Morgunblaðið - 31.10.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vessgú, næsti.
ÁBENDING til lögreglu um að
maður seldi og dreifði fíkniefnum
frá heimili sínu í Hveragerði, varð
til þess að lögreglan fylgdist náið
með manninum í nokkra daga í
ágúst í fyrra. Fylgst var með hon-
um þegar hann skildi bifreið sína
eftir mannlausa og ólæsta í iðn-
aðarhverfi yfir helgi. Stuttu eftir
að hann vitjaði bílsins á nýjan leik
var hann handtekinn og fundust þá
rúmlega 200 grömm af amfetamíni
í varadekki í bifreið hans.
Styrkleiki efnisins var slíkur að
hægt hefði verið að þrefalda magn-
ið með því að blanda það með
ákveðnum efnum. Maðurinn neitaði
sök en Héraðsdómur Suðurlands
taldi frásögn hans ótrúverðuga og
dæmdi hann í 15 mánaða fangelsi.
Í niðurstöðu dómsins segir að
framburður ákærða um málsatvik
hafi verið afar mótsagnarkenndur.
Hann hafi í tvígang játað fyrir lög-
reglu að hafa ætlað að selja efnið
en sagðist þó ekki hafa búist við að
svo miklu efni yrði komið fyrir í
bifreiðinni. Fyrir dómi sagðist
hann á hinn bóginn hafa búist við
að fá afhent 10–20 grömmum af
hassi.
Í niðurstöðu dómsins segir að
manninum hafi verið fullkunnugt
um að sterkari fíkniefnum yrði
komið fyrir í bílnum meðan hann
stóð í iðnaðarhverfinu, leyndin sem
hvíldi yfir viðskiptunum væri m.a.
til marks um það. Mjólkursykur
sem fannst í bifreið ákærða, og
notaður er til að drýgja amfetamín,
þótti einnig benda til þess að hann
hefði búist við að fá amfetamín en
ekki hass.
Maðurinn neitaði að benda á
hver hefði komið fíkninefnunum
fyrir en sagði það vera aðila sem
ekki gætu séð sjálfir um sölu fíkni-
efnanna. Frá 1986 hefur maðurinn
tólf sinnum hlotið refsingar, þar af
fimm sinnum fyrir fíkniefnalaga-
brot.
Ólafur Börkur Þorvaldsson dóm-
stjóri kvað upp dóminn. Hilmar
Ingimundarson hrl. var skipaður
verjandi mannsins en Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður sótti mál-
ið f.h. ákæruvaldsins.
200 grömm af amfeta-
míni falin í varadekki
UM helgina var brotist inn í fjóra
bíla sem var lagt í bílastæðin við Há-
skólabíó. Í öllum tilvikum voru rúður
brotnar og verðmæti hirt úr bílun-
um.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hef-
ur verið tilkynnt um tíu slík innbrot í
bíla á þessu svæði það sem af er
októbermánuði og 32 síðan í júní.
Hann segir að miklu máli skipti að
fólk, hvort sem það leggur bílum sín-
um í þessi stæði eða önnur, skilji
ekki sýnileg verðmæti eftir í bílun-
um.
Brotist inn í bíla
við Háskólabíó
♦ ♦ ♦
Fagráðstefna fyrir stjórnendur leikskóla
Streita og kuln-
un í brennidepli
FAGHÓPUR leik-skólastjóra gengstfyrir fagráðstefnu
fyrir stjórnendur leikskóla
í Súlnasal Hótel Sögu á
morgun, 1. nóvember. Yf-
irskriftin er „Lifðu í lukku
en ekki í krukku – árangur
í stjórnun – lífsgleði“. Alls
munu 159 stjórnendur leik-
skóla sitja ráðstefnuna. Í
forsvari er Hrefna Sigurð-
ardóttir skólastjóri á
Sunnuborg.
Hver er tilgangur ráð-
stefnunnar, hvers vegna
þessi málaflokkur?
„Faghópur leikskóla-
stjóra var stofnaður 1996 af
framsýnum leikskólastjór-
um sem fundu fyrir því að
þá vantaði vettvang fyrir
faglega umræðu og styrk-
ingu meðal jafningja. Faghópur-
inn starfar á landsvísu innan Fé-
lags leikskólakennara.
Faghópnum er ætlað að styrkja
leikskólastjóra í starfi og þar með
leikskólann í heild. Liður í starfi
faghópsins er að standa fyrir
fræðslu og umræðu meðal leik-
skólastjóra um það sem hæst ber
hverju sinni í faginu.
Mikið hefur verið rætt um kuln-
un og streitu í starfi stjórnenda og
hefur okkar stétt ekki farið var-
hluta af þeirri umræðu. Okkur
finnst hins vegar að nóg sé búið að
ræða um vandamálið og það
hvernig laga beri umhverfið. Við
viljum taka málin í okkar hendur
og skoða hvað við getum gert í
stöðunni. Hvernig við getum best
mætt þeim kröfum sem til okkar
eru gerðar og finna jafnframt leið
til að vinna gegn streitu og kulnun
í starfi.“
Hverjar verða helstu áherslurn-
ar á umræddri fagráðstefnu?
