Morgunblaðið - 31.10.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bakhjarl
Skráning stofnfélagastendur yfir í síma575 1550
-landssamtök gegn einelti
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational efndi til kyrrðarstundar
fyrir framan sendiráð rússneska
sambandsríkisins seinni partinn í
gær. Tendruð voru kerti og þannig
minnst fórnarlamba mannréttinda-
brota og fórnarlamba gíslatök-
unnar í leikhúsinu í Moskvu. Kyrrð-
arstundin markaði upphaf alþjóð-
legrar herferðar Amnesty Inter-
national vegna mannréttindabrota í
Rússlandi.
Morgunblaðið/Golli
Frá kyrrðarstundinni. Rússneski sendiherrann á Íslandi, Alexander Rannikh, lengst t.v.
Kyrrðar-
stund Amn-
esty Inter-
national
RITAÐ er um niðurstöður rann-
sókna Hjartaverndar í ritstjórn-
argrein í nóvemberhefti tímarits
Evrópsku hjartalæknasamtak-
anna, European Heart Journal. Í
sama tölublaði er einnig birt grein
um rannsóknirnar sem læknarnir
Margrét Andrésdóttir, Gunnar
Sigurðsson, og Vilmundur Guðna-
son skrifa ásamt Helga Sigvalda-
syni verkfræðingi. Fjallar hún um
þátt erfða í kransæðastíflu.
Gunnar Sigurðsson formaður
Hjartaverndar og einn greinarhöf-
unda segir efni greinarinnar hafa
vakið athygli hjá ritstjórn tíma-
ritsins því aðeins væri fjallað í rit-
stjórnargreinum um það sem rit-
stjórnin teldi áhugavert hverju
sinni. Í ritstjórnargreininni er
undirstrikað mikilvægi þess að
taka mark á ættarsögu um krans-
æðasjúkdóm í nánum ættingja.
Mikilvægt sé að þeir einstaklingar
láti fylgjast vel með sér með tilliti
til blóðþrýstings og blóðfitu og
taki mið af því í lifnaðarháttum
sínum með því að reykja alls ekki.
Í greininni um Hjartavernd-
arrannsóknina, sem 19 þúsund
karlar og konur tóku þátt í og
fylgt var eftir í 18 ár, er sýnt fram
á að ættarsaga um kransæða-
sjúkdóm tvöfaldi næstum því
áhættu náinna ættingja á krans-
æðastíflu samanborið við þá sem
enga ættarsögu hafa um slíkt.
Erfðir þekktra áhættuþátta
skýra lítinn hluta
Þetta segir Gunnar hafa verið
þekkt frá fyrri rannsóknum. „En
það sem var hins vegar nýtt í
þessari íslensku rannsókn er að
þar er til viðbótar reiknað út
hversu mikið af erfðaáhrifum
tengdist blóðþrýstingi, blóðfitu og
sykursýki sem allt eru þekktir
áhættuþættir fyrir kransæða-
sjúkdóm og eru að hluta háðir
erfðum,“ segir Gunnar.
„Niðurstöðurnar sýna að erfðir
á þessum þekktu áhættuþáttum
skýra einungis lítinn hluta af
heildarvægi erfðanna. Þau skýrast
ekki síður af einhverjum öðrum
óþekktum þáttum, einum eða
fleiri, sem erfast eða liggja í þess-
um fjölskyldum. Þannig höfum við
reiknað út að eitt af hverjum sjö
tilfellum af kransæðastíflu á Ís-
landi tengist óþekktum erfðaþátt-
um. Því er vissulega mjög mik-
ilvægt að finna með frekari
rannsóknum hverjir þessir
óþekktu erfðaþættir eru svo unnt
verði að greina einstaklinga í tíma
og hugsanlega veita þeim ráð,“
segir Gunnar enn fremur.
