Morgunblaðið - 28.12.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.12.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI ÞÓR TAKI VIÐ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafn- aði í gær tillögu framsóknarmanna um að hún léti af starfi sem borg- arstjóri 15. janúar og Árni Þór Sig- urðsson borgarfulltrúi tæki við. Sagði hún að með tillögunni væri gert ráð fyrir að hún ætti ekki afturkvæmt í embættið. Tilræði í Grozní Tveim bílum, hlöðnum, sprengi- efni, var ekið inn á lóð stjórnsýslu- húss héraðsstjórnar Rússa í Grozní, höfuðstað Tétsníu, í gærmorgun og féllu a.m.k. 46 manns í tilræðinu. Móar fá greiðslustöðvun Kjúklingabúið Móar hefur fengið greiðslustöðvun til 16. janúar. Eigið fé er neikvætt um 350 millj. króna. Stjórnarformaður Móa, Kristinn Gylfi Jónsson, segir greiðslustöðvun nauðsynlega til að hægt verði að ná fram nauðasamningum. Álsamningar senn staðfestir Fulltrúar Alcoa hafa áritað fyr- irliggjandi samninga um álver og virkjanir á Austurlandi og er stefnt að staðfestingu samninganna 10. jan- úar. Engar endanlegar ákvarðanir verða þó teknar fyrr en í febrúar, að sögn Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar. Ströng ákvæði um orlof Lögum samkvæmt skulu foreldrar vera skráðir í vinnu samfleytt í sex mánuði áður en þeir fá fæðingarorlof. Vanti aðeins einn dag fá þeir synjun. Reka burt eftirlitsmenn Norður-Kóreumenn hafa ákveðið að reka á brott eftirlitsmenn Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar og hefja framleiðslu á plútoni sem hægt er að nota í kjarnorkusprengjur. Bandaríkjamenn hvetja N- Kóreumenn til að hætta við að smíða kjarnorkuvopn. Kaupa hlut í Kaupþingi Bakkabræður, eignarhaldsfélag bræðranna Ágústs og Lýðs Guð- mundssonar, hefur keypt hlutabréf í Meiði ehf., sem er einn af stærstu eig- endum Kaupþings, fyrir um 2,4 millj- arða króna. Mun Bakkavör Group og aðilar tengdir fyrirtækinu nú eiga um 21,2% hlutafjár í Kaupþingi. 2002  LAUGARDAGUR 28. DESEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2002: BRÆÐUR Í HÓPI TÍU EFSTU / B4 NÝR leikmaður verður í úrvalsdeildarliði Skallagríms í Intersport-deildinni í körfuknatt- leik þegar keppni hefst í byrjun næsta árs. Bandaríkjamaðurinn Isaac Hawkins hefur ver- ið leystur undan samningi sínum við félagið og leikur ekki fleiri leiki með liðinu. Bandaríkja- maðurinn Nick Bradford mun taka stöðu Hawkins en Bradford er 24 ára framherji og var í háskólaliði Kansas. Hann er um tveir metrar á hæð og getur leikið ýmsar stöður á vellinum. Forráðamenn Skallagríms eiga einn- ig von á því að bræðurnir Darko og Milos Ristic frá Júgóslavíu verði löglegir með liðinu 9. jan- úar. Milos er tvítugur bakvörður en Darkos er 27 ára framherji. Skallagrímur er í næst neðsta sæti deildarinnar með 4 stig að loknum 11 um- ferðum, en tvö neðstu lið deildarinnar falla í 1. deild. Nick Bradford í raðir Skallagríms SNORRI Steinn Guðjónsson, fyrir- liði og leikstjórnandi Valsmanna í handknattleik, fær í hendurnar á næstu dögum þriggja ára samnings- tilboð frá þýska úrvalsdeildarliðinu Grosswallstadt en hann kom heim fyrir jólin eftir nokkurra daga dvöl hjá þýska liðinu. Snorri Steinn hefur leikið sérlega vel með Valsliðinu og ekki að undra að erlend félög séu farin að bera í hann víurnar en fleiri lið en Grosswallstadt hafa augastað á honum. „Ég æfði með liðinu á þremur æf- ingum. Þeim leist vel á það sem ég gerði og í kjölfarið sögðust þeir ætla að bjóða mér þriggja ára samning. Ég fékk send drög að honum skömmu eftir að ég kom heim og á allra næstu dögum fæ ég senda ít- arlegri útlistun á honum. Ég ætla að gefa mér góðan