Morgunblaðið - 31.10.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.10.2002, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson VERIÐ er að skoða möguleika þess að nýta húsnæði Vífilsstaðaspítala undir hjúkrunarrými fyrir aldraða. Óbreytt stenst húsnæðið þó ekki nú- tímakröfur um aðbúnað og aðstöðu ef um langtíma búsetu aldraðra yrði að ræða. Þetta kom fram í máli Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á því að engin starfsemi færi nú fram í húsnæði Vífilsstaða. „Í dag er engin starfsemi í spít- alanum en hann hóf sína merku sögu 5. september 1910 þá fyrst sem berklaspítali.“ Þorgerður sagði m.a. að Vífils- staðir væru fyrir margra hluta sak- ir afar heppilegur staður til að upp- fylla þau skilyrði sem gerð væru til hjúkrunarrýma fyrir aldraða. Spurði hún því ráðherra hvað liði skipulagningu hjúkrunarrýma á Vífilsstaðaspítala. Í máli ráðherra kom fram að sam- kvæmt frummati arkitekts mætti áætla að kostnaður vegna breytinga á húsnæðinu, þannig að rými yrði fyrir 52 einstaklinga í einbýli með baðaðstöðu, gæti numið alls um 180 milljónum króna. „Til samanburðar má geta þess að kostnaður við að byggja nýtt 52 rúma hjúkr- unarheimili væri um 800 milljónir,“ sagði hann. „Á hinn bóginn er unnt að nýta húsnæðið á Vífilsstöðum nær óbreytt ef einungis er um skamm- tímavistun aldraðra að ræða, þ.e. sem biðdeild meðan varanleg úr- ræði fyrir hina öldruðu eru fundin. Kostnaður vegna breytinga á hús- næði yrði þá óverulegur.“ Verið er að skoða þessa kosti að sögn ráð- herra. Vífilsstaðaspítali hugsanlega nýttur fyrir hjúkrunarrými JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagði í upphafi þingfundar á Alþingi í gær að viðræður stæðu yfir við heilsugæslulækna á Suðurnesj- um. Átta fastráðnir heilsugæslu- læknar á Suðurnesjum, þrír laus- ráðnir heilsugæslulæknar og einn læknakandídat, hafa sagt upp störf- um frá og með morgundeginum, skv. upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. „Ég hef beðið framkvæmdastjóra viðkomandi heilsugæslustöðvar, stjórnarformann og fulltrúa ráðu- neytisins að ræða við viðkomandi lækna og þær viðræður standa yfir,“ sagði ráðherra í gær. María Ólafs- dóttir, yfirlæknir á heilsugæslu Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja, kann- ast ekki við að fundur hafi verið haldinn með læknunum í þessari viku. Hún segir að enginn fundur hafi heldur verið boðaður á næstu dögum. Utandagskrárumræða um málefni heilsugæslulæknanna fer fram á Al- þingi í dag kl. 13.30. Eins og fram hefur komið sögðu heilsugæslulækn- arnir upp störfum í sumar m.a. vegna óánægju með starfsskilyrði. Stefnir í að 12 læknar á Suðurnesjum hætti Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, vakti athygli á mál- efnum heilsugæslulækna á Suður- nesjum í upphafi þingfundar í gær. Hann sagði að einn dagur væri til stefnu til að leysa „læknamál 16.000 manna svæðis á Suðurnesjum“ eins og hann orðaði það. „Eftir því sem ég best veit verður að vísa því fólki sem þarf að leita heilsugæslulæknis eftir daginn á morgun (þ.e. eftir fimmtudag) til höf- uðborgarsvæðisins með öllum þeim vandamálum sem því geta fylgt. Það vita allir að slíkt ástand getur ekki og má ekki koma upp.