Morgunblaðið - 18.01.2003, Page 25
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 25
VERÐMERKINGAR matvöruverslana voru í ólagi í 4,3% tilvika sam-
kvæmt nýrri könnun Samkeppnisstofnunar á 14.600 vörum í 75 versl-
unum. Athugaðar voru verðmerkingar í hillu og hvort samræmi væri
milli hilluverðs og kassaverðs. „Í ljós kom að í 1,6% tilvika var varan á
hærra verði í kassa en í hillu og í 1,3% tilvika var varan óverðmerkt í
hillu. Þessi niðurstaða er mun betri en undanfarin ár. Til samanburðar
má geta þess að árið 2001 voru verðmerkingar ófullnægjandi í 7,9% til-
vika og í 10,6% tilvika árið 2000,“ segir í niðurstöðum.
Samkeppnisstofnun lýsir ennfremur yfir ánægju með þann bata sem
orðið hefur á verðmerkingum í matvöruverslunum eftir að samkeppnis-
yfirvöld fengu heimild í lögum til þess að beita sektum ef ekki er farið
að reglum um verðmerkingar.
Niðurstaðan á verðmerkingum á árinu 2002 er byggð á fjórum könn-
unum sem stofnunin gerði á sl. ári, þ.e. janúar, apríl, júlí og október,
sem gera samtals 14.600 vörur í þessum 75 matvöruverslunum.
,-
*/
#
>& > >; >' > > > > '
<
%
-?@
-(? @
-)?A
?
(- (-)?
3
# ! ##
Verðmerkingar
matvöruverslana batna
UMHVERFISSTOFNUN hefur nú
sérstakt eftirlit með öllum innflutn-
ingi á hnetum og hnetuafurðum frá
Kína og fíkjum og hnetum frá Tyrk-
landi. Eiturefnið aflatoxín hefur
mælst í þessum afurðum, sam-
kvæmt frétt frá Umhverfisstofnun,
og er innflutningur því aðeins heim-
ilaður að tilteknum skilyrðum sé
fullnægt. Verða innflytjendur að
framvísa rannsóknavottorði sem
hægt er að rekja til viðkomandi
sendingar.
Talið er að eiturefnið aflatoxín
geti valdið krabbameini í lifur.
„Sveppaeitur (mykotoxín) eru
náttúruleg eiturefni sem framleidd
eru af ákveðnum tegundum myglu-
sveppa. Myglusveppir vaxa við
ákveðin skilyrði í eða á ýmsum land-
búnaðarvörum, bæði á akrinum og/
eða við geymslu þessara vara. Til
eru nokkur hundruð tegundir
sveppaeiturefna en tvö þeirra eru
algeng vandamál í matvælum og eru
það eiturefnin aflatoxín og okratoxín
A. Erfitt getur reynst að koma í veg
fyrir myndun eiturefnanna í korn-
vörum og öðrum vörum þegar hag-
stæð skilyrði eru í umhverfinu eins
og ákveðið hitastig og rakastig.“
„Margir myglusveppir framleiða
eiturefni í matvælum sem þola hitun
og jafnvel suðu. Verkun eiturefn-
anna eru margvísleg og geta þau
bæði valdið bráðum eitrunaráhrifum
og haft langtímaáhrif á ýmis líffæra-
kerfi. Sum sveppaeitur hafa áhrif á
ónæmiskerfið, önnur geta haft ýmis
varanleg skaðleg áhrif, og enn önn-
ur geta haft stökkbreytandi og/eða
krabbameinsvaldandi áhrif í
ákveðnum móttækilegum tegundum
dýra og geta einnig valdið bráðum
eða krónískum sjúkdómum í heim-
ilisdýrum, búfé og fólki. Í mörgum
tilfellum eru áhrif sveppaeiturs á
heilsu manna ekki þekkt og er ekki
vitað hve stór skammtur eiturs hef-
ur áhrif hana,“ segir í pistli um afla-
toxín á heimasíðu Hollustuverndar
ríkisins.
Sveppa-
eitur í
hnetum
og fíkjum
Hnetubændur glíma við eiturefni
myglusveppa, t.d. aflatoxín.
VIÐBRÖGÐ almennings við ís-
lenska lággjaldaflugfélaginu Iceland
Express eru mun betri en forsvars-
menn fyrirtækisins bjuggust við,
segir í fréttatilkynningu.
Fyrstu vikuna seldust rúm 14.000
sæti og voru um 80% þeirra bókuð í
gegnum Netið. Flugfélagið hefur
selt ívið fleiri sæti til Kaupmanna-
hafnar en London, en það flýgur á
þessa tvo áfangastaði. Framboð á
farmiðum er ennþá gott en um
40.000 sæti eru enn í boði á undir
20.000 krónur.
Þrátt fyrir að Iceland Express
hafi enn ekki verið kynnt erlendis
kemur 20% bókana þaðan. Talsmenn
fyrirtækisins vilja meina að Íslend-
ingar erlendis séu fljótir að nýta sér
nýja þjónustu sem þessa, segir í
fréttinni.
Annir hjá
lággjalda-
félagi
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.