Morgunblaðið - 17.10.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Færeyingar komu á
óvart í Hannover / C2
Alltaf best að svara á
leikvellinum / C1
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FIMMTUDÖGUM
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
www.mbl.is
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablað frá
Body Shop.
Blaðinu verður
dreift á
höfuðborgar-
svæðinu.
„ÞETTA var mjög ánægjulegt mót
og skemmtilegt. Ég er ánægður með
minn hlut og hafði mjög gaman af
því að koma hingað,“ sagði Pedrag
Nikolic stórmeistari í lok Mjólk-
urskákmótsins á Selfossi en hann
deildi fyrsta sætinu í meistaraflokki
með Ivan Sokolov, en báðir fengu
6,5 vinninga.
„Keppnin hérna var mjög
skemmtileg, sumar skákirnar voru
erfiðar sem er eðlilegt því þetta var
mjög sterkt mót,“ sagði Ivan Sokol-
ov en í ávarpi við mótsslitin hrósaði
hann mótshöldurum og allri um-
gjörð og þjónustu í kringum mótið.
Þriðji í meistaraflokki varð Pavel
Tregbukov með 6 vinninga og þeir
Luke MacSane og Hannes Hlífar
Stefánsson voru jafnir í 4.–5. sæti. Í
áskorendaflokki sigraði Jan Votava
með 7,5 vinninga og jafnir í 2.–3.
sæti voru Jón Viktor Gunnarsson og
Steffen Pedersen með 6,5 vinninga.
Það voru fulltrúar nemenda
Barnaskólans á Eyrarbakka og
Stokkseyri sem afhentu verðlaunin
á mótinu og Hrafn Jökulsson, forseti
skákfélagsins Hróksins, afhenti
skólastjóra Barnaskólans áritað tafl-
borð sem afmælisgjöf og þakklæt-
isvott en mótið var haldið í tilefni
150 ára afmælis skólans. Karl Rafns-
son, hótelstjóri Hótel Selfoss, fékk
einnig afhent áritað skákborð og
gjafir til starfsfólks fyrir góða þjón-
ustu og samvinnu.
Í mótslok lýsti Einar Njálsson,
bæjarstjóri Árborgar, áhuga bæj-
aryfirvalda á árlegu mótshaldi. „Það
er mikill áhugi fyrir því af hálfu bæj-
arstjórnarinnar að skákmót af þess-
um styrkleika verði árlegur við-
burður hér í bænum,“ sagði Einar.
„Þetta var gríðarlega spennandi
og skemmtilegt skákmót með harðri
baráttu og óvæntum úrslitum. Það
var barist til þrautar og hér fæddust
margar snilldarskákir. Öll umgjörð
hérna á Hótel Selfossi var eins og
best gerist í heiminum. Vonandi
munum við að ári verða hér aftur
með aðra eins veislu fyrir hinn ört
stækkandi hóp skákáhugamanna á
Suðurlandi og annars staðar á land-
inu,“ sagði Hrafn Jökulsson, aðal-
stjórnandi Mjólkurskákmótsins á
Selfossi, í mótslok.
Öll umgjörð mótsins eins
og best gerist í heiminum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Verðlaunahafar ásamt fulltrúum Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri í lok Mjólkurskákmótsins á Selfossi.
Nikolic og Sokolov eru fyrir miðri mynd og á milli þeirra Arndís Harpa Einarsdóttir skólastjóri.
Nikolic og Sokolov urðu efstir á Mjólkurskákmótinu á Selfossi
Selfossi. Morgunblaðið. ÁHUGI almennings á skák-
íþróttinni hefur aukist til muna
síðastliðið ár og einkum undan-
farna mánuði ef marka má sölu á
skákvörum í Skákhúsinu við
Laugaveg.
Borgar Jónsteinsson, inn-
kaupastjóri hjá Máli og menn-
ingu, sem rekur Skákhúsið, seg-
ir að til marks um það láti nærri
að sala á skákklukkum í versl-
uninni hafi þrefaldast síðastliðið
ár. Borgar hefur keypt inn skák-
vörur fyrir verslunina undanfar-
in 15 ár. Hann segir sölu á skák-
klukkum ágæta mælistiku á
söluna enda séu þær mun oftar
keyptar inn en taflmenn.
Börnin áhugasöm
Starfsfólk í Skákhúsinu sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær
að undanfarna mánuði hefðu
ungir krakkar í auknum mæli
heimsótt verslunina til að skoða
úrvalið og kaupa tafl, taflmenn
og klukkur eða skáktímarit og
-bækur. Einnig væri algengara
að sjá ömmur og afa líta inn í
verslunina í leit að gjöfum handa
barnabörnum.
Borgar segir að margir skólar
hafi um árabil keypt skákvörur
en hann merkir nú aukinn
áhuga hjá þeim einnig. Segir
hann að átak Skákfélagsins
Hróksins og Eddu – miðlunar
og útgáfu hf. til að kynna skák-
ina í grunnskólum landsins hafi
án efa átt sinn þátt í að glæða
áhugann á skákíþróttinni.
