Morgunblaðið - 28.12.2002, Side 9

Morgunblaðið - 28.12.2002, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 9 Glæsilegir samkvæmiskjólar, síð pils og toppar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið í dag frá kl. 10.00—15.00. Auðbrekku 14, Kópavogi. Símar 544 5560 og 820 5562, www.yogastudio.is Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni 4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jóga- stöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994. Hefst fimmtudaginn 9. janúar – Þri. og fim. kl. 20:00 Jógakennaraþjálfun 2003 Í janúar hefst ný jógakennaraþjálfun en þjálfunin hefur fest sig í sessi í starfsemi okkar frá því sú fyrsta var haldin árið 1997. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugsson, þekktur fyrir námskeiðið ,,Jóga gegn kvíða”. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja verða jógakennarar heldur einnig yfirgripsmikið og öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanám- skeið, tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu á íslenskum starfsvettvangi. Hún hentar t.d. öllum sem eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða þeim sem vilja gera breytingar á lífsháttum sínum. ,,Ég reyni að fá nemendurna til þess að skilja hjartað í verkinu, gera sér ljóst hvað jóga er eða öllu heldur hvaða möguleika það hefur til að verða” segir Ásmundur. Ekki er kraf- ist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar. Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg. Ásmundur heldur kynningarfund miðvikudaginn 8. janúar kl. 20. Lokafrestur til að staðfesta þátttöku er miðvikudaginn 15. jan- úar. Kennaraþjálfunin er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma): 17.–19. janúar, 7.–9. febrúar, 28. feb–2. mars, 28.–30. mars, 11.–13. apríl og 2.–4. maí. Kennt er fös. kl. 20-22, lau. og sun. kl. 9-15. Kennsla opinna jógatíma hefst föstudaginn 3. janúar kl. 17.25. Næsta byrjendanámskeið hefst miðvikud. 15. janúar kl. 18:30. Næsta ilmkjarnaolíunámskeið verður dagana 24. og 25. janúar. Gnoðarvogi 44, sími 588 8686 Opið í dag, laugardag, frá kl. 9-14 FISKBÚÐIN HAFBERG STÓR HUMARGleðilegt ár! 5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík Útsala • Útsala Í dag, laugardag, kl. 12-19 sunnudag 29. desember kl. 13-19 mánudag 30. desember kl. 13-19 Sími 861 4883 Ný sending Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14 Útsala ÍSLENSKA vatnsfélagið ehf. hefur sótt um að fá heimild til greiðslu- stöðvunar. Beiðnin var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og von er á úrskurði á mánudag. Bergur Guðnason, stjórnarformað- ur félagsins, segir að beðið hafi verið um greiðslustöðvunina til að tryggja félaginu frið til að semja við nýja hlut- hafa um að þeir leggi fjármagn í rekstur þess. Tilgangurinn sé ekki sá að leita nauðasamninga við lánar- drottna en hann segir að félagið skuldi innan við 100 milljónir. Að- spurður segir Bergur að viðræður við nýja hluthafa gangi vel en bæði sé verið að ræða við erlenda og íslenska aðila. Hlutafé Íslenska vatnsfélagsins er 20 milljónir og segir Bergur að ætl- unin sé að tvö- til þrefalda þá fjárhæð. „Við höfum verið í þessu einir án op- inberrar aðstoðar frá upphafi og hvergi tekið langtímalán úr sjóðum eða slíku heldur haldið þessu gang- andi af eigin rammleik,“ segir hann. Það sé á hinn bóginn ekkert launung- armál að það hafi verið ákveðnir erf- iðleikar við að selja vöruna. Þá hafi hátt gengi krónunnar verið félaginu óhagstætt. „Við erum staðráðnir í því að bjarga