Morgunblaðið - 28.12.2002, Qupperneq 29
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 29
LISTIR
H
VERNIG er heilsufari Íslendinga háttað? Enginn velkist í
vafa um að almennt er það gott, ekki hvað síst þegar horft
er til annarra þjóða. Heilsa almennings er ekki einungis
háð góðri heilbrigðisþjónustu heldur ýmsum þjóðfélags-
aðstæðum, þ.á m. tekjum, húsnæði, menntun og hreinlæti.
Við trónum meðal efstu þjóða í mælingum á almennu heilsufari. Þar má
nefna langlífi, nýburadauða, sem er undir 3 af 1.000 lifandi fæddum
börnum, og mæðradauði á Íslandi er nær enginn. Umhverfið er til-
tölulega öruggt, langstærsti hluti þjóðarinnar er bólusettur gegn barna-
sjúkdómum og við erum að hefja sókn gegn heilahimnubólgu. Almenn-
ingur veit að unnt er að bera vissa ábyrgð á eigin heilsu og víst er að
fólk hefur þekkingu á helstu þáttum sem ógna heilsu. Vandinn er að búa
svo um hnútana að þekking leiði til
æskilegrar breytni. Flestir vita t.d.
að reykingar eru óhollar, samt reyk-
ir rúmlega fimmtungur þjóðarinnar.
Hvaða vandamál blasa þá við
samfélaginu á næstu árum? Hér
verða aðeins fáein nefnd:
1. Geðraskanir og hegðunarvanda-
mál fara vaxandi í vestrænum sam-
félögum. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin áætlar að tíu
heilbrigðisvandamál valdi mestri
örorku og vanlíðan á næstu 20–25
árum. Af þeim eru fimm geðræns
eðlis.
2. Lyfjafíkn er vaxandi vandamál á Íslandi. Ánægjulegar fréttir hafa
komið frá nýlegum rannsóknum úr efstu bekkjum grunnskóla en þó er
ljóst að fíkniefnasalar munu halda áfram að sækja á. Gróðafíknin og
gróðavonin er einfaldlega of mikil. Brýnt er að samfélagið taki hér dug-
lega á.
3. Ofþyngd og offita, einkum barna og unglinga, fer mjög vaxandi. Nú
eru um 20% íslenskra barna of þung og um 5% of feit. Erum við þar á
svipuðu stigi og nálægar þjóðir, en kannski 5–10 árum á eftir Bandaríkj-
unum. Offita er, ásamt tóbaksreykingum, sennilega eitt alvarlegasta heil-
brigðisvandamál sem við blasir.
4. Ofbeldi er meira áberandi í íslensku samfélagi en áður, bæði gagn-
vart börnum og konum, kynferðislegt ofbeldi þar með talið. Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin hefur nýverið skilað mikilli greinargerð um of-
beldi og vekur þar sérstaka athygli á ofbeldi gagnvart öldruðum, bæði
heima fyrir og á stofnunum. Heimilisofbeldi hér á landi hefur legið í
þagnargildi þar til nú að réttmæt umræða er hafin.
5. Fátækt er vandamál um allan heim. Það er sem betur fer af annarri
stærðargráðu hér en í ýmsum öðrum löndum. Þó segja tölur frá Norð-
urlöndum að um 6–7% Norðurlandabúa búi við hlutfallslega fáækt, þ.e.
séu með tekjur innan við helming meðaltekna. Fátækt er einn þeirra
þátta sem ráða miklu um almennt heilsufar og því hefur Evrópudeild Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar séð ástæðu til að benda á fátækt
sem vaxandi vandamál, jafnvel í þeim ríkjum sem teljast til efnuðustu
þjóða jarðar. Í þeim hópi erum við.
Öll þessi atriði blasa við okkur Íslendingum eins og öðrum þjóðum á
Vesturlöndum. Samfélagið þarf í sameiningu að taka á þessum vanda-
málum, þau eru ekki einkamál heilbrigðisstarfsfólks eða stjórnmála-
manna, þau eru vandamál okkar allra.
