Morgunblaðið - 03.10.2002, Side 43
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 43
w w w. i n t e r c o i f f u r e . i s
Brósi, Caracter, Carmen, Cleo, Dúddi, Elegans, Hár- og snyrting, Hárný,
Hársaga, Höfuðlausnir, Jói og félagar, Medulla, Möggurnar, Salon Veh, Perma.
Kaupauki! 6 hlutir í tösku!
Ef þú kaupir tvo hluti eða fleiri frá Clinique
er þessi gjöf þín.*
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
100% ilmefnalaust
Tilboðið gildir í
LYFJU Lágmúla, LYFJU Laugavegi, LYFJU Smáratorgi, LYFJU Smáralind,
LYFJU Garðatorgi, LYFJU Setbergi, LYFJU Spöngin.
Naturally Gentle Eye
Makeup Remover, 30 ml
Dramatically Different
Moisturizing Lotion, 15 ml
Anti-Gravity Firming Lift
Cream, 7 ml
High Impact Eye Shadow,
litur South Beach
Moisture Surge Lipstick
SPF 15, litur Fizzy
Aromatics Elixir Perfume
spray, 4 ml
Snyrtitaska fyrir förðunarvörur
G Ó Ð
GJÖF
Árvekni um brjóstakrabbamein
Verðgildi gjafarinnar
er 6.400 krónur.
* Meðan birgðir endast.
www.lyfja.is
GJAFAKVÓTINN í sjávarútvegi
er mesta óréttlæti síðari tíma. Sam-
eign þjóðarinnar og helsta auðlind
var færð fáeinum til brasks. Heilu
byggðarlögin hrundu með skelfileg-
um afleiðingum. Framtíð byggða fer
eftir því hvenær útgerðarmönnum
þóknast að selja kvótann í burtu og
þar með lífsbjörgina. Afleiðingar og
óréttlæti gjafakvótakerfisins koma
vel fram í meistaraverki Baltasars
Kormáks, Hafinu, sem slær aðsókn-
armet bíóhúsanna þessa dagana. Þar
er dregin upp skýr mynd af því hve
rammt óréttlæti felst í þessu kerfi.
Réttlæti í
sjávarútvegi
Það er eitt af mikilvægustu verk-
efnum nýrrar vinstristjórnar undir
forystu Samfylkingarinnar að fyrna
gjafakvótann og koma á réttlæti við
nýtingu auðlinda. Allar takmarkaðar
auðlindir í sameign þjóðarinnar á að
nýta á grundvelli jafnræðis og þá
gildir einu hvort um er að ræða fiski-
stofna, orkulindir, fjarskiptarásir,
eða heimildir framtíðarinnar til að
losa gróðurhúsalofttegundir. Megin-
reglan á að vera sú að láta mark-
aðinn sjá um að dreifa heimildum til
að nýta auðlindirnar. Það tryggir
bæði jafnræði og að íslenska þjóðin
fái greitt sanngjarnt gjald fyrir af-
notin, eftir því sem viðkomandi at-
vinnugrein þolir.
Með fyrningu veiðiheimilda kom-
um við á réttlæti í sjávarútvegi.
Fyrningarleiðin tryggir ekki aðeins
að allir standi jafnfætis gagnvart
réttinum til að nýta miðin, heldur
líka að þeir sem fá að nýta auðlindina
greiða fyrir það sanngjarnt gjald.
Frá því að frjálst framsal veiðiheim-
ilda var leyft hefur há innbyrðis
gjaldtaka átt sér stað innan grein-
arinnar. Fokdýrt hefur verið að
kaupa sig inn í greinina eða leigja
heimildir af þeim sem „eiga“ veiði-
heimildirnar nú. Mikið eðlilegra er
að hóflegt leigugjald sé greitt til
réttra eigenda auðlindarinnar held-
ur en það sem nú tíðkast.
Burt með gjafakvótann
Eftir Björgvin G.
Sigurðsson
„Framtíð
byggða fer
eftir því hve-
nær útgerð-
armönnum
þóknast að selja kvót-
ann í burtu og þar með
lífsbjörgina.“
Höfundur er varaþingmaður Sam-
fylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
MIKIÐ hefur áunnist í slysa-
vörnum á undanförnum árum en
betur má ef duga skal.
Árlega láta rúmlega 50 manns líf-
ið í slysum á Íslandi, hundruð slas-
ast mikið og um 6. hvert manns-
barn slasast. Slysin kosta okkur að
auki um 30–35 milljarða og er þá
ótalin angist og depurð ástvina.
Öllum þykir nóg um þar sem
flest alvarlegri slys má fyrirbyggja.
Umferðarslysin eru mjög fyrirferð-
armikil og þar hefur árangurinn
verið einna lakastur. Það heyrir til
undantekninga að umferðarslys eigi
sér stað vegna þess að farartækið
bilar. Slysin verða vegna mann-
legra mistaka. Við ofmetum eigið
ágæti og vanmetum aðstæður. Bíl-
beltin eru ekki alltaf spennt þótt
allir viti að þau fækka mikið öllum
tegundum slysa ef eitthvað fer úr-
skeiðis. Við keyrum of hratt og
stundum með skerta athygli. Áfengi
tengist banaslysum á Íslandi í
fjórðungi tilvika en í svokölluðum
einbílaslysum þar sem um er að
ræða útafakstur og bílveltur kemur
áfengi við sögu í yfir helmingi til-
vika.
Okkur er gjarnt að hugsa sem
svo: „Það kemur ekkert fyrir.“ Líf-
ið er alltof dýrmætt og yndislegt til
að sóa því vegna flýtis og kæruleys-
is. Með því að byrgja brunninn og
taka upp meðvitað uppeldi um slys
og forvarnir má fækka mikið öllum
tegundum slysa. Á 6. landsþingi
slysavarnaráðs um slysavarnir, sem
ber heitið Byrgjum brunninn, verð-
ur fjallað um slys frá mörgum sjón-
arhornum og hvernig við getum,
með sameiginlegu átaki, unnið stór-
sigra.
Byrgjum brunninn
og fækkum slysum
Eftir Brynjólf
Mogensen
„Lífið er allt-
of dýrmætt
og yndislegt
til að sóa því
vegna flýtis
og kæruleysis.“
Höfundur er sviðsstjóri slysa-
og bráðasviðs Landspítalans.