Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ ber vel í
veiði fyrir öll pör sem heita Jón og
Hólmfríður, því þau fá frítt inn og
verða heiðursgestir á sýningunni
Jón og Hólmfríður – frekar erótískt
leikrit í þrem þáttum, sem sýnt er á
Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Nú
þegar hafa fjögur slíkpör gefið sig
fram við leikhúsið, en grunur leikur
á að þetta sé óvenjulega algengt
paranafn. Leikhúsið lýsir eftir fleiri
pörum og biður þau að hafa sam-
band við miðasöluna sem fyrst.
Að sögn aðstandenda sýning-
arinnar er eitthvað sérstakt sem
hefur dregið menn sem heita Jón að
konum sem heita Hólmfríður – og
öfugt. Enn hafi þetta þó ekki verið
rannsakað í þar til gerðum rann-
sóknarstofum.
Jón og Hólmfríður er á yfirborð-
inu ósköp venjuleg saga af venju-
legu ungu pari, sem er að safna fyr-
ir útborgun á leðursófa, en á fyrstu
fimm mínútum leiksins kemst Jón
að því að Hólmfríður heldur við föð-
ur hans, Eggert, sem reynist ekki
vera faðir hans, heldur er það Andr-
és, frændi Hólmfríðar, sem sjálfur
heldur við Mörtu móður Jóns.
Með hlutverkin í leikritinu fara
Sóley Elíasdóttir, Gunnar Hansson,
Halldór Gylfason, Harpa Arnar-
dóttir og Þór Tulinius. Þetta er
fyrsta leikstjórnarverkefni Hall-
dóru Geirharðsdóttur.
Það gengur ýmislegt á í sam-
skiptum kynjanna í gamanleiknum
Jóni og Hólmfríði.
Jón og Hólm-
fríður fá frítt
á Jón og
Hólmfríði
Morgunblaðið/Þorkell
HLJÓMSVEITIN Skárren ekkert
hefur verið starfandi býsna lengi og
hefur helst komið að tónlist fyrir leik-
hús, dansverk, kvikmyndir og þess
háttar. Nú stígur
sveitin hins vegar
fram sem fullsköp-
uð og djarfhuga
poppsveit – og not-
ast við nafnið Ske.
Skemmst er frá
að segja að þessi
frumburður sveitarinnar er alveg fá-
ránlega góður. Hljómar frekar eins
og fjórða plata sveitar, sem hefur
þróast og þroskast á helmingi fleiri
árum. Það er auðheyranlegt að hið
margþætta stúss Skárren ekkert í
gegnum árin er að skila sér svo um
munar.
Það er erfitt að pikka út líka lista-
menn en hin japanska Pizzicato 5,
hinn íslenski Egill Sæbjörnsson og
hinir bresku Beta Band koma ósjálf-
rátt í huga. Allir þessir aðilar eiga það
sameiginlegt að leika sér svolítið með
poppsöguna í list sinni og er Ske ekki
undanskilin þeirri nálgun. Fram-
kvæmd þessarar stefnu hér er hins
vegar með slíkum glans að hin annars
frábæra sveit Beta Band t.d. er eins
og stefnulaus og óæfð, þriðja flokks
bílskúrssveit í samanburðinum.
Því ef það er einhvern tíma hægt
að tala um vel heppnað, póstmódern-
ískt popp, þar sem áhrif eru tekin
héðan og þaðan úr dægurtónlistar-
sögunni og þeim púslað saman á óað-
finnanlegan hátt, þá er það þessi
fyrsta plata Ske. Áhrifavaldarnir
gægjast reglubundið fram en þó
hljóma lagasmíðanar eins og ekkert
sem þú hefur heyrt áður.
Lögin hér eru melódísk, hug-
myndarík og taka jafnan óvæntar
beygjur og sveigjur. Hið lífræna og
hið vélræna rennur saman í einn, un-
aðslegan hljómhnykil þar sem hljóð-
og hljómbútar eru fengnir að láni,
kassagítarar og aðrar slaggígjur eru
slegnar og trommu- og tölvutaktar
eru umvélaðir.