félaginu og koma því á lapp- irnar. Það er ýmislegt á döfinni sem bendir til þess að við getum það,“ seg- ir hann og bætir við að hann hafi mikla trú á vatnsútflutningi. Íslenska vatnsfélagið framleiðir ekki undir sínu eigin vörumerki held- ur selur vatn í nafni annarra fyrir- tækja, m.a. í samstarfi við dönsku lág- vöruverslanakeðjuna Netto. Bergur segir að þetta sé eina rétta aðferðin, rándýr markaðssetning á erlendum mörkuðum hafi orðið mörgum að falli. Árið 2001 var velta Íslenska vatns- félagsins um 50 milljónir og flutti það þá út um 1.250 tonn af vatni. Bergur segir að þegar starfsemin sé í lág- marki vinni tveir hjá félaginu en fleiri kallaðir til þegar pantanir berist. Íslenska vatns- félagið óskar eftir greiðslustöðvun KARLMAÐUR og tvær konur sluppu með lítilsháttar meiðsl þegar bifreið þeirra valt við Svelting í Öx- arfirði fyrir hádegi í gær. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er talið að hálka hafi orðið til þess að ökumaður missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og valt. Bílvelta við Svelting HAMBORGARASTAÐURINN McDonald’s við Suðurlandsbraut var rýmdur í hádeginu í gær vegna pakka sem skilinn hafði verið eftir fyrir utan húsið og starfsmenn töldu grunsamlegan. Lögreglan í Reykjavík fékk til- kynningu um pakkann um klukkan 12 og voru nokkrir lögreglubílar þegar sendir á vettvang. Húsið var girt af og umferð þangað stöðvuð. Sprengjusérfræðingur lögregl- unnar aðgætti síðan pakkann og kom þá í ljós að í honum var sára- meinlaust sorp. Viðbúnaðarástandi var þá aflétt, rúmlega hálftíma eft- ir að tilkynning barst. Að sögn Jenny Stevens, rekstar- stjóra McDonald’s við Suðurlands- braut, var pakkinn skilinn eftir við gluggalúgu. Utan um hann var jólagjafapappír og um hann var vafið límband sem á stóð „brot- hætt“ á enska tungu. Pakkinn vakti grunsemdir hennar m.a. vegna þess að hún taldi að það væri undarlegt að skilja hann eftir á þessum stað. Hún hringdi í yf- irmann sinn sem var henni sam- mála um að réttast væri að fara að öllu með gát og hringja í lögreglu. „Kannski var brugðist of harka- lega við. Fólk hló að þessu en samt vildi enginn snerta pakkann,“ segir hún. Jenny hlaut þjálfun hjá McDonald’s í Bretlandi og segir hún að þar sé starfsmönnum kennt að fást við slíka hluti og umgangast grunsamlega pakka með varkárni. Morgunblaðið/Júlíus Lögregla girti af veitingastaðinn og beindi bílum frá vegna pakka sem starfsmenn töldu grunsamlegan. Dularfullur jólapakki fyrir utan McDonald’s KJARANEFND Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum fyrr í vikunni að hækka laun æðstu stjórnenda borg- arinnar um 3% frá og með 1. janúar Í bókun nefndarinnar segir m.a. að fyr- ir liggi að laun alls þorra starfsmanna Reykjavíkurborgar skuli skv. kjara- samningum hækka hinn 1. janúar 2003 um 3%. Kjaranefnd hafi með hliðsjón af því ákveðið að hækka laun þeirra sem undir nefndina heyra. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur í áratugi haft sömu kjör og forsætis- ráðherra. Kjör kjörinna fulltrúa borg- arinnar eru tengd þingfararkaupi og taka sambærilegum breytingum. Kjaranefnd ákvað fyrir skömmu að hækka laun æðstu embættismanna þjóðarinnar um 7%. Hafnarfjarðarbær hefur einnig ákveðið að laun æðstu embættis- manna bæjarins hækki um 3%. Málið verður tekið fyrir í bæjarráði eftir áramótin og reglurnar endurskoðað- ar svo ekki komi til 7% hækkunar á þessum launum. Kjaranefnd Reykjavíkurborgar Laun æðstu stjórnenda hækka um 3%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.