Morgunblaðið - 18.01.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Dálítillar þreytu er nú farið að gæta í röðum guðsmanna þar sem kirkjan leggur áherslu á
mikilvægi þess að fólk staðfesti ráð sitt.
Endurmenntunarstarf Garðyrkjuskólans
Aðsóknarmet
sett í fyrra
Garðyrkjuskóli ríkis-ins á Reykjum íÖlfusi er með öfl-
uga starfsemi, ekki síst á
sviði endurmenntunar og
hefur skólinn nýlega kynnt
starfsemina og námskeiða-
haldið á nýju ári. Í yfirliti
yfir endurmenntunarnám-
skeið Garðyrkjuskólans
fyrir fagfólk árið 2003 birt-
ist afar fjölbreyttur pakki
sem spannar 39 námskeið.
Fjölbreytileiki þeirra sést á
því að skoða nokkur dæmi:
Loftslagsstýring í ylrækt,
áburðarblandarar – með-
ferð og notkun, verndun
fornminja og náttúru í
skógrækt, garðrækt í Jap-
an – þemadagur, vefja-
ræktun, skógarnytjar og
lífrænar varnir í grænmet-
is- og blómaræktun. Og þannig
mætti halda lengi áfram.
Magnús Hlynur Hreiðarsson er
endurmenntunarstjóri Garðyrkju-
skólans og hann svaraði nokkrum
spurningum Morgunblaðsins.
– Segðu okkur eitthvað fyrst frá
starfsemi Garðyrkjuskólans og
endurmenntunardeild hans …
„Í dag er boðið upp á nám á sex
námsbrautum við Garðyrkjuskól-
ann en tekið er inn í skólann annað
hvert ár. Brautirnar eru: skrúð-
garðyrkju-, garðplöntu-, ylrækt-
ar-, umhverfis-, skógræktar-, og
blómaskreytingabraut. Núna er-
um við með fimmtíu nemendur í
staðbundnu námi og aðra fimmtíu
nemendur í þriggja ára skógrækt-
arnámi á Suðurlandi og Norður-
landi. Við skólann er rekið öflugt
endurmenntunarstarf fyrir fagfólk
í græna geiranum og einnig er í
boði fjölbreytt úrval námskeiða
fyrir áhugafólk.“
– Segðu okkur eitthvað frá þeim
námskeiðum sem framundan eru,
hvaða svið þau spanna …
„Árið 2003 er áætlað að halda
um 40 námskeið fyrir fagfólk, sem
dreifast yfir árið. Námskeiðin
verða haldin víða um land þótt flest
þeirra verði haldin í húsakynnum
Garðyrkjuskólans. Við leggjum
áherslu á að hafa góða leiðbeinend-
ur á námskeiðunum, bæði íslenska
og erlenda. Yfirleitt er um dags-
námskeið að ræða en stundum
standa þau í nokkra daga, t.d.
verðum við með vikunámskeið í
blómaskreytingum í vor.“
– Er þetta eingöngu vettvangur
fyrir fagfólk?
„Stefna skólans hefur verið sú
að einbeita okkur fyrst og fremst
að fagfólki, bjóða upp á góð nám-
skeið fyrir þá sem starfa í grein-
inni en síðan eru alltaf einhver
önnur námskeið sem fylgja með
fyrir áhugafólk eins og t.d. skóg-
og trjárækt fyrir sumarbústaða-
eigendur, trjáklippingar, haust-
skreytingar og fleira og fleira.“
– Eru þetta vel sótt nám-
skeið … geturðu nefnt tölur?
„Já, námskeiðin eru mjög vel
sótt hjá okkur, það er ekki hægt að
kvarta undan því. Á síðasta ári vor-
um við með um 35 námskeið og
1.200 þátttakendur og
settum þar með nýtt
met hvað varðar að-
sóknina.“
– Hvaða nýjungar er
boðið upp á í endur-
menntunarstarfinu sem
taldar eru áhugaverð-
astar?
„Það nýjasta er þriggja ára
skógræktarnám fyrir skógar-
bændur á Suðurlandi og Norður-
landi, sem kallast „Grænni skóg-
ar“. Þetta nám er í nám-
skeiðaformi sem hefur gefist mjög
vel. Námskeiðin eru metin til ein-
inga á framhaldsskólastigi og lýk-
ur með sérstakri viðurkenningu
frá Garðyrkjuskólanum. Síðan er-
um við í sérstöku samstarfi við
Skógrækt ríkisins um handverks-
námskeið sem kallast „Lesið í
skóginn og tálgað í tré.“ Það eru
mjög skemmtileg námskeið sem
hafa verið mjög vinsæl.“
– Hversu mikilvægur skóli er
Garðyrkjuskólinn?
„Þetta er toppskóli að mínu mati
enda mikil aðsókn að honum og
góður andi á meðal starfsmanna og
nemenda. Við skilum mjög góðu
fagfólki út í greinina og sinnum öfl-
ugu fræðslu-, rannsókna- og þró-
unarstarfi í þágu íslenskrar garð-
yrkju. Þá er sérstaklega gaman að
sjá hvað nemendur eru áhuga-
samir um námið og hafa gaman af
því sem þeir eru að gera og sjá
þannig mikla framtíð í faginu.