Landlæknisembættið óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og far-
sældar á nýju ári.
Sigurður Guðmundsson landlæknir
Heilsan í brennidepli
Um áramót
Almenningur veit að unnt er að
bera vissa ábyrgð á eigin heilsu.
Spurning: Er ekki nikótínávísun
hjá læknum ótæpileg? Hafa
rannsóknir sýnt að það sé ákjós-
anlegt? Alltaf er talað um
hversu margir látist af völdum
reykinga, en hvað látast margir
af völdum nikótínneyslu? Fólk
er í raun í neyslu þótt það veifi
ekki sígarettunni og þetta er
ávanabindandi. Var sagt að væri
tímabundið, en reynslan er önn-
ur.
Svar: Reykingar valda gífurlega
miklu heilsutjóni og sjúkdómar
af völdum reykinga kosta sam-
félagið mikla fjármuni. Það er
því mikið í húfi og sjálfsagt að
beita öllum tiltækum aðferðum
til að draga úr reykingum. Fyrir
utan ýmiss konar félagsleg úr-
ræði eru á markaði tvenns kon-
ar lyf sem hægt er að beita,
nikótín (selt sem Nicorette og
Nicotinell í ýmsum lyfjaformum)
og búprópíón (selt sem Zyban).
Zyban er lyfseðilsskylt og er
meðferðinni því stjórnað af
læknum. Nikótínlyfin hafa verið
seld án lyfseðils í mörg ár og þó
að læknar bendi reykingafólki á
þennan möguleika er notkun
þessara lyfja stjórnað af neyt-
endunum sjálfum. Af öllum
fíkniefnum sem við þekkjum er
nikótín sennilega það efni sem
framkallar fljótast og kröftugast
ávana og fíkn. Nikótín fram-
kallar ekki vímu og ekki er vitað
hvaða verkanir gera það svona
eftirsóknarvert. Notkun hjá
óvönum, hvort sem það eru dýr
eða menn, framkallar á mjög
stuttum tíma fíkn sem er svo
kröftug að það virðist erfiðara
að venja fólk af nikótíni en flest-
um ef ekki öllum öðrum fíkni-
efnum. Þetta er aðalástæðan
fyrir því hve erfiðlega gengur að
venja fólk af reykingum og ár-
angurinn er aldrei góður, hvaða
aðferðum sem er beitt. For-
varnir eru þess vegna það sem
er langmikilvægast í baráttunni
við tóbaksnotkun, þ.e.a.s. að
koma í veg fyrir að ungmenni
ánetjist nikótínfíkn.
Tjöruefnin eru krabbameins-
valdandi og skemma lungun en
nikótín hefur ýmis konar skað-
leg áhrif á hjarta- og æðakerfið.
Nýlega fannst áður óþekkt verk-
un nikótíns en það er að örva
nýmyndun æða. Nýmyndun æða
er nauðsynleg fyrir vöxt illkynja
æxla hvar sem er í líkamanum
og talið er mjög líklegt að nikó-
tín geti á þennan hátt örvað
vöxt krabbameina. Nikótínlyfj-
um er ætlað að hjálpa fólki að
hætta að reykja og er yfirleitt
ekki gert ráð fyrir lengri notkun
en frá 3 mánuðum upp í eitt ár,
eftir lyfjaformi. Segja má að af
tvennu illu sé skárra að nota
nikótínlyf en að reykja en mun-
urinn á þessu tvennu er kannski
minni en áður var talið. Það er
einnig skoðun margra að notkun
nikótínlyfja í meira en 3–6 mán-
uði geri ekki annað en að við-
halda nikótínfíkninni og vegna
skaðlegra verkana nikótínsins sé
slík langtímanotkun út í hött.
Fyrir utan að viðhalda nikótín-
fíkn og örva vöxt krabbameina
hafa nikótínlyfin ýmsar auka-
verkanir og má þar m.a. nefna
svima, höfuðverk, verki í liðum
og vöðvum, meltingartruflanir,
svefntruflanir, óþægilega
drauma, depurð, óþægilegan
hjartslátt og hjartsláttartrufl-
anir.