tíma í að skoða mál- ið. Mér leist vel á félagið og allt sem að því snýr en þó svo að tilboð sé á leiðinni er ekki þar með sagt að mað- ur ætli hlaupa upp til handa og fóta og skrifa undir. Það er að mörgu að hyggja en að sjálfsögðu þykir mér heiður að svona stór klúbbur vilji fá mig,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Morgunblaðið í gær. Snorri sneri sig á ökkla á lands- liðsæfingu í fyrradag. „Þetta reynd- ist minniháttar sem betur fer. Ég lenti illa á fætinum eftir uppstökk og fóturinn bólgnaði upp. Ég tek mér frí um helgina en verð kominn á fullt á mánudaginn.“ Grosswall- stadt vill fá Snorra Stein Morgunblaðið/Kristján Snorri Steinn Guðjónsson ÍSLENSKA karlalandsliðið í körfu- knattleik lék tvo landsleiki í gær- kvöld á þriggja landa móti sem fram fer í Lúxemborg. Nokkrar breyt- ingar hafa verið gerðar á mótinu þar sem Englendingar mættu ekki til leiks með karlalið sitt. Af þeim sök- um var ákveðið að leika tvöfalda umferð í keppni karlaliða. Íslend- ingar töpuðu gegn Kýpur með minnsta mun í fyrri leik sínum í gær, 68:69. Íslendingar voru ellefu stigum undir í hálfleik, 38:29. Jón Arnór Stefánsson (Trier) og Friðrik Stefánsson (UMFN) voru atkvæða- mestir í íslenska liðinu gegn Kýpur með 18 stig hvor. Skarphéðinn Ingason úr KR skoraði 8 stig. Frið- rik Stefánsson tók jafnframt 15 frá- köst. Íslendingar léku einnig við Lúxemborg í gærkvöldi en úrslit höfðu ekki borist úr þeim leik seint í gær. Kvennalandsliðið tapaði 44:59 fyrir Englandi í sínum fyrsta leik á Spuerkeess-mótinu sem einnig er leikið í Lúxemborg en auk þess taka landslið heimamanna og Svíþjóðar þátt í mótinu. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst með 14 stig. ÍSLANDSMEISTARAR KR í körfu- knattleik kvenna fá góðan liðsstyrk fyrir baráttuna á komandi ári því stjórn körfuknattleiksdeildar fé- lagisns hefur gert samning við banda- rísku körfuknattleikskonuna Jessie Stomski um að leika með vesturbæj- arliðinu út leiktíðina. Þar með eru öll sex liðin í 1. deild kvenna komin með erlendan leikmann í sínar raðir. Stomski er 22 ára og 1,88 metrar á hæð. Hún lék síðast með Wisconsin- háskólaliðinu þar sem hún skoraði að meðaltali 18,3 stig að á síðustu leiktíð og tók 8,3 fráköst. Með komu Stomski vonast KR-ing- ar eftir því að gengi liðsins verði betra, en meistararnir eru í þriðja sæti deildarinnar með 8 stig eins og Njarðvík og Haukar, Grindavík hefur 14 stig en á toppnum trónir Keflavík með fullt hús stiga – 20 stig. BJÖRN Birgisson úr Lærlingum gerði sér lítið fyrir og náði full- komnum leik í jólamóti sem fram fór í keilusalnum í Mjódd á öðrum degi jóla. Björn náði þar með 300 stigum og jafnaði þar með heims- metið í greininni en ekki er hægt að ná betri árangri en 12 fellum í ein- um og sama leiknum. Þetta er í fimmta sinn sem ís- lenskur leikmaður nær þessum ár- angri og sagði Björn að hann hefði fundið góða línu í upphafi, sem hefði virkað. „Allir sem stunda keilu vilja ná svona leik. Ég hef beðið eftir þessu í ein 15 ár. Mér leið vel í úrslita- leiknum og fann rétta taktinn í öll 12 skiptin,“ sagði Björn sem varð 33 ára í gær. Björn leikur eins og áður segir með Lærlingum og er með að með- altali í 195 stig í leik í deild- arkeppninni með liði sínu. Björn Birgisson jafnaði heimsmetið Hef beðið eftir þessu í 15 ár Morgunblaðið/Jim Smart Björn Birgisson náði fullkomnu skori. Stomski til KR-inga Tap gegn Kýpur og Englandi L a u g a r d a g u r 28. d e s e m b e r ˜ 2 0 0 2 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 41/44 Viðskipti 14 Skák/Brids 48 Erlent 18/21 Kirkjustarf 45 Höfuðborgin 22 Úr Vesturheimi 36 