Morgunblaðið - 31.10.2002, Side 12

Morgunblaðið - 31.10.2002, Side 12
SIGRÍÐUR Hrönn Elíasdóttir varð Íslandsmeist- ari í einmenningi í brids á dögunum og er þetta í fyrsta sinn í sögu Bridssambandsins sem kona sigrar á mótinu. „Það var eiginlega bara bónus að fá bikarinn því mér fannst auðvitað skemmtileg- ast að fella þetta karlavígi,“ tekur Sigríður fram. Þetta er í annað sinn sem Sigríður tekur þátt í Íslandsmótinu í einmenningi en hana skortir ekki keppnisreynslu því hún hefur tekið þátt í mörg- um Íslandsmótum. „Mér gekk ágætlega í fyrra skiptið í einmenningnum þótt ég hafi ekki náð toppsætinu þá. Í einmenningi spilar maður bara þrjú spil við hvern spilara og allir spila sama sagnakerfið, einfalt Standard, og það má ekki breyta út frá því jafnvel þótt menn spili við eigin makker þannig að það reynir vissulega á hvernig menn spila úr spilunum. Lykillinn að sigrinum? „Ég veit það ekki alveg. Ég hugsa þó að það hafi verið þetta stressleysi í mér sem hafi gert gæfumuninn. Ég var svo afslöppuð og hélt ró minni. Það þarf auðvitað að sækja það sem er í spilunum en menn taka ekki raunhæfar ákvarð- anir í sögnunum nema að vera í góðu jafnvægi, annars er hætta á mistökum. Ég var í öðru sæti fyrir þrjú síðustu spilin og ég spilaði þau bara eðlilega en sá sem hafði verið í efsta sæti lenti í slæmum málum þannig að ég vann með fimm stiga mun,“ segir Sigríður. Sigríður býr á Súðavík og heimferðin var ekki eins slétt og felld og sigurinn á mótinu: „Jú, það má kannski segja að ég hafi verið meira á taugum við aksturinn en á mótinu. Ég var á sumardekkjum og á fólksbíl og það var einfaldlega gler frá Brú í Hrútafirði að Hólmavík. Venjulega er ég svona fimm og hálfan eða sex tíma á milli en nú var ég þrettán tíma. Ég gerði tvær tilraunir til þess að fara upp Enn- ishálsinn en fór niður eins skopparkringla í bæði skiptin og endaði með að láta draga mig upp.“ Skemmtilegast að fella karlavígin Heimferðin til Súðavíkur ekki eins slétt og felld og sigurinn í Íslandsmótinu í einmenningi í brids FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÝMSAR skýringar eru á þeim sam- drætti í útflutningi lífhrossa á sein- ustu árum, sem greint hefur verið frá í Morgunblaðinu. Jón Gíslason, hrossabóndi á Hofi í Vatnsdal, segir að við meiri samkeppni sé að eiga en áður bæði innanlands og utan þar sem framboð á hrossum hefur aukist. Hann bendir einnig á að sumarex- em í hrossum sé mikið vandamál, sem hafi haft neikvæð áhrif á hrossa- útflutninginn t.a.m. til Þýskalands. ,,Þýskir ræktendur voru með gríð- arlega harðan áróður vegna sumar- exems,“ segir hann. ,,Ég og konan mín seljum nokkur hross á hverju ári til Hollands og fleiri landa en það kemur oft upp að fólk er hrætt við sumarexemið.“ Háir tollar í ESB-löndum standa í veginum ,,Svo eru sjálfsagt allt of margir að selja út hross sem eru ekki nógu góð og kaupandinn verður óánægður. Við höfum flutt of mikið út af ,,dóti“ á undanförnum árum og það kemur því miður í hausinn á okkur,“ segir Jón. Að sögn hans skipta innflutn- ingstollar í aðildarlöndum Evrópu- sambandsins einnig miklu máli í þessu sambandi. ,,Við búum við það að okkar hross eru tolluð verulega inn í Evrópusambandslöndin. Við myndum selja talsvert meira ef tollar væru ekki svona háir í löndum Evr- ópusambandsins. Þegar EES-samn- ingurinn var gerður var ekkert minnst á útflutning lífhrossa frá Ís- landi. Hefði það verið gert værum við kannski að tala um allt aðra stöðu í dag,“ segir hann. Skv. upplýsingum Hagstofunnar voru flutt alls 813 hross úr landi á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Þar af voru flutt út 360 hreinræktuð hross til undaneldis fyrir samtals 98,5 milljónir kr., 425 reiðhestar fyrir 78,6 millj. kr. og 28 trippi og folöld fyrir 9,9 milljónir. Meira flutt til Noregs vegna samninga um lækkun tolla Þrátt fyrir heildarsamdrátt í út- flutningi hrossa hefur útflutningur til nokkurra landa aukist upp á síð- kastið m.a. til Noregs. Jón segir þetta skýrt dæmi um árangur af samningum sem gerðir voru á milli Íslands og Noregs í tollamálum. ,,Það fékkst lækkun tolla þar inn á ákveðnum fjölda hrossa gegn því að við flytjum inn Maarud-kartöfluflög- ur á lægri tollum. Noregur er því lýs- andi dæmi um það hvað gerist ef nást samningar við önnur lönd um lækk- un tolla.“ Jón hefur selt hross til annarra landa í gegnum Netið og hefur það gefið ágæta raun. ,,Þetta er okkar leið til að halda sjó,“ segir hann. Jón segir útflutning hrossa þýð- ingarmikinn atvinnuveg og bendir einnig á að mikill fjöldi Íslendinga hafi atvinnu sína af hrossarækt, hestamennsku eða margskonar þjónustu tengdum þessari atvinnu- grein. Þá séu menn sem betur fer að vakna til vitundar um þýðingu ís- lenska hestsins í ferðaþjónustu og bendir hann m.a. því til staðfestingar á að á fjórða þúsund erlendir gestir komu á landsmót hestamanna í sum- ar. Jón Gíslason, bóndi á Hofi í Vatnsdal, segir ýmsar skýringar á samdrætti í útflutningi hrossa Aukið framboð og harðari samkeppni GRÉTAR Már Sigurðsson, skrif- stofustjóri viðskiptaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins, segir engan fót fyrir frétt norska blaðsins Aften- posten fyrr í vikunni um að Ísland og Noregur hafi í fyrsta sinn léð máls á því að falla frá banni við er- lendum fjárfestingum í sjávarútvegi gegn því að fá aukinn aðgang að mörkuðum Evrópusambandsins. Í samningaviðræðum um útvíkk- un EES-samningsins vegna stækk- unar Evrópusambandsins hyggst ESB taka upp mál, sem það „taldi standa út af“ við gerð EES-samn- ingsins á sínum tíma, þ.e. land- búnað, sjávarútveg og framlag EFTA-ríkjanna í þróunarsjóðinn. Evrópusambandið hefur þannig sett fram, segir í Aftenposten, fjöl- margar kröfur sem miða að því að fella niður tollmúra og viðskipta- hindarnir með landbúnaðarafurðir frá sambandinu til EFTA-ríkjanna þriggja sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. „Þessar kröfur hafa orðið til þess að EFTA-löndin – með Noreg fremst í fylkingu – hafa í fyrsta sinn léð máls á því að ræða kröfur ESB um erlenda eignaraðild að sjávarútvegsfyrirtækjum bæði í Noregi og á Íslandi,“ segir í frétt blaðsins. „Þetta er úr lausu lofti gripið,“ segir Grétar Már Sigurðsson. „Það hefur engin umræða verið um það á milli okkar og Norðmanna að leyfa fjárfestingar í sjávarútvegi. Slíkar viðræður hafa ekki átt sér stað og aldrei verið léð máls á því af hálfu Íslands að þær gætu átt sér stað.“ Engar yfirlýsingar um lækkun tolla á unnar fiskafurðir Heimildarmenn Aftenposten í Brussel fullyrða að skriður sé kom- inn á samningaviðræður um bókun níu í EES-samningnum um sjáv- arútvegsmál og viðskipti með fisk vegna aukins samningsvilja af hálfu EFTA-ríkjanna en að ekki hafi komið fram viljayfirlýsingar af hálfu ESB um að lækka tolla á unn- ar fiskafurðir sem skipti norska fiskvinnslu miklu máli. Samhliða þessum umræðum sé einnig verið að ræða um lægri tolla á landbún- aðarafurðir frá ESB s.s. kjöt og mjólkurafurðir og að dregið verði úr innflutningshömlum á unnar landbúnaðarafurðir frá ríkjum ESB. „Ef við ætlum okkar að halda áfram að geta flutt sjávarafurðir út tollfrjálst til Austur-Evrópuland- anna verðum við að vera tilbúnir að gera málamiðlanir,“ er haft eftir heimildarmanni Aftenposten í norska utanríkisráðuneytinu. Fullyrt í Noregi að Ísland og Noregur vilji ræða fjárfestingar á móti markaðsaðgangi Ísland ekki léð máls á neinum viðræðum Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra Kemur ekki niður á börnum og foreldrum JÓN Kristjánsson heilbrigðis- málaráðherra telur að það komi ekki niður á börnum og foreldr- um að dregið hafi verið úr þjón- ustu á barnalæknavakt Barna- læknaþjónustunnar ehf. í Domus Medica vegna fjár- skorts. Einingakvóti Barna- læknaþjónustunnar, sem greiðslur Tryggingastofnunar miðast við, er uppurinn fyrir þetta ár og hefur því einn lækn- ir sinnt þjónustunni á hverju kvöldi í stað tveggja til þriggja sem áður var. Jón segir að samningurinn sé útrunninn og TR hafi ekki fé til að endurnýja hann. Samningur við barnalæknana hafi komið til viðbótar við þá þjónustu sem fyrir er í boði fyrir börn á Læknavaktinni og heilsugæsl- unni. „Það er langt frá því að það sé verið að leggja niður þjón- ustu við börn, þótt þarna sé einn læknir á vakt í staðinn fyr- ir tvo og langt í frá að barnafólk eigi ekki kost á öðrum úrræð- um.“ Biðtíminn á Læknavakt- inni í Smáranum sé aldrei meiri en 20 mínútur, þar sé læknum bætt við sé mikil aðsókn. Þá sinni Heilsugæslan þessu al- mennt þótt aðgengið að henni sé þó ekki alveg sem skyldi. Fé uppurið Aðspurður hvort komið verði til móts við kröfur læknanna segir Jón ráðuneytið vera í miklum vandræðum í þessu máli. Það hafi verið gagnrýnt fyrir að kostnaður vegna sér- fræðiþjónustu hafi farið langt fram úr áætlun og eininga- kvóta. „Þarna er samningur út- runninn og það fjármagn upp- urið sem var ætlað í þetta og við höfum legið undir hörðum ámælum fyrir að fara fram úr í sérfræðikostnaðinum. Við er- um með skýrslu frá Ríkisend- urskoðun um það að við höfum ekki getað haldið utan um þau mál. [...] Ég er ekki þar með að segja að það sé ekki verjandi að þjónusta börn, það má ekki skilja orð mín sem svo, en hins vegar erum við í þeirri klemmu að þessi þjónusta hefur farið fram úr áætlunum,“ segir ráð- herra. Þegar samningurinn við Barnalæknaþjónustuna ehf. verði endurnýjaður verði áætl- að hvaða einingafjöldi þyki heppilegur til að halda þessari þjónustu uppi. FJÓRIR sunnlenskir nemendur hafa nú hafið leikskólakenn- aranám við Háskólann á Ak- ureyri í fjarnámi en stunda námið að hluta til á Hvolsvelli. Námið fer fram með fjarfundarbúnaði og í gegnum tölvur. Fyrr á árinu var settur upp fjarfundarbúnaður í Héraðs- bókasafni Rangæinga á Hvolsvelli og hefur hann nú verið tekinn í notkun í þessu skyni í fyrsta skipti. Nemendur koma einn dag í viku á bókasafnið en munu þreyta próf á Selfossi. Nemend- urnir hófu námið í haust og stunduðu það í fyrstu í Hafn- arfirði en nú hafa tekist samn- ingar um að kennslustundirnar ,,fari fram“ á Héraðsbókasafninu. Það er mikið hagræði af því fyrir nemendurna sem eru á svæðinu frá Eyjafjöllum að Flúð- um að þurfa ekki að ferðast alla leið til Hafnarfjarðar til að sækja tíma. Það er Fræðslunet Suður- lands sem sér um að miðla há- skólanámi á Suðurlandi. Á myndinni eru nemendur í leikskólakennaranámi við Háskól- ann á Akureyri í kennslustund á Héraðsbókasafni Rangæinga á Hvolsvelli. Með þeim á myndinni er Jón Hjartarson, umsjón- armaður fjarkennslunáms á há- skólastigi á Suðurlandi. Hagræði í fjarnámi á háskólastigi Morgunblaðið/Steinunn Ósk Hvolsvelli. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.