Einnig er félagslífið mjög gott og
má þá minna á að nemendur verða
með opið hús í skólanum sumar-
daginn fyrsta, 24. apríl nk.“
– Eru Íslendingar grænir í sér?
„Já, það er engin spurning. Það
er gríðarlegur áhugi í samfélaginu
og mikil vakning á sviði þeirra
mála sem tengjast garðyrkju og
umhverfismálum. Áhugi á skóg-
rækt og landgræðslu er alltaf að
aukast og blómaskreyt-
ingar eru líka mjög vin-
sælt fag.“
– Ef það blundar
garðyrkjumaður í ein-
hverjum sem les
þetta …
„Já, ég hvet fólk til að
vera í sambandi við
okkur ef það vill forvitnast um
skólann og starfsemi hans.
Ég vil líka vekja athygli á
heimasíðu skólans, en slóðin á
hana er www.reykir.is. Þar má
finna allar upplýsingar um námið
og þau námskeið sem framundan
eru.“
Magnús Hlynur Hreiðarsson
Magnús Hlynur Hreiðarsson
er fæddur í Vogum í Vatns-
leysustrandarhreppi 4. sept-
ember 1969. Hann er stúdent
frá fjölmiðlabraut Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, búfræðingur
frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri og garðyrkjufræðingur
frá Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum í Ölfusi. Magnús
starfar sem endurmennt-
unarstjóri Garðyrkjuskólans
ásamt því að vera blaðamaður
hjá Dagskránni á Selfossi og
fréttaritari Ríkisútvarpsins á
Suðurlandi. Magnús Hlynur er
kvæntur Önnu Margréti Magn-
úsdóttur, skólahjúkrunarfræð-
ingi á Selfossi, og eiga þau
þrjá syni, Fannar Frey, 11 ára,
Arnar Helga, 6 ára, og Veigar
Atla, eins og hálfs árs.
… námskeiðin
eru metin til
eininga á
framhalds-
skólastigi
FORSTJÓRI Landhelgisgæslunnar
bauð nýlega fyrrverandi skipherr-
um Landhelgisgæslunnar að prófa
nýjan stýrisbúnað varðskipanna.
Var farið í stutta ferð um Kolla-
fjörðinn á varðskipinu Ægi áður en
það lagði af stað í lengri ferð.
Tilgangur ferðarinnar var að gefa
þeim kost á að kynna sér breyt-
ingar á stjórnhæfni varðskipanna
Ægis og Týs eftir að tvö ný stýri
voru sett á þau í Póllandi árið 2001.
Breytingin var gerð eftir að Rann-
sóknarnefnd sjóslysa benti á í
nefndaráliti árið 1997 ,,að varðskip
eins og Ægir sé ekki með fullnægj-
andi stjórnbúnað til siglingar við
erfiðar aðstæður til björgunar þar
sem um er að ræða eitt stýrisblað á
milli tveggja skrúfna. Tveggja
skrúfna skip þurfi að vera búið
tveimur stýrisblöðum, stýrisblaði
fyrir aftan hvora skrúfu.“
Það kom fram í máli Guðmundar
Kjærnested að vissulega hefðu
stýrin góða eiginleika en hafði
áhyggjur af því að stýrin væru í
hættu ef skipin lentu í hafís. Eðli-
lega þarf að hafa það í huga þegar
siglt er við slíkar aðstæður.
Skipherrar Landhelgisgæslunnar
eru á einu máli um að orðið hafi
gjörbreyting á stjórnhæfni skip-
anna til batnaðar, enn meiri en til-
raunasiglingar í tanki gáfu til
kynna.
Halldór B. Nellett, skipherra á varðskipinu Ægi, ásamt fyrrverandi skipherrum en þeir eru Ólafur Valur Sigurðs-
son, Sigurður Þ. Árnason, Þröstur Sigtryggsson og Guðmundur Kjærnested.
Fyrrverandi skipherrar
prófa ný stýri varðskipanna
vogi. Ingólfur segir að þetta komi sér
mjög vel fyrir aðrar deildir spítalans.
„Það verður legudeild fyrir skurð-
lækningar og legudeild fyrir lyf-
lækningar á þessum deildum sem
losna við Hringbrautina. Rýmið í
Fossvogi er í skoðun hjá okkur,“ seg-
ir Ingólfur.
Hann bendir á að lungnadeild,
sem áður var á Vífilsstöðum, hafi
INGÓLFUR Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna Land-
spítalans – háskólasjúkrahúss, segir
að húsnæði, sem losnar þegar nýr
barnaspítali verður tekinn í notkun
við Hringbraut, verði notað til að
leysa brýnasta húsnæðisvanda spít-
alans.
Barnadeildir eru bæði á Landspít-
alanum við Hringbraut og í Foss-
verið færð á Landspítalann. Það og
fleira hefur þrengt að starfseminni.
Nýr barnaspítali Hringsins verður
formlega vígður 26. janúar nk.
Fyrsta skóflustungan var tekin 19.
nóvember 1998. Ingólfur segir að
það taki tíma að færa barnadeildina
en ráðgert er að starfsemin verði
komin af stað í nýju húsakynnunum
um miðjan febrúar.
Barnaspítali Hringsins vígður um næstu helgi
Leysir brýnan húsnæðisvanda