Allt er þetta þaulhugsað en græsk-
an þó aldrei langt undan, rennslið
óaðfinnanlegt og snöggur blettur er
hvergi á stjái. Ske landar sætu og
ljúfu poppi jafnglæsilega og raflegn-
um stemmum, keyrðum áfram undir
vélargnauði að því er virðist. Það er
allt svo furðulega pottþétt hérna –
næstum of gott til að vera satt.
Hér er á ferðinni ferskt, frumlegt
og framsækið popp sem gefur ekki
þumlung eftir í listrænni leit en er þó
með því hlustunarvænasta sem mað-
ur hefur heyrt á árinu. Já, hei! Meðan
ég man. Þetta er besta plata sem ég
hef heyrt á árinu.
Það er ómögulegt að taka eitt lag
fram yfir annað hér. Ég ætla samt að
nefna uppáhaldslagið mitt, hið meist-
aralega „T-Rex“. Slagari allra tíma.
Já, þetta er lofsöngur frá a til ö þar
sem platan er frábær frá a til ö. Life
Death Happiness & Stuff með Ske er
verðskuldað snilldarverk!
Tónlist
Hva’r að Ske, ma’r?
Ske
Life Death Happiness & Stuff
Smekkleysa sm/ehf
Life Death Happiness & Stuff er fyrsta
hljómplata Ske. Sveitin er skipuð Eiríki
Þórleifssyni, Frank Þóri Hall, Guðmundi
Steingrímssyni og Hrannari Ingimars-
syni. Þeim til aðstoðar eru Una Svein-
bjarnardóttir, Kjartan Guðnason, Juri
Hashimoto, Jón Oddur Guðmundsson,
Páll Borg, Daníel Ágúst Haraldsson, Julie
Coadou, Örn Úlfar og Oskari Kuusela. Við
tónlistarflutning er stuðst við bassa, raf-
og kassagítar, hljómborð, harmonikku,
söng, forritun, hljóðbúta, mandólín, fiðlu
og píanó. Tónlist eftir meðlimi. Textar eft-
ir meðlimi, Juri Hashimoto, Sawa, Julie
Coadou og T.S. Eliot.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Sverrir
Frumburður Ske er „alveg fárán-
lega góður“, að mati Arnars Egg-
erts Thoroddsen.
Gjafabrjóstahöld
Meðgöngufatnaður í úrvali
Þumalína, Skólavörðustíg 41
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Lau 19/10 kl. 21 Örfá sæti
Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt
Sun 20/10 kl. 21 Örfá sæti
Mið 23/10 kl. 21 Aukasýning Uppselt
Fim 24/10 kl. 21 Uppselt
Sun 27/10 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti
Lau 2/11 kl. 21 Uppselt
Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Fös 8/11 kl. 21 Uppselt
Fös 8/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 9/11 kl. 21 Uppselt
Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Fim 14/11 kl. 21 Laus sæti
Fös 15/11 kl. 21 Laus sæti
Lau 16/11 kl. 21 Laus sæti
Lau 16/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Fös 22/11 kl. 21 Laus sæti
ÁSKRIFTAR- OG AFSLÁTTARKORT síðasta söluvika!
7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin.