Akureyri 23 Staksteinar 46 Suðurnes 24 Myndasögur 48 Árborg 26 Bréf 48/49 Landið 25 Dagbók 50/51 Listir 29/35 Leikhús 52 Neytendur 28 Fólk 52/57 Heilsa 29 Bíó 54/55 Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58 Viðhorf 34 Veður 59 * * * VETRARSÓLSTÖÐUR marka í huga margra sigurgöngu birtunnar við myrkrið eftir skamm- degi fyrstu vetrarmánaðanna. Þótt enn sé bið eftir því að birtan nái yfirhöndinni er alltaf fagn- aðarefni að daginn er tekið að lengja á nýjan leik frá og með 22. desember ár hvert. Vart hefur sést til sólar í höfuðborginni und- anfarnar vikur sökum dumbungs. Snjóleysið hef- ur að auki orðið til þess að grámyglulegt hefði verið um að litast í borginni ef ekki kæmi til fjöldi agnarsmárra jólaljósa. Það var því vissulega gleðilegt að sjá loks heiðskíran himin yfir Vífilsfelli í gærmorgun og íbúar í Árbæ gátu notið einstakrar sólarupp- rásar er þeir skriðu úr fletum sínum á þriðja degi jóla. Blóðrauður og gullinn himinn hefur vafalítið fangað óskipta athygli þeirra sem til sáu. En heiðskírum himni fylgir venjulega eitt- hvert frost og því þurftu íbúar Árbæjar sem og aðrir höfuðborgarbúar að vopnast sköfu áður en þeir gátu ekið til vinnu í gærmorgun. En útsýnið til Vífilsfells hefur líklega gert afísun bílanna ei- lítið skemmtilegri athöfn en venjulega. Veðurstofan spáir frosti næstu daga og hver veit nema að geislar sólar fái að njóta sín meira við uppaf nýs árs en það sem af er vetri. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Blóðrauð sólarupprás ELDUR varð laus í gömlu húsi í Hveragerði um sexleytið í gær. Húsið, sem liggur að vinnuskúr garðyrkjustöðvarinnar Blómavalla, áður Rósakots, var smíðað úr asbesti og brann það töluvert mikið. Slökkvilið Hveragerðis kom fljótlega á vettvang og slökkti eldinn. Lík- legt er talið að kviknað hafi í út frá flugeldum því nágrannar sáu flugeldum skotið upp stuttu áður en eldsins varð vart. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Bruni í Hveragerði FJÖLDI erlendra ferðamanna sem koma til Íslands á eigin vegum hefur ekki upplýsingar um lokanir veitinga- húsa, safna og annarra staða, sem veita þjónustu, yfir jól og áramót. Þeir erlendu gestir sem hingað koma í skipulögðum ferðum ganga hins vegar að ákveðinni þjónustu vísri og verða því ekki fyrir sömu óþægindum vegna lokana yfir hátíðirnar, skv. upplýsingum Guðjóns Arngrímsson- ar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, og Magnúsar Oddssonar ferðamála- stjóra. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær leitaði fjöldi vonsvikinna erlendra ferðamanna til Upplýsinga- miðstöðvar ferðamála í Reykjavík vegna þess að aðgangur að veitinga- húsum, söfnum og annarri afþreyingu væri af skornum skammti yfir hátíð- isdagana. Guðjón bendir á að fjöldi erlendra ferðamanna sem hingað komi í pakkaferðum viti fyrirfram að hverju þeir gangi, enda hafi þeir keypt sér flug, gistingu og þjónustu að meðtöld- um veitingum og skipulögðum ferð- um o.s.frv. „Hins vegar er svo fólk sem kemur hingað á eigin vegum og hefur ætlað sér að spila úr hlutunum þegar komið er á staðinn eins og al- gengt er um ferðamennsku nútímans. Það er enginn vafi á að þetta hefur komið mörgum þeirra í opna skjöldu,“ segir hann. Nauðsynlegt að bregðast við Magnús Oddsson tekur í sama streng en hann bendir á að á seinustu árum hafi komið sífellt stærra hlutfall erlendra ferðamanna til landsins á eigin vegum og hafi þá ekki sömu upplýsingar undir höndum um þjón- ustu og afgreiðslutíma og ferðamenn sem hingað koma í skipulögðum hóp- ferðum. Magnús segir alveg ljóst að þeir ferðamenn sem hingað komi í pakka- eða