Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 25
FLOKKARNIR tveir sem
standa að þýsku ríkisstjórn-
inni, Jafnaðarmannaflokkur-
inn og græningjar, hafa kom-
ist að samkomulagi um nýjan
stjórnarsáttmála og undirrit-
uðu leiðtogar flokkanna hann
í Berlín í gær.
Flokkarnir tveir höfðu set-
ið við samningaborðið og
rætt um skipulag væntan-
legrar stjórnar síðan þeir
héldu naumlega þingmeiri-
hluta í kosningunum 22. sept-
ember sl. Náðist endanlegt
samkomulag eftir fund Ger-
hards Schröders kanslara,
leiðtoga jafnaðarmanna, og
græningjans Joschka
Fischer utanríkisráðherra.
Græningjar, sem juku fylgi sitt í
kosningunum og áttu þannig stóran
þátt í að stjórn Schröders hélt velli,
fengu ekki fjórða ráðherrastólinn,
eins og þeir höfðu sóst eftir. Frétta-
skýrendur segja þó, að græningja-
ráðherrarnir þrír – sem eru landbún-
aðar- og neytendamálaráðherra,
umhverfisráðherra og utanríkisráð-
herra – muni fá aukin völd í samræmi
við sterka útkomu flokksins úr kosn-
ingunum.
Í ráðherraliðinu verða fjórir nýlið-
ar, allir úr SPD. Auk Wolfgangs
Clements, fyrrverandi forsætisráð-
herra sambandslandsins Nordrhein-
Westfalen sem tekur við „ofurráðu-
neyti“ atvinnu- og efnahagsmála, eru
það Renate Schmidt, sem fór lengi
fyrir jafnaðarmönnum í Bæjaralandi;
hún mun stýra ráðuneyti fjölskyldu-
og kvennamála, Brigitte Zypries,
sem tekur við dómsmálaráðuneytinu,
og Manfred Stolpe, fyrrverandi for-
sætisráðherra sambandslandsins
Brandenburg, sem verður sam-
gönguráðherra.
Kom á óvart að Stolpe, einn vin-
sælasti stjórnmálamaðurinn í austur-
hluta Þýskalands, féllst á það, eftir
að Schröder hafði ítrekað farið þess á
leit við hann, að taka við ráðherra-
embætti, en auk samgöngumálanna
mun hann hafa með höndum æðstu
stjórn uppbyggingar og þró-
unar í þeim hluta Þýskalands
er áður var undir kommún-
ískri stjórn. Gert hafði verið
ráð fyrir að Wolfgang Tief-
ensee, borgarstjóri í Leipzig,
tæki við þessu ráðherraemb-
ætti.
Fámenn stjórn og jafn-
ræði með kynjunum
Fyrir utan kanslarann
sitja 14 ráðherrar í ríkis-
stjórninni, en það er fámenn-
asta stjórn sem setið hefur
að völdum í Þýskalandi frá
því Konrad Adenauer mynd-
aði fyrstu stjórn Vestur-
Þýskalands árið 1949. Þá
markar þessi ríkisstjórn enn-
fremur tímamót að því leyti að kven-
ráðherrar eru jafnmargir körlunum,
að frátöldum kanslaranum.
Í nýja stjórnarsáttmálanum
kveðst stjórnin ætla að setja á oddinn
baráttuna við atvinnuleysisvandann í
landinu og vinna að því að lækka
skuldir ríkissjóðs. Á blaðamanna-
fundi eftir undirritun sáttmálans
sögðu þeir Schröder og Fischer að
eitt mikilvægasta umbótaverkefnið
sem stjórnin hefði sett sér að mark-
miði væri að gera Þýskaland barna-
vænt land. Markmiðið sé að Þýska-
land verði innan næstu tíu ára ekki
lengur eftirbátur Norðurlanda og
Frakklands að þessu leyti.
Nýr sáttmáli um samsteypustjórn frágenginn í Þýskalandi
Ráðherrar græn-
ingja fá aukin völd
Berlín. AP, AFP.
Gerhard Schröder kanslari (t.h.) og Joschka Fischer
utanríkisráðherra (t.v.) skála að lokinni undirritun
nýja stjórnarsáttmálans í Berlín í gær.
AP
Hrein unun fyrir húðina
Future Solution er nýtt hágæða krem sem veitir vellíðan, vinnur á
áhrifaríkan hátt gegn öllum þáttum öldrunar og viðheldur þeim árangri.
Húð þín sýnir þakklæti sitt fljótlega, hún verður mýkri, teygjanlegri og
ljómar af heilbrigði. Fínar línur og hrukkur hafa sýnilega minnkað og húðin
hefur endurheimt fyrri stinnleika. Framtíðarlausn.
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
90
78
10
/2
00
2
Vertu stolt af hú› flinni
www.shiseido.comKynningarvika 17. - 23. október
F u t u r e S o l u t i o n T o t a l R e v i t a l i z i n g C r e a m