10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun
Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Frumsýning fö 25/10 kl 20 - UPPSELT
2. sýn Gul kort su 27/10 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 20. okt kl 14, Su 27. okt kl 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Lau 19. okt kl 20, Lau 26. okt kl 20
ATH: Fáar sýningar eftir
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fö 18. okt kl. 20 - Aukasýning
Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning
Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20,
Fi 24/10 kl 20, Fö 25/10 kl 20, Lau 26/10 kl 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Su 20/10 kl 20, Síðasta sýning
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 19/10 Karólína Eiríksdóttir - CAPUT
Nýja sviðið
Leikferð
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
PÍKUSÖGUR Á ÍSAFIRÐI
má 21. okt. kl. 17 og kl. 21 í Edinborgarhúsinu
í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
„Sprenghlægileg“
„drepfyndin“
„frábær skemmtun“
sun. 13
kl. 20,fös. 18/10
Miðnætursýning
kl. 23,
lokasýning
Leikfélag Hveragerðis
sýnir
Kardemommu-
bæinn
Í VÖLUNDI
AUSTURMÖRK 23
3. sýn. lau. 19. okt. kl. 14.00
4. sýn. sun. 20. okt. kl. 14.00
5. sýn. lau. 26. okt. kl. 14.00
6. sýn. sun. 27. okt. kl. 14.00
7. sýn. lau. 2. nóv. kl. 14.00
8. sýn. sun. 3. nóv. kl. 14.00
Miðaverð kr. 1.200.
Eldri borgarar/öryrkjar/hópar
kr. 1.000.
Frítt fyrir 2ja ára og yngri
Miðapantanir og upplýsingar
í Tíunni, sími 483 4727.
3. sýn. sun. 20. okt. kl. 14 örfá sæti
4. sýn. sun 27. okt. kl. 14 laus sæti
5. sýn. sun 3. nóv. kl. 14
G. Rossini: Ítalska stúlkan
í Alsír - forleikur.
W. A. Mozart: Píanókonsert
nr. 20, KV 466, í d-moll.
P. Tsjajkovskíj:
Svanavatnið - svíta.
P. Tsjajkovskíj:
Rómeó og Júlía - Fantasíuforleikur.
Uppáhaldslagið þitt
Perlur klassískra tónbókmennta sem
allir þekkja og dá.
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn
17. október 2002 kl. 19.30
föstudaginn
18. október 2002 kl. 19.30
Hljómsveitarstjóri: Gerrit Schuil.
Einleikari: Gerrit Schuil. Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Sýn. lau. 19. okt. kl. 19 uppselt
sýn. fös. 25. okt. kl. 20 örfá laus sæti
sýn. lau. 26. okt. kl. 19 laus sæti
sýn. fös. 1. nóv. kl. 20 laus sæti
sýn. lau. 2. nóv. kl. 19 örfá laus sæti
sýn. lau. 9. nóv. kl. 19 síðasta sýning
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
eftir Þorvald Þorsteinsson
fös. 18. okt. kl. 16 uppselt
sun. 20. okt. kl. 14
sun. 10. nóv. kl. 14
SNUÐRA OG TUÐRA
eftir Iðunni Steinsdóttur
lau. 26. okt. kl. 14
sun. 3. nóv. kl. 16
HEIÐARSNÆLDA
Nýtt leikrit fyrir yngstu börnin
Frumsýn lau. 19. okt. kl. 14
2. sýn. 25. okt. kl. 10.30 uppselt
3. sýn. 27. okt. kl. 14
4. sýn. 28. okt. kl. 11 uppselt
5. sýn. 3. nóv. kl. 14
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
„Grettissaga Hilmars Jónssonar er vel heppnuð sviðsetn-
ing á perlu úr okkar forna bókmenntaarfi.“ H.F. DV.
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
fös. 18. okt. kl. 20, lau. 19. okt. kl. 20, fös. 25. okt. kl. 20, lau. 26. okt. kl. 20, fös.
1. nóv. kl. 20, lau. 2. nóv kl. 20
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
fim. 17. okt. uppselt, sun. 20. okt. uppselt, þri. 22. okt. uppselt, mið. 23. okt.
uppselt, sun. 27. okt. uppselt, þri. 29. okt. uppselt, mið. 30. okt. uppselt, sun.
3. nóv. uppselt, mið. 6. nóv. uppselt, sun. 10. nóv. uppselt, þri. 12. nóv. nokkur
sæti, mið. 13. nóv. nokkur sæti.