Morgunblaðið - 17.10.2002, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 13
SAMBAND íslenskra sveitarfélaga
og áfengis- og vímuvarnaráð undir-
rituðu í gær samstarfssamning sem
ætlað er að efla áfengis- og fíkniefna-
forvarnir sveitarfélaga. Samkvæmt
honum munu samningsaðilar verja
5,5, milljónum á ári, frá 2003 til 2005,
til málaflokksins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir markmiðið með sam-
starfinu að stuðla að aukinni fræðslu
og forvörnum á þessu sviði hjá sveit-
arfélögunum og hvetja þau enn frek-
ar til dáða.
„Við teljum að með þeim mark-
miðum sem við setjum fram í samn-
ingnum og þeim leiðum sem þar
koma fram getum við gert enn betur
og veitt sveitarfélögum aðstoð og
ráðgjöf á þessu sviði,“ segir hann.
Sérstök verkefnisstjórn hefur um-
sjón með framkvæmd samningsins.
Henni er ætlað að hafa samvinnu við
aðra sem vinna að forvörnum, s.s.
ríkislögreglustjóra, félagasamtök og
sveitarfélög.
Endurmenntun kennara nái
til fræðslu á sviði forvarna
Í skýrslu um fræðslu- og forvarnir
gegn fíkniefnum í grunn- og fram-
haldsskólum sem starfshópur á því
sviði skilaði af sér í nóvember 2000
og samstarfssamningurinn byggist
á, er m.a. lagt til að kennsla og þjálf-
un um forvarnir verði fastur og ár-
viss liður í endurmenntun kennara
og starfsfólks skóla. Þá er lagt til að
því verði beint til stofnana sveitarfé-
laga að mótuð verði skýr stefna og
verkáætlun þegar börn og unglingar
lenda í vanda. Lagt er til að því verði
beint til grunn- og framhaldsskóla
sem ekki hafa ráðið sér forvarnafull-
trúa eða myndað forvarnarteymi að
þeir geri það nú þegar. Þá er bent á
að sérstaka áherslu þurfi að leggja á
aukið samstarf lögreglu og skóla í
forvarnarmálum.
Í samningnum sem undirritaður
var í gær segir að samningsaðilar
skuli fara yfir og meta árangur verk-
efnisins í árslok 2005. Vilhjálmur
segir að ekki sé fyrirfram búið að
ákveða hvernig sá árangur verði
metinn. Verði það hins vegar mat
þeirra sem að verkefninu standa að
vel hafi tekist til með að efla forvarn-
arstarf sé ekkert því til fyrirstöðu að
halda samstarfinu áfram.
Samstarf á sviði
áfengis- og fíkni-
efnaforvarna
Morgunblaðið/Sverrir
Við undirritun samkomulagsins í gær. Frá vinstri: Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri áfengis- og vímu-
varnaráðs, og Þórólfur Þórlindsson formaður, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, og Þórður Skúlason framkvæmdastjóri og Anna G. Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs sambandsins.
3 mánaða
fangelsi fyr-
ir ölvunar-
akstur
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður
hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur ver-
ið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
og sviptur ökurétti ævilangt fyrir
akstur undir áhrifum áfengis. Refs-
ingin er óskilorðsbundin þar sem
þetta er í þriðja sinn sem maðurinn er
dæmdur fyrir ölvunarakstur.
Atvikið átti sér stað í Reykjavík í
maí sl., en lögregla kom að manninum
í bíl sínum í Skútuvogi eftir að hafa
fengið ábendingu frá vitni sem veitt
hafði manninum athygli í verslun,
áleit að hann væri ölvaður og hafði séð
hann setjast undir stýri og aka á
brott. Var maðurinn einn í bíl sínum
og undir stýri og þar eð hann virtist
undir áhrifum var hann færður í blóð-
töku. Reyndist vínandi í blóðinu vera
1,03 prómill en í þvagi 1,86 prómill.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu
gekkst maðurinn við því að hafa ekið
bílnum, en sagðist hafa drukkið
kvöldið áður og ekki kennt áfengis-
áhrifa við aksturinn. Fyrir dómi neit-
aði hann hins vegar sök og sagðist
ekki hafa ekið bílnum í umrætt sinn,
heldur kunningi sinn. Þeir hefðu orðið
viðskila í Skútuvogi er sá hefði brugð-
ið sér inn í aðra verslun og því ekki
verið í bílnum.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Verjandi ákærða
var Guðmundur Þórðarson hdl. Sækj-
andi var Sturla Þórðarson fyrir Lög-
reglustjórann í Reykjavík.