Sala á
skákklukk-
um hefur
þrefaldast
Aukinn áhugi
almennings á skák
GÍSLI A. Víkingsson, sérfræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir
fæðuvistfræði, þ.e. skoðun á maga-
innihaldi hvala, vera mjög mikilvæg-
an þátt í vísindaveiðum.
„Það hefur verið lögð aukin áhersla
á þetta hjá okkur og raunar víða um
heim, með svokölluðum fjölstofna-
rannsóknum. Út frá talningum og lík-
amsstærð er tiltölulega einfalt að
meta hversu mikið hvalirnir þurfa sér
til viðurværis en stóra gatið í þekk-
ingunni er að við vitum ekki hvernig
þetta skiptist niður í tegundir,“ segir
hann.
Gísli segir að mikið af upplýsingum
hafi fengist þegar vísindaveiðar voru
stundaðar sumrin 1986 til 1989 og að
þær hafi í raun gerbylt þekkingu
manna á hvalastofnunum.
Verið er að vinna úr niðurstöðum
talningar á hvölum sem gerð var í
fyrra en samkvæmt talningu árið þar
á undan var ástand þeirra stofna sem
helst eru nefndir í tengslum við veið-
ar, þ.e. hrefnu og langreyðar, mjög
gott, að sögn Gísla.
Sjómenn virðast almennt sammála
um að hvölum hafi fjölgað verulega á
undanförnum árum og heyrst hafa
fréttir af svokölluðum „gosbrunnum“
þar sem mikið er af hvalavöðum. Einn
þeirra skipstjóra sem Morgunblaðið
ræddi við sagði að óhemjumikið væri
af hval, þeim hefði fjölgað verulega á
undanförnum árum og áberandi væri
hversu mikið væri af hnúfubaki. Þá
væri einnig óhemjumikið af smáhvel-
um og menn sæju oft heilu hjarðirnar
fara hjá.
Kristján Loftsson, eigandi Hvals,
segir að hvalskip séu til reiðu ef ákveð-
ið yrði að hefja vísindaveiðar. Tæki
séu öll fyrir hendi og hafi alltaf verið.
Svíar greiddu atkvæði
að yfirlögðu ráði
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræð-
ingur utanríkisráðuneytisins, sem
situr aukafund Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins í Cambridge á Englandi, hafnar
því að atkvæðagreiðsla Svía á mánu-
dag hafi verið mistök, þegar þeir
greiddu atkvæði gegn tillögu hins
sænska formanns ráðsins, en niður-
staða atkvæðagreiðslunnar varð til
þess að Ísland fékk aðild að ráðinu.
Hann segir alveg ljóst að Svíar hafi
greitt atkvæði gegn tillögunni að yf-
irlögðu ráði.
Segja fæðuvistfræði mikilvægan þátt vísindaveiða
Gagnlegt að skoða
magainnihald hvala
Svíarnir gerðu/11
Mikilvægt/32
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær íslenska ríkið af kröfu
manns sem fór fram á 3,4 milljóna
króna bætur fyrir að hafa setið sak-
laus í gæsluvarðhaldi í 23 daga í fyrra
vegna rannsóknar á fíkniefnasmygli.
Maðurinn var forráðamaður fyrir-
tækis sem stór fíkniefnasending var
stíluð á og barst í pakka til landsins í
byrjun apríl í fyrra. Voru í sending-
unni m.a. 8,1 kíló af hassi, 200,98
grömm af kókaíni, 16.376 e-töflur og
59,33 grömm af alsæludufti.
Lögregla handtók manninn sama
dag og tvo menn sem stóðu að smygl-
inu og sóttu sendinguna til afgreiðslu
hraðflutningafyrirtækis. Lá hann
undir grun um að eiga aðild að inn-
flutningnum þar sem hann þekkti vel
höfuðpaur smyglsins og sá skuldaði
manninum mikið fé.
Á þeim tíma sem maðurinn sætti
gæsluvarðhaldi fór fram mikil rann-
sókn á umræddu máli og af hálfu lög-
reglu var því haldið fram að allan tím-
ann hefði verið rökstuddur grunur
um að hann ætti hlut að máli þótt
rannsóknin hefði ekki leitt til ákæru á
hendur honum.
Maðurinn hélt fram sakleysi sínu
við rannsókn málsins og mótmælti
gæsluvarðhaldskröfum en kærði ekki
tvo gæsluvarðhaldsúrskurði til
Hæstaréttar. Maðurinn reisti bóta-
kröfu sína á því að hann hefði setið
saklaus í gæsluvarðhaldi í 23 daga og
ástæða þess hefði verið að hann hefði
verið flæktur inn í mál sér alls óskylt
á mjög veikum grunni.
Sigurður H. Stefánsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Lögmaður
stefnanda var Einar Þór Sverrisson
hdl. Til varnar stefnda var Skarphéð-
inn Þórisson ríkislögmaður.
Ríkið sýknað af
kröfum gæslu-
varðhaldsfanga