Sagt frá rannsókn Hjartaverndar um erfðir og
kransæðastíflu í evrópsku læknatímariti
Mikilvægi óþekktra
erfðaþátta vekur athygli
HÆSTIRÉTTUR Íslands hefur
beint tíu spurningum til læknaráðs
vegna álitsgerða erlendra sérfræð-
inga sem lagðar voru fyrir réttinn í
máli manns, sem dæmdur var í
Héraðsdómi Reykjaness fyrir að
valda af gáleysi dauða níu mánaða
gamals drengs, með því að hrista
hann harkalega. Barnið lést af völd-
um áverka sem höfðu einkenni þess
sem nefnt hefur verið „shaken baby
syndrome“.
Dómnum var áfrýjað til Hæsta-
réttar og lagði verjandi mannsins,
Sveinn Andri Sveinsson hrl., fjölda
greina og álitsgerða erlendra fræði-
manna fyrir Hæstarétt en hann
heldur því fram í greinargerð að
ekki sé unnt að slá neinu föstu um
dánarorsök drengsins þar sem aðr-
ir möguleikar en „shaken baby
syndrome“ hafi ekki verið útilok-
aðir.
Verjandi telur núverandi
læknaráðsmenn vanhæfa
Ríkissaksóknari fór þess á leit
við Hæstarétt að rétturinn aflaði
álits læknaráðs á því hvort lækn-
isfræðileg skrif hinna erlendu
manna breyttu í einhverju niður-
stöðum læknaráðs frá því í nóv-
ember 2001 við spurningum sem
ríkissaksóknari lagði fyrir lækna-
ráð.
Hefur ríkissaksóknari jafnframt
óskað eftir að meinafræðingur svari
því hvort skrif hinna erlendu
manna breyti í einhverju þeim nið-
urstöðum sem fram komu í krufn-
ingarskýrslunni.
Verjandi mannsins fer fram á að
þeir læknaráðsmenn sem veittu
umsögn við spurningum ríkissak-
sóknara á seinasta ári víki vegna
vanhæfni en hann bendir á að með
því að óska eftir umsögn læknaráðs
um álitsgerðir erlendu sérfræðing-
anna sé í raun verið að fara fram á
að ráðið veiti umsögn um sína eigin
niðurstöðu.
Jafnframt fer verjandi fram á að
verði meinafræðingurinn kallaður
fyrir til að gefa skýrslu fyrir rétt-
inum fái verjandi að kalla til ein-
hvern hinna erlendu sérfræðinga,
sem hafa látið í ljós álit á krufn-
ingsskýrslu ákæruvaldsins.
Óskað eftir rökstuddri
umsögn um tíu atriði
Hæstiréttur leggur fyrir lækna-
ráð að láta í té rökstudda umsögn
um alls tíu atriði áður en málflutn-
ingur hefst fyrir réttinum. Meðal
spurninga sem lagðar eru fyrir
læknaráð er hvort það telji koma til
greina, að bráður ungbarnaskyr-
bjúgur hafi getað verið til staðar
hjá barninu og valdið blæðingum
undir heilahimnu og í sjónhimnu
þess.
Einnig er spurt hvort læknaráð
telji koma til greina, að barnið hafi
verið með ofnæmisheilabólgu og
hún hafi leitt það til dauða, og
hvort læknaráð telji koma til
greina, að þær blæðingar, sem
fundust hjá barninu undir heila-
himnum og í sjónhimnum, megi
rekja til blæðingasjúkdóms eða
krónískrar heilablæðingar. Spurt er
hvort til greina komi að rekja megi
dauða barnsins og einkenni til bólu-
setningar og hvort til greina komi
að mati læknaráðs að dánarorsök
verði rakin til meltingarfærasýk-
ingar, sem hafi haft í för með sér
blóðeitrun.
Þá er læknaráð spurt álits á
hvort gerðar hafi verið allar til-
tækar rannsóknir til að útiloka aðra
dánarorsök en fram kemur í krufn-
ingarskýrslu réttarmeinafræðings.