“ Kristján kvaðst vita að heilbrigðisráðherra hefði lagt sig fram um að vinna að lausn deil- unnar. Hann spurði síðan ráðherra hvaða aðgerðir væru í gangi til að leysa þessi mál. „Ég er að vinna að þessu máli með mínum mönnum í dag,“ sagði ráð- herra m.a. Síðar sagði hann: „Varð- andi eðlilegar áhyggjur af framvindu mála um læknisþjónustu á Suður- nesjum þá hefur ráðuneytið að sjálf- sögðu hugleitt það og við höfum farið yfir það hvaða möguleikar eru ... ef svo illa færi að þessar uppsagnir yrðu varanlegar og við fengjum ekki lækna í stað þeirra sem sagt hafa upp ... Ég vil sjá hverju framvindur í dag varðandi þetta mál og hef þá vonandi einhverjar fréttir af því á morgun þegar við tökum umræðu um málið almennt.“ Vísaði hann þar til utan- dagskrárumræðunnar sem fram fer í dag, fimmtudag. Að lokum sagði ráðherra: „Ég vona að læknarnir sjái sig um hönd; vilji ræða við okkur, vilji koma til starfa aftur, m.a. á þeim kjörum sem nýbúið er að dæma heilsugæslulækn- um.“ FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá. 1. Stjórn fiskveiða. 2. Fullvinnsla botnfiskafla. 3. Veiðieftirlitsgjald. 4. Þróunarsjóður sjávar- útvegsins. 5. Fjárhagslegur aðskilnaður útgerðar og fiskvinnslu. 6. Samkeppnisstaða atvinnu- fyrirtækja á landsbyggðinni. 7. Hvalveiðar. 8. Uppbygging sjúkrahótela. 9. Tekjuskattur og eignar- skattur. 10. Uppbygging endurhæfingar við FSA. 11. Rýrnun eigna íbúa á lands- byggðinni. ÖRLYGUR Hnefill Jónsson, vara- þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að Alþingi setji á stofn nefnd sem kanni þróun fast- eignaverðs á landsbyggðinni í sam- anburði við höfuðborgarsvæðið. „Nefndin skoði ítarlega hvernig eignir fólks á landsbyggðinni hafa rýrnað í verði og um hvaða fjár- muni er að ræða,“ segir m.a. í til- lögunni. Lagt er til að nefndin ljúki störfum fyrir lok október 2003. Flutningsmaður segir í grein- argerð tillögunnar að fasteigna- verð á höfuðborgarsvæðinu hafi á undanförnum áratug hækkað veru- lega. „Það er vel að eignir fólks á höfuð borgarsvæðinu hafa aukist að verðgildi og að þróunin hafi verið sú,“ segir hann. „Þessu hefur ekki verið eins farið með eignir fólks á landsbyggðinni og hafa þær í raun rýrnað, í mörgum tilvikum stórlega, og er það illt og óvið- unandi. Flutningsmaður telur að stjórnmálamenn og Alþingi hafi ekki hugað að þessu sem skyldi og að tími sé kominn til að löggjafinn láti þetta mál til sín taka með ein- hverjum hætti,“ segir ennfremur í greinargerðinni. Nefnd kanni rýrnun eigna á landsbyggðinni ALLS 258 aldraðir voru í sept- ember á biðlista, fyrir fólk í mjög brýnni þörf, eftir hjúkrunarrými í Reykjavík. Á höfuðborgarsvæðinu öllu var þessi fjöldi 339 á sama tíma. Þetta kom fram í máli Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Var hann þar að svara fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þing- manns Samfylkingarinnar. Í fyrirspurninni vitnaði Jóhanna m.a. í viljayfirlýsingu borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og heilbrigðisráðherra frá því í maí sl, en viljayfirlýsingin kveður m.a. á um endurbætur og byggingu 326 nýrra hjúkrunarýma í Reykjavík á tímabilinu 2003 til 2007. „Ástandið í málefnum aldraðra hjúkrunar- sjúklinga er mjög alvarlegt,“ sagði Jóhanna. Beindi hún m.a. þeirri fyrirspurn til ráðherra hvernig hann hygðist standa að fjölgun nýrra hjúkrunarrýma í Reykjavík í samræmi við fyrrgreinda viljayfir- lýsingu ráðherra og borgarstjóra. Í máli ráðherra kom m.a. fram að vandi þeirra sem metnir væru í mjög brýnni þörf eftir hjúkrunar- rými yrði ekki leystur með aukinni þjónustu í heimahúsum heldur með fjölgun hjúkrunarrýma. „Og að því er unnið,“ sagði hann. Fór hann því næst yfir fjölgun nýrra hjúkr- unarrýma á þessu ári. M.a. voru tekin í notkun 92 ný rými í Sóltúni í byrjun þessa árs. „Og eins og fram kemur í viljayfirlýsingu minni og borgarstjórans í Reykjavík er áætlað að hefja undirbúning að byggingu nýs 100 rýma hjúkrunar- heimilis í Reykjavík á tímabilinu 2003 til 2005 sem reiknað er með að tekið verði í notkun árið 2007.