Morgunblaðið - 17.10.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla dagaSími 588 1200
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu
vann öruggan sigur, 3:0, á Litháen í
undankeppni Evrópumótsins í
knattspyrnu á Laugardalsvelli í
gærkvöldi. Þar með hefur íslenska
liðið unnið sinn fyrsta sigur í
keppninni en það hefur lokið tveim-
ur viðureignum. Eftir markalausan
fyrri hálfleik kom Heiðar Helguson
íslenska liðinu á bragðið á 50. mín-
útu og í kjölfarið fylgdi Eiður
Smári Guðjohnsen með tvö mörk til
viðbótar áður en yfir lauk. Eftir
vonbrigðin gegn Skotum sl. laug-
ardag höfðu íslensku leikmennirnir
ástæðu til að fagna í leikslok og hér
sjást þeir Bjarni Guðjónsson, Arnar
Þór Viðarsson, Helgi Sigurðsson,
Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar
Ingimarsson hlaupa í átt til áhorf-
enda og þakka þeim stuðninginn.
Morgunblaðið/Golli
Öruggur
sigur á
Litháen
Sigur Íslands/C1–4
SAMKVÆMT úrskurði kjaranefndar um launa-
kjör heimilislækna falla niður bónusgreiðslur, eða
svonefndar yfirvinnueiningar, sem læknar í fjöl-
mennum byggðarlögum hafa haft og að sögn Þóris
Björns Kolbeinssonar, formanns Félags íslenskra
heimilislækna, hefur þetta mismunandi áhrif. Hann
telur að laun heimilislækna með sérfræðimenntun
geti ekki lækkað vegna þessa en hins vegar sé
hætta á að unglæknar, sem starfa á heilsugæslu-
stöðvum, geti lækkað í launum.
Bónusgreiðslurnar hafa verið miðaðar við fjölda
íbúa í hverju hverfi. Ef fjöldi íbúa á hvern starfandi
heilsugæslulækni hefur farið í hundraðatali yfir
1.500 hefur hann fengið fjórar yfirvinnueiningar
fyrir hvert hundrað. Fullar bónusgreiðslur hafa
þeir læknar fengið sem farið hafa yfir þennan
fjölda. Algengt er að læknar hafi fengið 70–80 þús-
und króna bónusgreiðslur, sem nú falla niður með
úrskurðinum. Með úrskurði kjaranefndar á að
greiða fyrir hvern yfirvinnutíma, óháð íbúafjölda,
sem fellur inn í föst mánaðarlaun. Þórir Björn segir
að önnur kjör lækna með sérfræðimenntun eigi að
batna á móti. Launahækkun unglækna sé minni og
geti ekki að fullu vegið á móti niðurfellingu
greiðslnanna.
Oddur Steinarsson, formaður Félags ungra
lækna, tekur undir með Þóri Birni og segir að úr-
skurður kjaranefndar verði ekki til að fá unglækna
inn í heilsugæsluna, þeir muni áfram velja aðrar
sérgreinar.
„Á meðan læknar búa ekki við sömu kjör leita
unglæknar í önnur fög. Þessi hornsteinn heilbrigð-
isþjónustunnar, sem heilsugæslan er, er að molna
niður,“ segir Oddur og bendir á að nýliðun í stétt
heimilislækna sé afar takmörkuð. Fyrir tveimur ár-
um hafi 7–8% af árgangi unglækna valið heimilis-
lækningar sem sérgrein en sambærilegt hlutfall á
Norðurlöndunum sé 30–40%.
Heimilislæknar boðaðir á
fund heilbrigðisráðherra
Stjórn og kjararáð Félags íslenskra heimilis-
lækna funduðu í gærkvöldi um úrskurðinn og var
búist við að fundurinn stæði fram á nótt. Engar
ályktanir voru sendar út frá þeim fundi en almenn-
ur félagsfundur hefur verið boðaður í næstu viku.
Þórir Björn sagði að á fundinum hefðu komið í ljós
fleiri gallar á úrskurðinum en í fyrstu hefði mátt sjá.
Heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, hefur
boðað fulltrúa heimilislækna til fundar við sig í
ráðuneytinu í dag.
