Morgunblaðið - 31.10.2002, Blaðsíða 1
255. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 31. OKTÓBER 2002
VIKTORÍA Kúrilenko kyssir lík
sonar síns, Arsenís, sem var borinn
til grafar í Moskvu í gær. Arsení
var 13 ára og lék hlutverk í söng-
leiknum Nord-Ost, sem verið var að
sýna í leikhúsinu er tétsensku
hryðjuverkamennirnir tóku alla
sem þar voru í gíslingu.
AP
Hinsta kveðja
TÉKKNESKUR bóndi blæs í
flautu fyrir framan þinghúsið í
miðborg Prag í gær, er hann
gekk ásamt um tvö þúsund starfs-
bræðrum sínum í gegnum borg-
ina til þess að krefjast hækkunar
á opinberum niðurgreiðslum og
hvetja stjórnvöld til að semja um
betri skilyrði fyrir tékkneska
bændur er landið gengur í Evr-
ópusambandið. Sögðu bændurnir
að slæmt veður og flóðin sem
urðu í landinu í ágúst hefðu leitt
til þess að þeir hefðu tapað um
rúmlega fimmtán milljörðum
tékkneskra króna (rúmlega 13,5
milljörðum íslenskra króna).
Krefjast þeir þess að ríkið greiði
þeim að minnsta kosti fimm millj-
arða króna í bætur.
Þá vilja bændurnir ennfremur
að ríkisstjórnin nái betri samn-
ingum fyrir þeirra hönd er Tékk-
land gengur, ásamt níu öðrum
ríkjum, í Evrópusambandið 2004.
Samkvæmt núverandi samningi
um inngönguna fá bændur í nýju
aðildarríkjunum til að byrja með
styrki er nema 25% af því sem
greitt er til bænda í núverandi
aðildarríkjum. Afhentu tékkn-
esku bændurnir landbúnaðar-
ráðherranum, Jaroslav Palas,
skriflega kröfugerð sína, undir-
ritaða af rúmlega 100 þúsund
bændum.
Reuters
Bændur í kröfugöngu
TALA þeirra sem létust í áhlaupi
rússneskra sérsveitarliða á leikhúsið í
Moskvu aðfaranótt laugardagsins
hélt áfram að hækka í gær, er til-
kynnt var að tveir fyrrverandi gíslar
tétsensku hryðjuverkamannanna
hefðu látist á sjúkrahúsi. Var tala
þeirra er létust þá komin í 119. Lang-
flestir létust af völdum eituráhrifa af
gasi sem dælt var inn í leikhúsið áður
en áhlaupið var gert.
Tétsensku hryðjuverkamennirnir
tóku alls um 800 manns í gíslingu í
leikhúsinu á fimmtudagskvöldið og
kröfðust þess að rússnesk stjórnvöld
hættu stríðsrekstri sínum í Tétsníu,
héraði í Suður-Rússlandi þar sem að-
skilnaðarsinnar hafa haldið uppi
vopnaðri baráttu fyrir sjálfstæði í
rúman áratug.
Alls höfðu 510 fyrrverandi gíslar
fengið að fara heim af sjúkrahúsum í
gær, en 152, þ. á m. fjögur börn,
dvelja þar enn, og eru átta í lífshættu,
að því er rússneska fréttastofan Int-
erfax hafði eftir embættismönnum í
gær. Hefðu margir þeirra, sem búið
var að útskrifa, leitað aftur til sjúkra-
húsanna til frekari meðferðar.
Júrí Sévténkó, heilbrigðismálaráð-
herra Rússlands, greindi frá því í
gær, að virka efnið í gasinu er dælt
hafi verið inn í leikhúsið, hafi verið
fentaníl. Það er náskylt morfíni en er
margfalt sterkara og getur valdið
öndunarfæralömun. Rússnesk yfir-
völd höfðu þar til í gær ekki viljað
greina frá því hvaða efni hefði verið
notað til að yfirbuga hryðjuverka-
mennina.
Lagði ráðherrann áherslu á, að
fentaníl, sem er mikið notað við lækn-
isaðgerðir, sé „ekki í sjálfu sér ban-
vænt“ og sagði að orsök þess að fjöldi
gísla beið bana hefði verið slæmt ásig-
komulag þeirra eftir að hafa verið í
haldi í þrjá daga, og mætti þar sér-
staklega nefna súrefnisskort.
Sévténkó hafnaði þeirri gagnrýni,
sem komið hefur fram víða, m.a. frá
bandaríska sendiherranum í Rúss-
landi, að læknar og hjúkrunarfólk er
kallað hafi verið til til að sinna gísl-
unum eftir áhlaupið hafi ekki fengið
nægilega góðar upplýsingar. „Sér-
fræðingarnir voru varaðir við, þ. á m.
ég sjálfur, þótt taka hafi orðið tillit til
öryggisþátta við aðgerðina,“ sagði
ráðherrann.
Áhrif fentaníls eru skammæ, og því
hefur getum verið að því leitt að ann-
að efni kunni einnig að hafa verið not-
að. Hafa þýskir vísindamenn er með-
höndluðu Þjóðverja, er voru meðal
gíslanna, eftir áhlaupið sagst hafa
fundið merki um efnið halothane. Það
getur í sumum tilvikum, eða ef það er
gefið í miklu magni, leitt til lifrar-
skemmda og andnauðar. Hefur
fréttastofan AFP eftir sérfræðingum
að mikið magn af því í lokuðu rými,
eins og leikhúsinu í Moskvu, geti ver-
ið lífshættulegt.
