Morgunblaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 25 FRUMVARP fjárhagsáætlunar 2003 fyrir Ísafjarðarbæ gerir ráð fyrir að heildartekjur bæjarsjóðs og stofnana hans verði 1.880 millj. kr., en rekstrargjöld án fjárfestinga 1.764 millj. kr. svo afgangur frá rekstri er 116 milljónir króna. Fjárfestingar og sérstök viðhalds- verkefni 190 millj. kr. sem er hækk- un milli umræðna um fjárhagsáætl- unina vegna ákvörðunar um flýtingu framkvæmda vegna spár um tíma- bundinn samdrátt í efnahagslífinu. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar vill leggja sitt af mörkum til að draga úr hugsanlegum áhrifum af samdrætti með því að flýta framkvæmdum. Laun eru áætluð 867 millj. kr., vöru- og þjónustukaup 768 millj. kr., framlög, styrkir og rekstrartil- færslur 176 millj. kr. og fjármagns- gjöld að frádregnum fjármagns- tekjum 47 millj. kr. Fræðslumál fjárfrekust Þeir málaflokkar sem mest taka til sín í rekstri eru fræðslumál með 554 millj. kr., æskulýðs- og íþróttamál 101 millj. kr., félagsþjónusta 88 millj. kr., umhverfismál og almannavarnir 122 millj. kr., sameiginlegur kostn- aður 108 millj. kr. og menningarmál 42 millj. kr. Gert er ráð fyrir að greiða 189 millj. kr. í afborganir langtímalána en nýjar lántökur eru áætlaðar 40 millj. króna. Lán verða því greidd niður um 149 millj. króna. Nýbygging við grunnskólann Milli umræðna hafa fjárfestingar- tillögur verið endurskoðaðar og til- laga er um að fjárfestingar á árinu 2003 verði 190 milljónir í stað 153 milljóna eins og tillaga var við fyrri umræðu. Reiknað er með framlagi til undirbúnings nýbygginga fyrir Grunnskólann á Ísafirði. Í frétt frá Ísafjarðarbæ segir m.a. um fjárhagsáætlunina: Í atvinnu- málum verður lögð áhersla á að vinna eftir vestfirskri byggðaáætlun og leita allra tækifæra sem gefast í atvinnulífinu. Þar er verið að vinna að mörgum hugmyndum sem munu líta dagsins ljós á árinu 2003. Dæmi um slíkt er stofnun snjóflóðarann- sóknarseturs sem fjárlaganefnd veitti fé til, stofnun rannsóknarset- urs Háskóla Íslands í samstarfi við fleiri, umsókn um þátttöku í stóru verkefni um rafrænt samfélag, samningaviðræður um ríkisvaldið um rannsóknarmiðstöð í þorskeldi, miðstöð veiðarfærarannsókna og fleiri atriði sem eru verulega mik- ilvæg fyrir atvinnulíf bæjarfélagsins. „Innan Ísafjarðarbæjar er mikið af góðum hugmyndum að verkefnum sem munu efla hag svæðisins og um leið þjóðarhag. Einn mikilvægasti þátturinn í eflingu svæðisins er stað- festing á Ísafjarðarbæ sem byggða- og þjónustukjarna fyrir Vestfirði. Ísafjarðarbær með Ísafjörð sem miðpunkt verði einn þriggja til fjög- urra öflugra kjarna á landsbyggð- inni þar sem uppbygging opinberrar þjónustu verður aukin svo eftir sé tekið. Slíkt hefur margfeldisáhrif sem skilar sér svo um munar í æðar efnahagskerfis viðkomandi byggðar- laga,“ segir einnig í frétt frá bæj- aryfirvöldum. Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar Gert ráð fyrir 116 milljóna króna afgangi Ísafjörður Á SÍÐUSTU tónleikum Tónlistar- skóla Borgarfjarðar fyrir jól sungu forskólanemendurnir jólalög. Tón- leikarnir voru haldnir í Borgarnes- kirkju og má sjá hópinn á meðfylgj- andi mynd þar sem krakkarnir biðu spenntir eftir því að röðin kæmi að þeim að byrja. Birna Þorsteins- dóttir er kennari forskólahópsins. Forskóla- börn syngja á tónleikum Borgarnes LÚÐVÍK Bergmann hjá Búaðföngum ehf., Stórólfsvelli við Hvolsvöll, var í jóla- skapi á dögunum þegar hann kom fær- andi hendi með „Playmobil“ búgarða og gaf leikskólunum á Hellu, Laugalandi og í Þykkvabæ. Alls eru sex leikskólar í Rang- árvallasýslu og færði Lúðvík þeim öllum samskonar leikföng. Haft var á orði í leik- skólanum á Hellu að í kössunum væri allt sem þyrfti til að reka gott kúabú. Fyr- irtæki Lúðvíks flytur einmitt inn og selur búaðföng fyrir bændur og hugsanlega eru framtíðarviðskiptavinir hans í hópi þeirra leikskólabarna sem njóta gjafa hans. Færir leik- skólum gjafir Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Leikskólastjórarnir Anna Lilja Torfadóttir, Þykkvabæ, Kristín Sveinsdóttir, Hellu, og Kristín Bjarnadóttir, Laugalandi, og börnin í Heklukoti á Hellu taka við gjöfum frá Lúðvík Bergmann. Hella Hagstæð skíðafargjöld með Flugleiðum og SAS á bestu skíðasvæði Evrópu ÍTALÍA Mílanó 44.400 kr.* • Madonna di Campiglio • Val di Fassa • Selva Val Gardena FRAKKLAND Genf 44.840 kr.* • Val d´Isère / Tignes • Dalirnir þrír (Méribel, Courcheval og Val Thorens) • Chamonix AUSTURRÍKI München 44.560 kr.* • Kitzbühel / Kirchberg • Zell am See • Lech / St. Anton SVISS Zürich 45.160 kr.* • St. Moritz • Cranz Montana • Davos Skíða-ævintýri FRANKFURT – flug og bíll 48.735 kr.** m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku. PARÍS – flug og bíll 48.175 kr.** m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku. Snjórinn færir okkur nær hvert öðru… Ferðir þessar gefa 3600-4200 ferðapunkta * Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn og áfram með SAS. Ferðir skulu farnar á tímabilinu 1.des.-31.mars (síðasti heim komudagur er 31. mars). Bókunarfyrirvari er 7 dagar. Lágmarksdvöl er 7 dagar og hámarksdvöl er 21 dagur. ** Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Ferðir skulu farnar á tímabilinu 1. okt.-31.mars (síðasti heimkomu dagur er 31.mars). Enginn bókunarfyrirvari. Lágmarksdvöl er 7 dagar og hámarksdvöl er 1 mánuður. */** 2ja–11 ára börn greiða 67% og yngri en 2ja ára greiða 10% af fargjaldi. Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða Fjarsölu Flugleiða í síma 50 50 100 (svarað mánud.–föstud. kl. 8–20, laugard. kl. 9–17 og á sunnud. frá kl. 10–16). ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 19 81 9 1 2/ 20 02 www.icelandair.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.