Heimilislæknar funduðu fram á nótt um úrskurð kjaranefndar
Afnám bónusgreiðslna get-
ur lækkað laun unglækna
Ryanair
kannar
flug til
Íslands
ÍRSKA lágfargjaldaflugfélag-
ið Ryanair hefur verið í við-
ræðum við forsvarsmenn
Flugmálastjórnar á Keflavík-
urflugvelli og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar vegna
áforma sinna um að hefja
áætlunarflug til Íslands næsta
sumar.
Björn Ingi Knútsson, flug-
vallarstjóri á Keflavíkurflug-
velli, staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið. Sagði hann
enga niðurstöðu komna í við-
ræðurnar en þær myndu
væntanlega halda áfram.
Fargjaldafélag á borð við
Ryanair flýgur almennt ekki á
höfuðflugvelli hvers lands
heldur þangað sem lægri
þjónustugjöld bjóðast. Að
sögn Björns Inga stendur
ekki til að Keflavíkurflugvöll-
ur breyti sínum lendingar-
gjöldum til að verða við ósk-
um Ryanair.
Félagið sé að leita nýrra
áfangastaða í Evrópu eftir að
hafa fjárfest töluvert í nýjum
þotum sem verða afhentar á
næstu 4–5 árum.
MIKIÐ landrof hefur verið í Surts-
ey á undanförnum árum af völdum
sjávar og samkvæmt loftmyndum
sem teknar voru af eynni í lok ágúst
á þessu ári hefur hún minnkað um
átta hektara síðan 1998. Fram kem-
ur á vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands að það sé meira rof en verið
hafi mörg undanfarin ár í eynni.
Í lok ágúst fór sjö manna leið-
angur jarðvísindamanna frá Nátt-
úrufræðistofnun, Veðurstofu Ís-
lands og Orkustofnun út í eyna og
var markmiðið að fylgjast með
myndun móbergs, breytingum á
jarðhitakerfi og hreyfingum á yf-
irborði og rofi af völdum sjávar,
regnvatns og vinda. Þá var út-
breiðsla móbergs kortlögð að nýju
en myndun móbergs úr gosösku
hefur verið rannsóknarefni síðan
1969.
Ætla má að nálægt 90% af rúm-
máli gosösku ofan sjávar í eynni séu
nú orðin að móbergi.
Þá fannst í ferðinni lítil laug við
sjávarmál og mældist hiti þar 78°C
og vatnsrennslið 0,1 sekúndulítri.
Þetta er í fyrsta sinn sem rennandi
jarðhitavatn finnst á yfirborði
Surtseyjar en talið er að berginn-
skot sem mynduðust við lok jarðeld-
anna valdi jarðhitanum.
Mikið sjávarrof í Surtsey samkvæmt nýjum mælingum
Átta hektarar hafa
brotnað af eynni
FRYSTITOGARINN Málmey SK
1 rakst utan í togarann Hauk ÍS
847, áður Skagfirðing, í Sauðár-
krókshöfn síðdegis í gær.
Engin slys urðu á mönnum og
skemmdir litlar sem engar á skip-
unum, að sögn Gunnars Stein-
grímssonar hafnarvarðar. Málm-
eyjan er í viðamikilli klössun við
norðurgarð hafnarinnar þessa dag-
ana og var verið að snúa skipinu
við þegar festar losnuðu. Rak það
vélarvana og stjórnlaust á lítilli
ferð að suðurgarði hafnarinnar og
stöðvaðist á Hauki, systurskipi
sínu þar til nýlega að gamli Skag-
firðingur var seldur til Ísafjarðar.
Skipið hafði um hríð legið kvóta-
laust við bryggju á Sauðárkróki en
skömmu fyrir óhappið í gær var í
fyrsta sinn í langan tíma kveikt á
vél þess.
Tókst að koma böndum
á Málmey að nýju
Starfsmönnum Fiskiðjunnar
Skagfirðings tókst að koma bönd-
um á Málmey að nýju til að klössun
gæti haldið áfram. Að því loknu er
áformað að frystitogarinn fari í
slipp á Akureyri til frekara við-
halds en búist er við að hann verði
klár til veiða á ný um næstu mán-
aðamót.
Málmey rakst á
Skagfirðing gamla