Morgunblaðið - 28.12.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 28.12.2002, Síða 39
GREINARGERÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 39 MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi greinargerð frá Fé- lagi eldri borgara um samkomulag ríkisins og Landssambands eldri borgara sem kynnt var í síðasta mánuði. Undir greinargerðina rita Ólafur Ólafsson, Benedikt Davíðs- son, Marías Þ. Guðmundsson, Karl Gústaf Ásgrímsson, Pétur Guð- mundsson og Einar Árnason. „Tæp fjögur ár eru nú síðan rík- isstjórnin skipaði sérstaka sam- ráðsnefnd, sem skyldi hafa það verkefni að fjalla um tillögur til breytinga á lögum og önnur helstu atriði sem varðaði hag aldraðra. Félagasamtök aldraðra hafa á undanförnum árum gagnrýnt það að þessi nefnd hafi aðeins verið kölluð saman til þess eins að kynna henni fréttatilkynningar stjórn- valda um fyrirfram ákveðnar að- gerðir í málefnum aldraðra en ekki til þess að vinna að tillögugerð. Nú í haust brá út af þessari venju þegar skipaður var starfshópur fulltrúa ríkisvalds og Landssam- bands eldri borgara (LEB). Þessi starfshópur var skipaður eftir að fulltrúar LEB í hinni formlegu nærri fjögurra ára gömlu samráðs- nefnd höfðu lagt fram kröfur gagn- vart ríkisvaldinu. Kröfur um úr- bætur í málefnum eldri borgara, bæði bætta aðstöðu sjúkra aldr- aðra, sem hafa beðið hundruðum saman í mörg misseri eftir nauð- synlegri þjónustu, og einnig kröfur um að bæta hag þeirra sem fá greiðslur lífeyris frá almannatrygg- ingum. Fyrrnefnda verkefnið var talið mjög brýnt vegna þess að bæði ríki og sveitarfélög, einkum á stór- Reykjavíkursvæðinu, höfðu verið talin bregðast skyldum sínum í þessum efnum um langt skeið. Það verkefni hafði því forgang hjá starfshópnum. Það er ekki einungis að yfir 300 manns sem hafa verið taldir með mjög brýna þörf fyrir vistun á hjúkrunarheimilum séu nú á bið- lista eftir slíkri vistun, heldur hafa þær stofnanir sem reka slík hjúkr- unarheimili einnig átt í miklum rekstrarvanda. Þær hafa jafnvel hótað lokunum vegna þess að ekki hefur náðst viðunandi samkomulag við ríkið um greiðslu rekstrar- gjalda. Nýrri, ódýrari og eftirsóknar- verðari vistunarform, svo sem heimahjúkrun og heimilishjálp, sem átt hafa í vanda m.a. vegna lé- legrar samþættingar, hafa heldur ekki verið nýtt sem skyldi. Framkvæmdasjóði aldraðra hef- ur heldur ekki verið búin sú staða sem honum í upphafi var ætlað, að geta staðið undir verulegum hluta af kostnaði við uppbyggingu þess- ara þjónustustofnana. Langmestur tími starfshópsins fór í að afla upplýsinga um og ræða þessi mál. Niðurstöður af þessari vinnu eru tillögur sem gera ráð fyr- ir margvíslegum úrbótum. Tillögur sem þegar hafa í öllum megin atriðum verið kynntar í fjöl- miðlum og ríkisstjórnin hefur skrif- að undir samkomulag um að hún muni beita sér fyrir að nái fram að ganga eru í aðalatriðum þessar: Vífilsstaðaspítali, sem staðið hef- ur auður og ónotaður í fleiri mánuði og ekki kostar nema fáa tugi millj- óna króna að koma í rekstrarhæft ástand, verður þegar í byrjun næsta árs tekinn í notkun fyrir 70– 80 aldraða hjúkrunarsjúklinga. Þá er til viðbótar gert ráð fyrir að hjúkrunarrýmum verði á næstu tveim til þrem árum fjölgað um 150–200. Það er einnig í tillögunum gert ráð fyrir að lögunum um fram- kvæmdasjóð aldraðra verði breytt þannig að öllu innheimtufé sjóðs- ins, sem verður kannski um 800 milljónir króna á næsta ári, verði eftirleiðis varið til uppbyggingar og viðhalds stofnana fyrir aldraða en ekki að meirihluta eins og nú er til greiðslu almennra rekstrargjalda. Þá eru skýr ákvæði um að efla mjög heimaþjónustu, aðhlynningu og hjúkrun og að verja um 150 milljónum króna á næstu tveim til þrem árum, til viðbótar núverandi framlögum, til þess að efla sam- þættingu þessarar starfsemi. Á næstu tveim árum verður fjölgað dagvistarrýmum fyrir aldr- aða um allt að hundrað og um tvo tugi fyrir hvíldarinnlagnir, sérstak- lega fyrir heilabilaða. Allmikill viðbótarkostnaður verður auðvitað af þessu eða skv. áætlunum um 1,5–2 milljarðar króna umfram það sem fjárlagatil- lögur gerðu ráð fyrir. Það er vitaskuld raunhæft að gera ráð