Morgunblaðið - 03.10.2002, Page 59
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6
4. cxd5 exd5 5. Bg5 c6 6. e3
Be7 7. Bd3 Rbd7 8. Rge2
Rh5 9. Bxe7 Dxe7 10. Dc2
g6 11. 0-0-0 Rdf6 12. h3 Rg7
13. g4 h5 14. g5 Rh7 15. h4
Bf5 16. Kb1 Bxd3 17. Dxd3
0-0 18. f3 Hfd8
19. e4 dxe4 20.
fxe4 Rf8 21.
Hhe1 Rfe6 22.
De3 Hd7 23.
Hd2 Had8 24.
Hed1 Rc7 25.
Df2 De6 26. Rf4
Dc4 27. d5 cxd5
28. Dxa7 d4 29.
Rcd5 Ha8 30.
Hxd4 Hxa7 31.
Hxc4 Rge8
Staðan kom
upp í Evrópu-
keppni taflfélaga
sem lauk fyrir
skömmu í Halki-
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
diki í Grikklandi. Hannes
Hlífar Stefánsson (2.588)
hafði hvítt gegn Per Ove
Egeli (2.312). 32. Hxc7!
Hxc7 32. ... Rxc7 gekk ekki
upp vegna 33. Rf6+. 33.
Rxc7 Rxc7 34. Hd8+ Kg7
35. Hd7 Ra6 36. Re6+ og
svartur gafst upp enda kem-
ur hann engum vörnum við
eftir 36. ... Kg8 37. Hd8+
Kh7 38. Rf8+ Kg7 39. Rd7.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 59
DAGBÓK
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207
www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Passamyndatökur alla virka daga.
Erum byrjaðir að taka niður
pantanir á fermingar-
myndatökum í vor.
Pantaðu tímanlega
Full búð
af nýjum
vörum
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Vinsælu
ullarungbarnafötin
komin.
fyrir krakka frá 0-12 ára
Buxur, pils,
peysur, skyrtur,
útigallar, úlpur
Dragtir
stök pils
og buxur
frá koko
Skólavörðustíg 14. Sími 551 2509.
Opið
laugardag
kl. 11-17
Er gamli sófinn orðinn þreyttur?
Ýmsar gerðir af sérsaumuðum glæsilegum yfirbreiðslum.
Ódýr lausn Ódýr lausn
Sími 568 7135/ 692 8022 - www.islandia.is/vigdishSTJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert smekkvís og gætir
þess vel hvað þú býður
sjálfum þér andlega
og líkamlega.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að læra að sætta
þig við vald þeirra sem yfir
þig eru settir. Gerðu áætlun
og láttu óttann við hið
óþekkta ekki ná tökum á
þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þess að dragast ekki
inn í deilur annarra. Láttu
vera að ergja þig á því, þú
færð að heyra það sem þú
þarft að vita.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það gengur ekki að ætla sér
að halda áfram með alla
enda lausa. Mundu að ekk-
ert er dýrmætara í heimi
hér en heilsan.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er engin önnur leið til í
lífinu en að halda áfram.
Þér finnst eitthvað mikil-
vægt vera í húfi en þú ert í
raun að gera úlfalda úr mý-
flugu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það gengur ekki að drottna
einn yfir öllu þegar um
samstarf við aðra er að
ræða. Nú er rétti tíminn til
að hrinda því í verk sem þú
hefur lengi beðið með.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það á eftir að koma þér á
óvart hversu margir geta
hugsað sér að fylgja þér að
málum. Varastu samt að
ganga of langt svo ekki
komi til eftirmála.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt þér finnist þú hafa alla
hluti á hreinu ertu samt
ekki viss um hvaða skref þú
átt að stíga næst. Láttu það
ekki slá þig út af laginu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú skapast stund til þess
að taka til hendinni heima
fyrir. Gættu þess bara að
halda utan um þína nánustu
eins og þeir gera um þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er engin ástæða til þess
að fela allar sínar tilfinn-
ingar. Vertu bara einlæg-
(ur).
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú græðir ekkert á því að
taka að þér verkefni sem þú
veist að þú ræður ekki við.