“ Síðan sagði ráðherra: „Því miður er vilji ekki allt sem þarf. Það þarf líka fjármuni til að hrinda öllum þessum áformum í framkvæmd. Mikið veltur á fjárlagaramma ráðuneytisins og sem yfirmaður þessa málaflokks mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að vinna þessum málum brautar- gengi.“ Alls 339 í brýnni þörf Hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu VIÐBRÖGÐ íslenskra stjórnvalda við mót- mælum félaga Falun Gong-hreyfingarinnar voru rædd á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í gær. Line Barfod, þingmaður Einingarlist- ans í Danmörku, óskaði eftir svörum um það hvort íslenska ríkisstjórnin ætlaði að tryggja að dönskum ríkisborgurum yrði framvegis ekki neitað um fararleyfi til Íslands. Vísaði hún til þess þegar félögum Falun Gong-hreyf- ingarinnar var meinað að koma til landsins til að mótmæla við heimsókn forseta Kína. Barfod beindi spurningu sinni til Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra í fyrir- spurnartíma norrænu samstarfsráðherranna, að því er fram kemur á heimasíðu Norður- landaráðs. Barfod spurði einnig hvort ein- staklingar mættu treysta því að þeir yrðu ekki færðir í skrár hjá lögregluyfirvöldum á grundvelli trúar eða stjórnmálaskoðana. Hún velti því jafnframt upp hvort hægt hefði verið að leysa mál Falung Gong með öðrum hætti. Siv sagði að mótmælin vegna heimsóknar forseta Kína hefðu verið mjög erfitt mál fyrir Ísland vegna smæðar landsins og fjölda mót- mælenda og yfirvöld hefðu lagt sig fram um að leysa vandann. Hún benti á að Falun Gong-menn sem komu til landsins hefðu í samráði við yfirvöld fengið að mótmæla á af- mörkuðum stöðum. Siv sagði að ekki væri ástæða til þess að ætla að dönskum ríkisborg- urum yrði neitað um landvist á Íslandi í fram- tíðinni. Ljósmynd/Matti Hurme Siv Friðleifsdóttir sagði að mótmæli Falun Gong-liða hefðu verið mjög erfitt mál fyrir ís- lensk stjórnvöld, en ekki væri ástæða til að ætla að dönskum ríkisborgurum yrði neitað um landvist á Íslandi í framtíðinni. Viðbrögð stjórnvalda hér við mótmælum Falun Gong rædd á þingi Norðurlandaráðs Dönskum ríkisborg- urum ekki neitað um landvist í framtíðinni Eigið fé Ábyrgðarsjóðs launa um 537 milljónir SPÁ um þróun útgjalda Ábyrgð- arsjóðs launa á þessu ári gerir ráð fyrir að eigið fé sjóðsins verði í árs- lok um 537 milljónir kr. Þetta kem- ur fram í skriflegu svari Páls Pét- urssonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Pálssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Svarinu var dreift á Alþingi í gær. Þingmaðurinn spurði ráðherra m.a. að því hve háar greiðslur vegna vangreiddra lífeyrisréttinda laun- þega hefðu verið greiddar úr sjóðn- um á síðustu þremur árum. Í svarinu kemur fram að þessar greiðslur hafi samtals numið tæpum fimmtíu millj- ónum árið 1999, rúmlega 38 millj- ónum árið 2000 og rúmlega 44 millj- ónum árið 2001. Þá kemur m.a. fram í svarinu að 23 lífeyrissjóðir hafi krafist greiðslna úr sjóðnum síðustu þrjú árin. Þær kröfur nemi samtals rúmlega 370 milljónum kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.