fyrir þessum auknu út- gjöldum, því þessi mál hafa verið látin víkja fyrir öðrum á undan- förnum árum. Landssamband eldri borgara treystir því að öllum þessum verk- efnum verði hrundið í framkvæmd hið fyrsta og að áfram verði síðan haldið að efla þessa þjónustuhætti. Það er enda brýn þörf á því sam- kvæmt þeirri fimm ára áætlun sem heilbrigðisráðherra kynnti Alþingi í fyrravetur. Um hitt aðalviðfangsefni þessa starfshóps, þ.e. bætta efnahagslega afkomu aldraðra, einkum þeirra sem að mestu leyti þurfa að reiða sig á greiðslu almannatrygginga til framfærslu, var einnig ítarlega fjallað. Þar varð róðurinn ennþá torsótt- ari, einkum að því er varðaði leiðir sem fulltrúar aldraðra hafa lagt mesta áherslu á, svo sem að fá með einhverju móti fellda niður skatta af tekjum sem ekki væru hærri en hæstu mögulegar trygginga- greiðslur. Eða raunverulegar hækkanir tryggingagreiðslna sem ekki eru bara nauðvörn eins og tekjutryggingaraukinn svokallaði er í raun og veru. Eina leiðin var því að huga sér- staklega að þeim er lifa að mestu á lægstu launum þ.e. tekjutryggingu og tekjutryggingarauka og verða fyrir mjög harkalegum skerðingum ef þeir reyna að afla sér einhverra viðbótartekna, eða hafa mjög lágar tekjur frá lífeyrissjóðum. Hækkanir vegna forsendna fjár- lagafrumvarpsins og breytingar þær sem samkomulag náðist um í starfshópnum og ríkisstjórnin hef- ur lýst yfir að hún muni tryggja framgang eru eftirfarandi: Grunnlífeyrir (ellilífeyrir) hækk- ar aðeins vegna forsendna fjárlaga- frumvarpsins um 3,2 % eða 640 kr. á mánuði. Tekjutrygging hækkar frá 1. jan- úar 2003 um 3.028 kr. á mánuði vegna samkomulagsins og um 1.100 kr. vegna forsendna fjárlagafrum- varpsins, eða um samtals 4.128 kr. á mánuði. Tekjutryggingarauki hækkar frá 1. janúar 2003 um 2.255 kr. á mán- uði vegna samkomulagsins og vegna forsendna fjárlagafrum- varpsins um 488 kr. á mánuði, eða samtals um 2.743 kr. á mánuði. Hinn 1. janúar 2003 hækka óskertar greiðslur TR vegna sam- komulagsins og forsendna fjárlaga um 7.511 kr. á mánuði hjá þeim sem engar aðrar tekjur hafa. Hjón og sambýlisfólk fá sömu krónutöluhækkun hvort fyrir sig. Þeir sem hafa heimilisuppbót fá auk þess hækkun um 526 kr. á mán- uði. Fleiri fá tekjutryggingarauka frá 1. janúar 2003 en í dag vegna breyt- inga á skerðingarhlutfalli úr 67% í 45%. Það verða um 10.000 ellilífeyr- isþegar sem fá einhvern tekju- tryggingarauka. Allra mesta hækk- un fá þeir einstaklingar sem voru áður með 22.772 kr. í viðmiðunar- tekjur á mánuði. Þessi hópur hækkar um 12.521 kr. á mánuði og þeir sem hafa heimilisuppbót um 13.047 kr. á mánuði. Mesta hækkun hjóna og sambýlisfólks fá þeir sem í dag eru með viðmiðunartekjur 17.082 kr. á mánuði og hækka þau um 11.147 kr. á mánuði hvort fyrir sig. Allar þessar tölur eru miðaðar við greiðslur í nóvember 2002. Í desember er lífeyrir hærri vegna desemberuppbótar en þær upp- bætur eru ekki meðtaldar í áður- nefndum tölum. Frá 1. janúar 2004 hækkar tekju- tryggingin um 2.000 kr. á mánuði og tekjutryggingaraukinn um 2.000 kr. á mánuði samkvæmt samkomu- laginu frá 19. nóvember 2002. Niðurstaðan er þá sú, að í árs- byrjun 2004 hækka greiðslur til um 10.000 lífeyrisþega, sem hafa fulla tekjutryggingu á árinu 2003, um 11.511 til 16.521 kr. á mánuði, mið- að við greiðslur í nóvember 2002. Greiðslur til 11.500 lífeyrisþega, sem hafa skerta tekjutryggingu, hækka um 6.768 krónur í ársbyrjun 2004 miðað við greiðslur í nóvem- ber 2002. Þannig fá 83% lífeyris- þega þessa hækkun. Það er hinsvegar ljóst að veru- legur hluti af þessum hækkunum verður tekinn til baka í sköttum, hækkuðu lyfjaverði ofl. ofl. þannig að baráttan heldur áfram. Það er því miður ennþá langt í land að áunninn lífeyrissjóðsréttur og lífeyrir frá TR fyrir heila starfs- ævi veiti öldruðum viðunandi líf- eyri.“ Samkomulag Landssambands eldri borgara og ríkisins TANN- LÆKNAR TANNSMIÐIR TANNTÆKNAR TANNFRÆÐINGAR & AÐRIR VIÐSKIPTAMENN! ÓSKUM YKKUR GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR OG ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU Hafsteinn og Björgvin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.