þar að auki hafi hinn
grunaði, stuðningskennari Jakobs,
ekki verið sérstaklega fjár þurfi.
„Eitthvað hefur komið yfir hann,“
segir Egg. Að Gaefgen ætti 16 ára
gamla kærustu hefði ekkert að
segja. Mörg dæmi væru um afbrota-
menn með „kynferðislegar hliðar-
hneigðir í átt til barna“.
Morðið á bankastjórasyni í Frankfurt
Stuðningskennari
drengsins grunað-
ur um ódæðið
Frankfurt. AP.