Áfrýjunarmál manns sem dæmdur
var í héraði vegna dauðsfalls barns
Hæstiréttur
leitar álits
læknaráðs
MENGUN frá álveri Norðuráls á
Grundartanga er mun minni en
reiknað var með í frummatsskýrslu
sem gerð var árið 1995 áður en álver-
ið var reist. Styrkur brennistein-
stvíoxíðs og flúors í lofti er vel innan
viðmiðunarmarka fyrir loftgæði.
Álverið hóf starfsemi á miðju ári
1998, en áður höfðu hafist umfangs-
miklar rannsóknir á umhverfi ál-
versins sem stóðu í tvö ár. Frá þeim
tíma hefur verið fylgst ítarlega með
mengun frá álverinu. Unnið er eftir
sérstakri vöktunaráætlun sem sam-
þykkt var af Hollustuvernd ríkisins.
Nær hún til rannsókna á loftgæðum,
gróðri, ferskvatni, sjó og búfénaði á
Hvalfjarðarsvæðinu.
Áætluð mörk flúors í frummats-
skýrslunni voru 0,6 (kg/t Al). Mæl-
ingar á árunum 1999–2001 hafa hins
vegar sýnt flúor hefur verið á bilinu
0,33–0,39 (kg/t Al). Áætluð mörk
ryks voru í skýrslunni 1 (kg/t Al), en
þessi tala hefur á síðustu þremur ár-
um verið 0,77–0,89 (kg/t Al). Þá var í
frummatsskýrslu áætlað að brenni-
steinstvíoxíð yrði 21 (kg/t Al), en það
hefur á síðustu þremur árum mælst
á bilinu 8,3–9,2 (kg/t Al).
Aðaluppspretta brennisteinstvíox-
íðs hefur til þessa verið frá járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga, en aðaluppspretta flúors
hefur verið álver Norðuráls. Rann-
sóknir hafa hins vegar sýnt að meg-
inuppspretta svifryks á Hvalfjarðar-
svæðinu er utan iðnaðarsvæðisins.
Mest mengun á fyrstu
starfsmánuðunum
Á fyrstu starfsmánuðum Norður-
áls var mun meiri losun flúors en á
árunum þar á eftir. Ástæðu þess má
rekja til þess að nokkurn tíma tók að
ná jafnvægi í rekstri keranna. Í
fyrrasumar varð aftur vart við
nokkra aukningu en þá var verið að
stækka álverið úr 60 þúsund tonna
stærð í 90 þúsund tonn. Þessi aukn-
ing í upphafi og í fyrrasumar end-
urspeglaðist í magni flúors í gróðri.
Ekki hefur orðið vart við breyt-
ingar á efnasamsetningu ferskvatns
á svæðinu og árið 2000 sýndu rann-
sóknir á kræklingi utan við iðnaðar-
svæðið að rekstur Norðuráls hefur
ekki leitt til breytinga á efnainni-
haldi hans. Fylgst er sérstaklega
með loftgæðum í nánasta umhverfi
álversins. Niðurstaðan mælinga sýn-
ir að styrkur brennisteins í lofti er
aðeins brot af þeim viðmiðunar-
mörkum sem sett voru 1995. Sama
er að segja um svifryk. Það hefur
verið langt innan við loftgæðamörk.
Styrkur flúors í lofti hefur einnig
verið innan við sett mörk.
Minni mengun
frá Norðuráli en
reiknað var með
RÍKISSTJÓRNIR EFTA-ríkjanna
hafa skipað Þorgeir Örlygsson dóm-
ara við EFTA-dómstólinn. Hann
gegnir nú stöðu ráðuneytisstjóra
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins.
Þorgeir, sem er fæddur 1952, var um
árabil prófessor við lagadeild HÍ og
borgardómari.
Þorgeir mun taka við stöðu dóm-
ara EFTA-dómstólsins 1. janúar nk.,
þegar Þór Vilhjálmsson lætur af
störfum. Þór hefur starfað sem dóm-
ari við dómstólinn frá stofnun hans 1.
janúar 1994 og sem forseti dómstóls-
ins frá ársbyrjun 2000, segir frétt frá
utanríkisráðuneytinu.
Dómari við
EFTA-dómstólinn