Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 22
ERLENT
22 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
Í
ti
le
fn
i
ve
tr
ar
ko
m
u
v
e
it
u
m
v
ið
2
0
%
a
fs
l.
a
f
ö
ll
u
m
v
ö
r
u
m
í
d
a
g
f
im
.,
f
ö
s
.
o
g
l
a
n
g
a
n
l
a
u
g
a
r
d
a
g
Ó
t
a
l
ö
n
n
u
r
t
il
b
o
ð
í
g
a
n
g
i
Ég og þú
Laugavegi 67,
sími 551 2211
AKHMED Zakajev, sem var hand-
tekinn í Danmörku að beiðni rússn-
eskra stjórnvalda, er hægri hönd
Aslans Maskhadovs, forseta Tétsn-
íu. Hann hefur verið talsmaður
Maskhadovs frá því hann fór í út-
legð vorið 2000 og í viðtali, sem birt
var í gær, harmaði hann gíslatök-
una í Moskvu.
Akhmed Zakajev fæddist í Kas-
akstan 1959 og lauk leiklistarnámi
áður en hann hóf afskipti af stjórn-
málum. Hann varð menningarmála-
ráðherra Tétsníu árið 1994, áður en
rússneskar hersveitir voru sendar
þangað. Zakajev stjórnaði fremstu
fylkingu tétsenskra hermanna í
stríðinu árið 1995 og varð seinna
fylkishershöfðingi og öryggisráð-
gjafi tétsenskra yfirvalda.
Zakajev bauð sig fram í forseta-
kosningum í Tétsníu árið 1997 eftir
að Rússar fluttu her sinn frá hér-
aðinu. Hann lenti í þriðja sæti í
kosningunum á eftir Maskhadov og
stríðsherranum Shamíl Basajev.
Maskhadov gerði Zakajev að að-
stoðarforsætisráðherra og utanrík-
isráðherra árið 1998. Eftir að rússn-
eskar hersveitir voru sendar aftur
inn í Tétsníu í september 1999
stjórnaði Zakajev tétsenskum sér-
sveitum í stríðinu.
Zakajev særðist í mars 2000 og
fór frá Tétsníu af öryggisástæðum.
Hann hefur verið „sérlegur fulltrúi“
Maskhadovs frá því að hann fór í út-
legð en ekki er vitað um fastan dval-
arstað hans, að sögn fréttavefjar
danska útvarpsins.
Zakajev hefur endrum og eins
skotið upp kollinum til að gefa út yf-
irlýsingar um ástandið í Tétsníu.
Eftir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum 11. september í fyrra var
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
fljótur að lýsa baráttu Rússa í
Tétsníu sem lið í stríðinu gegn
hryðjuverkastarfsemi í heiminum
en kvaðst samt ljá máls á viðræðum
við Tétsena. Zakajev fór til Sher-
emetjevo-flugvallar í Moskvu í
nóvember í fyrra til að ræða við full-
trúa Pútíns, Viktor Kazantsev.
Fundur þeirra bar þó engan árang-
ur, að því er fram kemur á fréttavef
BBC.
Glæpir Rússa „réttlæta
ekki árás á konur og börn“
Zakajev tók þátt í skipulagningu
tétsensku ráðstefnunnar í Kaup-
mannahöfn og var handtekinn eftir
að henni lauk að beiðni Rússa sem
segja hann viðriðinn gíslatökuna í
Moskvu í vikunni sem leið.
Zakajev harmaði þó gíslatökuna í
viðtali, sem þýska blaðið taz birti í
gær, og lýsti henni sem „örvænting-
arfullri aðgerð ungra manna“.
„Glæpir rússneskra hermanna í
Tétsníu réttlæta ekki árás á konur
og börn,“ sagði hann en bætti við að
gíslatakan tengdist „á engan hátt
hryðjuverkastarfsemi“. Rússnesku
hermennirnir í Tétsníu væru aftur á
móti „réttnefndir hryðjuverka-
menn“.
