Morgunblaðið - 31.10.2002, Síða 40
KIRKJUSTARF
40 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gættu að því sem þú átt
og fáðu til baka
það sem hefur tapast
Vita-A-kombi vinnur á byltingarkenndan hátt á
öldrunareinkennum húðarinnar.
Öflug endurbygging.
KYNNING í Hagkaup Smáralind
fimmtudag, föstudag og laugardag.
Kaupauki.
...fegurð og vellíðan...www.forval.is
Áskirkja. Opið hús er á fimmtudögum milli
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal kirkjunnar
fyrir unga sem aldna. Í tengslum við opna
húsið hefur myndast sönghópur sem syng-
ur létt lög sér til skemmtunar og ánægju
en organisti Áskirkju, Kári Þormar, leið-
beinir og stýrir hópnum. Eftir sönginn er
boðið upp á kaffi og með því. Allir eru hjart-
anlega velkomnir, laglausir sem lagvísir, til
að eiga samveru og hafa gaman af.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur. Tólf
sporin - andlegt ferðalag. Kynningarfundur
í Bústaðakirkju í kvöld kl. 20.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14a.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Léttur málsverður í safnaðarheimili að
stundinni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn kl. 10–12. Umsjón hefur Ágústa Jóns-
dóttir. Söngstund með Jóni Stefánssyni.
Kaffisopi í boði kirkjunnar.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel milli
kl. 12 og 12.10. Að bænastund og alt-
arisgöngu lokinni er léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Einfalt, fljótlegt og inni-
haldsríkt. Samvera eldri borgara kl. 14.
Þorsteinn Haukur Þorsteinsson, tollvörð-
ur, kemur í heimsókn ásamt hundinum
Bassa og segir frá starfsreynslu tollvarð-
arins. Kaffiveitingar. Umsjón hefur þjón-
ustuhópur safnaðarins, kirkjuvörður og
sóknarprestur. Alfa-námskeið kl. 19–22.
Yfirumsjón hefur Nína Dór Pétursdóttir.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Félagsstarf eldri borgara í Nes-
kirkju laugardaginn 2. nóvember kl. 14.
Farið verður um fáfarnar slóðir á höfuð-
borgarsvæðinu. Kaffiveitingar í safnaðar-
heimilinu. Þátttaka tilkynnist í síma
511 1560 milli kl. 10–13 til föstudags.
Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Nedó – unglingaklúbbur kl. 19.30. Svenni
og Hans.
Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20–22 í
umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar.
Fjallað verður um valda texta Biblíunnar
þar sem guðsmynd manneskjunnar,
ábyrgð og frelsi eru í brennidepli. Textarnir
verða skoðaðir m.a. í tengslum við túlkun
guðfræðinga á dæmisögu Jesú um mis-
kunnsama Samverjann. Mömmumorgunn
föstudag kl. 10–12.
Digraneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12. Kirkjustarf aldraðra, leikfimi kl. 11.15.
Bænastund kl. 12.10. Unglingakór Digra-
neskirkju kl. 17–19. Alfa 2 kl. 19. Kennari
sr. Magnús B. Björnsson. Unglingastarf
KFUM&K kl. 20–21.45. (Sjá nánar
www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf fyr-
ir 8–10 stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf
heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börn-
in. Kirkjukrakkar fyrir börn, 7–9 ára, í
Húsaskóla og Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.
bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Alfa-námskeið kl. 19.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhuggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skráð í bænabók kirkjunnar
af prestum og djákna. Boðið er upp á
molasopa og djús að lokinni stundinni í
kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi for-
eldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12 ára
börn í dag kl. 17. Dagskrá í tali og tónum í
kvöld kl. 20. Þorvaldur Halldórsson syng-
ur. Kaffisala í safnaðarheimilinu á eftir.
Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 16.30–18.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi kl. 16–16.45. MK í Heiðar-
skóla og 8. KÓ í Heiðarskóla. Samvera
með foreldrum fermingarbarna í Kirkju-
lundi kl. 20.30–22. Gylfi Jón Gylfason, sál-
fræðingur, fjallar um samskiptamál við
unglinga og einelti í skólum. Foreldrar
fermingarbarna eru sérstaklega boðaðir á
fundinn.