„Á ráðstefnunni verður farið í
hvernig hver og einn ber ábyrgð á
sjálfum sér og hvernig stjórnand-
inn getur unnið gegn kulnun og
streitu í starfi. Hvernig forðast má
að lenda í hlutverki þolandans. Það
verður einnig mikið rætt um nauð-
syn þess að hafa húmorinn með í
starfinu.“
Er hér um alvarlegt vandamál
að ræða í greininni?
„Starf leikskólastjóra er alltaf
að verða umfangsmeira. Síðan
1994 er leikskólinn fyrsta skóla-
stigið samkvæmt lögum með aðal-
námskrá sem ber að starfa eftir.
Nútímastjórnunarhættir hafa ver-
ið innleiddir í leikskólann og flestir
leikskólastjórar eru með fram-
haldsmenntun í stjórnunarfræð-
um. Í mörgum sveitarfélögum hef-
ur hver leikskóli sjálfstæðan
fjárhag sem leikskólastjóri ber
ábyrgð á.
Leikskólastjóri þarf um leið og
hann sér til þess að unnið sé að vel-
ferð barnanna, að hugsa um vel-
ferð starfsmanna sinna. Hann þarf
ýmist að vera styrkjandi, stýrandi
eða leiðandi í hlutverki sínu allt
eftir því sem við á. Allir starfs-
menn leikskóla fá starfsviðtöl og
leikskólastjóri á sam-
kvæmt kjarasamning-
um að gera árlega sí-
menntunaráætlun fyrir
sérhvern starfsmann.
Stétt leikskólakenn-
ara hefur verið ötul í gegnum tíð-
ina við að koma á framfæri hvernig
gott leikskólastarf á að vera. Sam-
félagið gerir orðið meiri kröfur til
faglegs leikskólastarfs. Rekstrar-
aðilar krefjast gæðastarfs með
lágmarkstilkostnaði og foreldrar
eru sér meðvitandi um góða þjón-
ustu.
Algengasta stærð leikskóla á
höfuðborgarsvæðinu er fjórar
deildir þar sem dvelja 80 til 100
börn samtímis með um tuttugu
starfsmönnum.
Undanfarin ár hefur oft verið
erfitt að manna leikskóla og skipta
launin þar mestu. Síðastliðið ár
hefur fólk verið stöðugra í starfi,
enn vantar þó á að leikskólakenn-
urum fjölgi verulega.
Eitt af því sem mesta orka leik-
skólastjórans fer í er að leysa for-
föll starfsmanna, sem eru mikil og
má segja að dagleg stjórnun yfir-
gnæfi leiðtogahlutverkið. Miðað
við umræðuna teljum við að hætt-
an á kulnun sé fyrir hendi og vilj-
um við grípa í taumana áður en í
óefni er komið.“
Hvernig verður ráðstefnan
byggð upp, hverjir tala og um
hvað?
„Fyrirlesari á ráðstefnunni
verður bandaríska færðikonan og
fyrirlesarinn Sue Baldwin og nefn-
ir hún fyrirlesturinn „Managing
for success and sanity“. Sue
Baldwin er þekktur fyrirlesari í
Bandaríkjunum og hefur gefið út
nokkrar bækur um hvernig vinna
megi gegn streitu og kulnun í
starfi sem stjórnandi í skólum
yngri barna. Ein af bókum hennar
heitir Lifesavers, nokkurs konar
handbók með spurningum til sjálf-
skoðunar, ráðum og tillögum til úr-
bóta. Hún verður bæði með fyr-
irlestur og leggur fyrir okkur
verkefni. Sue leggur mikið uppúr
því að húmorinn sé með.“
Þekkir þú sjálf dæmi
um kulnun í starfi á þín-
um vinnustað?
„Það eru til dæmi um
það í stéttinni og ég
þekki til þar sem stjórn-
endur hafa verið við það að gefast
upp. Sem betur fer eru leikskóla-
stjórar meðvitaðir um hættuna og
má segja að tilvist faghópsins vinni
m.a. gegn þeirri hættu. Með því að
fá Sue Baldwin til okkar teljum við
okkur færast skref áfram í að
vinna gegn hættunni og ætlum
okkur að finna leið til að verða nú-
tímalegar og faglegar Pollýönnur
sem hafa gaman af starfi sínu.“
Hrefna Sigurðardóttir
Hrefna Sigurðardóttir er fædd
í Reykjavík 28. júní 1952. Lauk
leikskólakennaraprófi frá Fóst-
urskóla Íslands 1977 og eins árs
námi í stjórnun frá sama skóla
1996. Hefur starfað sem leik-
skólakennari og leikskólastjóri
hjá Leikskólum Reykjavíkur í
alls um 12 ár, sem leikskólakenn-
ari í Svíþjóð í tvö ár og sem leik-
skólastjóri á Kirkjubæjarklaustri
í tíu ár. Síðustu fimm árin leik-
skólastjóri á Sunnuborg í
Reykjavík. Maki er Haukur
Valdemarsson aðstoðarland-
læknir og eiga þau verkfræðing-
inn Fjalar, 23 ára.
Nútímalegar
og faglegar
Pollýönnur