Hversu hættulegt er nikótín?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Skaðlegu efnin
eru tjöruefni
og nikótín
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið er á móti spurningum á virkum dög-
um milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok.
Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent
fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóhannssonar:
elmag@hotmail.com.
SLÆMAR matarvenjur barna
gætu orðið til þess að þau
verða ekki eins langlíf og for-
eldrar þeirra, að mati Fabian-
samtakanna í Bretlandi. Jafn-
framt upplýsa samtökin að eitt
af hverjum tíu börnum í Bret-
landi á við ofát að stríða. Fara
samtökin því fram á bann við
auglýsingum ætluðum börnum
um sælgæti og gosdrykki með-
al annars í barnatímum í sjón-
varpi. Samtökin skora á rík-
isstjórnina að veita betri
upplýsingar um hollt mat-
aræði, og jafnvel mæla með
matseðlum sem byggjast á
hollum mat, auk þess sem
meiri áherslu skuli leggja á
íþróttir í skólum.
Dr. Howard Stoate segir að
líkur séu á að börnin muni
ekki lifa eins lengi og foreldr-
arnir auk þess sem veikindi
muni hrjá þau í meira mæli.
„Farsótt ofáts vofir yfir,
sem getur stytt líf barnanna
okkar, en fátækt veldur því að
börn borða ekki nægilega
heilsusamlegt fæði. Yfirvöld,
foreldrar og fyrirtæki bera
ábyrgðina og eiga strax að
bregðast við þessari tíma-
sprengju.“
Ofát
hrjáir 10%
breskra
barna
DR. KRISTJÁN Sæmundsson
hlaut í gær heiðursverðlaun Verð-
launasjóðs Ásu Guðmundsdóttur
Wright árið 2002. Verðlaunin hlýt-
ur Kristján fyrir jarðfræðilegar
rannsóknir en þeim fylgja að þessu
sinni peningaverðlaun veitt af
Menningarsjóði Íslandsbanka. Er
þetta í þrítugasta og fjórða skipti
sem hin árlegu verðlaun eru veitt
úr Ásusjóði, en þau voru afhent við
hátíðlega athöfn í Norræna húsinu.
Í umsögn stjórnar sjóðsins segir
að Kristján hafi unnið brautryðj-
endastörf, annars vegar við kort-
lagningu og túlkun á jarðfræði
rekbelta, megineldstöðva og jarð-
hita þeirra svæða, og hins vegar á
notkun þekkingar til að gera jarð-
hita nýtanlegan fyrir byggðir
landsins.
„Íslendingar hafa orðið í farar-
broddi með að nota jarðhita sem
orkugjafa. Hafa rannsóknir á jarð-
hita landsins orðið þjóðinni heilla-
drjúgar, er þær hafa sýnt fram á
hvernig unnt sé að nota jarðvarma
bæði til raforkuframleiðslu og hús-
hitunar. Þessar rannsóknir eru
mikils metnar í dag, þar sem þær
hafa aukið kunnáttu okkar við að
nýta sérlega vistvæna orkulind,
sem í dag er vel þokkað meðal
þjóða heims,“ sagði dr. Sturla
Friðriksson, stjórnarformaður
Ásusjóðs, við afhendinguna.
Kristján Sæmundsson er fæddur
árið 1936. Hann lauk doktorsprófi
við Kölnarháskóla árið 1966. Að
námi loknu réðst Kristján til
starfa við jarðhitadeild Raforku-
málaskrifstofunnar og hefur starf-
að þar og við Orkustofnunina, nú
síðast sem deildarstjóri jarðfræði-
deildar á rannsóknarsviði. Kristján
hefur gegnt margþættum störfum
á sínu sviði, m.a. kennslustörfum
við Háskóla Íslands auk viðamikils
starfs á sviði kortagerðar og rann-
sókna á jarðhitasvæðum og vatns-
bólum. Kristján hefur ritað bækur
og fjölda greina um jarðfræðileg
efni. Kristján varð heiðursfélagi í
Hinu íslenska Náttúrufræðifélagi
árið 1997 og „honorary fellow“ í
ameríska jarðfræðifélaginu (Geo-
logical Society of America) árið
1988.