hópferðum gangi að ákveðinni dagskrá vísri og hafi upplýsingar um þá þjónustu sem hér sé veitt. Aftur á móti telji hann að þjónustuaðilar hafi kannski ekki gert sér alveg ljóst hvað hlutfall gesta sem hingað komi á eigin vegum fari ört vaxandi. Þessir ferða- menn, sem ekki hafi leitað sér upplýs- inga fyrirfram um hvað hér sé í boði yfir hátíðirnar, verði eðlilega fyrir ákveðnum vonbrigðum. Ljóst sé að ef þeir aðilar sem veiti þjónustu í mat og drykk og afþreyingu bregðist ekki við þessu sé hætta á að þetta „vandamál“ verði stærra. Í fréttatilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur í gær er á það bent, vegna ummæla forstöðukonu Upplýs- ingamiðstöðvar ferðamála um að söfn séu lokuð frá Þorláksmessu til 2. jan- úar, að Listasafn Reykjavíkur sé opið alla daga ársins ef frá séu taldir 24., 25., 26. og 31. desember og 1. janúar. Óánægja meðal erlendra gesta vegna lokana yfir hátíðirnar Vaxandi fjöldi erlendra gesta á eigin vegum HUNDAR sem á jólanótt reyndu að drepa kanínur í garði í Skerjafirði drápu kanínur í sama garði í vor. Eigandi kanínanna kærði þá málið til Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkurborgar. Á jólanótt skaut hann á hundana eftir að hafa reynt að hrekja þá í burt. Lög- reglan lagði hald á skotvopnið. Guðmundur B. Friðriksson hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur sagði að kvartanir hefðu áður borist vegna þessara tveggja hunda. Meðal annars hefði borist kæra í vor vegna kan- ínudráps í Skerjafirði. Einnig hefðu fleiri íbúar kvartað undan hund- unum og m.a. að þeir væru lausir. Hann sagði að málið væri núna til skoðunar, en hann tók fram að for- eldrar mannsins sem kom og sótti hundana á jólanótt, væru skráðir eigendur þeirra. Samkvæmt reglu- gerð er lausaganga hunda bönnuð. Ítrekuð brot á reglugerð varða sviptingu leyfis til hundahalds. Kanínurnar í Skerjafirði voru heimilisvinir og var það því talsvert áfall fyrir fjölskylduna þegar kan- ínurnar voru drepnar í vor. Nýjar kanínur komu til sögunnar, en greinilegt er að hundunum þykir kanínukjöt gott því að þeir gerðu aftur árás sl. jólanótt. Heim- ilisfólkið vaknaði um kl. 3 um nótt- ina. Voru þá hundarnir að reyna að komast inn í kanínubúrin. Hús- bóndinn reyndi að hrekja þá í burt og tókst það í fyrstu. Hann fór á eft- ir þeim til að svipast um hvað af þeim hefði orðið, en þegar hann sneri til baka voru hundarnir komnir aftur og jafnæstir og áður. Hundarnir eru mjög stórir af svo- kallaðri samojed-tegund. Húsbónd- inn reyndi aftur að koma þeim í burtu en tókst ekki. Á endanum greip hann til þess ráðs að skjóta á hundana til að hrekja þá í burtu. Hann hringdi síðan á lögregluna sem kom og handsamaði hundana. Annar þeirra fékk högl í sig. Hafa tvívegis gert árás á kanínurnar FJÖGURRA bíla árekstur varð við Álfsnes á Kjalarnesi um sjöleytið í gærkvöld. Um var að ræða tvo jeppa og tvo fólksbíla sem lentu saman, en tildrög slyssins lágu ekki enn fyrir í gærkvöldi, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík. Hálka var á veginum við Álfsnes er slysið varð. Farþegar í bifreið- unum slösuðust lítillega, sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar en sjúkrabifreið var send á staðinn. Loka þurfti veginum um tíma meðan sjúkraflutn- ingamenn og lögregla sinntu störfum sínum. Bifreiðarnar voru óökufærar og þurfti að flytja þær af vettvangi með kranabíl. Hálka var víða á vegum á höfuðborgarsvæðinu í gær en að sögn lögreglunnar urðu að- eins minniháttar umferðar- óhöpp vegna hennar, ef frá er talið slysið á Kjalarnesi. Fjórir bílar í árekstri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.