Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 49
KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance
française mun standa reglulega fyr-
ir kvikmyndasýningum í vetur í
samstarfi við Film-undur.
Í kvöld verður fyrsta mynd vetr-
ardagskrár kvik-
myndaklúbbsins
franska sýnd en
hún heitir La vie
est un long fleuve
tranquille eða Líf-
ið er langur og
lygn lækur eftir Etienne Chattillez.
Myndin er frá 1988 og fjallar um
tvær ólíkar franskar fjölskyldur
sem rugla saman reitum á óvenju-
legan hátt þegar tveimur börnum,
sínu úr hvorri fjölskyldu, er ruglað
saman við fæðingu. Upp frá því
skarast líf fjölskyldnanna tveggja
og flækist til muna þegar mistökin
uppgötvast 12 árum síðar. Ekki
bætir heldur úr skák að önnur fjöl-
skyldan skuli vera vel stæð, ham-
ingjusöm og fullkomin – á að líta,
en hin fátæk, sundruð og óham-
ingjusöm – á að líta.
Myndin verður sýnd í Háskóla-
bíói í kvöld kl. 22.30, á sunnudag kl.
18.15 og mánudag kl. 20.30. Myndin
er með enskum texta. Aðgangur er
ókeypis fyrir félaga Alliance franç-
aise en þeir þurfa að framvísa fé-
lagsskírteinum.
Alliance française
Fátæka fjölskyldan eymdarleg við
matarborðið í La vie est un long
fleuve tranquille.
og Film-undur
Franskt
fjöl-
skyldulíf
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 49
Fundarherbergi
ORRI Harðarson sendi frá sér
tvær vandaðar sólóplötur snemma
á tíunda áratugnum (Drög að
heimkomu 1993 og Stóri draum-
urinn 1995) sem
fengu góða dóma,
en það er fyrst
núna sem nýtt
efni kemur frá
honum. Þurfti
áskorun frá Dauf-
blindrafélaginu til að hann sendi
frá sér plötu núna, en allur ágóði
rennur til samtakanna.
Lögin á Tárum eru lágstemmd
með gítarinn í forgrunni, ýmist
lágværar kassagítarstemmur eða
rafdrifnari tregi. Eins og titillinn
ber með sér er lítið um grín og
glens, hér er allt í moll og lögin
bera titla eins og „Hljóðlaus tár“,
„Sorg“, „Ást“, „Freisting“ – sung-
ið um sígild mannleg efni, vonir og
vonbrigði og stemmningin er
nokkuð þunglyndisleg. Þetta dett-
ur þó ekki út í sjálfsvorkunn,
fremur að sá sem talar meti að
verðleikum það sem var og sjái
ekki eftir upplifun sinni. Það er
því ekki helbert myrkur, fremur
hálfrökkur sem ríkir.
Orri er óhræddur við að leyfa
laglínunni að njóta sín, röddin
heldur sig eins og í bakgrunni, lág-
vær og næstum hvíslandi sem á
mjög vel við andann í lögunum.
Það er farið mjög hófsamlega með
allt „skraut“, mér finnst t.d. gott
að melankólíunni er ekki drekkt í
munnhörpuleik en það loðir oft við
harmalög söngvaskálda sem eru
„ein“ með gítarinn að munnharpan
er notuð hvar sem henni er við
komið (persónulega hef ég bara
ekki smekk fyrir þeirri hefð-
bundnu notkun á því hljóðfæri).
Orri hefur líka gott eyra fyrir
viðlögum sem hefja sig upp úr lág-
værðinni og hleypa dramatík í efn-
ið, t.d. lagið „Himinninn grætur
þessa nótt“. Í fyrstu var dálítið til-
gerðarlegur framburður söngkon-
unnar eitthvað að trufla mig en
það gleymist þegar dramatískur
þunginn í viðlaginu tekur við:
„Heldur áfram lífið/Heimskir sofa
rótt/Himinninn grætur þessa
nótt“. Fallegt er líka „Ást“ með
einföldum en einlægum texta sem
skilar tilfinningunni vel. „Róman-
tík“ er einna „glaðværast“ ef hægt
er að nota það orð, með skemmti-
legum marimbanótum og það er
vel gert hvernig það rennur síðan
saman við algera andstæðu sína,
lagið „Freistingu“ sem sýnir
dekkri hliðina á myndinni. Þar er
sungið um hinn „gamla förunaut
sem freistar“ (það skín í gegn víða
á disknum að áfengi er böl). Rödd-
in er á djúpu nótunum, takturinn
hægur en þungur og minnir á
þung spor sem eru stigin, kannski
í átt að freistingunni. Hér vinnur
allt saman, yrkisefnið, áherslur í
texta, taktur og uppbygging lags-
ins og kórónast í sterku viðlagi þar
sem þyngslin verða næstum því
áþreifanleg: „Og ég veit/að sitt-
hvað getur lagt mig/og ég forðast/
þennan gamla förunaut.“ Eitt
besta lagið á plötunni.
Mörg lög á Tárum eru heil-
steypt á þennan hátt og tengjast
síðan líka innbyrðis og styðja við
hvert annað. Heildarsvipurinn er
því sterkur og mjög persónulegt
andrúmsloft næst fram. Síðustu
lögin eru heldur veikari og virka of
slétt og felld til að vekja áhuga en
það breytir því ekki að þetta er vel
gerð plata, eflaust full lágvær til
að heyrast í dagsins ös, en býr yfir
ósviknum heiðarleika og minnis-
stæðum, tregafullum laglínum.
Tónlist
Tími
fyrir tár
Orri Harðarson
Tár
Eigin útgáfa
Geislaplatan Tár með Orra Harðarsyni.
Lög og textar eftir Orra Harðarson (nema
„Lokalag“: Orri og Marcussen) og hann
sér um stjórn upptöku og útsetningar,
svo og hljóðblöndun. Orri leikur á flest
hljóðfærin sjálfur; kassagítar, rafgítar, pí-
anó, orgel, hljómborð, bassa, munnhörpu
og sitthvað fleira en honum til aðstoðar
er Birgir Baldursson á trommur í nokkr-
um lögum og tvær söngkonur koma inn í
örfáum lögum. Geislaplatan er gefin út til
styrktar starfsemi Daufblindrafélags Ís-
lands.
Steinunn Haraldsdóttir
Í umsögn um Tár, nýja plötu Orra
Harðarsonar, segir að hann hafi
gott eyra fyrir viðlögum sem hefja
sig upp úr lágværðinni og hleypa
dramatík í efnið.
KNICKERBOX
Laugavegi 62, sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni, sími 533 4555
K N I C K E R B O X
Við erum 7 ára
20% afsláttur
dagana 31. okt.-3. nóv. af öllum nýjum vörum
Fullar búðir af nýjum vörum
Sendum í póstkröfu