Morgunblaðið - 17.10.2002, Síða 47
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 47
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14-17 í neðri safnaðarsal.
Fræðslusamvera í safnaðarheimilinu
kl. 20. Fjallað í máli og myndum um
þjóðir, sem mótuðu sögu og menningu
Ísraels til forna.
Bústaðakirkja: Foreldramorgunn kl.
10–12 í umsjá Lovísu Guðmundsdótt-
ur.
Dómkirkjan: Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a.
Hallgrímskirkja: Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Léttur málsverður í safnaðar-
heimili að stundinni lokinni.
Háteigskirkja: Taizé-messa kl. 20.
Langholtskirkja. Foreldra- og barna-
morgunn kl. 10–12. Umsjón hefur
Ágústa Jónsdóttir. Söngstund með Jóni
Stefánssyni. Kaffisopi í boði kirkjunn-
ar.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
el milli kl. 12 og 12.10. Að bænastund
og altarisgöngu lokinni er léttur máls-
verður í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljót-
legt og innihaldsríkt. Samvera eldri
borgara kl. 14. Þorvaldur Halldórsson
skemmtir með söng og spjalli. Kaffi-
veitingar. Umsjón hefur þjónustuhópur
safnaðarins, kirkjuvörður og sóknar-
prestur. Alfa námskeið kl. 19–22. Yf-
irumsjón hefur Nína Dór Pétursdóttir.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi)
Neskirkja. NEDÓ-unglingaklúbbur. kl
19.30. Svenni og Hans. Félagstarf aldr-
aðra laugardaginn 19. október kl. 14.
Farið verður í minjasafn Hafnarfjarðar
og víkingasögusýningin frá York skoð-
uð. Kaffiveitingar í Hraunseli, félags-
heimili eldri borgara. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Breiðholtskirkja: Biblíulestrar kl. 20–
22 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar. Fjallað verður um valda texta
Biblíunnar þar sem Guðsmynd mann-
eskjunnar, ábyrgð og frelsi eru í brenni-
depli. Textarnir verða skoðaðir m.a. í
tengslum við túlkun guðfræðinga á
dæmisögu Jesú um miskunnsama
Samverjann. Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10–12.
Digraneskirkja: Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, leikfimi kl.
11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Afla
2 kl. 19. Kennari sr. Magnús B. Björns-
son. Unglingastarf KFUM & KFUK kl.
20–21.45. (sjá nánar www.digranes-
kirkja.is)
Fella- og Hólakirkja: Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Starf fyrir 8-10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiskonar fyrirlestrar.
Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð
fyrir börnin. Kirkjukrakkar fyrir börn 7-9
ára í Húsaskóla og Grafarvogskirkju kl.
17.30–18.30. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–
22.
Hjallakirkja: Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja: Samvera eldri borg-
ara í dag kl. 14.30–17 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma
til sóknarprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja: Alfa-námskeið kl. 19.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deg-
inum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkj-
unnar og bera þar fram áhyggjur sínar
og gleði. Bænarefni eru skráð í bæna-
bók kirkjunnar af prestum og djákna.
Boðið er upp á molasopa og djús að
lokinni stundinni í kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn,
safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10–
12. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í safn-
aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn,
frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman
í notalegu umhverfi og eiga skemmti-
lega samverustund. Barnastarf fyrir
10–12 ára börn í dag kl. 17. Dagskrá í
tali og tónum í kvöld kl. 20. Þorvaldur
Halldórsson syngur. Kaffisala í safnað-
arheimilinu á eftir. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10-12 ára kl. 16.30–18.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld
kl. 20.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbún-
ingur í Kirkjulundi kl. 16. Kynning á
hjálparstarfi og söfnun 5. nóv.: Erla
Guðrún Arnmundsdóttir kl. 16. SVÓT
könnun á starfsemi þjóðkirkjunnar:
Styrkleiki, Veikleiki, Ógnanir, Tækifæri.
Hvað getum við gert til að bæta
safnaðarstarfið? Vertu með í að móta
starf kirkjunnar þinnar. Kynning og
umræður í minni sal Kirkjulundar kl. 20
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og Styrking
fundur fimmtudaginn 17. október frá
kl. 13–16. Allir velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 10 mömmumorgun. Sr. Þorvaldur
Víðisson, kl. 16 litlir lærisveinar, hópur
1. Kórstjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir.
Kl. 17:30 litlir lærisveinar, hópur 2.
Kórstjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
Aðaldeild KFUM. Holtavegi 28
Fundur kl. 20. „Ísrael í máli og mynd-
um“ Ólafur Jóhannsson, formaður fé-
lagsins Zion, vinir Ísraels sér um efni
fundarins. Friðrik Hilmarsson talar. Allir
karlmenn velkomnir.
SÍK, KFUM, KFUK og Skólahreyfingin.
Haustátak!
Samkoma í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58 kl. 20.30. Upphafsorð: Ein-
ar S. Arason. Ole Lilleheim talar. Allir
velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í Safnaðarheimili eftir
stundina. Æfing hjá Barnakór kirkjunn-
ar kl. 15.30.
Laufássprestakall:
Kirkjuskóli verður fyrir allt prestakallið í
Laufásskirkju laugardaginn 19. októ-
ber kl. 13.
Kl. 14 byrjar uppskeru og starfsdagur í
Gamla bænum.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
Bridsfélag Hreyfils
Spiluð var eins kvölds firma-
keppni sl. mánudag og tók fjöldi fyr-
irtækja þátt í mótinu. Arkís og Sóln-
ing hf. urðu í efsta sætinu þá
Lagalind ehf. og Innheimtuþjónust-
an ehf.
Keppnin var í tvímenningsformi
og urðu eftirtalin pör efst:
Daníel Halldórss. - Guðlaugur Sveinss. 34
Gísli Tryggvason - Heimir Tryggvason 23
Rúnar Gunnarss. - Gísli Steingrímss. 20
Kári Sigurjónss. - Guðm. Magnúss. 13
Næsta keppni er ein vinsælasta
keppni félagsins, aðalsveitakeppnin.
Spilað er á mánudagskvöldum í
Hreyfilshúsinu þriðju hæð og hefst
spilamennskan kl. 19,30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Þegar lokið er 10 umferðum í
Haustbarómeter 2002 er röð efstu
para eftirfarandi:
Stefanía Sigurbjörnsd. – Jóhann Stef. 108
Jón Stefánss. – Magnús Sverrisson 62
Jón Guðmar – Friðjón Margeirsson 60
Helgi Samúelss. – Unnar A. Guðm. 54
Guðjón Sigurjónss. – Helgi Bogason 41
Halla Bergþórsd. – Kristjana Steingr. 40
Bestu skor þ. 14. okt. sl.
Stefanía Sigurbjörnsd. – Jóhann Stef. 63
Jón St. Ingólfsson – Jens Jensson 62
Guðjón Sigurjónss. – Helgi Bogason 20
Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 16
Bridsfélag Suðurnesja
Helgina 12.–13. okt. komu Borg-
nesingar í heimsókn. Á laugardag
fór fram bæjarkeppni á 5 borðum og
lauk henni með naumum sigri Suð-
urnesjamanna. Á sunnudag var svo
spilaður tvímenningur og voru úrslit
þessi:
Jón Ág. Guðmundss. – Rúnar Ragnarss. 59
Karl G. Karlss. – Gunnlaugur Sævars 52
Gunnar Guðbj. – Randver Ragnarss. 40
Á mánudag var spilað sveitarokk.
Eftir 9 umferðir af 11 er staðan enn
mjög jöfn og spennandi. Efstu pör
heita:
Arnór G. Ragnarss. – Karl Hermannss. 161
Karl Einarsson – Björn Dúason 158
Stefán Ragnarsson – Kári Jónsson 158
Heiðar Sigurjónss. – Þröstur Þorlákss. 156
Síðasti skráningardagur
í einmenninginn í dag
Íslandsmótið í einmenningi verður
spilað 18.-19. okt. í Síðumúla 37.
Spilamennska hefst kl. 19.00 föstu-
dag og lýkur um kl. 19.00 á laug-
ardag.
Keppnisstjórar eru Sveinn Rúnar
og Björgvin Már. Allir spila sama
kerfið þ.e. einfalt Standard-kerfi og
er hægt að nálgast það á skrifstof-
unni eða fá það sent í tölvupósti.
Keppnisgjald er kr. 2.500. Núver-
andi Íslandsmeistari í einmenninger
Vilhjálmur Sigurðsson yngri.
Skráning í s. 587 9360 eða
www.bridge.is Vegna skipulagning-
ar mótsins verða skráningar að ber-
ast í síðasta lagi fimmtudaginn 17.
október.
ÍSLENZKIR dansarar hafa verið
að gera það gott á haustmisserinu.
Nokkur pör tóku þátt í gríðarlega
sterkri keppni í Englandi í liðinni
viku.
Í flokki yngri para komust Björn
Ingi Pálsson og Ásta Björg Magn-
úsdóttir í undanúrslit í suður-
amerískum dönsum. Jónatan Arnar
Örlygsson og Hólmfríður Björns-
dóttir komust í 48 para úrslit í sígild-
um og suður-amerískum dönsum. Í
samtali við Morgunblaðið sagði
Adam Reeve að öll íslenzku pörin
hefðu dansað gríðarlega vel og sann-
arlega verið þjóð sinni og íslenzkri
íþróttahreyfingu til mikils sóma.
Elísabet Sif Haraldsdóttir og Rob-
in Sewell, kepptu í flokki áhuga-
manna í svokallaðri „International“
keppni sem haldin var í London, og
er talin til þriggja sterkustu dans-
keppna í heiminum. Þau komust í 30
para úrslit og enduðu í 12.–24. sæti.
Á þriðja hundrað para kepptu í þess-
um flokki. Þau hafa keppt mikið að
undanförnu og sigruðu meðal annars
á alþjóðlegu stigamóti áhugamanna í
suður-amerískum dönsum, sem
haldið var í London í lok september.
Eins tóku þau þátt í „Imperial“
keppninni, á dögunum, og unnu til 7.
verðlauna, þar sem um 200 pör
kepptu. Framundan er svo heims-
meistaramót í dansi, sem haldið
verður í Vín í Austurríki, þar sem
þau koma til með að keppa fyrir
hönd Íslands og verða þar án efa
mjög glæsilegir fulltrúar.
Evrópumeistararnir okkar í at-
vinnumannaflokki, í 10 dönsum,
Adam Reeve og Karen Björk Björg-
vinsdóttir, náðu mjög góðum árangri
er þau dönsuðu í Royal Albert Hall í
London. Þau komust í 24 para úrslit í
sígildum samkvæmisdönsum, en alls
voru 111 pör skráð til leiks í keppn-
inni, alls staðar að úr heiminum.
Adam og Karen hafa átt mjög ann-
ríkt sumar og hafa verið á stöðugu
ferðalagi, frá því þau kepptu í
Blackpool í vor. Þar náðu þau mjög
góðum árangri og má segja að með
því hafi þau verið að skipa sér í hóp
fremstu danspara heims. Þau hafa
verið hér heima og þjálfað íslenzk
danspör ásamt því að vera á Filipps-
eyjum, Singapoore og Ástralíu en
Adam er Ástrali.
Hinn 6. október hlotnaðist þeim sá
heiður að halda sýningu á keppni
heimamanna í Suður-Kóreu, og í júní
sl. voru þau með sýningu í Jakarta á
Indónesíu, en þar sýndu einmitt
finnsku meistararnir Jukka
Happalainen og Sirpa Suutari, sem
hafa verið meðal allra sterkustu
dansara heims um nokkurt skeið.
Að undanförnu hafa Adam og Kar-
en verið við æfingar í London og
framundan er mikið og strangt
keppnistímabil og má þar nefna Evr-
ópu- og heimsmeistaramót í sígildum
samkvæmisdönsum og opnu ástr-
ölsku meistarakeppnina, en þau sigr-
uðu í þeirri sterku keppni á síðasta
ári.
Það má með sanni segja að Adam
og Karen og Robin og Elísabet hafi
náð einum bezta árangri sem ís-
lenzkt íþróttafólk hefur náð og er
synd hve lítinn gaum Íslendingar
gefa þessu afreksíþróttafólki og
hversu lítið íþróttahreyfingin hefur
stutt við bakið á þeim, því þau eru
verðugir og góðir fulltrúar þessarar
hreyfingar á erlendri grundu og eiga
án nokkurs vafa eftir að ná enn
lengra í íþrótt sinni.
Góður árangur
íslenzkra keppenda
Jóhann Gunnar Arnarsson
DANS
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðausturkjördæmi
Annað kjördæmisþing Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjördæmi
verður haldið á Hótel Héraði á
Egilsstöðum um næstu helgi, dag-
ana 18. til 19. október næstkom-
andi. Meginverkefni þingsins verð-
ur að ákveða fyrirkomulag á
framboði flokksins fyrir komandi
þingkosningar. Þingmenn í núver-
andi kjördæmum Norðurlands
eystra og Austurlands, sem sam-
einast í Norðausturkjördæmi, eru
þrír; ráðherrarnir Halldór Ás-
grímsson, Valgerður Sverrisdóttir
og Jón Kristjánsson. Halldór hef-
ur sem kunnugt er ákveðið að
flytja sig til Reykjavíkur en búist
er við áframhaldandi framboði
Valgerðar og Jóns í nýju kjör-
dæmi.
Borgarafundur í Austurbæjarbíói
Samfylkingin boðar til opins borg-
arafundar um Evrópumál í Austur-
bæjarbíói í dag, fimmtudag, kl. 20.
Frummælendur eru: Ágúst Ólafur
Ágústsson, háskólanemi, Árni Páll
Árnason, lögmaður, Eiríkur Berg-
mann Eiríksson, upplýsingafulltrúi,
Jónína Bjartmarz, alþingismaður,
og Ragnar Arnalds, fv. ráðherra.
Pallborð og fyrirspurnir úr sal að
framsögum loknum. Allir velkomnir.
Í DAG
Ársfundur Starfsgreinasam-
bandsins Ársfundur Starfsgreina-
sambands Íslands verður haldinn á
Hótel Selfossi í dag, fimmtudaginn
17., og föstudaginn 18. október.
Halldór Björnsson, forseti sam-
bandsins, setur fundinn kl. 13. Ávarp
flytja: Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra og Grétar Þorsteinsson, for-
seti ASÍ. Fundarslit verða föstudag-
inn 18. október kl. 15.30.
Jarðfræðiráðstefna Haustráð-
stefna Jarðfræðafélags Íslands
verður haldin á Nesjavöllum föstu-
daginn 18. október og hefst kl. 9. Að
þessu sinni er hún helguð dr. Guð-
mundi E. Sigvaldasyni jarðefna-
fræðingi, fyrrverandi forstjóra Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar, í tilefni
af sjötugsafmæli hans nú í sumar.
Í erindum og á veggspjöldum verð-
ur fjallað um þau svið jarðfræð-
innar sem Guðmundur hefur eink-
um fengizt við á meira en 40 ára
rannsóknaferli, eldfjallafræði, jarð-
efnafræði og bergfræði. Erindi
halda m.a.: Haraldur Sigurðsson,
berg- og eldfjallafræðingur í Rhode
Island, Claude Jaupart, eldfjalla-
fræðingur í París, Dennis L. Niel-
son, jarðhitafræðingur á Hawaii og
Terry M. Seward, jarðefnafræð-
ingur í Zürich.
Á MORGUN
Félag átröskunarsjúklinga stofn-
að Stofnfundur samtaka aðstand-
enda átröskunarsjúklinga verður
haldinn í dag, fimmtudaginn 17.
október, kl. 20 í húsi Rauða kross Ís-
lands í Efstaleiti.
Á fundinum verður lögð fram til
samþykktar tillaga að stjórn-
arskipan samtakanna og markmiðin
kynnt. Fagaðilar sem unnið hafa
með átröskunarsjúklingum flytja
stutt erindi. Umræður um átrösk-
unarsjúkdóminn. Allir sem láta sig
málið varða velkomnir, segir í frétta-
tilkynningu.
Ný verslun í Hlíðasmára Verslunin
„High and Mighty“ verður opnuð í
Hlíðasmára 13, Kópavogi, föstudag-
inn 18. október. Verslunin hefur á
boðstólum herrafatnað í yfirstærð-
um.
Eigendur verslunarinnar eru hjónin
Anna Jóhanna Guðmundsdóttir og
Kári Geirlaugsson og sonur þeirra,
Guðmundur Kárason.
High and Mighty var stofnað í Bret-
landi árið 1956 og rekur 27 verslanir
á Bretlandseyjum og 10 á meg-
inlandi Evrópu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
FUNDUR sýslumanna á Vestfjörð-
um og í Dölum vekur athygli á afleitu
símasambandi á Vestfjarðavegi og
Djúpvegi, sem eru aðalþjóðvegir í
landshlutanum. Í ályktun sem send
heur verið samgönguráðherra og
dómsmálaráðherra segir:
„GSM-samband er nær eingöngu í
þétttbýliskjörnum og NMT-síma-
samband er afar slitrótt þar á milli
og fer versnandi. Fundurinn lýsir
áhyggjum sínum yfir þessu ástandi
og hve öryggi vegfarenda er ótryggt
af þessum sökum. Malarvegir, ein-
breitt slitlag, fjöll og firðir og oft
miklar fjarlægðir milli bæja gera það
að verkum að þetta símasambands-
leysi dregur verulega úr umferðar-
öryggi í landshlutanum.“
Undir ályktunina rita sýslumenn-
irnir Anna Birna Þráinsdóttir í Búð-
ardal, Áslaug Þórarinsdóttir á
Hólmavík, Jónas Guðmundsson í
Bolungarvík, Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir á Ísafirði og Þórólfur
Halldórsson á Patreksfirði.
Sýslumenn
vekja athygli á
afleitu síma-
sambandi
SMIÐJUDAGAR 2002 verða haldn-
ir á Úlfljótsvatni dagana 18.-20.
október. Mótið er ætlað eldri skátum
af öllu landinu, sem munu taka þátt í
ýmsum verkefnum á staðnum auk
þess að taka þátt í alþjóðlegum
skátamótum sem fara fram á sama
tíma um heim allan, í gegnum tal-
stöðvar og netið. Nánari upplýsingar
um Smiðjudaga 2002 er hægt að
nálgast á www.scout.is.
Í fyrra voru u.þ.b. 650.000 skátar
sem tóku þátt í þessum viðburði,
segir í fréttatilkynningu.
Smiðjudagar
á Úlfljótsvatni