Morgunblaðið - 17.10.2002, Qupperneq 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 53
Kringlan 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420
H E L G A R
T I L B O Ð
Dömustígvél
og
vetrarskór
30-60%
afsláttur
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
10
11
/
TA
K
T
ÍK
-
N
r.:
28
B
KRINGLUKAST
Aðeins í 4 daga
Fjöldi annarra tilboða
Dömur
Peysur bómullar 6.390 4.990
Bómullarpeysur/
rúllukraga 4.590 3.900
Rúllukragapeysur 6.390 4.990
Allar ullarbuxur 25% afsl.
Kringlunni - sími 581 2300
Herrar
Boxer nærbuxur 1.890 600
Kakibuxur 6.590 4.990
Tvennar á 8.000
Sloppar 9.990 6.990
Skyrtur 3.990
Tilboð 2 á 6.000
Allar peysur í vetrarlínu 20% afsl.
Verð áður Verð nú
Verð áður Verð nú
ALNÆMISSAMTÖKIN á Íslandi
eru að hrinda af stað fræðslu- og
forvarnarverkefni fyrir nemendur í
9. og 10. bekkjum grunnskóla og
verða allir grunnskólar landsins
heimsóttir. Þótt fræðslan snúist
einkum um HIV og alnæmi varðar
hún varnir gegn kynsjúkdómum al-
mennt og miðar að því að uppfræða
unglingana um mikilvægi þess að
sýna ábyrgð í eigin athöfnum.
Verkefnið er unnið í samráði og
samvinnu við Landlæknisembættið,
en auk fjárhagsstuðnings frá Land-
læknisembættinu styrkir Hjálpar-
starf kirkjunnar fræðslustarfið.
Verkefnið hefst 21. október. Í
fyrsta áfanga verður byrjað á þrem-
ur stöðum á landinu: 1. Ísafirði, það-
an sem leið liggur suður Vestfirði, á
Barðaströnd og Strandir.
2. Vopnafirði, um Langanes og
Þingeyjarsýslur allt til Akureyrar.
3. Egilsstöðum og suður Austfirði
allt til Hafnar í Hornafirði.
Í öðrum áfanga, sem hefst 28.
október, verður lokið við Norður-
land og í þriðja áfanga, sem hefst 4.
nóvember, verða skólar á Vest-
urlandi og Suðurlandi heimsóttir.
Hver áfangi tekur fimm daga, segir
í fréttatilkynningu.
Fræðslu- og for-
varnarverkefni
Alnæmissamtakanna
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
FASTEIGNIR mbl.is
SOROPTIMISTAKLÚBBUR Kópa-
vogs gefur út jólakort í ár, eins og
undanfarin ár og merkispjöld á
jólapakka með mynd. Jónína Magn-
úsdóttir (Ninný) hannaði kortið, en
hún er klúbbfélagi.
Jólakortin hafa verið ein aðal-
uppistaða í tekjuöflun klúbbsins,
sem hefur frá upphafi stutt bygg-
ingu hjúkrunarheimilisins Sunnu-
hlíðar í Kópavogi. Soroptimista-
konur sjá um sölu og dreifingu
kortanna.
Jólakort
Soroptim-
istaklúbbs
Kópavogs
Í TILEFNI af degi hvíta stafsins, sem
er alþjóðlegur baráttudagur blindra
og sjónskertra, var undirritaður samn-
ingur á milli Blindrafélagsins og fé-
lagsmálaráðuneytisins um fjölgun
starfa fyrir blinda og sjónskerta
starfsmenn á Blindravinnustofunni
sem er í eigu Blindrafélagsins.
Markmið þessa samnings er ann-
ars vegar að veita fötluðum tíma-
bundin störf sem miða að því að auka
möguleika þeirra til að starfa á al-
mennum vinnumarkaði, og hins vegar
að veita fötluðum föst störf. Með
þessu móti er stuðlað að aukinni þátt-
töku fatlaðra í samfélaginu og auknu
fjárhagslegu og félagslegu sjálfstæði
þeirra.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í
Reykjavík mun annast framkvæmd
samningsins og samskipti við
Blindravinnustofuna fyrir hönd fé-
lagsmálaráðuneytisins.
Samningurinn gerir Blindravinnu-
stofunni mögulegt að ráða um næstu
áramót í 4 ný stöðugildi til viðbótar
þeim 12,5 sem nú starfa á vinnustof-
unni. Frá og með áramótunum 2004 er
síðan ráðið í 3,5 stöður til viðbótar. Alls
er því gert ráð fyrir 20 stöðugildum í
samræmi við ákvæði samningsins.
Gildistími þessa samnings er til árs-
ins 2006 en jafnframt gefur hann
möguleika á því að ákvæði hans séu
endurskoðuð.
Hjá Blindrafélaginu var opið hús í
tilefni dagsins og fjölmenni sótti fé-
lagið heim.
Morgunblaðið/Sverrir
Störfum fjölgað hjá
Blindravinnustofunni