Ásusjóður er stofnaður sem
sjálfstæður verðlaunasjóður við
Vísindafélag Íslands. Í stjórn hans
sitja dr. Jóhannes Nordal, dr.
Sveinbjörn Björnsson og dr.
Sturla Friðriksson.
Morgunblaðið/Golli
Kristján Sæmundsson jarðfræðingur (t.v.) tekur við heiðursverðlaunum
Ásusjóðs úr hendi Sturlu Friðrikssonar, stjórnarformanns sjóðsins.
„Mikils metnar
rannsóknir“
Í TILEFNI af 60 ára kaupstaðar-
afmæli Akraneskaupstaðar verður
í dag stofnað Ljósmyndasafn
Akraness. Akranes fékk kaupstað-
arréttindi í upphafi árs 1942 og á
árinu sem er að líða hefur þess ver-
ið minnst með ýmsum hætti.
Ljósmyndasafn Akraness verð-
ur hluti af Héraðsskjalasafni Akra-
ness, en fyrsta framlag til safnsins
munu þeir Helgi Daníelsson og
Friðþjófur Helgason afhenda. Þeir
Helgi og Friðþjófur eru lands-
þekktir ljósmyndarar og Skaga-
menn og hafa þeir ákveðið að
ánafna Akraneskaupstað ljós-
myndasöfn sín. Munu þeir afhenda
hluta safna sinna við þetta tæki-
færi.
„Söfn þeirra feðga eru merkileg
og verðmæt fyrir sögu bæjarins og
er bæjarstjórn Akraness þeim
ákaflega þakklát fyrir framlag
þeirra. Þá verður í tengslum við
stofnun Ljósmyndasafns Akraness
kynntur ljósmyndavefur með þeim
myndum sem safnið á og verður
vefurinn aðgengilegur almenningi
og öðrum sem nálgast vilja myndir
í eigu safnsins. Þetta er nýjung í
safnarekstri sveitarfélaga sem án
vafa á eftir að vekja verðskuldaða
athygli,“ segir Gísli Gíslason bæj-
arstjóri.
Athöfnin hefst kl. 16 í Safnaskál-
anum á Görðum, Akranesi. Þangað
hefur m.a. verið boðið öllum þeim
sem setið hafa í bæjarstjórn Akra-
ness svo og þeim sem gegnt hafa
embætti bæjarstjóra.
Ljósmyndasafn
Akraness stofnað
SÚ ætlun Brian Mikkelsen, menn-
ingamálaráðherra Dana, að láta
hefja rannsókn á hinu opinbera
styrkjakerfi danska ríkisins, þar sem
milljónir eru veittar til handa dönsk-
um rithöfundum nýtur fulls stuðn-
ings á danska stjórnarheimilinu að
því er dagblaðið Politiken greindi frá
í gær. En að sögn blaðsins er Ester
Larsen (Venstre), sem situr fyrir
hönd stjórnarinnar í stjórn menn-
ingasjóðs ríkisins, ráðherranum
fyllilega sammála.
Ástæðu rannsóknarinnar má
rekja til gruns um að klíkuskapur og
vanhæfni einkenni útdeilingu
styrkja í núverandi formi, en ekki sé
rétt að rithöfundar eigi sjálfir þátt í
ákvörðunum um styrkveitingar til
kollega sinna. Að sögn Larsen hefur
innri rannsókn á störfum fulltrúa-
ráðsins, sem nú hefur staðið yfir,
vakið upp margar spurningar m.a.
um sanngirni þess að rithöfundur
þiggi ritlaun í 10 ár samfleytt, sam-
tímis því sem hann hljóti ævilangt
framlag vegna listsköpunar sinnar
sem og ferðastyrki.
Klíkuskapurinn skal burt