Leggðu áherslu á að fara í
stutt ferðalag til að dreifa
huganum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fjölskyldan er hornsteinn-
inn hvort heldur er í gleði
eða sorg. Ef þú sýnir henni
virðingu máttu vænta virð-
ingar hennar á móti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er til lítils að láta ein-
hver minniháttar mál pirra
sig og eyðileggja daginn.
Nokkur orð frá góðum vini
geta gefið þér meira heldur
en einhver skartklæði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 3.
október, er fimmtug Anna
Ragna Alexandersdóttir,
Álfheimum 31, Reykjavík.
Hún tekur á móti ættingjum
og vinum á morgun, föstu-
dag, kl. 20 í Glaðheimum,
Álalind 3, Kópavogi.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu 9.229 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru Birkir Helgason,
Petra Rut Rúnarsdóttir, Emilía Ásta Giess, Telma Rún
Rúnarsdóttir og Jónína Kristbjörg Björnsdóttir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessir duglegu drengir héldu tombólu og söfnuðu 2.500 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þeir heita Finnbogi Óm-
arsson og Ómar Svan Ómarsson.
LJÓÐABROT
VORSÓL
Svanir fljúga hratt til heiða,
huga minn til fjalla seiða.
Vill mér nokkur götu greiða?
– Glóir sól um höf og lönd.
Viltu ekki, löngun, leiða
litla barnið þér við hönd?
– – –
Nú finn ég vorsins heiði í hjarta.
Horfin, dáin nóttin svarta.
Ótal drauma blíða, bjarta
barstu, vorsól, inn til mín.
Það er engin þörf að kvarta,
þegar blessuð sólin skín.
Í vetur gat ég sagt með sanni:
Svart er yfir þessu ranni.
Sérhvert gleðibros í banni,
blasir næturauðnin við.
– Drottinn, þá er döprum manni
dýrsta gjöfin sólskinið.
– – –
Stefán Sigurðsson
SVEIT Guðmundar Her-
mannssonar varð bikar-
meistari á sunnudaginn
með því leggja að velli Pál
Valdimarsson og félaga í
sveit Orkuveitu Reykavík-
ur. Úrslitaleikurinn er 64
spil, sem skipt er í fjórar 16
spila lotur. Staðan var
nokkurn veginn jöfn eftir
fyrstu lotuna, en aðra lot-
una unnu Guðmundarmenn
með 50 stigum gegn 9 og
náðu þar með undirtökun-
um í leiknum. Lokastaða
varð 161–95.
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 109753
♥ Á6
♦ G8
♣Á1075
Vestur Austur
♠ D642 ♠ KG8
♥ 952 ♥ D1087
♦ Á963 ♦ D10752
♣98 ♣6
Suður
♠ Á
♥ KG43
♦ K4
♣KDG432
Slemmuspil voru fremur
fátíð í úrslitaleiknum, en
hér er þó eitt úr síðustu
lotu. Sex lauf er gullfalleg-
ur samningur í NS. Sagn-
hafi á þrjá möguleika til
vinnings: Hann getur reynt
að trompa spaðann frían,
trompa niður hjartadrottn-
ingu eða spila tígli að
kóngnum. Hjartadrottning-
in fellur ekki og tígulásinn
er í vestur, en spaðinn er
hins vegar 4-3, svo slemm-
an vinnst.
Ásmundur Pálsson og
Guðm. P. Arnarson voru
með spil NS í opna salnum
gegn Bjarna Einarssyni og
Sigurbirni Haraldssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Bjarni Ásmundur Sigurbj. Guðm.
-- Pass Pass 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf
Pass Pass Pass
Í lokaða salnum tóku
Hermann Lárusson og Ar-
on Njáll Þorfinnsson fastar
á spilum NS. Mótherjar
þeirra voru Helgi Jóhanns-
son og Björn Eysteinsson:
Vestur Norður Austur Suður
Helgi Hermann Björn Aron
-- Pass Pass 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 3 tíglar* Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass 6 lauf Allir pass
Aron trompaði niður
spaðann og fékk tólf slagi.
Spilið gaf Orkuveitunni 13
stig, en sveit Guðmundar
vann þó lotuna 53-29.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta