Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 17
INNAN skamms verður sett á stofn
sjálfseignarstofnunin Eiðastóll um
starfrækslu alþjóðlegrar mennta- og
menningarmiðstöðvar á Eiðum, sem
einstaklingum, fyrirtækjum og opin-
berum aðilum verði boðin aðild að.
Þetta kom fram á fundi í gær þar
sem eigendur Eiða, þeir Sigurjón
Sighvatsson og Sigurður Gísli
Pálmason, kynntu áform sín varð-
andi framtíðarnýtingu á húseignum
og landi Eiða á Austur-Héraði.
Þeir keyptu í nafni einkahluta-
félagsins Eiða ehf. eignir Alþýðu-
skólans að Eiðum og jarðirnar Eiða
og Gröf hinn 31. júlí 2001. Í fyrra-
haust var sett á fót nefnd sem hefur
verið eigendum til ráðuneytis um
framtíðarstefnumörkun. Upp úr
starfi nefndarinnar var skrifuð
skýrsla og henni skilað til eigenda
Eiða sl. vor. Þeir hafa nú sett fram
hugmyndir sínar um nýtingu stað-
arins með hliðsjón af þessari skýrslu.
Sigurjón Sighvatsson sagði í upp-
hafi kynningarfundarins að ræddar
hefðu verið og skoðaðar fjölmargar
hugmyndir um hvað hentaði best
fyrir Eiða. „Við höfum framan af
árinu verið að kanna málið og athuga
hvað gæti gengið upp gagnvart
staðnum og einnig fjárhagslega. Nú
liggur fyrir hvað okkur er í huga. Ég
trúi því og treysti að út úr þessari
vinnu muni koma niðurstaða sem all-
ir geti vel við unað og er nokkuð viss
um að Eiðar munu í framtíðinni, ef
vel tekst til með samvinnu, verða
einn af fjölsóttustu stöðum á landinu.
Eiðar eiga gríðarmikla möguleika,“
sagði Sigurjón.
Alþjóðleg mennta- og
menningarmiðstöð
Fyrir liggur að innan skamms
verður sett á stofn sjálfseignar-
stofnunin Eiðastóll, um starfrækslu
alþjóðlegrar mennta- og menningar-
miðstöðvar á Eiðum, sem einstak-
lingum, fyrirtækjum og opinberum
aðilum verði boðin aðild að, eins og
segir í kynningarskýrslu um verk-
efnið. Eiðastóll á að verða vettvang-
ur fyrir menningarsköpun og vera
gátt þar sem straumar mætast og
heimslistin og heimalistin eru hlið
við hlið. Þá er markmiðið að stað-
urinn verði vettvangur fræðslu og
framfara.
Sú starfsemi sem þeir Sigurjón og
Sigurður Gísli vilja sjá á Eiðum er,
svo dæmi sé tekið, alþjóðlegur um-
hverfislistagarður, alþjóðlegt sköp-
unar- og fræðasetur með áherslu á
þverfaglega og listræna samvinnu,
frumherjahugsun og nýsköpun, al-
þjóðleg miðstöð lykilverkefna í um-
hverfismálum og að á svæðinu sé að-
setur fyrir áhugaverða menningu og
náttúru. Gert er ráð fyrir að undir
hatti Eiðastóls rúmist sömuleiðis
margþætt verkefni. Undirliggjandi
markmið er að hvert verkefni styrki
annað og að þannig myndist traust-
ari grunnur undir öfluga starfsemi
Eiðastóls til lengri tíma litið.
Eigendur tala um að fyrstu verk-
efnin, til dæmis alþjóðleg högg-
myndastefna í umhverfislistagarðin-
um, geti hafið göngu sína næsta
sumar. Þó kom fram að mörg ár taki
fyrir slíkan stað að þroskast og taka
á sig skarpar útlínur.
Hreyfanlegt setur með
gífurlega möguleika
„Framundan er uppbygging á
Austfjörðum sem tengist virkjunum
og álveri og talað er um að muni
valda margfeldisáhrifum,“ sagði Sig-
urjón í lok kynningarinnar. „Ég tel
að starfsemin á Eiðum muni einnig
valda margfeldisáhrifum. Það er bú-
ið að leggja mikla peninga í þennan
undirbúning af okkar hálfu, líklega
eitthvað á annan tug milljóna, fyrir
utan allt það starf sem lagt hefur
verið í verkefnið launalaust. Mér
finnst að það sé mikið atriði bæði fyr-
ir okkur og heimamenn að skilja, að
það er auðvelt að sóa peningum, eng-
inn vandi að byggja steinkassa, en
það er miklu vandasamara að halda í
þeim lífi, en það er markmiðið hér.
Við sjáum Eiðastól alls ekki sem
stofnun. Ef okkar áætlanir ná fram
að ganga, verður þetta mjög hreyf-
anlegt setur, með gífurlega mögu-
leika,“ sagði Sigurjón að lokum.
Bæjarstjórn Austur-Héraðs á eft-
ir að taka afstöðu til tillagna Sigur-
jóns og Sigurðar Gísla, en samþykki
hennar á framkomnum áformum
verður að liggja fyrir til að kaupin á
eignunum teljist fullgild.
Alþjóðlegt mennta- og
menningarsetur á Eiðum
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn
Eiðar virðast liggja í dvala í vetrarfrostinu sem kælt hefur Héraðsbúa undanfarið. Eigendur Eiða hafa uppi mikil
áform um menningar- og menntastarf þar í framtíðinni í nafni sjálfseignarstofnunarinnar Eiðastóls.
Eigendur kynna áform um framtíðarnýtingu
+ 333 kr. (flugvallarskattur og tryggingagjald)
aðra leiðina
Nú getur fjölskyldan flogið saman í frí fyrir
ódýrara fargjald á manninn en nokkru sinni fyrr.
Tilvalið til að heimsækja vini og ættingja um allt land
eða gera eitthvað annað skemmtilegt.
Þetta einstaka tilboðsfargjald
• gildir á leiðum Flugfélags Íslands innanlands
• er fyrir börn að 12 ára aldri
í fylgd með fullorðnum
• gildir í nóvember
• býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu, www.flugfelag.is
Króna
fyrir börnin
í nóvember !
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
S T
O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
-
F L
U
1 7
6 0
3
1 0
/ 2
0 0
2
AÐFARANÓTT mánudagsins sl.
var brotist inn hjá Mareind ehf. í
Grundarfirði og þaðan stolið tveim-
ur fartölvum sem þar voru til sölu.
Þá var brotist inn í Fákasel, félags-
heimili hestamanna, en engu var
stolið þar. Svo virðist sem styggð
hafi komið að þjófunum er þeir voru
við iðju sína inni hjá Mareind því
skilin voru eftir verkfæri og vasa-
ljós. Gluggi hafði verið spenntur
upp í báðum tilvikum með kúbeini.
Starfsmaður Vaktþjónustu
Grundarfjarðar hitti um nóttina á
ferð sinni ungt par og aðstoðaði þau
við að taka bensín úr sjálfsala þar
eð þau sögðust ekki hafa neitt kort,
einungis seðla. Tók hann niður bíl-
númer þeirra um leið og þau óku
brott og kom það lögreglu á sporið
en þau munu hafa verið handtekin í
Reykjavík daginn eftir. Grunur
leikur á því að þau hafi verið á
stolnum bíl.
Þjófar á ferð í
skjóli nætur
Grundarfjörður
NÝLEGA barst heilsu-
gæslustöðinni á Kirkju-
bæjarklaustri góð gjöf.
Samband vestur-
skaftfellskra kvenna
færði stöðinni fóst-
urhlustara sem ætlaður
er til að hlusta hjart-
slátt fósturs í móð-
urkviði.
Það var formaður
SVSK, Eva Björk Harð-
ardóttir, sem afhenti
tækið. Svo skemmtilega
vill til að hún vígði einnig tækið á
heilsugæslunni.
Með Evu á myndinni eru Dagný
Zoega hjúkrunarforstjóri og ljós-
móðir heilsugæslustöðvarinnar og
Theodór Ásgeirsson yfirlæknir.
Gjöf til heilsugæslu-
stöðvarinnar
Kirkjubæjarklaustur
Morgunblaðið/Eiður Björn Ingólfsson