Hveragerðiskirkja. Kl. 19.30–21 æsku-
lýðsfundur í kirkjunni með fermingarbörn-
um. Það verður farið í leiki, helgistund og
fleira.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu. El-
ías Baldvinsson, slökkviliðsstjóri, kemur í
heimsókn og ræðir um slysahættur á
heimilum. Sr. Kristján Björnsson. Kl. 16
æfing hjá Litlum lærisveinum, I. hóp, kl.
17.30 æfing hjá Litlum lærisveinum. II.
hóp. Kórstjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Aðaldeild KFUM. Fundur kl. 20. Biblíulest-
ur í umsjón Kjartans Jónssonar. Upphafs-
orð: Jón Magnús Kjartansson. Allir karl-
menn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í Safnaðarheimili eftir stundina.
Safnaðarstarf
KEFLAVÍKURKIRKJA efnir til
samverustundar með foreldrum
fermingarbarna í Kirkjulundi kl.
20.30 fimmtudaginn 31. okt.
Gylfi Jón Gylfason, sálfræð-
ingur, mun fjalla um samskipti við
unglinga. Ýmsir hafa af því
áhyggjur að unglingamenningin
virðist lúta eigin lögmálum burt-
séð frá því hvað heimili, skóli og
kirkja eru að reyna að gera.
Við höfum ekki séð fyrir end-
ann á kynlífsbyltingunni sem oft
tengist fíkniefnaneyslu og ofbeldi.
Það er ástæða til að varpa fram
þeirri spurningu hvernig það sam-
félag sé sem bíður ferming-
arbarnanna á leið þeirra út í lífið.
Stoð og styrking
í Ytri-Njarðvík-
urkirkju
STOÐ og styrking, fundur
fimmtudaginn 31. okt. kl. 13. Sæ-
mundur Stefánsson, upplýsinga-
fulltrúi frá Tryggingastofnun,
verður með fyrirlestur m.a. um
skerðingu tekjutryggingar vegna
umframtekna. (Hvar liggja mörk-
in?) Fyrirspurnir og umræður og
önnur mál.
Helgistund í lok fundar. Allir
velkomnir.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Fræðslukvöld
um 1. Korintubréf
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
heldur fræðslukvöld fyrir almenn-
ing um eitt af ritum Nýja testa-
mentisins, fyrra bréf Páls postula
til Korintumanna, fimmtudaginn
31. október kl. 20–22 í húsi KFUM
og KFUK við Holtaveg, gegnt
Langholtsskóla.
Bréfið er um margt athyglisvert
þar sem það endurspeglar ýmis
vandamál innan frumkirkjunnar.
Frægasti kafli þess er sá þrettándi
með kærleiksóðinum. Fyrirlesari
verður Guðlaugur Gunnarsson,
guðfræðingur og kerfisfræðingur.
Fræðslan er öllum opin og að-
gangur ókeypis en kvöldið er lið-
ur í þriggja ára áætlun skólans
undir heitinu „Þekktu Biblíuna
betur“.
Samvera með
foreldrum
fermingarbarna
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Keflavíkurkirkja
Kvennahátíð Samfylkingarinnar
Samfylkingarkonur efna til hátíða,
kaffifunda, súpufunda og göngu-
ferða víða um land dagana 1. – 3.
nóvember. Með þessu vilja konur í
Samfylkingunni vekja athygli á
áhrifum og krafti kvenna í stjórn-
málum sem og á öðrum sviðum sam-
félagsins. Allar konur velkomnar.
Föstudaginn 1. nóvember verður
kvennahátíð á Kaffi Reykjavík, efri
hæð, kl. 18 – 22, í Félagsheimili
hestamanna í Þorlákshöfn kl. 20 og í
Faktorshúsinu í Hæstakaupstað,
Ísafirði kl. 20.30.
Laugardag 2. nóvember verður
kvennakaffi á veitingahúsinu
Lanternu, efri hæð, í Vest-
mannaeyjum kl. 10.30. Kvenna-
ganga verður á Akureyri um Odd-
eyrina kl. 11.30, mæting kl. 11.30 við
Gránufélagshúsin (Við Pollinn).
Kvennaganga í Reykjavík með leið-
sögn um söguslóðir kvenna í Kvos-
inni kl. 15, mæting í andyri Ráðhúss-
ins. Kvennakaffi á Reyðarfirði, í
Verkalýðshúsinu kl. 15.–17.