Rússnesk yfirvöld staðfesta að fentaníli hafi verið dælt inn í leikhúsið
Tala látinna hækkar enn
Moskvu, París. AFP.
Nokkrir/20
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, sagði í gærkvöldi að hann
myndi sitja áfram í embætti, þrátt
fyrir að ráðherrar Verkamanna-
flokksins í stjórn hans hefðu sagt af
sér fyrr um daginn. Þótt Verka-
mannaflokkurinn hverfi úr stjórninni
gæti Sharon enn haldið naumum
meirihluta, en þarf þá að reiða sig á
stuðning fámennra hægri öfgaflokks-
brota. Fréttaskýrendur sögðu í gær,
að róðurinn yrði Sharon þungur, og
líklega myndi hann boða til kosninga.
Verkamannaflokksráðherrarnir
sögðu af sér vegna deilna um fjár-
framlög til ísraelskra landnema, en
atkvæðagreiðslu um fjárlagafrum-
varp stjórnarinnar var frestað hvað
eftir annað í gær á meðan fundahöld
stóðu yfir þar sem reynt var að setja
niður deilurnar. Krafðist Verka-
mannaflokkurinn þess, að í fjárlögun-
um yrði einnig gert ráð fyrir jafn
miklum framlögum til fátæktarmála
og ætluð væru til landnemanna, eða
um 150 milljónum dollara.
Sharon og leiðtogi Verkamanna-
flokksins, Binjamin Ben Eliezer varn-
armálaráðherra, funduðu í ráðstefnu-
herbergi í þinghúsinu í þrjár klukku-
stundir og mátti heyra hróp og köll út
úr herberginu og þar kom, að Ben
Eliezer rauk út í fússi en skömmu síð-
ar fór hann aftur inn.
Ekkert samkomulag náðist þó og
ráðherrar Verkamannaflokksins
sögðust myndu greiða atkvæði gegn
fjárlagafrumvarpinu og fella þannig
ríkisstjórnina. Frumvarpið var þó
samþykkt eftir fyrstu umræðu með
67 atkvæðum gegn 45.
Sylvan Shalom, fjármálaráðherra,
sem er í Likud-flokki Sharons, sakaði
Ben Eliezer um að hafa eyðilagt sam-
komulag sem búið hefði verið að ná og
Shimon Peres, utanríkisráðherra og
flokksbróðir Ben Eliezers, hefði verið
búinn að samþykkja. Hefði Ben Eliez-
er þar verið að hugsa um eigin póli-
tíska frama, en hann á fyrir höndum
baráttu fyrir formannssæti sínu í
Verkamannaflokknum í leiðtogakjöri
19. nóvember.
Verkamannaflokkurinn hættur
í ísraelsku ríkisstjórninni
Jerúsalem. AP, AFP.
Sharon seg-
ist munu
sitja áfram
DÓMSTÓLL í Kaupmannahöfn úr-
skurðaði í gær Akhmed Zakajev,
sendimann forseta Tétsníu, í þrettán
daga gæsluvarðhald, eða þangað til
tekin verður afstaða til þess hvort
verða eigi við beiðni stjórnvalda í
Moskvu um að hann verði framseld-
ur til Rússlands.
Um hundrað vopnaðir lögreglu-
menn umkringdu dómhúsið í Kaup-
mannahöfn þegar Zakajev kom þar
fyrir dómara eftir að hafa verið
handtekinn í Kaupmannahöfn að
beiðni Rússa í fyrrinótt. „Zakajev er
grunaður um nokkur hryðjuverk á
tímabilinu 1996–99 og einnig um að
hafa tekið þátt í skipulagningu gísla-
tökunnar í Moskvu,“ sagði lögreglu-
stjóri Kaupmannahafnar.
Rússar lögðu fram formlega fram-
salsbeiðni en Lene Espersen, dóms-
málaráðherra Danmerkur, sagði að
þeir þyrftu að leggja fram „sterkari
sönnun“ fyrir ásökununum á hendur
Zakajev. „Rússar þurfa einnig að
lofa að Zakajev verði ekki dæmdur
til dauða,“ sagði Espersen.
Rússnesk stjórnvöld lýstu því yfir
1996 að aftökum yrði hætt en hafa
ekki afnumið dauðarefsingar form-
lega. Rússneska fréttastofan Inter-
fax sagði að rússnesk yfirvöld hefðu
sent Dönum skriflegt loforð um að
Zakajev yrði ekki tekinn af lífi.
John Vestergård, lagaprófessor
við Kaupmannahafnarháskóla, sagði
að ef slíkt loforð yrði gefið væri ekk-
ert því til fyrirstöðu að Zakajev yrði
framseldur. Rússar og Danir hafa
ekki gert framsalssamning sín á milli
en danskir embættismenn sögðu að
hægt yrði að framselja Zakajev sam-
kvæmt evrópskum sáttmála um póli-
tíska glæpi.
Sendimaður
Tétsníuforseta hand-
tekinn í Danmörku
Rússar
óska eftir
framsali
Kaupmannahöfn. AFP, AP.
„Mjög góður leikari“/22
♦ ♦ ♦