Zakajev ræddi við blaðamann taz
skömmu áður en hann var handtek-
inn í gærmorgun. Hann sagði að
rússnesku sérsveitirnar hefðu ráð-
ist of snemma inn í leikhúsið í
Moskvu til að bjarga gíslunum því
sendimaður rússneskra stjórnvalda
hefði átt að ræða við fulltrúa Téts-
ena daginn eftir. „Pútín hafði enn
möguleika á að binda enda á stríðið í
Tétsníu og bjarga gíslunum.“
Zakajev sagði ennfremur í sam-
tali við fréttamann AFP á ráðstefn-
unni að hann fordæmdi „hryðjuverk
hvar sem þau eru framin“. „Við
hvetjum Rússa til að taka þátt í póli-
tískum viðræðum, sem er eina leiðin
til að útkljá deiluna um Tétsníu.
Hún verður aldrei leyst með valdi.“
Tétseninn Rúslan Khasbúlatov,
fyrrverandi forseti rússneska
þingsins, sagði að ekkert væri hæft í
ásökun Rússa. „Zakajev er ekki
hryðjuverkamaður. Ég tel ekki að
hann hafi tekið þátt í hryðjuverk-
um. Þetta er fáránlegt. Ég efast
ekki um að hann verði leystur úr
haldi.“
Aslambek Aslakhanov, fulltrúi
Tétsníu í neðri deild rússneska
þingsins, kvaðst efast um að Zakaj-
ev væri viðriðinn gíslatökuna. „Zak-
ajev virðist ekki vera mjög herskár í
deilunni við Rússa. Hann talar eins
og maður sem vill frið. Annaðhvort
er hann mjög góður leikari eða
hafður fyrir rangri sök.“
Akhmad Kadyrov, leiðtogi téts-
ensku stjórnarinnar sem styður
Rússa, fagnaði hins vegar handtök-
unni. „Þeir hefðu átt að gera þetta
fyrir löngu. Það ætti að handtaka
alla þá sem tóku þátt í ráðstefnunni
í Kaupmannahöfn og líka þá sem
studdu þá.“
Danska sjónvarpið TV2 sagði að
Rússar hefðu lagt fram beiðnina um
handtöku Zakajevs á föstudag. Að
sögn rússnesku fréttastofunnar
ITAR-Tass var dönskum yfirvöld-
um afhentur listi yfir meira en 70
þátttakendur í ráðstefnunni sem
Rússar saka um að vera viðriðnir
gíslatökuna. Hermt er að Rússar
hafi þó ekki óskað eftir því að fleiri
en Zakajev yrðu handteknir.
Varðar dauðarefsingu
Rússar hafa lengi reynt að hand-
taka Zakajev. Rússneska fréttastof-
an Interfax sagði að Rússar hefðu
fyrr á árinu sent aðildarríkjum Int-
erpol, alþjóðasambands sakamála-
lögreglu, beiðni um handtöku Zak-
ajevs fyrir meinta aðild að nokkrum
hryðjuverkum frá 1996, meðal ann-
ars árás í Dagestan, grannhéraði
Tétsníu, árið 1999.
Gefin voru út fyrirmæli um hand-
töku Zakajevs í Rússlandi í septem-
ber í fyrra. Að sögn ITAR-Tass
ætla rússnesk yfirvöld að ákæra
hann fyrir aðild að vopnaðri upp-
reisn, skipulagningu skæruliðahópa
og þátttöku í starfsemi þeirra, og
banatilræði við löggæslumenn.
Samkvæmt rússneskum lögum
varðar síðastnefnda ákæruatriðið
dauðarefsingu.
„Mjög góður leikari eða
hafður fyrir rangri sök“
Reuters
Akhmed Zakajev (sitjandi fyrir miðju) ræðir við Ousman Ferzaouli, sendifulltrúa Tétsena í Danmörku (t.v.), og
Rúslan Khasbúlatov, fyrrverandi forseta rússneska þingsins, á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn í fyrradag.
Tétseninn sem
var handtekinn
í Danmörku
hefur lengi
verið eftirlýstur
í Rússlandi
’ Akhmed Zakajevkvaðst harma gísla-
tökuna í Moskvu
og fordæmdi öll
hryðjuverk. ‘
Alltaf á þriðjudögum