Sunnudagur 3. nóvember verður
kvennahátíð á Akranesi, í Maríukaffi
í Byggðasafninu Görðum, kl. 11.
Nánari upplýsingar á heimasíðu
Samfylkingarinnar: www.samfylk-
ing.is.
Ný stjórn VG í Kópavogi
Á FÉLAGSFUNDI Vinstrihreyf-
ingarinnar – Græns framboðs í
Kópavogi, sem haldin var nýlega,
var kosin ný stjórn. Stjórnina skipa:
Hafsteinn Hjartarson formaður,
Þorleifur Friðriksson varaformaður,
Einar Ólafsson ritari, Sigmar Þor-
mar gjaldkeri, Brynjúlfur Hall-
dórsson meðstjórnandi. Varastjórn
skipa: Sigurrós Sigurjónsdóttir og
Kolbrún Valvesdóttir.
Í DAG STJÓRNMÁL
Viltu grennast? Í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði býðst fólki nú að
grenna sig í hópi með því skilyrði, að
meginmarkmið dvalarinnar sé að
létta sig og að líkamþyngdarstuðull
(BMI) sé yfir 30.
Í fyrstu meðferðinni er dvölin fjórar
vikur. Hópnum er síðan boðið að
koma aftur í aðhald með reglulegu
millibili, eina viku í senn.
Markmið meðferðarinnar er ekki að
léttast sem mest, heldur að læra
hvernig hægt er að bæta lifn-
aðarhætti og þannig stuðla að því að
léttast, styrkjast og að líða almennt
betur, segir í fréttatilkynningu.
Aðstoð er veitt við að undirbúa breyt-
ingar á lífsstíl hvers og eins til að ná
varanlegum árangri.
Læknir, hjúkrunarfræðingur, nær-
ingarfræðingur, sjúkraþjálfari, sál-
fræðingur og íþróttakennari sjá um
meðferð og fræðslu. Sjúkraþjálfarar
og íþróttakennarar annast alla þjálf-
un, ásamt fræðslu og eftirliti með því
hver árangurinn er. Innritun er hafin
á næsta námskeið sem hefst 8. janúar
nk. Gert er ráð fyrir 10 manns í hópi.
Hyundai-jeppaferð á Kaldadal Í
tilefni af 10 ára afmæli Hyundai á Ís-
landi, býður B&L til fyrstu 4X4 fjöl-
skylduferðar Hyundai, laugardaginn
kemur, 2. nóvember.
Ferðinni er heitið í Húsafell um
Kaldadal en fyrst verður haldið í
Haukadal og ekið norður á línuveg-
inn austan Skjaldbreiðar. Á áfanga-
stað verður grillað og brugðið á fjör-
uga leiki, áður en haldið verður heim
á leið.
Safnast verður saman við B&L-
húsið, Grjóthálsi 1, klukkan 8:30
laugardagsmorgun, þar sem upplýs-
ingum verður dreift um ferða-
tilhögun, auk þess sem þátttakendur
fá afhent smávegis ferðanesti. Lagt
verður í ‘ann á slaginu 9 og eru allar
veitingar í boði B&L.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.bl.is.
Á NÆSTUNNI
Veggspjaldasýning í raunvís-
indadeild Stjórn Raunvísindastofn-
unar Háskólans býður starfsfólki og
gestum þess til móttöku við opnun
veggspjaldakynningar stofnunar-
innar við upphaf Vísindadaga, föstu-
dag 1. nóvember kl. 15–19, í Dun-
haga 3. Eftir opnunarathöfn með
léttum veitingum verða veggspjöldin
skoðuð. Sýningin verður opin al-
menningi laugardaginn 2. nóvember
kl. 10–18 í Tæknigarði. Jafnframt
verða á laugardaginn fimm hálftíma
fyrirlestrar fyrir áhugafólk um
raunvísindi í sal 3 í Háskólabíói: Kl.
13 Sveinn Ólafsson og Hannes Jóns-
son: Geymsla á vetni í málmum. Kl.
13.50 Sigurður Reynir Gíslason:
Eldgos og efnaveðrun. Kl. 14.30
Lárus Thorlacius: Hvað er bak við
innstu sjónarrönd? Kl. 15.40 Snorri
Þór Sigurðsson: Gen og ýmis fyr-
irbæri úr ævintýraheimi kjarnsýra.
