Morgunblaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 FIMMTÁN starfsmönnum var sagt upp hjá SÍF í gær. Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri fyrirtækisins, segir ástæðuna vera hagræðingu og uppsagnirnar hafi ekkert með hug- myndir um samruna SÍF og Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH, að gera. Gunnar sagði að uppsagnirnar mætti að nokkru leyti rekja til áhrifa af sameiningu SÍF og Íslenskra sjáv- arafurða, ÍS. „Ástæða uppsagnanna er sú að tæknibreytingar og sam- legðaráhrif eru enn að skila sér. Einnig hafa starfshættir á skrifstofu gengið betur. Þetta er afleiðing af hagræðingarferli sem er ennþá að skila sér.“ Af þeim sem sagt var upp störfuðu tíu í vinnslu fyrirtækisins og fimm á skrifstofum. Gunnar Örn sagði ekki von á fleiri uppsögnum. Á sama tíma í fyrra var tíu starfs- mönnum SÍF sagt upp störfum af sömu ástæðum að sögn Gunnars Arnar. Hagnaður SÍF nam sem svarar 36 milljónum króna á fyrstu níu mán- uðum ársins. Rekstur félagsins á þriðja fjórðungi ársins var nokkru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, en í þeim var reiknað með taprekstri. Tekjur þriðja ársfjórðungs höfðu aukist um tæp 7% frá fyrra ári og rekstrarkostnaður lækkað um 17%. Í nóvember var gert ráð fyrir hagn- aði á síðasta fjórðungi ársins, sem samkvæmt venju er besti fjórðungur samstæðunnar. Fimmtán sagt upp hjá SÍF RÖDDIN eftir Arnald Indriðason var sölu- hæsta skáldverk jóla- bókavertíðarinnar en alls seldust 12.000 ein- tök af bókinni nú fyrir jólin. Bækur Arnalds hafa samtals selst í 30.000 eintökum frá því í janúar. Að sögn Péturs Más Ólafssonar útgáfu- stjóra Vöku–Helgafells er þetta líklega einhver mesta sala ís- lensks höfundar á einu ári um langt ára- bil. Kiljuútgáfur á skáldsögum Arnalds hafa verið vinsælar. Dauðarósir kom út í ársbyrjun og hefur selst í um 7.000 eintök- um, Grafarþögn var gefin út í kilju um mitt sumar og hefur farið í 4.000 eintök- um. Napóleonsskjölin komu á markað í nýrri kiljuútgáfu á haustmánuðum og hafa selst 2.000 eintök af henni. Þá hefur Mýrin selst í 5.000 eintökum á árinu en hún var sem kunnugt er valin besta glæpasaga Norðurlanda í vor og hlaut að launum Glerlykilinn. Í febrúar kemur fyrsta bók Arnalds út á erlendum markaði en það er Mýrin í Þýskalandi. Af því tilefni er von á átta þýskum blaðamönnum til að kynna sér sögusvið bókarinnar og umhverfi höfund- arins nú í lok janúar. Þá koma bækur hans út í Englandi, Hollandi, Svíþjóð, Dan- mörku, Noregi og Finnlandi á næsta ári. Bækur Arn- alds í 30 þús- und eintök- um á árinu Arnaldur Indriðason „ÞAÐ ríkti hálfgerð gullgrafarastemning meðal þeirra sem ætluðu að selja jólatré fyrir jólin þar sem skortur var á trjám í fyrra,“ sagði Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóri Blómavals, en um 500-600 tré voru óseld í versluninni þegar jólin gengu í garð. Má áætla að útsöluverð þeirra hefði orðið um 1,5 milljónir króna. Örlög þessara trjáa voru því ekki að skrýðast jólaljósum og skrauti á heim- ilum landsmanna heldur að verða að ösku á einni af fjölmörgum áramótabrennum borg- arbúa. „Það er keppst um að fá trén á brenn- urnar því þetta er auðvitað góður efniviður í brennu,“ sagði Kristinn. Offramboð var á jólatrjám fyrir jólin en í fyrra sárvantaði fleiri tré á markaðinn. Marg- ir hafa því hugsað