Kl. 16.20 Gunnar Stefánsson: Þróun
aðferða við mat á stærð og ráðgjöf
um nýtingu fiskistofna.
Læknað með húmor Húmoristar
og læknar munu kenna á námskeiði
hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
um tengsl húmors og heilsu, föstu-
daginn 1. nóvember kl. 9–17. Lækn-
ingahúmor fjallar m.a. um jákvæð
áhrif skopskynsins á heilsu og bata
sjúklinga. Á námskeiðinu er m.a.
fjallað um áhrif húmors á samskipti
sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks,
áhrif húmors á streitu og hvernig
nota má húmor í daglegu starfi heil-
brigðisstétta o.fl.
Umsjón hefur Bjarni Jónasson
læknir. Fyrirlesarar ásamt Bjarna
eru Pétur Ingvi Pétursson læknir,
Stein Tyrdal, dr. med., bækl-
unarlæknir frá Noregi og forseti
Nordisk Selskap for Medisinsk
Humor (NSMH), Karl Ágúst Úlfs-
son leikari og rithöfundur.
Skráning fer fram á vefslóðinni
www.endurmenntun.is
Haustráðstefna FENÚR Fagráð
um endurnýtingu og úrgang, FEN-
ÚR, stendur fyrir ráðstefnunni
„Hvað kostar ruslið?“ í Sesseljuhúsi,
Sólheimum í Grímsnesi, föstudaginn
1. nóvember kl. 12.30. Rúta fer frá
Reykjavíkurflugvelli kl. 10.15 og frá
Kjarvalsstöðum kl. 11.30.
Á ráðstefnunni verða flutt erindi og
má þar meðal annars nefna: Nið-
urstöður vistferilsverkefnis FEN-
ÚR kynntar. Fjallað verður um
aukna nýtingu á sjávarfangi og um-
hverfisstofnun Háskóla ísland verð-
ur kynnt. Greint verður frá aðal-
fundi og ráðstefnu ISWA í Istanbúl í
sumar og ferð tæknimanna sveitar-
félaganna á höfuðborgarsvæðinu og
SORPU bs. til Danmerkur og Sví-
þjóðar í nóvember 2001 þar sem
skoðaðar voru nýjungar á sviði sorp-
hirðu. Fyrirlestur um Sólheima og
gönguferð um staðinn og að lokum
verður erindi um mismunandi kostn-
að og gjöld sveitarfélaga við mála-
flokkinn.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna á
heimasíðu FENÚR www.fenur.is.
Ráðstefnugjöld eru sem hér segir:
FENÚR félagar kr. 5.000, náms-
menn kr. 2.000 og aðrir kr. 7.500.
Innifalið í ráðstefnugjaldi er rútu-
ferð, hádegisverður, kaffi og skoð-
unarferð. Þátttaka tilkynnist fyrir
kl. 12, fimmtudaginn 30. október,
netfang: bjorn@sorpa.is, eða halla-
@sorpa.is
Ráðstefna leikskólastjóra Fag-
hópur leikskólastjóra efnir til ráð-
stefnu föstudaginn 1. nóvember á
Hótel Sögu sem ber yfirskriftina
„Lifðu í lukku en ekki í krukku“ Ár-
angur í stjórnun – lífsgleði.
Fyrirlesari á ráðstefnunni verður
bandaríska fræðikonan og fyrirles-
arinn Sue Baldwin sem er kunn í
heimalandi sínu fyrir fyrirlestra sína
um vinnuverndarmál og ráðgjafar-
þjónustu sem beinist m.a. að því að
koma í veg fyrir streitu og auka vel-
líðan í starfi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á MORGUN
Merkjasala Björgunarsveit-
arinnar Ársæls Árleg merkjasala
Björgunarsveitarinnar Ársæls í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi fer
fram dagana 30. október til 3. nóv-
ember. Þá munu sölubörn ganga í
hús og bjóða merki björgunarsveit-
arinnar til sölu. Auk þess verða sölu-
börn við stærri verslanir.
Merkjasalan er ein af helstu fjáröfl-
unum björgunarsveitarinnar. Allt
starf björgunarsveitarinnar er unnið
í sjálfboðavinnu.
Í DAG
FRÉTTIR