sér gott til glóðarinnar og telur Kristinn óhætt að áætla að um tíu þús- und tré hafi aldrei komist úr verslunum og inn í stofu landsmanna. Þau munu væntanlega flest hljóta sömu örlög og umframtré Blóma- vals; standa í ljósum lögum á gamlárskvöld. „Það koma hingað á þessa brennu einvörð- ungu um 10 bílfarmar af óseldum jólatrjám og það eru rúmlega 100 tré í hverjum farmi. Þetta verða því rúmlega þúsund tré sem hér fuðra upp á gamlárskvöld,“ sagði borg- arstarfsmaður er fulltrúar Morgunblaðsins fylgdust með brennugerð innst við Fossvog í gærdag. Morgunblaðið/Júlíus Þúsundir jólatrjáa á brennur Offramboð var á jólatrjám fyrir þessi jól en í fyrra sárvantaði fleiri tré VEÐURGUÐIRNIR hafa farið einstaklega blíðlegum höndum um Ísland undanfarna daga og vikur og á höfuðborgarsvæðinu hef- ur veðrið verið líkt og á mildum haustdegi. Ýmislegt óvenjulegt miðað við árstíma hefur því gerst í heimi plantna, brum trjáa hefur opnast og sömuleiðis hafa fögur sum- arblóm sprungið út. Eyjólfur M. Guðmunds- son, Vallhólmi í Kópavogi, smellti af þessari mynd af stjúpum í garðinum hjá sér á dög- unum. Nú er reyndar tekið að frysta á höf- uðborgarsvæðinu og eru horfur á kulda víðs vegar um land á næstu dögum svo ekki er víst að stjúpurnar verði langlífar. Ljósmynd/Eyjólfur Blómstrandi stjúpur á jólum ARI Teitsson, formaður Bændasamtakanna, segir að ekki sé rúm fyrir alla kjúklingafram- leiðendur sem nú eru á markaðnum. Í gær fengu Móar, sem eru annar stærsti kjúklinga- framleiðandi á landinu, greiðslustöðvun. Fyr- irtækið skuldar um 1,4 milljarða, en bókfærðar eignir þess eru tæplega 1,09 milljarðar. Ari seg- ir það ekki koma mjög á óvart að Móar hafi fengið greiðslustöðvun. Menn hafi vitað af vandamálum hjá félaginu um nokkra hríð og sumir hafi raunar orðið til þess að gagnrýna Búnaðarbankann fyrir of mikla biðlund gagn- vart fyrirtækinu. Ari segir alveg ljóst að eins og er sé ekki rúm arra kjötframleiðenda. Ari telur að staða Móa sé til marks um þá grisjun sem óneitanlega hljóti að verða í greininni. Önnur fyrirtæki í kjúklingaframleiðslu hafi einnig lent í erfiðleik- um. „Ég ætla ekki að dæma um það hvort það séu Móar sem eigi að hætta eða einhverjir aðr- ir. En það er ekki pláss fyrir þá alla. Ef menn halda áfram að framleiða jafnmikið af kjúklingi og verið hefur síðustu mánuði verða þeir seldir undir kostnaðarverði sem bitnar á kjúklinga- framleiðendum og öllum öðrum kjötframleið- endum. Í því er ekkert vit,“ sagði Ari. fyrir alla kjúklingaframleiðendurna á markaðn- um. „Það er framleitt verulega meira af kjúk- lingum en þörf er á. Það er líklegt að salan á árinu sem er að hefjast verði einhvers staðar á bilinu 4–5 þúsund tonn, það veltur á því hvort verðið verður hærra en sem nemur kostnaðar- verði. Framleiðslugetan á næsta ári er liðlega sex þúsund tonn en það er óeðlilegt að ætla að árssalan nái fimm þúsund tonnum miðað við eðlilega verðlagningu á kjúklingum.“ Ari bendir á að kjúklingar hafi að undanförnu verið seldir töluvert undir kostnaðarverði. Með þessu móti hafi náðst fram verulega aukin sala á kjúklingum og auðvitað einnig á kostnað ann- Formaður Bændasamtakanna um stöðuna á kjötmarkaðnum Ekki er pláss fyrir alla kjúklingaframleiðendur  Kjúklingabúið Móar í greiðslustöðvun/6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.